26 mars 2026

/

1348/2026. Úrskurður frá 26. mars 2026

Hinn 26. mars 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1348/2026 í máli ÚNU 26020007.
 

Beiðni um endurupptöku

Með erindi, dags. 12. febrúar 2026, fór […] fram á að úrskurðar­nefnd um upplýsingamál tæki upp mál ÚNU 25080006 sem lauk með úrskurði nr. 1334/2026 frá 12. febrúar 2026. Í erindinu kemur fram að verulegir annmarkar hafi verið á rannsókn og máls­með­ferð nefndarinnar. Nefndin hafi lagt til grundvallar að þau gögn sem beiðandi hefði óskað eftir teld­ust ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga, án þess að rannsaka frekar atriði eins og hvað fælist í þeirri fullyrðingu embættis landlæknis að gögnin væru ekki fyrirliggjandi, í hvaða mynd gögn­in væru varðveitt og aðgengileg, hvaða tiltekna vinnsla væri talin nauðsynleg áður en afhend­ing gæti farið fram, umfang vinnunnar og eðli hennar o.fl.
 
Þá yrði ekki séð að afstaða hafi verið tekin til þeirra fullyrðinga landlæknis að þau gögn og upplýs­ing­ar sem óskað væri eftir féllu undir rannsóknarskyldu eða leyfisveitingar vegna vísinda­rann­sókna, þrátt fyrir að beiðnin hafi beinlínis tekið til ópersónugreinanlegra gagna. Með vísan til þessa sé óskað eftir endurupptöku málsins.
 

Niðurstaða

Í úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1334/2026 frá 12. febrúar 2026 var það niður­staða nefndarinnar að ekki væru forsendur til að draga í efa staðhæfingu embættis landlæknis að gagn með þeim upplýsingum sem endurupptökubeiðandi óskaði eftir lægi ekki fyrir í skilningi upp­lýs­inga­laga og að embættinu væri á grundvelli laganna óskylt að ráðast í þá vinnu sem það út­heimti að verða við beiðninni. Var hin kærða ákvörðun því staðfest.
 
Í 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, er mælt fyrir um endurupptöku stjórnsýslumáls:
 

Eftir að stjórnvald hefur tekið ákvörðun og hún verið tilkynnt á aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef:

  1. ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða
  2. íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa veru­lega frá því að ákvörðun var tekin.

Eftir að þrír mánuðir eru liðnir frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun skv. 1. tölul. 1. mgr., eða aðila var eða mátti vera kunnugt um breytingu á atvikum þeim sem ákvörð­un skv. 2. tölul. 1. mgr. var byggð á, verður beiðni um endurupptöku máls þó ekki tekin til greina, nema að fengnu samþykki frá öðrum aðilum málsins. Mál verður þó ekki tekið upp að nýju ef ár er liðið frá fyrrgreindum tímamörkum nema veigamiklar ástæð­ur mæli með því.

 
Endurupptökubeiðandi telur að á rannsókn og málsmeðferð nefndarinnar hafi verið slíkir annmark­ar. Af því tilefni tekur nefndin fram að skýringar embættis landlæknis á umfangi þeirrar vinnu sem það krefðist að verða við beiðni endurupptökubeiðanda töldust nægjanlegar til að unnt væri að leggja mat á hvort þær upplýsingar sem óskað var eftir teldust vera fyrirliggjandi gagn í skilningi upplýs­inga­laga. Þar sem málinu var ráðið til lykta á þessum grundvelli var ekki nauðsynlegt að taka af­stöðu til þýðingar laga um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði í úrskurðinum.
 
Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál eru skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga ekki uppfyllt, og verð­ur málið því ekki endurupptekið á þeim grundvelli. Þegar 24. gr. stjórnsýslulaga sleppir kann úr­skurðarnefnd um upplýsingamál eftir atvikum að vera rétt og heimilt að endurupptaka mál á ólög­festum grundvelli. Í því tilviki sem hér um ræðir kemur það að mati nefndarinnar til álita ef rök­studdar vísbendingar eru um að á úrskurðum hennar séu veru­legir annmarkar að lögum. Úr­skurð­arnefndin telur að slíkar vísbendingar séu ekki til staðar. Að þessu virtu telur úrskurðar­nefnd­in að ekki séu til staðar vísbendingar um að á úrskurð­in­um hafi verið verulegur ann­marki að lögum.
 
Með vísan til framangreinds er hafnað beiðni um endurupptöku máls ÚNU 25080006 sem lauk með úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1334/2026, frá 12. febrúar 2026.
 

Úrskurðarorð

Beiðni […], dags. 12. febrúar 2026, um endurupptöku máls ÚNU 25080006 sem lauk með úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1334/2026, frá 12. febrúar 2026, er hafnað.
 
 
 
 
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir