25 mars 2026

/

Mál nr. 22/2024 - Úrskurður

Mál nr. 22/2024

 

Úrskurður kærunefndar jafnréttismála

 

 A

gegn

B ehf.

Frávísun. Þrotabú.

Undir rekstri máls fyrir kærunefnd jafnréttismála var bú kærða tekið til gjaldþrotaskipta. Að mati kærunefndar jafnréttismála tók þrotabú ekki við aðild málsins, sbr. 1. og 2. mgr. 72. gr. laga nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl. Voru því ekki skilyrði að lögum til þess að nefndin tæki málið til frekari meðferðar. Var því vísað frá kærunefnd jafnréttismála.

 

  1. Á fundi kærunefndar jafnréttismála 25. mars 2026 er tekið fyrir mál nr. 22/2024 og kveðinn upp svohljóðandi úrskurður:

     

  2. Með kæru, dags. 4 september 2024, kærði A þá ákvörðun B ehf. að segja ráðningarsamningi hans upp hinn 31. júlí 2024. Í kæru kemur fram að kærandi hafi verið í fæðingarorlofi, sem hann hafði áður tilkynnt kærða um, þegar honum var sagt upp starfi sínu. Af kæru verður ráðið að kærandi telji að kærði hafi með uppsögninni brotið gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 19. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.

     

  3. Kæran var kynnt kærða með bréfi, dags. 15. október 2024. Svör kærða bárust með tölvupóstum, dags. 7. og 8. nóvember 2024. Í síðastnefndum pósti var upplýst um að bú kærða hefði verið tekið til gjaldþrotaskipta.

     

  4. Með tölvupósti lögmanns kæranda, dags. 18. nóvember 2024, var upplýst um að lögmaðurinn hefði fengið upplýsingar um að frá og með upphafi þess mánaðar hefði félagið C ehf. tekið við skyldum atvinnurekanda og öllum ráðningarsamningum kærða. Frekari upplýsingar voru veittar með tölvupósti lögmanns kæranda, dags. 10. febrúar 2025.

     

  5. Með bréfi kærunefndar jafnréttismála, dags. 13. febrúar 2025, var skiptastjóra þrotabús kærða ritað bréf og óskað eftir afstöðu þrotabúsins til kæru og fyrirliggjandi gagna. Þá var óskað afstöðu þrotabús kærða til aðildar að málinu.

     

  6. Svar skiptastjóra er dags. 5. mars 2025. Þar kom fram að skiptastjóri hefði engar upplýsingar úr gögnum félagsins eða frá fyrirsvarsmanni kærða um uppsögn kæranda. Skiptastjóri sendi frekari upplýsingar með tölvupósti, dags. 17. mars 2025, með upplýsingum frá fyrirsvarsmanni kærða. Þar greindi að fyrrnefnt félag hefði tekið yfir einhverja verksamninga félagsins. Í svari fyrirsvarsmannsins kom m.a. fram að kærða hefði verið sagt upp störfum vegna rekstrarörðugleika.

     

    Niðurstaða

  7. Samkvæmt 1. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, gilda lögin um stjórnsýslu á sviði jafnréttismála á því sviði sem löggjöf um jafnréttismál tekur til, m.a. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, og um störf kærunefndar jafnréttismála. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 151/2020 tekur kærunefnd jafnréttismála til meðferðar kærur sem til hennar er beint samkvæmt framansögðu og kveður upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði laganna hafi verið brotin.

     

  8. Undir rekstri máls þessa fyrir kærunefnd var bú kærða tekið til gjaldþrotaskipta hinn 7. nóvember 2024. Samkvæmt 1. og. 2. mgr. 72. gr. laga nr. 21/1991, um gjaldþrotaskipti o.fl., tekur þrotabú við fjárhagslegum réttindum og skyldum skuldara nema réttarreglur, eða löggerningur kveði á um annað, eða það leiði af eðli viðkomandi réttinda eða skyldna.

     

  9. Í máli þessu gerir kærandi kröfu um að úrskurðað verði að kærði hafi brotið gegn 1. mgr., sbr. 2. mgr. 19. gr. laga nr. 150/2020, um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Að mati nefndarinnar getur slík krafa hvorki talist fela í sér fjárhagsleg réttindi né skyldu sem þrotabú skuldara tekur við. Þá verður ekki séð að það leiði af eðli slíkrar kröfu að í henni felist réttindi eða skylda sem þrotabú tekur við enda felst ekki í úrskurði kærunefndar jafnréttismála annað en niðurstaða um það hvort brotið hafi verið gegn fyrrnefndri löggjöf.

     

  10. Þá verður ekki séð að yfirtaka nafngreinds félags á ráðningarsamningum starfsmanna kærða í kjölfar gjaldþrotsins hinn 7. nóvember 2024 komi hér frekar til athugunar. Í því sambandi athugast að af uppsagnarbréfi til kæranda, dags. 31. júlí 2024, má ráða að þriggja mánaða uppsagnarfresti kæranda hafi lokið áður en fyrrnefnd yfirtaka er sögð hafa átt sér stað.

     

  11. Að öllu framangreindu virtu telur nefndin að ekki séu skilyrði að lögum fyrir því að nefndin taki málið frekar fyrir. Er því óhjákvæmilegt að vísa málinu frá, sbr. 1. mgr. 23. gr. reglugerðar nr. 1320/2024, um kærunefnd jafnréttismála.

     

  12. Uppkvaðning úrskurðar í málinu hefur tafist umfram þann tveggja mánaða frest, sem nefndin hefur til að úrskurða í máli eftir að gagnaöflun í því er lokið, samkvæmt 5. mgr. 9. gr. laga nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála. Er ástæða þess einkum mikill fjöldi mála sem er til meðferðar hjá nefndinni auk breytinga á vistun nefndarinnar og starfsmannahaldi hennar.

Ú r s k u r ð a r o r ð

Máli þessu er vísað frá kærunefnd jafnréttismála.

 

Ari Karlsson

Andri Árnason

Maren Albertsdóttir