05 apríl 2026
/
Úrskurður nr. 221/2026
Hinn 5. apríl 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 221/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU26020115
Kæra [...]I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 27. febrúar 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Pakistan (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 25. febrúar 2026, um að ógilda vegabréfsáritun hans til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 23. janúar 2026, og um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir um frávísun og ógildingu á vegabréfsáritun verði felldar úr gildi.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 13. janúar 2026, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sex daga dvöl frá 15. til 20. febrúar 2026 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 23. janúar 2026, og heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 15. febrúar til 9. mars 2026. Kærandi kom til Íslands 25. febrúar 2026, með flugi frá Lundúnum, Bretlandi. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. sama dag, var vegabréfsáritun kæranda ógild og kæranda vísað frá landinu.
Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að áritunin var ógilt. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í athugasemdum við ákvörðun um ógildingu áritunarinnar kemur fram að tilgangur ferðarinnar og ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem gefnar voru upp í umsókn um vegabréfsáritun og grunur sé um að vegabréfsáritun hafi verið fengin á fölskum forsendum.
Samhliða framangreindri ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að kærandi hafi ekki getað framvísað gögnum til að réttlæta tilgang og skilyrði dvalar og vegabréfsáritun hafi verið ógild.
Samkvæmt samantekt lögreglu, dags. 26. febrúar 2026, hafi lögregla verið kölluð til vegna komu kæranda til landsins en hann hafi greint frá því að ætla að dvelja hér á landi í einn dag en hann hafi ekki getað greint frekar frá því hvað hann hugðist gera hér á landi og var tilgangur dvalar hans því óljós. Af þeim sökum hafi kæranda verið boðið til frekari viðræðna í aðstöðu lögreglu. Kæranda hafi verið afhent upplýsingablað þar sem honum hafi verið kynntur réttur sinn til að hafa samband við lögfræðing á eigin kostnað, fulltrúa heimaríkis og viðurkennd mannréttindasamtök. Kærandi hafi afþakkað túlk þar sem hann talaði og skildi ensku vel. Kærandi kvaðst vera kominn til Íslands til að dvelja í einn dag sem ferðamaður en hafi ekki skipulagt neitt fyrirfram. Í umsóknargögnum um vegabréfsáritun var hótelbókun á farfuglaheimili í Reykjavík í fimm nætur ásamt ferðatilhögun þar sem tilgreindir hafi verið helstu ferðamannastaðir, m.a. Hallgrímskirkja, Harpa, Sólfarið, Þjóðminjasafn Íslands, Tjörnin, gamla höfnin, Laugavegur og Bláa lónið. Kærandi kvaðst ætla að dvelja hér á landi í einn dag og gista á hóteli í Keflavík en hann hafi framvísað hótelbókun í farsíma sínum til staðfestingar. Þá hafi kærandi framvísað flugmiða til Manchester 26. febrúar 2026. Kærandi kvaðst ekki hafa getað komið til landsins 15. febrúar 2026 eins og upphafleg ferðaáætlun hans gerði ráð fyrir þar sem hann hafi átt eftir að fá niðurstöður úr prófum í háskólanum sem hann stundaði nám í. Kærandi kvaðst ekki hafa tilkynnt sendiráðinu um framangreindar breytingar. Kærandi hafi fengið niðurstöður úr prófum 12. febrúar 2026 en afbókað hótelbókanir og flug samkvæmt upphaflegri ferðaáætlun 9. febrúar 2026. Kærandi hafi ætlað að nýta áritunina þar sem hann hefði í hyggju að sækja um áritun til Íslands að nýju síðar. Ákveðið hafi verið að frávísa kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga og ógilda vegabréfsáritun hans þar sem ferðaáætlun hans hafi ekki verið í samræmi við umsókn um vegabréfsáritun ásamt því að framburður hans varðandi tilgang ferðarinnar hafi verið metinn ótrúverðugur. Kærandi hafi farið með flugi til Bretlands 26. febrúar 2026.
Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 27. febrúar 2026. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 2. mars 2026. Greinargerð kæranda barst 31. mars 2026.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda eru málsatvik rakin í samræmi við framangreinda yfirferð. Kærandi byggir á því að ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum hafi verið ólögmætar og byggðar á ófullnægjandi sönnunargögnum. Kærandi telji ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar ekki vera rökstudda með fullnægjandi hætti og brjóti gegn meginreglum stjórnsýsluréttar um sönnunarbyrði og meðalhóf. Kærandi vísar til 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir og 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi fengið vegabréfsáritun útgefna í íslenska sendiráðinu í Lundúnum sem feli í sér að umsókn hans hafi verið metin fullnægjandi á þeim tíma. Til að ógilda slíka áritun þurfi að liggja fyrir skýr og ótvíræð sönnun fyrir því að forsendur hennar hafi verið rangar eða að hún hafi verið fengin á fölskum forsendum. Kærandi vísar til þess að baki afbókun á flugi og gistingu geti legið eðlilegar ástæður, s.s. ófyrirséðar breytingar á ferðaáætlun eða persónulegar ástæður. Engin gögn liggi fyrir sem sýni fram á að kærandi hafi ætlað sér að misnota áritunina eða dvelja lengur innan Schengen-svæðisins en leyfilegt hafi verið. Kærandi hafi ætlaði sér að dvelja hér á landi í einn dag sem bendi til skýrs ferðamarkmiðs. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar í máli nr. 15/2026 frá 15. janúar 2026, máli sínu til stuðnings.
Kærandi telji að ákvarðanir lögreglu hafi ekki verið nægjanlega rökstuddar, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga og brjóti í bága við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi hafi gefið skýrt til kynna að tilgangur ferðar sinnar hafi verið ferðamennska. Kærandi telji að lögregla hafi dregið of víðtækar ályktanir af breytingum á ferðaáætlun hans án þess að veita honum fullnægjandi tækifæri til að útskýra þær eða leggja fram frekari gögn. Kærandi telji að meta ætti markmið ferðar hans út frá fyrirliggjandi upplýsingum ekki eingöngu breyttri ferðaáætlun. Að mati kæranda hafi lögregla einnig brotið gegn reglum um meðalhóf og réttaröryggi. Þá vísar kærandi til dóms Hæstaréttar í máli nr. 25/2022 þar sem lögð var áhersla á að ákvarðanir um synjun áritunar geti haft íþyngjandi áhrif á síðari umsóknir vegna skráningar í upplýsingakerfi Schengen-ríkjanna.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar
Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 23. janúar 2026. Áritunin heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 15. febrúar til 9. mars 2026. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 25. febrúar 2026, var vegabréfsáritun kæranda ógild. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðun í máli kæranda er líkt og áður segir merkt í reit um ógildingu og til skýringar merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í athugasemdum við ákvörðun um ógildingu áritunarinnar kemur fram að tilgangur ferðarinnar og ferðaáætlun hafi ekki verið í samræmi við upplýsingar sem gefnar voru upp við umsókn um vegabréfsáritun og grunur sé um að vegabréfsáritun hafi verið fengin á fölskum forsendum.
Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir.
Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skal ógilda vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að ferðaáætlun kæranda hafi ekki verið í samræmi við umsókn um vegabréfsáritun ásamt því að framburður kæranda varðandi tilgang ferðar hafi verið metinn ótrúverðugur. Í umsókn um vegabréfsáritun hafi komið fram að kærandi vildi koma til Íslands sem ferðamaður.
Játa verður handhöfum vegabréfsáritunar ákveðið svigrúm til að breyta ferðaáformum sínum þegar svo ber undir, innan gildissviðs og marka útgefinna áritana, að því gefnu að breytingarnar eigi sér eðlilegar skýringar. Svigrúm til slíkra breytinga er þó ekki án takmarkana enda miðast útgáfa áritana við tilteknar forsendur sem verða að standast í meginatriðum. Í því samhengi skal t.a.m. litið til verulegra breytinga á fyrirhuguðum dvalartíma, tilvika þar sem útgáfuríki áritunar er ekki aðaláfangastaður, og tilvika þar sem fylgigögn eru þannig úr garði gerð að upphaflegri umsókn yrði hafnað með vísan til gagnanna. Meðal fylgigagna málsins er umsókn kæranda um vegabréfsáritun, dags. 13. janúar 2026, þar sem fram kemur að kærandi hafi ætlað að dvelja á Íslandi í sex daga á tímabilinu 15. til 20. febrúar 2026. Í fylgibréfi með umsókn um áritun kemur fram að kærandi hyggist koma hingað til lands sem ferðamaður. Framangreindu til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn á borð við flugbókanir frá Bretlandi til Íslands 15. febrúar 2026 og frá Íslandi til Bretlands 20. febrúar 2026 og bókun á farfuglaheimili í Reykjavík með sömu dagsetningum. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hann fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til landsins, 25. febrúar 2026, hafi þær forsendur þó ekki staðist en kærandi hafi við komu til landsins greint frá því að ætla að dvelja á Íslandi í eina nótt og fara til Bretlands daginn eftir. Kærandi hafi ætlað að dvelja á hóteli í Keflavík og framvísaði hótelbókun í farsíma. Þá hafi kærandi ekki vitað hvað hann hygðist gera hér á landi.
