01 apríl 2026
/
Mál nr. 35/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 35/2026
Miðvikudaginn 1. apríl 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 14. janúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. nóvember 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 25. ágúst 2025 og var umsóknin samþykkt 15. september 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. nóvember 2025, var kæranda tilkynnt að greiðslur til hennar væru stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 14. janúar 2026. Með bréfi, dags. 15. janúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 11. febrúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 16. febrúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi verið boðuð á námskeið hjá Vinnumálastofnun 17. október 2025. Kærandi hafi verið veik á þeim tíma og tilkynnt forföll. Kærandi hafi í kjölfarið verið boðuð á námskeið sem hafi átt að fara fram fimmtudaginn 23. október. Að sögn kæranda hafi hún séð boðunina og ætlað að mæta en hafi lesið boðunina rangt. Kærandi sé mjög lesblind sem hafi orðið til þess að hún hafi ruglast á vikudegi námskeiðsins. Kærandi hafi mætt rétt fyrir klukkan 10:00 föstudaginn 24. október og rætt við starfsmann í afgreiðslu. Kærandi hafi útskýrt ástæður mistaka sinna og starfsmaðurinn hafi sent skýringarbréf fyrir hennar hönd. Skýringarbréfið hafi verið lesið fyrir kæranda eftir að það hafi verið sent en það hafi ekki innihaldið allar þær upplýsingar sem hún hafi veitt.
Þann 3. nóvember hafi kærandi fengið skilaboð á „Mínum síðum“ þar sem fram komi að umsókn hennar hefði verið frestað vegna eftirlits og innheimtu. Kærandi hafi farið aftur til Vinnumálastofnunar að Austurvegi 64 þar sem starfsmaður í afgreiðslu hafi ráðlagt henni að senda inn sönnun fyrir lesblindu til að styðja skýringu hennar á mistökum við lestur boðunar. Kærandi hafi aflað slíks vottorðs en Vinnumálastofnun hafi ekki tekið tillit til þess. Í kjölfarið hafi kæranda verið synjað um bótarétt og henni tilkynnt að hún gæti ekki sótt bætur hjá Vinnumálastofnun í 24 mánuði. Kærandi telji sig enn eiga tveggja mánaða bótarétt samkvæmt launaseðli og geri kröfu um að fá þær bætur greiddar.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 25. ágúst 2025. Með erindi, dags. 15. september 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 20. október 2025 hafi kærandi verið boðuð á Atvinnutorg Vinnumálastofnunar sem hafi verið haldið á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á Selfossi, Austurvegi 64, þann 23. október 2025. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 20. október 2025, klukkan 15:20. Kærandi hafi hvorki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði né boðað forföll.
Þann 24. október 2025 hafi kærandi komið á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og haldið að hún ætti að mæta á Atvinnutorg þann dag. Starfsmaður Vinnumálastofnunar á Selfossi hafi upplýst kæranda um að Atvinnutorg hefði farið fram daginn áður. Kærandi hafi lesið boð Vinnumálastofnunar rangt og farið dagavillt.
Þann 3. nóvember 2025 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðaðan fund, þ.e. Atvinnutorg þann 23. október 2025. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila skýringum. Kærandi hafi mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 3. nóvember 2025 og fengið aðstoð við að skrifa skýringar sem hafi verið eftirfarandi:
„Las vitlaust á dagsetninguna á atvinnutorginu. Er lesblind. Mætti daginn eftir á skrifstofuna og þá kom í ljós að hún hafði lesið vitlaust á dagsetninguna.“
Með erindi, dags. 13. nóvember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar sökum þess að hún hafi ekki mætt á boðað Atvinnutorg á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 23. október 2025. Þar sem kærandi hafi nýtt meira en 24 mánuði af bótarétti sínum hafi greiðslur atvinnuleysistrygginga verið stöðvaðar að fullu, sbr. 4. mgr. 58. gr.
Læknisvottorð hafi borist 18. nóvember 2025 sem dagsett sé 17. nóvember 2025 þar sem læknir staðfesti að kærandi sé með athyglisbrest, lesblindu og einbeitingarskort. Kærandi hafi ruglast á dagsetningu og því ekki mætt á réttum degi sem hún hafi verið boðuð á. Læknirinn fari fram á í læknisvottorðinu að tekið yrði tillit til aðstæðna kæranda. Jafnframt hafi frekari skýringar borist frá kæranda þar sem hún hafi farið fram á að mál hennar yrði tekið fyrir að nýju. Kærandi hafi bent á að þar sem hún sé lesblind og haldin athyglisbresti hefði hún ekki mætt á boðaðan fund.
Þann 4. desember 2025 hafi mál kæranda verið tekið fyrir að nýju að teknu tilliti til nýrra gagna. Það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að staðfesta fyrri ákvörðun, dags. 13. nóvember 2025, þrátt fyrir að frekari gögn hafi borist.
Umsögn í máli kæranda hjá Vinnumálastofnun hafi borist frá B stéttarfélagi þann 9. desember 2025. Í umsögninni hafi verið farið fram á að Vinnumálastofnun myndi taka mál kæranda til endurskoðunar með tilliti til aðstæðna hennar og fella niður ákvörðun um synjun á greiðslum atvinnuleysisbóta. Stéttarfélagið hafi bent á að meginregla stjórnsýsluréttar um meðalhóf og að vafi skyldi túlkaður skjólstæðingi í hag ætti við í máli kæranda. Þann 19. desember 2025 hafi umsögn frá B verið tekin fyrir. Það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að staðfesta fyrri ákvörðun, dags. 13. nóvember 2025, þrátt fyrir að frekari gögn hafi borist.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæðið 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðað Atvinnutorg sem haldið hafi verið á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 23. október 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli [4. mgr. 58. gr.] laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Í 1. mgr. 58. gr. segi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á Atvinnutorgi þann 23. október 2025 en þær lúti að því að hún hafi farið dagavillt. Hún hafi ruglast á dagsetningu og mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 24. október 2025. Kærandi hafi lagt fram gögn sem staðfesti að hún sé lesblind og með athyglisbrest. Af þeim sökum hafi hún misskilið boð Vinnumálastofnunar og mætt á röngum degi. Vinnumálastofnun meti skýringar sem kærandi hafi veitt ekki gildar. Ekki verði fallist á að atvinnuleitendur geti einfaldlega borið því við að hafa misskilið skýrar tilkynningar frá stofnuninni og að það teljist til gildra skýringa fyrir fjarveru á vinnumarkaðsúrræði. Það eigi jafnt við um þá sem glími við lestrarvanda eða raskanir, enda sé það í höndum viðkomandi atvinnuleitanda að gera nægjanlegar ráðstafanir til að takmarka líkur á misskilningi á mikilvægum tilkynningum. Markmið viðurlaga í ákvæði 58. gr. laganna væri tæpast virkt ef atvinnuleitendur sem misskilji boð stofnunarinnar þyrftu ekki að mæta á fundi, viðtöl eða önnur vinnumarkaðsúrræði. Kæranda hafi verið sent boð með góðum fyrirvara og með sannarlegum hætti um að mæta á Atvinnutorg á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar en hafi ekki mætt. Kærandi hafi því brugðist skyldu sinni sem atvinnuleitandi að mæta á boðað vinnumarkaðsúrræði.
Með vísan til alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.
Þegar kærandi hafi verið beitt viðurlögum með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 13. nóvember 2025, hafi hún þegið greiðslu atvinnuleysisbóta í rúmlega 27 mánuði á sama bótatímabili samkvæmt 29. gr. Greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda hafi því verið stöðvaðar. Í samræmi við 4. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli kærandi ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hún uppfylli skilyrði 31. gr. laganna.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að stöðva skuli greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli [4. mgr. 58. gr.] laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. nóvember 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hafði þegið bætur frá stofnuninni í meira en 24 mánuði.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna. Þá segir í 4. mgr. 58. gr. laganna að hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili samkvæmt 29. gr. þegar atvik sem lýst sé í 1. mgr. eigi sér stað skuli hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfylli skilyrði 31. gr.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Fyrir liggur að kærandi var þann 20. október 2025 boðuð á Atvinnutorg sem fara átti fram 23. október 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án tafar inn á „Mínum síðum“. Kærandi var jafnframt upplýst um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Sérstaklega var tekið fram að þar sem um væri að ræða aðra boðun á Atvinnutorg yrðu bæði tilkynningar um forföll og ótilkynnt forföll send á Greiðslustofu til skoðunar þar sem forsenda fyrir greiðslustöðvun yrði metin. Að endingu var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga. Kærandi hvorki mætti á Atvinnutorg né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi séð boðunina frá Vinnumálastofnun en sökum þess að hún væri lesblind hefði hún lesið dagsetninguna vitlaust og mætt á röngum degi, þ.e. daginn eftir, eða þann 24. október 2025.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á boðuðum tíma. Í framangreindri boðun Vinnumálastofnunar kom skýrt fram og með nægum fyrirvara tímasetning sem kæranda bar að mæta á Atvinnutorg hjá stofnuninni. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru hennar á boðað Atvinnutorg hjá Vinnumálastofnun. Er það á ábyrgð kæranda að fullvissa sig um efni mikilvægra tilkynninga frá Vinnumálastofnun þannig að misskilningur hennar takmarki ekki að hún geti uppfyllt skyldur sínar samkvæmt lögunum.
Þegar kærandi var beitt viðurlögum hafði hún fengið greiddar atvinnuleysisbætur í rúmlega 27 mánuði á yfirstandandi bótatímabili sínu. Því voru atvinnuleysisbætur til hennar stöðvaðar á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 og á kærandi því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hún uppfyllir skilyrði 31. gr. laganna, þ.e. eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hún fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. nóvember 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli 4. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. nóvember 2025, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir