09 apríl 2026
/
Úrskurður nr. 174/2026
Hinn 9. apríl 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 174/2026
í stjórnsýslumálum nr. KNU25070022 og KNU25070023
Kæra [...] og barna þeirra
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 29. júní 2025 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir M) og [...], fd. [...] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 19. júní 2025, um að synja þeim og börnum þeirra, [...], fd. [...] (hér eftir A) og [...], fd. [...] (hér eftir B), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og börn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 22. apríl 2025. Kváðust kærendur sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi vegna ástandsins í heimaríki. Þar hafi þau verið ofsótt. Kærendur hafi starfað sem bændur í heimaríki og einnig sinnt sölu bifreiða og landbúnaðartækja. Þau eigi uppkominn son á Íslandi (hér eftir C) sem þau hafi sent til Íslands árið 2024. K eigi auk þess tvær frænkur á Íslandi. Í skýrslunni kemur fram að með kærendum í för var móðir K.
Kærendur komu fyrst til viðtala hjá Útlendingastofnun 6. maí 2025. Ástæðu flóttans kvað M vera stanslaust áreiti sem fjölskyldan hefði orðið fyrir, kúganir, mannrán og líflátshótanir sem M og synir hans hafi orðið fyrir. Kvað M fjölskylduna hafa þurft að flýja á milli borga og að C hafi þurft að hætta háskólanámi vegna áreitis. Þá hafi A dvalið um tíma hjá fótboltaþjálfara sínum í Merida fylki og verið í felum þar. M kvað hópa á vegum stjórnvalda hafa kúgað og áreitt fjölskylduna. Kærendur ættu ræktunarland og miklar eignir auk þess sem M hafi rekið samgöngufyrirtæki sem sinnti þungaflutningum. M vísaði til þess að stjórnvöld í heimaríki hans reyni að eigna sér jarðir og eignir þeirra sem eitthvað eiga og hafi m.a. viljað taka yfir eignir kærenda. Kvað hann það vera ástæðu þess að honum hafi verið rænt mörgum árum fyrr af hópnum „Extreminio“ og verið færður í hendur „ELN“ í Kólumbíu, sem hann kvað starfa með venesúelskum stjórnvöldum. Þegar M hafi keypt fleiri jarðir á öðru svæði hafi áreitið hafist að nýju og honum verið rænt og þá haldið í tvo daga. Hann hafi síðan keypt aðra jörð í Merida fylki og þá verið áreittur að nýju símleiðis og orðið fyrir hótunum.
K kvað ástæðu flótta fjölskyldunnar vera áreiti sem fjölskyldan hafi orðið fyrir í mörg ár af hendi stjórnvalda. Þau hafi orðið fyrir kúgunum og hótunum í um 15 ár og M verið rænt. Þetta hafi aukist á seinasta ári. Um væri að ræða hópa á vegum stjórnvalda og kærendur hafi greitt þeim peninga og þar sem aðilarnir hafi séð að fjölskyldan væri vel stæð hafi þau orðið fyrir frekari fjárkúgunum. Var K þá spurð hvort hún viti hverjir hafi ógnað þeim og kvað hún hópinn sem hafi áreitt kærendur síðustu ár heita „La Patria“ en að hópurinn sem rænt hafi M 15 árum fyrr hafi verið kólumbískir málaliðar, samtökin „ELN“ sem hafi þá starfað með venesúelskum stjórnvöldum. Kærendur kváðu eignir sínar vera staðsettar við landamæri Kólumbíu. Kærendur kváðust tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sökum stjórnmálaskoðana sinna.
Kærendur komu að nýju til viðtala hjá Útlendingastofnun 20. og 21. maí 2025 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. Kærendur kváðust hafa verið búsett í eigin húsnæði borginni Santa Barbara í Zulia fylki áður en þau fóru frá heimaríki og kvaðst M hafa verið búsettur í Santa Barbara alla ævi.
Hvað ástæðu flótta kærenda frá heimaríki varði kváðu þau allt hafa byrjað þegar M var rænt 8. maí 2010. Aðspurður hvort M hafi orðið fyrir hótunum eða kúgunum fram að því kvað hann svo ekki vera en hótanir og kúganir hafi beinst að búgarði föður hans á meðan Hugo Cháves var við stjórnvölinn í Venesúela og hann telji ástæðu þess að honum var rænt árið 2010 vera að aðilar á vegum þáverandi stjórnvalda hafi viljað ná yfir það svæði sem býli föður M hafi verið staðsett á. M greindi frá því að hann hafi verið færður yfir landamærin til vopnaðs hóps í fjalllendi Kólumbíu og verið haldið í tæpa tvo mánuði en verið sleppt eftir að faðir hans hafi greitt hópnum lausnargjald. Um hafi verið að ræða hópinn „Exterminio“ og leiðtoga hópsins kvað M hafa verið fyrrum starfsmann yfirvalda í Venesúela og hafa tilheyrt lögreglunni. M kvað hópinn ekki hafa náð að taka yfir bóndabýli föður síns þar sem samtök bænda og ræktenda hafi komið saman og hafið að birta gögn sem sýnt hafi fram á eignarhald á svæðinu en að sumir aðrir hafi misst bóndabýli sín og fyrirtæki. Kvað M föður sinn og K hafa tilkynnt ránið á sér til lögreglunnar og að þegar M hafi snúið aftur hafi hann gefið skýrslu hjá lögreglunni sem hafi ekkert frekar aðhafst og engin niðurstaða hafi fengist í málið. K lýsti ráninu á M á þann hátt að er hún hafi verið að sækja M eitt sinn árið 2010 hafi tekið á móti henni margir menn er huldu andlit sín. Mennirnir hafi leyft henni að taka C úr aftursæti bifreiðarinnar og síðan lokað hana og C inni í húsi ásamt hluta starfsfólks býlisins. K hafi leitað aðstoðar lögreglunnar og svo farið til tengdaforeldra sinna. Nokkrum dögum síðar hafi ræningjarnir krafist mjög hárrar upphæðar í lausnargjald og þar sem fjölskyldan hafi ekki átt þá upphæð hafi faðir M samið við mannræningjana um sölu eigna til þess að geta átt fyrir gjaldinu. Kvað K að sér hafi fundist erfitt að hafa lögregluna á heimili fjölskyldunnar vitandi það að hópurinn „Extermino“ væri grein út frá stjórnvöldum.
M greindi frá því að hann og K hafi ákveðið að selja bóndabýli sitt og flytja til annars bæjar í sama ríki eftir að hann losnaði frá mannræningjunum og þau hafi flutt til La Villa del Rosario, einnig í Zulia fylki, um 2013. Kvaðst M einnig hafa aðstoðað lögregluna með tiltekin aðföng á þeim tíma, tilneyddur, og hann hafi haft einkarekna öryggisgæslu með sér öllum stundum. Aðspurður hvort M hafi ekki orðið fyrir áreiti á árunum 2011 til 2013, þegar hann hafi haft öryggisgæsluna, kvaðst M ekki hafa orðið fyrir áreiti á þeim tíma og hann hafi verið með öryggisgæslu fram til 2019 eða 2020. Aðspurður hvers vegna M hafi hætt að greiða fyrir öryggisgæsluna sem hann hafði haft kvað hann það hafa verið orðið of dýrt. Fyrirtæki hans hafi verið hætt rekstri auk þess sem stjórnvöld hafi 2017 sett reglur sem hafi skyldað einkarekna öryggisgæslu til að fara á sérstök námskeið. Árið 2017 hafi stjórnvöld einnig gefið út skipun þess efnis að engir skyldu bera vopn nema þeir væru á vegum stjórnvalda eða Colectivos.
K greindi frá því að eftir að M sneri aftur frá ræningjunum hafi mannræningjarnir fylgst áfram með kærendum og vegna þess hafi kærendur ákveðið að selja býli sitt og kaupa annað býli í La Villa del Rosario. Þar hafi M verið handtekinn árið 2013 við vegatálma. Ástæða handtökunnar hafi að sögn K verið að M hafi þá enn verið skráður horfinn og að málið frá 2010 hafi í raun ekki verið lokað heldur hafi það verið nýtt gegn kærendum í því skyni að ná meiri pening af þeim. Hafi kærendur þurft að leita til lögfræðings til þess að sýna lögreglunni fram á að málinu væri lokið og M verið haldið á lögreglustöð í næstum því tvo daga vegna málsins. Kvað M handtökuna hafa verið tilraun lögreglunnar til að kúga fé af sér og K.
K greindi frá því að árið 2019 hafi kærendur viljað lækka þá upphæð sem þau hafi þurft að greiða aðilunum og síðan hafi þau neitað að greiða þeim peninga. Þá hafi aðilarnir skotið á heimili foreldra M. M greindi frá því að skotið hafi verið á hús foreldra hans og það hafi gerst aftur þremur dögum seinna. Þá hafi foreldrar M fært sig til systur hans. Foreldrar nágranna kærenda hafi síðan sagt M að þeir hafi séð lögreglumenn í einkennisklæðnaði skjóta að húsinu þeirra. Kærendur kváðu foreldra M hafa látist í heimsfaraldrinum og kvað K kærendur hafa fengið smá frið frá aðilunum eftir það en í lok árs 2020 hafi þau verið krafin um greiðslur að nýju. Þegar kærendur hafi haldið áfram að neita að greiða hafi aðilarnir byrjað að hóta C. M greindi frá því að hlutirnir hafi orðnir mjög slæmir árið 2023 þar sem honum hafi farið að berast hótanir sem beinst hafi að lífi hans og barna hans. Kvaðst M telja að það geti tengst því að í hvert sinn sem hafi orðið rafmagnslaust í Venesúela hafi hann aðstoðað nafngreindan bæjarstjóra, sem hliðhollur væri stjórnarandstöðunni, með því að útvega vatn þar sem að annars hafi ekki verið hægt að nálgast vatn þegar það var rafmagnslaust. Þá kvað hann heimafylki kærenda vera staðsett mjög nálægt landamærum og að virkir hópar á því svæði geri það sem þeir vilji. Kvaðst M hafa þurft að greiða peninga í desember síðastliðin tvö ár. Kærendur hafi lagt fram kvörtun vegna þess en M kvað mismunandi greinar lögreglunnar vera saman í þessu. Kærendur kváðust hafa tekið C úr háskólanámi og sent hann til Merida fylkis en K greindi frá því að þegar aðilarnir hafi sagst vita hvar C væri hafi þau sent hann til Maracaibo. Aðilarnir hafi hins vegar aftur komist að því hvar C væri staddur og þá hafi kærendur látið undan og greitt aðilunum. Það hafi verið við lok 2023 og kærendur hafi kvartað til lögreglunnar. Símtöl og líflátshótanir kvað M jafnframt hafa haldið áfram þrátt fyrir flutninga C. Þá kvað M að A og B hafi einnig þurft að flytjast til Merida fylkis vegna hótana. Kærendur kváðu C hafa verið virkan í stjórnmálum í heimaríki. Greindi K frá því að C hafi verið hótað og hann hafi leitað til lögreglunnar. Í september 2024 hafi kærendur ákveðið að senda C úr landi. Greindi K frá því að þau hafi þurft að greiða aðilunum aftur í desember 2024 og í kjölfarið hafi þau ákveðið að taka A og B úr skóla. A hafi þau sent til Merida fylkis vegna hótana sem beinst hafi að honum. Þar hafi A spilað fótbolta. Að sögn M hafi C, og M sjálfur, verið góður vinir áðurnefnds bæjarstjóra sem tilheyri stjórnarandstöðunni. Kvað M að vegna þess að sonur bæjarstjórans hafi einnig verið virkur í pólitísku starfi hafi C einnig verið skotmark og C og M farið að berast hótanir. Hóparnir virki að sögn M þannig að þeir vilji bæði þagga niður í einstaklingum og fá pening.
Aðspurður hvort hann vissi hver hafi hótað honum og börnum hans kvað M hópinn vera sameinaðan af mörgum lögregluembættum. Leiðtogi hópsins heiti [...] (hér eftir Y) og verið staðsettur í Santa Barbara. Var M þá spurður hvenær hann hafi flutt aftur til Santa Barbara og svaraði M þá að fjölskyldan hafi aldrei flutt alveg til La Villa del Rosario og aldrei farið alveg frá Santa Barbara. Þau hafi dvalið í La Villa del Rosario í 10 til 20 daga í senn og M hafi ráðið öryggisgæslu til þess að áðurnefndir hópar kæmust ekki á búgarðinn. Aðspurður hvort það hafi verið sami hópurinn sem hafi rænt M og síðar hótað honum og börnum hans kvað hann svo ekki vera heldur hafi honum verið rænt af hópnum „Extermino“ en hópurinn hafi breytt nafni hópsins í „Patria“ og þetta væri tengt stjórnvöldum og lögregluhópum. Aðilana kvað M hafa haft samband við sig símleiðis en hópurinn hafi einnig mætt mörgum sinnum vopnaðir með hulin andlit á heimili kærenda. Þegar það hafi gerst hafi M falið sig á efri hæð hússins ásamt tengdamóður sinni á meðan K hafi talað við þá. Kvað hann K hafa talað við þá vegna þess að ef hann hefði farið út hefði fólkið tekið hann. Aðspurður um hvað hópurinn hafi viljað kvað M aðilana hafa viljað pening. Um væri að ræða kerfisbundnar óskir um pening og hann hafi áður gefið þeim pening en hann gæti það ekki lengur og væri þreyttur. M kvaðst vita að einn þeirra sem hafi hringt væri lögreglumaður. Ástandið kvað M alltaf hafa verið verst í desember og hópurinn beitt meiri þrýstingi í desember. Eitt sinn hafi M greitt 6.000 dollara en næst þegar hann hafi ætlað að greiða sömu fjárhæð hafi hópurinn krafist 15.000 dollara.
Þá greindu kærendur frá því að M hafi verið neyddur til þess að gefa ótilgreindum einstaklingi vél og kvað K það hafa verið árið 2023. M greindi frá því að maður úr þjóðvarðarliði Venesúela hafi beðið sig um að gefa sér vél sem hann hafi samþykkt en skömmu síðar hafi maðurinn sagt sér að vélin hefði bilað og hann viljað að M útvegaði sér varahlut. Það hafi M gert en síðan hafi kona haft samband við M og viljað tíu þúsund dollara til kaupa á nýrri vél. Þá hafi M neitað og komist að því að konan sem hafi hringt væri eiginkona þess fyrsta sem hefði haft samband. Eftir þetta hafi M borist bréf frá lögreglunni og í því hafi hann verið ásakaður um að múta einstaklingi. M hafi leitað til lögreglunnar og tjáð lögreglunni að vélin hafi verið gjöf en lögreglan sagt honum að þeir hefðu ekkert með þetta að gera. Kvaðst M jafnframt hafa verið handtekinn í einn dag og farið fyrir rétt vegna málsins. Niðurstaða réttarins hafi verið M í vil.
K greindi frá því að innan við mánuði eftir að M hefði gefið umrædda vél hafi hann verið beðinn um aðstoð við að gera við vélina sökum bilunar. M hafi látið undan og afhent umbeðna fjárhæð en nokkrum dögum síðar hafi hann verið krafinn um 8 til 10 þúsund dollara þar sem um hafi verið að ræða ranga vél. Kvað hún jafnframt að sá sem hafi haft samband við M hafi verið embættismaður í umhverfisráðuneyti Venesúela og hann hafi hótað að yrðu kærendur ekki við kröfu viðkomandi myndi hann leggja fram kvörtun um mútur. Að hennar sögn hafi M verið í þeirri trú að vélin væri í þágu ráðuneytisins en sá sem hafi beðið um vélina væri tengdur hernum. Þá hafi vopnaðir hópar mætt á heimili kærenda með stefnu vegna þessa máls. Er M hafi komið heim hafi hann hringt í lögfræðing kærendum til aðstoðar. Hópurinn hafi mætt á heimili kærenda tvisvar til viðbótar og kvað K hópinn hafa komið frá CICPC og tjáð sér að þeir væru að leita að M vegna stefnunnar. Lögfræðingurinn hafi ráðlagt M að fara beint til saksóknara en ekki til CICPC lögreglunnar. Kærendur hafi síðan farið til saksóknarans viku eftir þriðju heimsókn hópsins. M hafi tvisvar verið færður í varðhald vegna málsins. Kvaðst K telja að að embættismaðurinn og saksóknarinn hafi verið í samstarfi og það hafi verið kærendum til happs að skipt var um dómara í málinu. Hótanir hafi að hennar sögn hins vegar orðið verri eftir lok málsins. Kærendur hafi séð að börn þeirra gætu ekki lengur sótt skóla svo þau hafi hafið að skipuleggja brottför frá heimaríki. Aðspurð hvort hótanir frá CICPC hópnum hafi haldið áfram kvað hún svo ekki vera, þetta væru hópar sem starfi á vegum stjórnvalda og hótanir hafi borist sem skilaboð í síma. Hópurinn sem kærendur hafi orðið fyrir heiti „La Patria“ og leiðtogi hósins heiti [...]. Hann væri lögreglumaður á eftirlaunum. Kvað K hópinn „Extermino“ hafa verið starfandi 15 árum fyrr þegar M var rænt og hafi starfað með stjórnvöldum, hótað og tekið greiðslum frá landeigendum. Leiðtogi hópsins hafi verið lögreglumaður en hann hafi verið myrtur.
Kærendur kváðust vera aðilar að stjórnmálaflokknum Acción Democrática í heimaríki. Greindi M frá því að hann hafi farið að vera meðlimur í stjórnmálastarfi síðustu átta ár. M kvaðst hafa verið virkur í Acción Democrática og gegnt stöðu ritara en hafi aðstoðað áðurnefndan bæjarstjóra með því að dreifa vatni þegar á þurfti að halda. Hann telji það vera ástæðu þess að sér hafi borist hótanir og kvað að sér hafi verið hótað að trukkurinn sem hann notaði til þess að útvega vatn yrði brenndur. Var M þá spurður hver hafi hótað honum og svaraði hann að það hafi verið fólkið sem vann með áðurnefndum Y. M hafi borist hótanir símleiðis og hann hafi skipt um símanúmer en síðan einnig um farsíma vegna þess að öll símtölin sem voru í símtækinu frá hópnum hafi hópurinn nýtt til þess að kúga M með því að segja að hann væri hluti af þeim vopnaða hópi. Jánkaði M því að vopnuðu hóparnir hafi hringt í M, hótað honum og tjáð honum að samtalið sanni að M starfi með hópnum. Símtölin myndu sýna að M starfi með hópnum þótt það hafi verið hópurinn sjálfur sem hafi hringt. Þá kvað M alla bæjarstjóra sem tilheyrt hafi stjórnarandstöðunni hafa verið handtekna. M hafi starfað með borgarstjóranum fram að handtöku hans með því að lána honum vél til þess að taka saman rusl en hann hafi tekið vélina aftur eftir viðvörun bæjarstjórans. Bæjarstjórann kvað K heita [...] og hann hafi verið aðili að sama stjórnmálaflokki og kærendur en tekinn í varðhald. Aðspurð hvort hún hafi sinnt störfum eða öðru fyrir flokkinn kvað K kærendur bara hjálpað til í bæjarfélagi sínu, t.d. með vinnuvélum kærenda þegar reisa þurfti varnargarða vegna flóða, með því að útvega vatn þegar þurfti á að halda og með fjárhagslegum stuðningi til flokksins. Kvað hún kærendur hafa verið virka þátttakendur í starfi flokksins.Aðspurð hvort hún hafi verið virk í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki kvaðst K styðja mannréttindi og verið virk í hjálparstarfi á vegum kirkjunnar. Auk þessa hafi fjölskyldan að sögn K alltaf átt í nánu sambandi við ríkisstjóra Zulia, sem tilheyri stjórnarandstöðunni.
Aðspurður hvort hann teldi sig tilheyra minnihlutahópi í heimaríki kvað M bændur, búfjáreigendur og þá sem hafi aðrar stjórnmálaskoðanir vera sótta til saka eða verða fyrir ofsóknum í Santa Barbara. M telji sig tilheyra þeim hópi og hann hafi verið virkur í samtökum búfjárræktenda. K kvaðst tilheyra minnihlutahópi í heimaríki þar sem hún tilheyri stjórnarandstöðunni og þar sem hún sinni hjálparstörfum sem stjórnvöld líti illa á. Þá hafi M orðið að eyða öllum myndum af samfélagsmiðlum sínum sem hafi sýnt bændur eða býli hans vegna þess að annars myndu „þeir“ sjá það og koma á eftir kærendum. Kærendur telji yfirvöld ekki geta veitt sér aðstoð eða vernd og vísaði M til þess að það væru yfirvöld sem væru að hóta honum og reyna að fá af honum pening þar sem yfirvöld viti að hann hafi starfað með bæjarstjóranum sem tilheyri stjórnarandstöðunni.
Börn kærenda mættu til viðtals hjá Útlendingastofnun 21. maí 2025 ásamt löglærðum talsmanni sínum og túlki.
Aðspurður um ástæðu flótta fjölskyldunnar frá heimaríki kvaðst A ekki vita alla ástæðu flóttans en hann kvað foreldra sína hafa orðið fyrir hótunum og fjárkúgunum. A hafi verið í skóla þar til um fimm mánuðum áður en hann kom til Íslands. Sér hafi ekki verið sagt mikið en hann viti að hann hafi verið tekinn úr skóla vegna hótana og síðan sendur í annað fylki þar sem hann hafi dvalið hjá fótboltaþjálfara sínum. Þar hafi hann dvalið í um þrjá og hálfan mánuð ásamt fleiri börnum. A hafi ekki sótt skóla á því tímabili en hin börnin hafi gert það. Hvað frítíma A varði og frístundir kvaðst hann hafa verið í fótbolta eða heima og lítið farið út þar sem það hafi a verið óöruggt vegna hótana, að sögn foreldra hans. A hafi stundum hitt vini sína.
B kvaðst hafa gengið í skóla þar til um sjö mánuðum áður en fjölskyldan kom til Íslands og foreldra sína kvað hún hafa tekið sig úr skólanum vegna óöryggis. B kvaðst ekki vita mikið um ástæðu þess að foreldrar hennar hafi ákveðið að fara til Íslands en hún taldi það vera aðallega af öryggisástæðum og því þau gætu átt betri framtíð hérna. Kærandi greindi frá því að þegar aðilar á vegum yfirvalda mættu á heimili fjölskyldunnar í leit að M. Kvaðst B hafa falið sig á efri hæð heimilisins ásamt M og ömmu sinni og verið hrædd. Kvað hún slíkt hafa gerst í tvö eða þrjú skipti og taldi það seinast hafa gerst árið 2024. Hvað varði frístundir og frítíma B kvaðst hún hafa æft blak nálægt heimili sínu og móðir hennar hefði farið með hana á æfingar. Hún hafi stundum fengið fáeinar vinkonur í heimsókn og hún hafi ekki viljað fara mikið út af heimili sínu. Aðspurð hvers vegna B hafi ekki viljað fara út kvað hún það vera þar sem foreldrar hennar hafi sagt að það væri óöruggt.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum og börnum þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Börnum kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 29. júní 2025 og barst greinargerð samhliða kæru þeirra. Kærunefnd sendi kærendum tölvubréf 24. febrúar 2026. Svör bárust 2. mars 2026 ásamt viðbótargögnum.
Um umsóknir C og móður K um alþjóðlega vernd er fjallað í úrskurðum kærunefndar nr. 172/2026 og 175/2026.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Kærendur byggja á því að Útlendingastofnun hafi ekki gætt að rannsóknarskyldu stofnunarinnar. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Vísa kærendur til þess í ákvörðun stofnunarinnar í máli M komi ranglega fram að hann hafi greint frá því að fjölskyldan hafi notið aðkeyptrar öryggisgæslu til ársins 2023.
Um málsatvik og helstu forsendur kröfu kærenda er vísað til greinargerðar talsmanns til Útlendingastofnunar, viðtala kærenda hjá stofnuninni og framlagðra gagna.
Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnum þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísa kærendur til þess að þau hafi búið við ofsóknir með stuttum hléum í 15 ár og þau hafi tekið fram að fjárkúganir og aðrar ofsóknir sem þau hafi sætt af hálfu yfirvalda beinist einungis gegn þeim sem ekki styðji ríkisstjórnina.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísa kærendur til ástandsins í heimaríki, þ.m.t. mikillar spillingar. Fjárkúganir, líkamsmeiðingar og mannrán beinist að sögn kærenda einkum gegn stjórnarandstæðingum í sjálfstæðum rekstri.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
5.3 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og börn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og börn þeirra séu venesúelskir ríkisborgarar.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- Freedom in the World 2025 – Venezuela (Freedom House, 26. febrúar 2025);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 12. janúar 2026);
- UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 1. mars 2026);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 12. febrúar 2026);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024, uppfærð í apríl 2025);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders
- (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi styrkt völd sín á kostnað löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvalds landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019 í kjölfar umdeildra forsetakosninga, sem sætt hafi gagnrýni fyrir að vera hvorki óháðar né sanngjarnar. Nicolás Maduro hefur neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningunum. Í kjölfarið hafi hluti stjórnarandstöðunnar lýst Juan Guaido sem bráðabirgðaforseta, en stjórnvöld undir forystu Maduro haldið áfram að fara með raunveruleg völd ríkisins og notið stuðnings öryggissveita. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hafi stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en tekið þátt í sveitarstjórnarkosningum árið 2021 sem hafi farið fram undir alþjóðlegu kosningareftirliti, en framkvæmd þeirra hafi verið ábótavant. Samningaviðræður milli ríkisstjórnar Maduro og stjórnarandstöðunnar hafi hafist á ný í nóvember 2022 og þar komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnarandstaðan leyst upp bráðabirgðastjórn Juan Guaido í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar hafi enn verið að koma Maduro frá völdum. Ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan hafi samþykkt á fundi í Barbados 17. október 2023 að halda forsetakosningar í Venesúela seinni hluta ársins 2024 undir alþjóðlegu eftirliti. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og samningurinn undirritaður með milligöngu Noregs. Hinn 22. október 2023 valdi stjórnarandstaðan Maríu Corinu Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum. Hinn 30. október 2023 ógilti Hæstiréttur Venesúela þá niðurstöðu og frestaði forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið valdi stjórnarandstaðan Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og staðfesti landskjörstjórnin valið 26. mars 2024. Forsetakosningar fóru fram 28. júlí 2024 í Venesúela og landkjörstjórn lýsti því yfir að Maduro hafi hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan mótmælti niðurstöðum kosninganna og sagði Gonzalez vera rétt kjörinn forseta. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, aðrar þjóðir og alþjóðlegir aðilar hafi lýst yfir áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspeglaði ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og var kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar, sem hafi enn ekki verið gert.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld hafi áfram takmarkað borgaraleg réttindi og sótt pólitíska andstæðinga sína til saka án réttlátrar málsmeðferðar. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur fram að handtökur og varðhöld yfirvalda á pólitískum andstæðingum, aðgerðir gegn mótmælum, lokun fjölmiðla og pyndingar og ómannúðleg meðferð ætlaðra og raunverulegra stjórnarandstæðinga grafi undan tjáningarfrelsi og rétti til mótmæla. Í skýrslum Freedom House frá 2024 og 2025 er það mat staðfest að stjórnvöld hafi lokað nánast öllum rásum fyrir pólitíska mótstöðu og viðhaldið kerfisbundnum takmörkunum á borgaralegum og pólitískum réttindum, þar á meðal með handahófskenndum handtökum og pólitískri misnotkun réttarkerfisins. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína og öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað beitt mótmælendur ofbeldi, þar á meðal barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og væru dómsmálayfirvöld samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með útgáfu afturvirkra handtökuheimilda og fyrirskipana um gæsluvarðhöld án fullnægjandi sönnunargagna.
Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 kemur fram að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið alvarleg og kerfisbundin mannréttindabrot frá árinu 2014, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæp gegn mannkyni (e. Crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í því skyni að þagga niður andstöðu við ríkisstjórn Maduro og hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) komust að sambærilegri niðurstöðu í skýrslum sínum frá 2020 og 2021, þar sem m.a. er greint frá þúsundum tilvika aftaka án dóms og laga, handahófskenndum handtökum, þvinguðum mannshvörfum og ýmsum aðferðum pyndinga s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 tilkynnti saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) í nóvember 2021 þá ákvörðun dómstólsins að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknaranum verið heimilað að opna skrifstofu sína í Karakas. Samkvæmt skýrslu Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hafði dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita, þó talið var að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi í júní 2023 tilkynnt að rannsókninni yrði haldið áfram í Venesúela og að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas. Fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjuðu framangreindri ákvörðun en beiðni þeirra um að stöðva rannsóknina hafi verið hafnað 1. mars 2024.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað og ásakanir um óréttmætar kosningar aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Aðgerðir hafi m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um slíkt, sem og að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Öryggissveitir hafi verið sendar á heimili einstaklinga og margir handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi kosningaviðburðum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal fyrirtækjaeigenda, starfsmanna og fjölskyldna þeirra, m.a. fyrir að útvega ýmis aðföng vegna slíkra viðburða. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, án ákæru og látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmæla hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi jafnframt rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga, aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna, þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka í aðdraganda kosninganna og í kjölfar þeirra. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti né hafi verið gætt að réttlátri málsmeðferð. Telji nefndin að stjórnvöld hafi með þessum aðgerðum framið verknað sem geti talist glæpur gegn mannkyni, gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og teljist raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Samkvæmt m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni og hafi yfirvöld stefnt að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins hafi stjórn yfirvalda á öryggissveitum landsins minnkað undanfarin ár og ríkisstjórn Maduro í auknum mæli treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr mótmælum. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir fjölda vopnaðra hópa sem starfa víða um landið og styðja ríkisstjórnina. Þótt óljóst sé að hve miklu leyti yfirvöld hafi formlega stjórn á þessum hópum, hafi þeir tekið þátt í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro.
Í skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Þrátt fyrir fækkun slíkra dauðsfalla á árunum 2018 til 2019 sé það ekki talið til marks um minnkandi ofbeldi í landinu, fremur hafi vopnahópum tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states),sem dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi einnig rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað m.a. vegna erfiðleika við greiðslu lausnargjalda í kjölfar óðaverðbólgu. Nú á síðari árum hafi orðið aukning á glæpum á borð við rán, mannrán og fjárkúgun, einkum í tengslum við lögleiðingu og greiðara aðgengi að erlendum gjaldmiðlum, sem hafi jafnframt leitt til þess að smærri glæpahópar hafa sameinast við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslur um glæpatíðni í landinu. Samkvæmt skýrslu stofnunarinnar fyrir árið 2020 hafi morðtíðni í landinu það ár verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa.Í skýrslu þeirra fyrir árið 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis hafi lækkað í 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa, samanborið við 40,4 árið 2022, en áfram hafi verið skráður verulegur fjöldi ofbeldistilvika, þar á meðal dauðsföll af hálfu yfirvalda og fjöldi tilvika þar sem gerendur hafi verið ótilgreindir.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hafi fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Skotmörk slíkra brota séu einkum fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. innflutnings-, flutninga- og þjónustufyrirtæki auk smærri atvinnurekenda. Greiðslukröfur séu að jafnaði miðaðar við greiðslugetu þolanda og geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 dollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum og fylgi henni oft alvarlega hótanir, eignaspjöll og ofbeldi, þar á meðal árásir á heimili og fyrirtæki þolenda, auk hótana í gegnum síma og samskiptamiðla á borð við WhatsApp. Í skýrslunni eru einnig rakin dæmi þar sem einstaklingar hafi verið myrtir eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópa. Morðin hafi verið tekin upp og birt á samfélagsmiðum til að senda skilaboð til annarra að verða við kröfum hópsins. Þá kemur fram að fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist. Slíkar fjárkúganir eigi sér oftast stað í formi kröfu um mútugreiðslu, m.a. við eftirlitsstöðvar eða við leyfisveitingu. Samkvæmt skýrslu EUAA sé engin áreiðanleg tölfræði til um umfang fjárkúgunar í Venesúela, enda leggi þolendur sjaldnast fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Heimildir bendi jafnframt til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi og þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki átt annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi, að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin tryggi jafnframt sjálfstæði kirkna í landinu, rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín og banni dreifingu áróðurs gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríki almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í landinu og einstaklingar sæti að jafnaði ekki fordómum vegna trúar sinnar og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Þó hafi verið dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað trúarleiðtogum sem gagnrýnt hafi stjórnvöld.
Samkvæmt skýrslu EASO frá 2020, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, leiddi mikil lækkun olíuverðs í kjölfar þess að Maduro varð forseti árið 2013, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki gagnvart atvinnulífinu, til djúprar niðursveiflu efnahags Venesúela. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind ríkisins og um helmingur tekna ríkissjóðs komið frá olíuvinnslu. Óðaverðbólga og efnahagskreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir hækkanir á lágmarkslaunum hafi meginþorri almennings ekki getað framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Í skýrslunni kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfi og föðurlandskortið (s. Sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda fyrir aðgangi að opinberri aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til eftirlits með íbúum og sumum einstaklingum neitað um aðstoð vegna þess að þeir verið taldir á móti ríkisstjórninni og þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar. Árið 2022 hafi stjórnvöld hafið notkun smáforritsins VenApp, sem geri íbúum kleift að tilkynna truflanir á veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns, en notkun þess krefjist samþykkis fyrir aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því jafnframt tæki til að fylgjast með íbúum. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 hafi flestir íbúar Venesúela þá verið í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Þá hafi rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara lagt á flótta eða verið á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 segir að hagkerfi Venesúela hafi byrjað að sýna merki um bata frá árinu 2021 í kjölfar aukningu á olíuframleiðslu slökunar á ströngum reglum um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Talið er að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022, en fátæktin sé enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þrátt fyrir aukið framboð matvæla og lyfja eftir lægri verðbólgu og rýmkun innflutningsreglna hafi stór hluti íbúa ekki efni á nauðsynjavörum vegna lágra launa. Um 50% heimila hafi verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafa Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hefur aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum.
Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022, en það hafi ekki skilað sér í bættri almannaþjónustu, s.s. samgöngum, menntun og heilbrigðisþjónustu. Af heimildum má ráða að hagvöxtur hafi verið um 4-5% árið 2023, um 8% árið 2024 og 9% árið 2025. Í skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 er jafnframt fjallað um endurnýjuð stjórnmálasamskipti Venesúela við önnur ríki frá árinu 2022, m.a. enduropnun landamæra við Kólumbíu, endurnýjun stjórnmálasambands við argentínsk yfirvöld og samkomulag stjórnvalda í Venesúela og stjórnarandstöðunnar í nóvember 2022 um aukna mannúðaraðstoð. Samkomulagið hafi falið í sér úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Sameinuðu þjóðunum, Bandaríkjunum og öðrum löndum. Bandaríkin hafi dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Heimildir benda til þess að hluti þeirra þvingana sem aflétt hafi verið hafi verið komið á á ný eða aðrar settar á eftir forsetakosningarnar í júlí 2024 og aðgerða stjórnvalda gegn stjórnarandstæðingum í kjölfarið.
Samkvæmt skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 hafi fólksflutningur yfir landamæri Venesúela verið stöðugur, bæði inn í landið og út úr því. Á landamærum við Kólumbíu hafi fleiri snúið aftur til Venesúela en farið úr landi, en á landamærum við Brasilíu séu fleiri sem leiti þangað en áður í von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria og vegna brottvísana frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins dregið úr kaupmætti og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna, einkum meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega. Flóttamannastofnunin hafi leitast við að aðstoða þá sem verst sé settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærri endurkomu fólks til Venesúela. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 er heilbrigðiskerfi Venesúela veikburða. Þótt bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir starfi í landinu hafi aðeins um 3% íbúa tök á að nýta sér einkarekna þjónustu. Opinber sjúkrahús hafi glímt við langvarandi skort á lyfjum, búnaði og starfsfólki, og aðgangur að rafmagni og vatni hafi verið ótryggur. Barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hægt væri að koma í veg fyrir með bólusetningum hafi aukist og heilbrigðiskerfið hafi verið illa í stakk búið til að takast á við Covid-19 faraldurinn. Þrátt fyrir að stjórnvöld hafi árið 2022 stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins sé aðbúnaði áfram ábótavant og mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, meðal annars vegna þess að það hafi flúið land í miklum mæli. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökunum af hálfu yfirvalda vegna opinberrar gagnrýni á stöðu heilbrigðiskerfisins. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 og 2025 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir íbúa hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafa rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu og yfir níu milljónir ekki haft efni á nauðsynlegum lyfjum eða meðferð. Samkvæmt skýrslum Landinfo frá 2023 og Human Rights Watch frá 2025 hafi Venesúela um árabil glímt við alvarlegan lyfjaskort, þótt aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þau sem geti greitt fyrir það en mörg fái lyf send frá útlöndum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við sjálfviljuga heimför til Venesúela. Í kjölfarið bárust fregnir af því að sumir hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hafi verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Íslensk stjórnvöld settu sig í samband við þá einstaklinga sem náðist til og óskuðu eftir upplýsingum um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem bárust að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili var kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskur ríkisborgari aðstoð við sjálfviljuga heimför til Venesúela á árinu 2024. Hafi íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela. Þá kemur fram í tölfræði Útlendingastofnunar fyrir árið 2025 að á árinu hafi verið afgreiddar beiðni 345 einstaklinga frá Venesúela um aðstoð við sjálfviljuga heimför.
Á árunum 2024 og 2025 héldu bandarísk stjórnvöld áfram viðskiptaþvingunum gegn Venesúela, þar á meðal aðgerðum sem beindust að olíuútflutningi, sjóflutningum og fjármálastarfsemi. Í desember 2025 tilkynnti Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna um nýjar markvissar refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum innan stjórnkerfis Venesúela, ættingjum eiginkonu forsetans, Ciliu Flores, auk fyrirtækja og skipa sem talin hafi verið tengjast ólöglegum olíuflutningum. Nokkur olíuskip hafi verið talin veita stjórnvöldum í Karakas fjárhagslegan stuðning og vera hluti af svokölluðum skuggaflota (e. Shadow-fleet) sem hafi reynt að komast undan refsiaðgerðum Bandaríkjanna. Frá seinni hluta árs 2025 jókst þrýstingur Bandaríkjanna á Venesúela enn frekar í formi aukinna refsiaðgerða, hernaðarlegra aðgerða og efnahagsþvingana. Í desember 2025 hóf Bandaríkjastjórn átak sem hafði það að markmiði að stöðva olíuútflutning sem talinn var styðja við stjórn Maduro og fjármagna stjórnvöld í Karakas. Á þessum tíma beittu bandarísk yfirvöld kyrrsetningu á fjölda olíuskipa sem sögð voru reyna að komast hjá refsiaðgerðum og flytja olíu ólöglega úr landi. Þá buðu bandarísk stjórnvöld 50 milljónir dollara í verðlaun fyrir upplýsingar sem gætu leitt til handtöku Maduro. Þann 16. desember 2025 tilkynnti Donald Trump, forseti Bandaríkjanna um algert hafnarbann gegn öllum skipum sem reyndu að flytja olíu til eða frá Venesúela. Aðgerðinni var lýst sem hluta af víðtækari stefnu til að rjúfa flutningsleiðir olíugeirans og auka þrýsting á stjórnvöld í Venesúela.
Hinn 3. janúar 2026 stóðu bandarísk yfirvöld að umfangsmiklum hernaðaraðgerðum í Karakas. Í kjölfar þeirra tilkynntu bandarísk yfirvöld að Nicolás Maduro, forseti Venesúela og eiginkona hans Cilia Flores, hefðu verið handtekin. Var það sagt byggja á ákærum bandarískra yfirvalda á hendur Maduro, meðal annars vegna meintrar fíkniefna hryðjuverkastarfsemi (e. Narco-terrorism), kókaíninnflutnings til Bandaríkjanna og vörslu á ólöglegum skotvopnum. Í kjölfar aðgerðanna voru Maduro og Flores flutt til Bandaríkjanna þar sem þau verði sótt til saka. Þá greindi Trump frá því að Bandaríkin myndu stýra Venesúela tímabundið á meðan valdaskipti ættu sér stað og eitt af forgangsmálum væri að koma olíuflutningi aftur í gang og nýta olíuauðlindir landsins í þágu almennings og fjármögnunar á uppbyggingu Venesúela. Í kjölfar handtöku Maduro héldu bandarískar hernaðar- og löggæslusveitir áfram að leggja hald á olíuskip sem reyndu að sniðganga bandarískar þvingunaraðgerðir. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu jafnframt að fyrstu birgðir af venesúelskri olíu, sem hafi verið haldlögð yrðu seld fyrir um 500 milljónir Bandaríkjadala, með þeim rökum að söluandvirðið myndi nýtast bæði Bandaríkjunum og efnahagslegri uppbyggingu í Venesúela.
Aðgerðir Bandaríkjanna hafa verið afar umdeildar á alþjóðavettvangi. Sameinuðu þjóðirnar, fjölmörg ríki og mannréttindasamtök hafa gagnrýnt þær harðlega og haldið því fram að þær brjóti gegn alþjóðalögum og hafrétti. Þá hefur verið kallað eftir formlegri umfjöllun innan Sameinuðu þjóðanna um afleiðingar þeirra varðandi viðskipti, stjórnmál og mannréttindi. Þá er óljóst hvað framhaldið verður hvað varðar stjórn í Venesúela. Sem stendur hefur varaforseti landsins, Delcy Rodriguez, tekið við forsetaembættinu í fjarveru Maduro. Hefur hún verið í samskiptum við bandarísk stjórnvöld um framtíð landsins og stjórn þess. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja að eina leiðin til þess að endurreisa lýðræðið í Venesúela eftir nýleg brot á fullveldi landsins og áralanga einræðisstjórn sé að virða vilja venesúelsku þjóðarinnar, tryggja ábyrgð og sjálfákvörðunarrétt og tryggja fullvalda og sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda þeirra í samræmi við alþjóðalög.
Þrátt fyrir framangreindar aðgerðir Bandaríkjanna liggur ekki fyrir að almennt öryggi borgara í Venesúela hafi raskast verulega í kjölfarið. Alþjóðlegir fjölmiðlar og opinberar yfirlýsingar bandarískra stjórnvalda hafa ekki greint frá því að viðvarandi átök, almennar óeirðir eða víðtæk mótmæli hafi brotist út í kjölfar aðgerðanna, heldur virðist öryggisástand að mestu hafa haldist stöðugt utan þeirra afmörkuðu hernaðaraðgerða sem framkvæmdar voru í Karakas við handtöku Maduro. Fjölmiðlar hafa greint frá því að stjórnsýsla og opinber þjónusta hafi að meginstefnu haldið áfram starfsemi sinni, þrátt fyrir pólitíska óvissu í kjölfar aðgerðanna. Jafnframt liggja ekki fyrir heimildir um að aðgangur að heilbrigðisþjónustu eða lyfjum hafi almennt verið hindraður. Þá benda heimildir til þess að landamæri Venesúela séu opin og að almenningur geti ferðast til og frá landinu. Að lokum liggja ekki fyrir heimildir sem benda til þess að einstaklingar sem snúi aftur til Venesúela eigi almennt hættu á að verða fyrir handahófskenndri meðferð, auknu eftirliti eða refsiaðgerðum einungis vegna aðgerða Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Venesúela hafi þá unnið að því að láta lausa pólitíska fanga og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu frjálsu félagasamtakanna Foro Penal frá 8. mars 2026, hafði 670 pólitískum föngum verið sleppt frá 8. janúar 2026. Telja samtökin að enn séu um 508 pólitískir fangar í haldi. Af upplýsingum frá fréttamiðlum má ráða að samtal stjórnvalda í Venesúela og Bandaríkjunum halda áfram og hefur samstarf landanna verið rætt hvað varðar námu- og olíuvinnslu auk þess sem diplómatísk tengsl ríkjanna hafa verið endurnýjuð. Ennfremur voru svokölluð sakaruppgjafarlög (e. Amnesty law) samþykkt á venesúelska þjóðþinginu sem vonir standi til að leiði til þess að fjölda pólitískra fanga verði sleppt. Lögin nái þó ekki til þeirra sem hafi verið ákærðir eða sakfelldir fyrir að hvetja til hernaðaraðgerða gegn landinu. Hafa stjórnvöld verið hvött til þess að ganga úr skugga um að aðeins þeir sem hafi verið handteknir fyrir að nýta sér rétt sinn til tjáningar, skoðunar og samkomu/funda njóti verndar laganna en ekki aðilar sem hafi gerst sekir um alvarleg mannréttindabrot og glæpi gegn mannkyni, s.s. herlið á vegum yfirvalda og skæruliða.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þau hafi orðið fyrir fjárkúgunum og hótunum í heimaríki sökum stjórnmálaskoðana sinna. M hafi verið rænt árið 2010 og kærendur geti ekki treyst á aðstoð eða vernd yfirvalda.
Mat á trúverðugleika frásagna kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins, upplýsingum um heimaríki og frásögn C í viðtali hans hjá Útlendingastofnun þar sem hann byggir á sams konar málsástæðum og kærendur og hefur lagt fram að miklu leyti sömu gögn til stuðnings málatilbúnað sínum.
Við meðferð mála kærenda hjá Útlendingastofnun lögðu þau m.a. fram afrit af yfirlýsingum, dags. 18. febrúar 2025, sem þau byggja á að séu staðfestingar á aðild þeirra í Acción Democrática. Bera skjölin með sér að í þeim komi fram að M hafi hafi gegnt stöðu ritara innan flokksins í rúm átta ár og K í rúm sjö ár. Í greinargerð kærenda til Útlendingastofnunar er áréttað að titillinn ritari sé að sögn kærenda notaður yfir almenna flokksmeðlimi. Kærendur lögðu einnig fram skjáskot af tilteknum samfélagsmiðli dags. 2. og 11. júní 2022 sem bera með sér að sýna annars vegar fund starfshóps samgöngu- og umferðarnefndar og hins vegar fund borgarráðs og fyrirsvarsmanna flutningafyrirtækja sem sjái um dreifingu neysluvatns. Þá kemur fram í skýringum kærenda með skjáskotunum að M hafi verið viðstaddur báða fundina, sjáist á myndunum og að áðurnefndur bæjarstjóri hafi setið annan fundanna. Kærendur lögðu einnig fram gögn varðandi tvö fyrirtæki sem bera með sér að fyrirtækin hafi verið í eigu þeirra.
Með tölvubréfi 24. febrúar 2026 óskaði kærunefnd eftir skýringum kærenda á því hvers vegna þau tengi þær hótanir sem þau hafi greint frá við stjórnmálaskoðanir sínar frekar en við það að þau hafi átt landareignir og stundað rekstur í heimaríki. Í svörum kærenda, dags. 2. mars 2026, kemur m.a. fram að kærendur tengi hótanir við stjórnmálaskoðanir sínar vegna þess að hótunum væri ekki beint að þeim sem styðji ríkisstjórnina en ofbeldið væri verst gegn þeim sem væru virkir í pólitísku starfi. Vísuðu kærendur til þess að líkt og M hafi í viðtali sínu greint frá hafi fjárkröfur og hótanir versnað þegar M hafi hafið að gegna hlutverki við að útvega sveitarfélaginu vatn og koma upp varnargörðum vegna flóða og að þar sem bæjarstjórinn hafi verið stjórnarandstæðingur hafi allur stuðningur við hann verið illa séður. Kváðu kærendur ofsóknir vissulega hafa staðið í tengslum við þá staðreynd að þau hafi átt eignir en vísuðu til þess að fjársterkir stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar í Venesúela verði ekki fyrir fjárkúgunum, hótunum eða eigi á hættu að vera rænt. Í svörunum kemur einnig fram að árið 2022 hafi M og K verið orðin áberandi í stuðningi við sveitarfélagið og á sama tíma hafi kröfurnar aukist og þeim farið að fylgja beinar hótanir.
Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e.-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Að mati kærunefndar er ekki ástæða til annars en að leggja til grundvallar að kærendur hafi verið meðlimir í Acción Democrátcia frá 2017 og 2018, að M hafi setið framangreinda fundi og að kærendur hafi rétt fram hjálparhönd í heimabæ þeirra eftir þörfum á þann hátt sem þau hafa lýst. Þrátt fyrir það verður ekki séð að kærendur hafi gegnt áberandi hlutverki innan flokksins eða að þau séu útsettari en aðrir stjórnarandstæðingar eða einstaklingar sem rétt hafi fram hjálparhönd fyrir áreiti eða hótunum. Ekkert sem fram hefur komið bendir til þess að tengsl M eða C við umræddan bæjarstjóra eða son viðkomandi hafi verið slík að þeir eigi á hættu ofsóknir vegna mögulegra tengsla þeirra. Þá greindi C í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun ekki frá slíkum tengslum. Þá er til þess að líta að í gögnum málsins liggja fyrir venesúelsk vegabréf kærenda, útgefnum 17. október 2024. Í vegabréfunum má sjá útstimpil af Simon Bolivar flugvellinum 18. apríl 2025. Gefur það til kynna kærendur hafi getað sótt um vegabréf og farið með löglegum hætti úr landinu án þess að vera stöðvuð vegna opinna mála í venesúelska réttarkerfinu. Að mati kærunefndar gefur framangreint ekki til kynna að kærendur séu eftirlýst eða undir sérstöku eftirliti hjá stjórnvöldum í heimaríki sínu. Með vísan til frásagna kærenda og gagna málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Í viðtölum kærenda hjá Útlendingastofnun kváðu þau allt hafa byrjað árið 2010. M hafi verið rænt 8. maí 2010 af glæpahópnum „Extermino“ og hann færður í hendur vopnaða hópsins „ELN“ (s. Ejército de Liberación Nacional) í fjalllendi Kólumbíu og verið haldið þar í tæpa tvo mánuði þar til faðir hans hafði greitt lausnargjald. Ástæðu ránsins telji kærendur hafa verið að þáverandi stjórnvöld hafi ásælst það landsvæði sem býli föður M hafi verið staðsett á. K greindi frá því að eftir að M hafi verið laus úr haldi „Extermino“ hópsins árið 2010 hafi áfram verið fylgst með kærendum og ótilgreindir aðilar hafi haldið áfram að áreita kærendur. Þau hafi keypt annað býli en um leið og aðilarnir hafi fundið út úr því hvar kærendur voru hafi áreitið byrjað aftur. M greindi frá því að í kringum 2013 hafi hann orðið að veita lögreglunni tiltekna aðstoð með því að útvega aðföng. Kærendur kváðust hafa selt býli sitt í Santa Barbara og keypt annað býli í La Villa del Rosario árið 2013. Þau hafi síðan selt það býli og kvað K það hafa verið vegna áreitis og handtöku M við vegaeftirlit í La Villa del Rosario árið 2013. Kærendur telji handtöku M hafa verið tilraun lögreglunnar til fjárkúgunar.
Við meðferð mála kærenda hjá Útlendingastofnun lögðu þau m.a. fram þrjár blaðagreinar varðandi ránið á M sem bera með sér að greina frá því að M hafi verið rænt af bóndabýli í Santa Barbara 8. maí 2010 af fjórum vopnuðum mönnum er huldu andlit sín. Fulltrúar yfirvalda hafi mætt á svæðið og hafið samstarf með öðrum öryggissveitum í þeim tilgangi að hafa uppi á M. Ein greinanna er ódagsett en hinar eru dagsettar 9. og 10. júlí 2010 og er í einni þeirra er vísað til þess að að áætlað sé að M hafi verið tekinn af „Exterminio“ glæpahópnum. Kærendur lögðu einnig fram lögregluskýrslu frá heimaríki varðandi rannsókn lögreglunnar á ráni á M, dags. 9. júlí 2010. Skjalið ber með sér að vera framburðarskýrsla M hjá lögreglunni í Santa Barbara eftir að hann losnaði úr haldi ræningjanna og það sem þar kemur fram er í samræmi við frásögn M í viðtali hjá Útlendingastofnun. Ekkert sem í framangreindum gögnum rennir stoðum undir að ránið hafi verið að undirlagi venesúelskra stjórnvalda eða að gerendur hafi haft tengsl við þarlend stjórnvöld.
Til stuðnings frásagna sinna um handtöku M árið 2013 lögðu kærendur fram afrit skjals, dags. 14. október 2013, sem ber með sér að um vera dómsúrskurður og að þar komi fram að M hafi verið færður í hald lögreglumanna er sinnt hafi vegaeftirliti hinn 13. október 2013 þegar eftirlitsmaður hafi áttað sig á því að M væri á skrá yfir horfna menn. Fram komi að ekki hafi legið fyllilega fyrir hvort M hafi verið gerandi eða þolandi í umræddu máli. Í úrskurðarorði komi þá fram að M skuli tafarlaust látinn laus, í samræmi við ákvæði þarlendrar stjórnarskrár um að enginn skuli sviptur frelsi umfram 48 tíma nema með dómsúrskurði. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 24. febrúar 2026, spurði nefndin kærendur m.a. hvortþau hafi þurft að greiða lögreglunni eða yfirvöldum í heimaríki þeirra vegna handtöku M árið 2013. Svöruðu kærendur 2. mars 2026 að þau hafiekki greitt fé til lögreglunnar eða yfirvalda vegna handtökunnar. Í svarinu kemur einnig fram að M hafi verið haldið við vegaeftirlitsstöð í tæpa tvo sólarhringa og honum verið tjáð að hægt væri að láta nafn hans hverfa úr kerfinu en að slík fyrirgreiðsla væri ekki ókeypis. M hafi þá krafist þess að fá að ræða við lögmann og þegar það hafi gengið hafi lögmaður hans krafist þess að haft yrði samband við lögregluna í Santa Barbara sem hafi staðfest að M hefði verið eftirlýstur sem brotaþoli í gíslatökumáli en ekki sem glæpamaður. M hafi verið sleppt án frekari eftirmála.
Talsvert misræmi var á milli frásagna kærenda varðandi tímabil áreitis, hótana og fjárkúgana. Líkt og fram hefur komið greindi K frá því að atburðir hafi náð til 2019 en að á því ári hafi kærendur viljað lækka fjárhæðina sem þau hafi fram að því greitt og síðan hafi þau neitað að greiða en þá hafi aðilarnir skotið á heimili tengdaforeldra hennar. Tengdaforeldrar K hafi fært sig til systur M eftir skotárásina og hlé hafi orðið á fjárkúgunum eftir andlát þeirra, sem af frásögnum kærenda verður ráðið að hafi verið sökum veikinda, en fjárkúganir hafi hafist að nýju undir lok 2020. M greindi hins vegar frá því að hann hafi ekki orðið fyrir áreiti á meðan hann hafi verið með öryggisgæslu, sem af gögnum málsins verður ráðið að hafi verið til 2017, og hlutirnir hafi orðið mjög slæmir tveimur árum fyrr þegar honum hafi farið að berast hótanir. Kvað hann að tvisvar hafi verið skotið að heimili foreldra hans, með þriggja daga millibili, og að foreldrar hans hefðu fært sig til systur hans eftir síðari skotárásina. Kærendur byggja á því að þeim hafi borist hótanir frá hópi manna sem væri sameinaður af mörgum lögregluembættum og öðrum yfirvöldum. Kváðu þau hópinn bera heitið „La Patria“ og vera leiddan af Y sem hafi verið lögreglumaður á eftirlaunum.
Máli sínu til stuðnings lögðu kærendur m.a. fram afrit af lögregluskýrslu M vegna hótana og skjáskot af hótunum. Skýrslan er dags. 7. desember 2023 og ber með sér að tilkynnandi greini þar frá því að honum hafi borist skilaboð yfir nokkra daga á tilteknum samskiptamiðli og í þeim hafi hann hafi verið krafinn um peninga og lífi hans og C verið ógnað af meðlimum hóps er kalli sig „La Patria“. Skýrslan ber með sér að vera framburðarskýrsla M hjá lögreglunni og hefur samkvæmt því takmarkað sönnunargildi fyrir mál kæranda. Ekkert sem í skýrslunni kemur fram rennir stoðum undir að um hópurinn „La Patria“ hafi staðið þar að baki. Kærendur lögðu einnig fram skjáskot af skilaboðum sem þau byggja á að feli í sér hótanir aðilanna. Skjáskotin bera með sér að vera dagsett 29. október 2023, 9. nóvember 2023 og 5. desember 2023. Þá bera skjáskotin, dags. 29. október og 9. nóvember 2023, með sér að vera send úr venesúelsku símanúmeri og í þeim sé vísað til C. Skjáskotið dags. 5. desember 2023 sé sent úr öðru venesúelsku símanúmeri í þeim skilaboðum sé einnig vísað til kæranda. Skjáskotin hafa takmarkað sönnunargildi í máli kæranda enda verður af þeim ekkert ráðið um m.a. sendendur skilaboðanna og ástæður að baki sendingu þeirra.
Með áðurnefndu tölvubréfi 24. febrúar 2026 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum varðandi það hvaða embætti Y hafi gengt, hvort Y væri meðlimur „La Patria“ hópsins og hvort kærendur gætu lagt fram einhver gögn um hópinn og Y. Þá vísaði nefndin til þess að M hefði í viðtali greint frá því að hann hafi þurft að skipta um farsíma þar sem síminn hafi innihaldið mörg símtöl frá fólki sem hafi unnið með Y og hópurinn hafi hótað M því að segja fólki frá því að M ynni með þeim. Óskaði nefndin skýringa kærenda á því hvers vegna hópurinn hafi verið að hóta M og hverju hópurinn hafi viljað ná fram með því. Í svörum kærenda 2. mars 2026 kemur m.a. fram að Y hafi verið rannsóknarlögreglumaður áður en hann fór á eftirlaun. Kærendur hafi ekki aðgang að upplýsingum um hópinn en kváðu að til væru fréttir þar sem Y komi við sögu og lögðu fram fréttaumfjallanir um Y, sem þau kváðu leiða vopnuðu glæpasamtökin „Los Pótes de Polvora“ og að samtökin starfi í skjóli stjórnvalda. Út frá samtökunum starfi mikill fjöldi smærri glæpahópa sem einbeiti sér að tilteknum svæðum, þeirra á meðal væri hópurinn „La Patria“. Þáttur í þeirri fjárkúgunartilraun hafi verið að láta yfirvöld halda að M starfi með „La Patria“. Kváðu kærendur yfirvöld stundum rannsaka glæpahópa og því væri hættulegt fyrir almenna borgara sem ekki njóti verndar spilltra stjórnmálaafla að vera bendlaðir við slíka hópa.
Óskaði nefndin einnig eftir nánari útskýringum frá kærendum varðandi upphaf og tímabil meintra hótana og fjárkúgana. Vísaði nefndin til þess að M hafi greint frá því að hlutirnir hafi orðið mjög slæmir tveimur árum fyrr og að þá hafi honum farið að berast hótanir og að síðastliðin tvö ár hafi hann þurft að borga í desember en K hafi greint frá því að hlé hefði orðið á fjárkúgunum árið 2019 en þær byrjað aftur undir lok árs 2020. Þá hafi C greint frá því að hótanir símleiðis og í skilaboðum hafi verið stöðugar, aukist ár frá ári og alltaf aukist fyrir jól. Óskaði nefndin eftir nánari upplýsingum frá kærendum um það m.a. með hvaða hætti þeim hafi borist hótanir og hversu oft, hvort þau hafi alltaf verið beðin um greiðslu peninga og hvort þau hafi látið undan. Hvort hlé hafi orðið á hótununum og á hvaða tímabili M og K hafi borist hótanir og C hins vegar. Spurði kærunefnd einnig hvort þau hafi orðið fyrir fjárkúgunum á öðrum tímum ársins en desember og hvernig þær hótanir hafi farið fram. Í svörum kærenda kemur m.a. fram að hótanir hafi borist með símtölum, textaskilaboðum og heimsóknum frá ólöglegum tollheimtumönnum, Colectivos. Hótanir og ógnanir hafi borist óreglulega, stundum nokkra daga í röð en stundum hafi vikur eða mánuðir liðið fram að næstu törn. Kærendur hafi þó undantekningarlaust verið heimsótt í desember og verið krafin um verndargjald og eftir að þau hafi dregið úr framlögum sínum árið 2020 hafi tollheimtumennirnir verið vopnaðir. Kærendur telji sig hafa orðið fyrir beinum hótunum 8 til 10 sinnum á tveggja ára tímabili. Fram til ársins 2022 hafi hótanir verið dulbúnar sem beiðni um frjáls framlög og gefið í skyn að það myndi hafa ótilgreindar afleiðingar yrði krafan ekki greidd. Kærendur hafi látið undan til ársins 2020 en sú ákvörðun að hætta að greiða hafi haft þær afleiðingar að skotið var á húsnæði foreldra M í nóvember 2020 svo kærendur hafi látið undan fjárkúgunum að nýju. Hlé hafi orðið á hótunum í tæpt ár eftir andlát foreldra M en síðan hafi allt byrjað aftur. M og K hafi orðið fyrir beinum líflátshótunum frá miðju ári 2022 en orðið fyrir óbeinum hótunum, ógnandi framkomu og dylgjum fram að því. M hafi borist beinar og alvarlegar hótanir sem beinst hafi að C á tímabilinu 2022 til 2024. C hafi sjálfur orðið fyrir beinum hótunum árið 2024 en af hálfu annarra aðila og af öðrum ástæðum. Kærendur hafi orðið fyrir fjárkúgunum á öðrum tímum en í desember en ekki beinum hótunum og vísuðu þau til viðtala sinna varðandi það hvernig sú kúgun hafi farið fram. Fram kemur að K hafi misminnt í viðtali og rétt væri að skotið hafi verið á heimili tengdaforeldra hennar 14. nóvember 2020. Þá kváðu kærendur K hafa misreikað upphaf fjárkúgana um eitt ár en að öðru leyti væri ekki misræmi á milli hennar og M varðandi upphaf hótana og fjárkúgana. Fram kemur að fjölskyldan hafi sætt fjárkúgun í einhverju formi allt frá því að M var rænt árið 2010 en til að byrja með hafi þau ekki verið krafin um óyfirstíganlegar fjárhæðir heldur eins konar stuðning, líkt og að gefa húsgögn, vél eða frjáls fjárframlög auk verndartolla sem hafi verið innheimtir í desember. Kröfum hafi verið beint að fjölskyldunni sem heild.
Samhliða framangreindum svörum lögðu kærendur m.a. fram skjáskotaf ljósmynd sem þau byggja á að sýni skot sem C hafi tekið upp af gólfinu eftir að skotið hafi verið í vegg og á gólf heimilis foreldra M. Skjáskotið ber með sér að vera dagsett 15. nóvember 2020 og myndin hafi verið tekin í Santa Barbara. Af skjáskotinu verður þó ekkert ráðið um það hvort C hafi verið sá sem tók myndina og sé sá sem haldi á skotinu, ástæður að baki meintrar skotárásar, tímasetningu hennar eða hver hafi staðið þar að baki. Hefur skjáskotið því takmarkað sönnunargildi fyrir mál kærenda. Hins vegar er ekki ástæða til að draga í efa að skotið hafi verið að heimili foreldra M í nóvember 2020. Kærendur hafa hins vegar ekki rennt stoðum undir að ástæður þar að baki hafi tengst aðstæðum þeirra eða að gerendur hafi verið svokallaður „La Patria“ hópur.
Með tilliti til skýringa kærenda og gagna málsins verður við úrlausn málsins lagt til grundvallar að kærendur og B hafi verið búsett í Santa Barbara þar til þau yfirgáfu heimaríki. A hafi búið hjá kærendum í Santa Barbara þar til í september eða október 2024 en þá hafi A flust til El Vigía í Merida fylki og dvalið þar hjá fótboltaþjálfara sínum fram í febrúar 2025. Þá er ekki ástæða til að leggja annað til grundvallar en að kærendur hafi rekið býli í heimaríki og sinnt rekstri tveggja nafngreindra fyrirtækja í Santa Barbara.
Þegar litið er til þeirra heimilda sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Venesúela er ekki ástæða til að leggja annað til grundvallar en að M hafi verið rænt af glæpahópi 8. maí 2010. Heimildir benda til þess að vopnaðir glæpahópar séu starfræktir í heimaríki kærenda sem stundi glæpi á við fjárkúganir, eiturlyfjasmygl og mannrán. Ekkert í gögnum málsins rennir hins vegar stoðum undir að ránið hafi verið að undirlagi yfirvalda eða vegna stjórnmálaskoðana kærenda, foreldra M eða mótþróa foreldra hans gegn aðgerðum þáverandi stjórnvalda. Með vísan til frásagna kærenda, framlagðra gagna og upplýsinga um heimaríki kærenda er jafnframt ekki ástæða til að draga í efa að M hafi verið handtekinn við vegaeftirlit 13. október 2013 í La Villa del Rosario. Með tilliti til landaupplýsinga verður ekki útilokað að um hafi verið að ræða tilraun til fjárkúgunar. Hins vegar verður af frásögnum kærenda hjá Útlendingastofnun og svörum kærenda til nefndarinnar ráðið að þau hafi ekkert greitt til lögreglunnar eða annarra yfirvalda vegna handtökunnar. Þá hafi M verið látinn laus degi síðar, í kjölfar þess að kærendur hafi, með aðstoð lögfræðings, sýnt fram á að hann hefði verið þolandi í málinu. Hefur nefndin að öðru leyti ekki forsendur til þess að meta málsmeðferð stjórnvalda í Venesúela varðandi handtöku M. Þá horfir kærunefnd til þess að framangreint rán á M átti sér stað fyrir 16 árum og handtaka hans fyrir 13 árum. Með tilliti til upplýsinga um heimaríki kærenda verður ekki útilokað að lögreglan hafi þrýst á M að útvega þeim eða sveitarfélaginu aðföng eða fjárframlög í kringum 2013. Hins vegar bera frásagnir kærenda og framlögð gögn með sér að atvikin hafi frekar tengst aðstæðum í Venesúela og almennu óöryggi þar í landi en persónu M og hafi ekki náð því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun var M spurður að því hvort hann hefði sætt ákæru. M svaraði því að hann hefði verið sakaður um hluti í því skyni að hafa af honum peninga. Aðspurður hvort hann hefði verið sakaður um hluti af yfirvöldum svaraði M að meðlimur í þjóðvarðliði Venesúela (sp. La Guardia Nacional Bolivariana) hafi þrýst á hann að gefa sér vél sem hann hafi gert en í kjölfarið hafi maðurinn krafið M um varahluti vegna meintrar bilunar vélarinnar og jafnframt krafið hann um fjármagn til kaupa nýja vél. Eftir þetta hafi lögreglan haft samband við M og sakað hann um að múta einstaklingi. M kvaðst hafa verið handtekinn í einn dag og farið fyrir rétt vegna málsins. Niðurstaðan hafi verið . Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að árið 2023 hafi starfsmaður í umhverfisráðuneyti Venesúela þrýst á M að gefa sér vél og innan við mánuð hafi hann krafist aðstoðar við að gera við vélina sem M hafi veitt. Nokkrum dögum síðar hafi umræddur maður eða menn á hans vegum haft samband og krafist átta til tíu þúsund dollara þar sem að vélin sem var beðin um hafi ekki verið rétt. Byggja kærendur á því að um hafi verið að ræða tilraun embættismanns til fjárkúgunar. Síðan hafi kærendum verið hótað að ef þau ef þau myndu ekki greiða yrðu þau ásökuð um mútur. Síðan hafi vopnaður hópur komið að heimilinu með stefnu og spurt um M. Eftir nokkra daga hafi hópur frá CICPC komið að heimili kærenda og spurt um M. Greindi K frá því að M hafi haldið að beiðni um vélina hafi verið í þágu ráðuneytisins en maðurinn sem hafi beðið um vélina hafi verið tengdur hernum. Aðspurð hvort þau hefðu farið til CICPC að kæra atvikið svaraði K að lögmaður M hafi ráðlagt honum að fara beint til saksóknara og hún hafi útskýrt það fyrir CICPC. K kvaðst hafa hringt í lögmanninn og hann tjáð henni að starfsmaður ráðuneytisins hafi kært kærendur fyrir að hafa afhent honum bilaða vél. Hafi kærendur haldið að starfsmaðurinn og saksóknarinn hafi verið að vinna saman í því að ná af þeim peninga. Málið hafi farið fyrir dóm og niðurstaðan hafi verið sú að málið var fellt niður. Í greinargerð kærenda til kærunefndar kemur fram að rétt væri að M hafi verið hótað því að mútur yrðu bornar á dómara og að annað hvort hafi verið um mistök við þýðingu að ræða eða að kærendur hafi ekki komið þessu nægilega skýrt frá sér. Kemur þá í svörum kærenda til nefndarinnar 2. mars 2026 einnig fram að M hafi orðið fyrir hótunum vegna þess að embættismaður hafi þvingað hann til að láta af hendi vél og viljað fé af M. Hópurinn hafi viljað ná peningum af kærendum og markmið hótana „La Patria“ hafi verið að fá kærendur til að greiða háa fjárhæð til þess að fá embættismanninn til að falla frá kæru sinni. Vísuðu kærendur til þess að ekki væri hægt að reikna með réttlátri málsmeðferð í Venesúela.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram gögn varðandi ofangreint vélarmál máli sínu til stuðnings, dags. 29. janúar 2024 og 8. febrúar 2024. Bera gögnin með sér að M hafi verið ásakaður um vörusvik af nafngreindum einstaklingi og að málinu hafi lokið á dómsstigi með hagfelldum hætti fyrir M.
Að mati kærunefndar er ekki ástæða til að draga í efa að framangreint mál hafi farið fyrir dómstóla. Ekkert í gögnum málsins rennir stoðum undir að um hafi verið að ræða tilraun til fjárkúgunar eða undir meinta tengingu embættismannsins við „La Patria“ hópinn eða annan glæpahóp í heimaríki kærenda. Þótt ekki verði útilokað að viðkomandi einstaklingur, sem nafngreindur er í gögnum málsins, hafi starfað fyrir yfirvöld í Venesúela, hefur kærunefnd ekki fundið upplýsingar sem styðja við það og kærendur ekki rennt stoðum undir það eða að málaferlin hafi verið að undirlagi stjórnvalda. Var auk þess misræmi á milli frásagna kærenda varðandi það hvort viðkomandi hafi tilheyrt þjóðvarðliði Venesúela eða umhverfisráðuneyti landsins. Hefur þá frásögn kærenda einnig tekið breytingum varðandi það hvort um hafi veri að ræða hópinn „La Patria“, hóp á vegum CICPC, Colectivos eða ótilgreinda vopnaða hópa.
Þrátt fyrir að ekki verði lagt til grundvallar að kærendur hafi orðið fyrir fjárkúgunum vegna stjórnmálaskoðana sinna er, með tilliti til upplýsinga um heimaríki kærenda, ekki ástæða til að draga í efa að þau hafi orðið fyrir einhverjum fjárkúgunum í heimaríki af hálfu ótilgreindra einstaklinga eða glæpahóps. Af heimildum um heimaríki kærenda er ljóst að fjárkúganir hafi aukist vegna batnandi efnahags landsins og aðgengis að reiðufé. Hafi slíkt einkum beinst að fyrirtækjum og einstaklingum sem hafi aðgang að erlendum gjaldmiðli. Þá benda landaupplýsingar til þess að fjárkúganir sem framdar séu af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum séu ítrekaðar og þolendur þurfi reglulega að greiða samtökunum fjárhæðir í samræmi við kaupmátt. Þá hafi fjárkúgun af hendi starfsmanna yfirvalda og öryggissveita einnig aukist sem einkum felist í að krafist sé greiðslu til að ljúka eða hraða afgreiðslu mála í stjórnsýslunni, greiðslna sé krafist af vörubílstjórum, nautgripabændum og öðrum greiðslum við vegatálma. Yfirvöld hafi að einhverju leyti brugðist við spillingu innan raða öryggissveita sinna og slíkum fjárkúgunum en frekari aðgerða sé þörf. Kærendur hafa hins vegar ekki rennt stoðum undir að glæpahópurinn „La Patria“ hafi staðið að baki þeim fjárkúgunum sem kærendur hafi orðið fyrir eða að fjárkúganir hafi verið að undirlagi stjórnvalda. Á hinn bóginn er ekki ástæða til að draga í efa að glæpahópur á heimasvæði kærenda hafi kúgað af þeim fé eða krafið þau um verndargjöld. Verður af gögnum málsins ekki annað ráðið en að fjárkúganirnar hafi verið í tengslum við landeignir kærenda og atvinnurekstur þeirra. Líkt og fram hefur komið verður af heimildum ráðið að venesúelsk stjórnvöld hafi ráðist í aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópa í landinu og bera heimildir ekki með sér að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð glæpahópa sem fellur undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laganna. Bera heimildir jafnframt með sér að yfirvöld hafi brugðist við spillingu innan raða lögreglunnar og að einstaklingar sem lendi í brotum af hendi lögreglu, svo sem fjárkúgunum, geti leitað meðal annars til ríkislögreglunnar (sp. Policía Nacional Bolivariana) eða þolendaaðstoðar hjá almenningsráðuneytinu (sp. Ministerio Público). Samkvæmt gögnum málsins hafa kærendur leitað til lögreglu og er ekkert sem bendir til þess að þau geti ekki leitað aftur til lögreglu telji þau þess þörf.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda, viðtölum við börnin og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barna þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að þau eigi rétt á viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu og starfi nú ýmis innlend og erlend frjálsfélagasamtök og alþjóðastofnanir í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Þá er ljóst að þrátt fyrir áframhaldandi viðskiptaþvinganir og takmörkum á olíuviðskipti í landinu sé áframhaldandi hægur hagvöxtur í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barna þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í Santa Barbara í Zulia fylki Venesúela. Samkvæmt landakorti er Zulia fylki staðsett við landamæri Kólumbíu og benda heimildir til þess að fylkið sé eitt ofbeldisfyllsta fylki landsins. Zulia fylki glími við langvarandi rafmagnsleysi, vatnsskort, ofbeldi og staðbundin átök. Samkvæmt heimildum, m.a. greinum InSightCrime frá 15. febrúar 2024 er Zulia megintenging fíkniefnasamtaka frá Kólumbíu, einkum glæpahópanna ELN og afsprengihópa FARC (sp. Fuerzas Armadas Revolucionarias de Colombia). Þar komi fram að Zulia sé bækistöð ELN sem starfi með refsileysi í fylkinu, þökk sé tengsla við ríkisstjórn Maduro. Stjórnvöld njóti góðs efnahagslega af starfsemi samtakanna og þau þvingi íbúa til að kjósa flokk Maduro. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), áttu sér stað 32 ofbeldisatvik í Zulia á öðrum ársfjórðungi 2025. Þrátt fyrir það bera gögn ekki með sér að virk átök eða óeirðir séu á því svæði þar sem kærendur voru búsett eða í Venesúela almennt.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærendur og börn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í Venesúela síðustu ár þá sé hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barna þeirra og aðstæður í heimaríki benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali kvaðst M hafa verið greindur með háan blóðþrýsting í heimaríki árið áður og taki lyf vegna þess. Hann hafi haft aðgang að lyfjunum bæði í heimaríki og hér á landi. Kvað hann háa blóðþrýstinginn vera kominn til vegna áhyggja. K kvaðst glíma við ýmis heilsufarsvandamál, til að mynda skjaldkirtilsvandamál, nýrnasteina og magavandamál. Hún hafi fengið greiningu á veikindum sínum í heimaríki og haft aðgang að heilbrigðisþjónustu þar, m.a. lyfjum, vegna þeirra. Hún hafi einnig sótt sálfræðitíma hér á landi. K hafi ekki farið til sálfræðings í heimaríki en sálfræðingur hér á landi hafi greint sig með áfallastreituröskun og þau þurfi að fara með son kærenda til sálfræðings. Aðspurð hvort hún hafi getað greitt fyrir framangreinda þjónustu í heimaríki kvaðst K hafa getað greitt fyrir lyfin. Hún hafi ekki farið til sálfræðings þar og að þegar aðstæður hafi orðið mjög slæmar hafi hún hætt að sækja sér læknisþjónustu vegna skjaldkirtils vandamála sinna. Heilsu barna sinna kvað M vera góða. Yngri sonur hans eigi bókaðan tíma hjá sálfræðingi og hafi ekki hitt sálfræðing í Venesúela. Aðspurður hvort M gæti sótt sér aðstoð sálfræðings í Venesúela kvað hann svo vera.
Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau eða börn þeirra glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur eða börn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærendur og börn þeirra hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau eða börn þeirra hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærendur kváðu fjölskylduna vera vel stæða fjárhagslega. Kváðust þau eiga eignir í heimaríki, n.t.t. bóndabýli, fyrirtæki og bifreiðar og að þau væru ekki skuldug. Í svörum sínum til kærunefndar kváðust kærendur ekki lengur eiga miklar eignir í heimaríki.
Af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér og börnum sínum í heimaríki og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau sé heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barna þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barna þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða börn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Með ákvæði a-liðar 5. gr. breytingarlaga nr. 12/2026, sem voru samþykkt á Alþingi 16. febrúar 2026, var lögum um útlendinga breytt á þann veg að ákvæði 2. mgr. 74. gr. laganna var felld brott. Samkvæmt 1. mgr. 10. gr. laga nr. 12/2026 öðluðust lögin þegar gildi en í 2. mgr. 10. gr. kemur fram að ákvæði a-liðar 5. gr. gildi ekki um meðferð umsókna sem hafi náð tímamörkum 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku laganna. Lögin voru birt í Stjórnartíðindum 6. mars 2026 og öðluðust þá gildi.
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn hér á landi 22. apríl 2025 og hafði málsmeðferð í máli þeirra þá ekki náð tímamörkum ákvæðis 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga við gildistöku framangreindra breytingarlaga og á ákvæðið því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kærenda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að þau eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barna þeirra. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barna þeirra þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barna þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og börnum þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kvaðst K eiga frændsystkin á Íslandi og ættingja á Þýskalandi og Spáni. Þau telji það vera ósanngjarna ráðstöfun.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barna þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn. Geta kærendur þá nýtt sér heimild sína til að koma aftur til aðildarríkja Schengen-samstarfsins, m.a. til að rækta fjölskyldutengsl sín, á grundvelli vegabréfsáritunarfrelsis sem ríkisborgarar Venesúela njóta.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barna þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Vera Dögg Guðmundsdóttir