Samkvæmt framangreindu hafði ferð kæranda, sem hann byggði umsókn um vegabréfsáritun á, tekið verulegum breytingum. Kærandi hafi ekki getað fært fram skýringar á breyttum ferðaáformum sínum. Af gögnum málsins er ljóst að tilgangur kæranda með umsókn hans um vegabréfsáritun til Íslands og koma hans hingað til lands hafi verið að komast inn á Schengen-svæðið og að Ísland hafi ekki verið áfangastaður fyrir ferðamennsku líkt og umsókn kæranda um vegabréfsáritun byggði á. Samkvæmt framansögðu verður lagt til grundvallar að framlagning gagna hjá utanríkisþjónustunni hafi verið á röngum forsendum. Samkvæmt framangreindu hafi upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda ekki verið áreiðanlegar auk þess sem rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Af framangreindu leiðir að útgáfa áritunar til handa kæranda hafi byggst á röngum forsendum og voru skilyrði fyrir útgáfu hennar því ekki uppfyllt þegar hún var gefin út. Var lögreglu því heimilt að ógilda vegabréfsáritun kæranda 25. febrúar 2026 og er sú ákvörðun staðfest.
Ákvörðun um frávísun
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Pakistan og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 23. janúar 2026.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 25. febrúar 2026, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið staðfest af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.
Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri. Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 um för yfir landamæri er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Með vísan til framangreindra röksemda fyrir ógildingu vegabréfsáritunar kæranda voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga uppfyllt.
Í greinargerð kæranda er vísað til úrskurðar kærunefndar nr. 15/2026 frá 15. janúar 2026. Að virtum gögnum málsins var lagt til grundvallar að kærandi hafi átt flugmiða frá landinu þegar lögreglan tók hina kærðu ákvörðun. Leit kærunefnd til þess að kærandi hafi ætlað að koma hingað til lands og dvelja í þrjár nætur og hafi verið með bókað flug frá landinu auk gistingar hér á landi. Báru gögn málsins með sér að lögreglan hafi ekki aflað staðfestingar á umræddri bókun á gistingu. Var lagt til grundvallar að breytingar á ferðaáætlun kæranda væru ekki óhóflegar og var því ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um ógildingu vegabréfsáritunar felld úr gildi. Með vísan til framangreinds eru málsatvik því ekki sambærileg málsatvikum í máli kæranda.
Í málatilbúnaði kæranda er byggt á því að ákvarðanir lögreglu hafi ekki verið nægjanlega rökstuddar, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga og brjóti í bága við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Að mati kæranda hafi lögregla einnig brotið gegn reglum um meðalhóf og réttaröryggi.
Í ákvörðun lögreglu um frávísun, dags. 25. febrúar 2026, kemur fram að kærandi eigi rétt á eftirfarandi rökstuðningi, sbr. 1. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga. Samkvæmt gögnum málsins hafi kæranda, með bréfi Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 30. mars 2026, verið veittur eftirfarandi rökstuðningur fyrir ákvörðunum um ógildingu vegabréfsáritunar og frávísunar. Með vísan til framangreindrar niðurstöðu í máli kæranda verður ekki fallist á að brotið hafi verið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga eða að brotið hafi verið gegn reglum um meðalhóf og réttaröryggi. Með vísan til framangreinds er ekki tilefni til að gera athugasemdir við ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu eru ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að ógilda vegabréfsáritun kæranda á grundvelli 1., sbr. 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 8. mgr. 20. gr. og 2., sbr. 4. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, og frávísa honum á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfestar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru staðfestar.
The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir