05 apríl 2026
/
Úrskurður nr. 215/2026
Hinn 5. apríl 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 215/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU26020100
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 23. febrúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 22. febrúar 2026, um að ógilda vegabréfsáritun hans til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 17. desember 2025, og um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir um frávísun og ógildingu á vegabréfsáritun verði felldar úr gildi.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 16. desember 2025, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir fjögurra daga dvöl frá 28. til 31. janúar 2026 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 17. desember 2025, og heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 28. janúar til 13. mars 2026. Kærandi kom til Íslands 22. febrúar 2026, með flugi frá Lundúnum, Bretlandi. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. sama dag, var vegabréfsáritun kæranda ógilt og kæranda vísað frá landinu.
Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að áritunin var ógilt. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í athugasemdum við ákvörðun um ógildingu áritunarinnar kemur fram að tilgangur ferðarinnar og ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem gefnar voru upp við umsókn um vegabréfsáritun og grunur sé um að vegabréfsáritun hafi verið fengin á fölskum forsendum.
Samhliða framangreindri ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að framlögð gögn hafi ekki verið í samræmi við ferðaáætlun.
Samkvæmt samantekt lögreglu, dags. 22. febrúar 2026, hafi lögregla verið kölluð til vegna komu kæranda til landsins en hann hafi gefið óljós svör um tilgang dvalar sinnar á Íslandi. Af þeim sökum hafi honum verið boðið til frekari viðræðna í aðstöðu lögreglu. Kæranda hafi verið afhent upplýsingablað þar sem honum hafi verið kynntur réttur sinn til að hafa samband við lögfræðing á eigin kostnað, fulltrúa heimaríkis og viðurkennd mannréttindasamtök. Rætt hafi verið við kæranda með aðstoð Language Line. Aðspurður kvaðst kærandi vera kominn til landsins til að fara í hvalaskoðun, Fly Over Iceland og skoða Gullna hringinn. Kærandi greindi frá því að Gullni hringurinn væri í göngufjarlægð frá hótelinu hans ásamt öðru sem hann hafi ætlað sér að gera hér á landi. Kærandi greindi frá því að eiga flug um kvöldið daginn eftir, en hann hafi ekki verið með bókaðar ferðir í hvalaskoðun eða Gullna hringinn. Kærandi hafi greint frá því að ætla að bóka framangreint þegar hann kæmi til Reykjavíkur. Í umsókn kæranda um vegabréfsáritun kom fram að hann hafi ætlað að koma til Íslands 28. janúar 2026 og fara aftur heim 31. janúar 2026. Kærandi hafi framvísað bókun á hótelgistingu með sömu dagsetningum. Lögregla hafi haft samband við hótelið og þá komið í ljós að kærandi hafi afbókað gistinguna 19. desember 2025, þ.e. tveimur dögum eftir útgáfu vegabréfsáritunar. Kærandi hafi greint frá því að hafa ekki komist til landsins í janúar líkt og upphafleg ferðaáætlun hans gerði ráð fyrir, þar sem faðir hans hafi veikst og því hafi hann þurft að fara til Indlands 10. janúar 2026 en snúið aftur til Bretlands 27. janúar 2026. Kærandi hafi ekki getað gefið skýr svör um það hvers vegna hann hafi afbókað hótelgistinguna tveimur dögum eftir að hann hafi fengið útgefna áritun. Þá var kærandi spurður hvers vegna hann hafi stytt ferð sína úr þremur dögum í einn. Kærandi kvaðst eiga flug til Parísar sem hann hafi ekki getað fengið endurgreitt en hann hafi keypt flugið nokkrum dögum áður. Kærandi hafi ekki getað útskýrt hvers vegna hann hafi bókað flugmiðann á þennan hátt þegar flugmiðinn til Íslands var bókaður 13. febrúar 2026, á undan flugmiðanum til Parísar og sú útskýring hafi ekki verið talin trúverðug. Kærandi greindi frá því að hafa upphaflega langað að ferðast til Finnlands til að sjá norðurljós en vinur hans hafi sagt honum að koma frekar til Íslands þar sem auðveldara væri að fá áritun hingað til lands. Kærandi kvað þennan sama vin sinn hafa fyllt út umsókn sína um vegabréfsáritun þar sem hann hafi óttast að fylla umsóknarformið út vitlaust. Vinur kæranda hafi greint honum frá því að hann gæti ferðast til annarra landa ef hann fengi áritun til Íslands en hann þyrfti að koma fyrst til Íslands til að geta ferðast áfram. Af þeim sökum hafi kærandi ákveðið að fara einnig til Parísar. Ákveðið hafi verið að frávísa kæranda á grundvelli a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga og ógilda vegabréfsáritun hans þar sem tilgangur ferðar hans hafi ekki verið í samræmi við það skipulag og ferðaáætlun sem lagðar voru til grundvallar í umsókn hans um vegabréfsáritun. Kærandi hafi farið með flugi til Lundúna 22. febrúar 2026.
Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 23. febrúar 2026. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 25. febrúar 2026. Greinargerð kæranda barst 11. mars 2026 ásamt fylgigögnum.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda eru málsatvik rakin í samræmi við framangreinda yfirferð. Kærandi hafi upplýst um að ferðaáætlun hans til Íslands hafi skyndilega tekið breytingum vegna veikinda föður hans, sem hafi haft í för með sér óvænta heimferð til Indlands. Því hafi kærandi aflýst upphaflegri ferð sinni til Íslands. Kærandi hafi skipulagt ferð til Íslands á ný og bókað flug 22. febrúar 2026 og hótelgistingu í Reykjavík. Kærandi hafi ætlað sér að fljúga til Parísar 23. febrúar 2026 með 19 klukkustunda millilendingu í Mílanó á Ítalíu. Að því loknu hafi staðið til að ferðast frá París í Frakklandi til Bretlands með rútu 26. febrúar 2026, en kærandi hafi verið með flugfargjöld og hótelbókanir til staðfestingar.
Kærandi telji ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum vera óréttmætar og byggja á röngum forsendum. Kærandi vísar til þess að hann hafi uppfyllt reglur um vegabréfsáritun og hafi verið með gilda áritun við komuna til landsins. Kærandi hafi getað leitt líkur að tilgangi dvalar sinnar, þ.e. ferðamennsku og að fullyrðingar lögreglu um annað séu rangar. Upphafleg ferðaáætlun kæranda hafi breyst vegna óviðráðanlegra atvika, þ.e. alvarlegra veikinda föður hans sem hafi orðið til þess að kærandi hafi þurft að aflýsa upphaflegri ferð og endurskipuleggja ferð sína. Kærandi hafi endurbókað flug og hótel og verið með uppfærðar bókanir við komuna til landsins. Þessar breytingar hafi verið af eðlilegum ástæðum og alls ekki til marks um ásetning kæranda um að veita rangar upplýsingar eða gefa til kynna að tilgangur dvalar hans væri annar en ferðamennska. Kærandi hafi við komuna til landsins upplýst um breytta ferðaáætlun sína og verið reiðubúinn að leggja fram nauðsynleg gögn því til staðfestingar. Því hafi ekki verið um að ræða ósamræmi í framlögðum gögnum heldur breyttar aðstæður sem kærandi hafi brugðist við af yfirvegun og með gagnsæi að leiðarljósi. Kærandi telji að ekki hafi legið fyrir málefnalegur rökstuðningur fyrir ákvörðun lögreglu.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar
Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 17. desember 2025. Áritunin heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 28. janúar til 13. mars 2026. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 22. febrúar 2026, var vegabréfsáritun kæranda ógild. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðun í máli kæranda er líkt og áður segir merkt í reit um ógildingu og til skýringar merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í athugasemdum við ákvörðun um ógildingu áritunarinnar kemur fram að tilgangur ferðarinnar og ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem gefnar voru upp við umsókn um vegabréfsáritun og grunur sé um að vegabréfsáritun hafi verið fengin á fölskum forsendum.
Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir.
Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skal ógilda vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að tilgangur ferðar kæranda við komu hans hingað til lands hafi verið óljós og auk þess ekki verið í samræmi við ferðaáætlanir sem komu fram í umsókn hans um vegabréfsáritun. Hafi þannig verið tilefni til að ógilda vegabréfsáritun kæranda. Í umsókn um vegabréfsáritun hafi komið fram að kærandi vildi koma til Íslands sem ferðamaður.
Játa verður handhöfum vegabréfsáritunar ákveðið svigrúm til að breyta ferðaáformum sínum þegar svo ber undir, innan gildissviðs og marka útgefinna áritana, að því gefnu að breytingarnar eigi sér eðlilegar skýringar. Svigrúm til slíkra breytinga er þó ekki án takmarkana enda miðast útgáfa áritana við tilteknar forsendur sem verða að standast í meginatriðum. Í því samhengi skal t.a.m. litið til verulegra breytinga á fyrirhuguðum dvalartíma, tilvika þar sem útgáfuríki áritunar er ekki aðaláfangastaður, og tilvika þar sem fylgigögn eru þannig úr garði gerð að upphaflegri umsókn yrði hafnað með vísan til gagnanna. Meðal fylgigagna málsins er umsókn kæranda um vegabréfsáritun, dags. 16. desember 2025, þar sem fram kemur að kærandi hafi ætlað að dvelja á Íslandi í fjóra daga á tímabilinu 28. til 31. janúar 2026. Í fylgibréfi með umsókn um áritun kemur fram að kærandi hyggist koma hingað til lands sem ferðamaður. Framangreindu til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn á borð við flugbókanir frá Bretlandi til Íslands 28. janúar 2026 og frá Íslandi til Bretlands 31. janúar 2026 og hótelbókun í Reykjavík með sömu dagsetningum. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hann fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til landsins, 22. febrúar 2026, hafi þær forsendur þó ekki staðist en kærandi hafi við komu til landsins greint frá því að ætla að dvelja á Íslandi í eina nótt og fara svo til Parísar með millilendingu í Mílanó á Ítalíu.
Samkvæmt framangreindu hafði ferð kæranda, sem hann byggði umsókn um vegabréfsáritun á, tekið verulegum breytingum. Kærandi kom hingað til lands 22. febrúar 2026 í stað 28. janúar 2026 og var ekki með bókað flug aftur til Bretlands frá Íslandi líkt og umsóknin kvað á um. Gögnin bera þá með sér að Ísland hafi ekki verið aðaláfangastaður kæranda en hann hugðist einungis dvelja á Íslandi í sólarhring og ferðast svo til Mílanó á Ítalíu 23. febrúar 2026, þaðan til Parísar í Frakklandi 24. febrúar 2026 og loks með rútu frá París í Frakklandi til Lundúna í Bretlandi 26. febrúar 2026. Yrði dvöl kæranda á Schengen-svæðinu þannig varið í ferðalög milli landa, án skýrrar ferðaáætlunar eða fyrirhugaðrar afþreyingar á hverjum stað. Samkvæmt framansögðu verður lagt til grundvallar að framlagning gagna hjá utanríkisþjónustunni hafi verið á röngum forsendum. Samkvæmt framangreindu hafi upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda ekki verið áreiðanlegar auk þess sem rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Af framangreindu leiðir að útgáfa áritunar til handa kæranda hafi byggst á röngum forsendum og voru skilyrði fyrir útgáfu hennar því ekki uppfyllt þegar hún var gefin út. Var lögreglu því heimilt að ógilda vegabréfsáritun kæranda 22. febrúar 2026 og er sú ákvörðun staðfest.
Ákvörðun um frávísun
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Indlands og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 17. desember 2025.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 22. febrúar 2026, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið staðfest af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri. Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 um för yfir landamæri er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Með vísan til framangreindra röksemda fyrir ógildingu vegabréfsáritunar kæranda voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga uppfyllt.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu eru ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að ógilda vegabréfsáritun kæranda á grundvelli 1., sbr. 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 8. mgr. 20. gr. og 2., sbr. 4. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, og frávísa honum á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfestar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru staðfestar.
The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir