09 apríl 2026

/

Úrskurður nr. 176/2026


Hinn 9. apríl 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 176/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU25110105

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 24. nóvember 2025 kærði karlmaður að nafni [...], fd. [...], ríkisborgari Bandaríkjanna (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 18. nóvember 2025, um brottvísun frá landinu og endurkomubann til tveggja ára, sbr. 3. mgr. 14. gr. laga um landamæri nr. 136/2022 og 2. mgr. 98. gr., sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun um brottvísun og endurkomubann til tveggja ára verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt síðari breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Hinn 18. nóvember 2025 hafði lögregla afskipti af kæranda við landamæraeftirlit, en kærandi kvaðst vera á leið í flug til Denver í Bandaríkjunum. Samkvæmt stimplum í vegabréfi hafði kærandi dvalið á Schengen-svæðinu í 218 daga eða síðan 15. apríl 2025 og hafði því verið 128 daga fram yfir leyfilegan dagafjölda. Kærandi greindi frá því að hann hefði verið í heimsókn hjá föður sínum í Noregi. Kæranda var afhent upplýsingablað og honum kynntur réttur sinn til lögfræðiaðstoðar á eigin kostnað og réttur sinn til að hafa samband við fulltrúa heimaríkis og viðurkennd mannúðar- og mannréttindasamtök, sbr. 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi bar fyrir sig að hafa ekki vitað að það væru takmörk á hversu lengi hann mætti dvelja á Schengen-svæðinu. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 18. nóvember 2025, var kæranda brottvísað og ákveðið endurkomubann til Íslands og Schengen-svæðisins í tvö ár, sbr. 3. mgr. 14. gr. laga um landamæri og 2. mgr. 98. gr., sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 18. nóvember 2025 og kærð til kærunefndar útlendingamála 24. nóvember 2025. Hinn 9. janúar 2026 barst greinargerð kæranda. Kæranda fór með flugi til Denver í Bandaríkjunum 18. nóvember 2025.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda eru málavextir raktir í samræmi við framangreint. Kærandi byggir á því að brottvísun og tveggja ára endurkomubann sé ekki í samræmi við meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga í ljósi eðlis brotsins. Kærandi vísar til þess að hann hafi ekki þekkt til lagaumhverfisins og hafi því verið í góðri trú um að hann gæti dvalið hjá föður sínum þennan tíma. Kærandi hafi ekki haft einbeittan vilja til þess að fara á svig við lög og reglur um dvöl á Schengen-svæðinu. Þá hafi ekki orðið tjón af broti kæranda auk þess sem ekki sé um að ræða brot gegn almannareglu eða þjóðaröryggi. Kærandi telji að markmiðum reglna um dvöl útlendinga á Schengen-svæðinu hafi verið hægt að ná með vægari aðgerðum, s.s. með því að bjóða honum að yfirgefa svæðið þegar í stað. Ekki séu rök fyrir því að fella niður rétt kæranda til sjálfviljugrar heimfarar enda hafi legið ljóst fyrir að hann hafi verið á leið út af svæðinu.

Kærandi byggir jafnframt á því að ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum sé ósanngjörn í skilningi laga um útlendinga. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga skuli ekki ákvarða brottvísun ef hún með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Kærandi eigi föður sem búi á Schengen-svæðinu en samband þeirra sé náið. Um sé að ræða íhlutun í rétt kæranda til fjölskyldulífs sem varin sé af 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Slík íhlutun sé aðeins heimil ef hún sé nauðsynleg í lýðræðislegu þjóðfélagið í þágu lögmætra markmiða og gætt sé meðalhófs. Þá þurfi slík íhlutun að vera í réttu hlutfalli við það markmið sem stefnt sé að. Þær afleiðingar sem endurkomubann hafi fyrir kæranda séu óhóflegar og gangi í berhögg við 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þrátt fyrir að umfram dvöl kæranda sé talsverð sé ekki um að ræða saknæmt athæfi sem ógni samfélaginu á neinn hátt, en kærandi hafi dvalið hjá föður sínum í góðri trú. Kærandi muni því ekki getað ræktað fjölskyldutengsl við föður sinn né tekið þátt í stórum atburðum í lífi hans næstu tvö árin. Kærandi vísar til þess að þegar alvarleiki brotsins og fjölskyldutengsl hans séu vegin saman sé ljóst að brottvísun og endurkomubann sé ósanngjörn ráðstöfun í skilningi laga um útlendinga og gangi í berhögg við rétt til fjölskyldulífs.

Þá kemur jafnframt fram í tölvubréfi frá föður kæranda, dags. 24. nóvember 2025, að stjúpmóðir kæranda sem hafi verið norskur ríkisborgari sé látin. Andlát hennar hafi haft í för mér sér flutninga og tilfærslu eigna sem þeir feðgar hafi ætlað að klára innan þriggja mánaða en það hafi því miður ekki tekist innan tímamarkanna. Kærandi hafi veitt föður sínum stuðning í kjölfar andlátsins.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi, sem ekki þarf vegabréfsáritun til landgöngu, heimilt að dveljast hér á landi í 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi. Þá segir í 1. mgr. 50. gr. laganna að útlendingur sem hyggist dvelja hér á landi lengur en honum sé heimilt samkvæmt 49. gr. þurfi að hafa dvalarleyfi.

Í 8. gr. reglugerðar um útlendinga, með síðari breytingum, er nánar fjallað um dvöl án dvalarleyfis. Þar segir í 1. mgr. að útlendingur sem þurfi vegabréfsáritun til landgöngu megi ekki dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Öðrum útlendingum sé óheimilt án sérstaks leyfis að dveljast hér lengur en 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu teljist jafngilda dvöl hér á landi. Samanlögð dvöl á Schengen-svæðinu megi ekki fara yfir 90 daga á 180 daga tímabili. Þá segir í 2. mgr. 8. gr. að dvalartími útlendings sem sé undanþeginn áritunarskyldu reiknist frá þeim degi er hann kom inn á Schengen-svæðið. Ef útlendingur hefur dvalarleyfi í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu reiknast dvalartíminn frá þeim degi er hann fór yfir innri landamæri Schengen-svæðisins. Samkvæmt 13. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017 skal miða við dagsetningu er fram kemur á komustimpli í ferðaskilríkjum við mat á lengd dvalar útlendings, sem hvorki er EES- eða EFTA-borgari, á Schengen-svæðinu. Nú hafa ferðaskilríki hans ekki að geyma komustimpil og skal þá miðað við að handhafi þeirra hafi ekki gætt skilyrða um lengd dvalar og er heimilt að vísa honum brott í samræmi við ákvæði laga um útlendinga og reglugerðar um útlendinga. Ákvæði 1. mgr. gildir þó ekki ef útlendingur leggur fram gögn sem með trúverðugum hætti sýna fram á að hann hafi virt skilyrði um lengd dvalar.

Í 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga kemur fram að svo framarlega sem 102. gr. eigi ekki við skuli vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu. Í 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að brottvísun feli í sér bann við komu til landsins síðar. Endurkomubann skuli að jafnaði ekki vara lengur en fimm ár og eigi skemur en tvö ár. Í f-lið 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga kemur fram að jafnaði skuli lögregla eða Útlendingastofnun veita útlendingi sjö til 30 daga frest til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Heimilt sé að veita styttri frest eða fella hann niður ef útlendingi er vísað frá eða brott á ytri landamærum Schengen-svæðisins. Í athugasemdum við ákvæði 2. mgr. 104. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga kemur m.a. fram að jafnaði sé gefinn frestur til að yfirgefa landið að eigin frumkvæði. Í ákveðnum tilvikum sé ekki veittur slíkur frestur, svo sem hafi útlendingur gefið mjög rangar upplýsingar, hætta sé á að hann reyni að fara í felur eða viðkomandi teljist hættulegur.

Lög um landamæri kveða á um reglur er varða landamærastjórn og landamæravörslu. Lögin gilda jafnframt um heimild einstaklinga til farar yfir innri eða ytri landamæri Schengen-svæðisins við komu til landsins og brottför frá landinu. Í 3. mgr. 14. gr. laganna kemur fram að við eftirlit með för fólks úr landi er lögreglu heimilt að vísa ríkisborgara þriðja ríkis úr landi og banna honum endurkomu samkvæmt skilyrðum laga um útlendinga, dvelji hann ólöglega á Schengen-svæðinu.

Í athugasemdum við 3. mgr. 14. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um landamæri kemur fram að við töku ákvörðunar um brottvísun skuli fylgja málsmeðferð laga um útlendinga og stjórnsýslulaga. Viðkomandi eigi til að mynda rétt á því að andmæla ákvörðun og leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað. Réttur til að tjá sig skriflega er þó ekki fyrir hendi þegar útlendingi ber að tjá sig munnlega við starfsmenn landamæraeftirlits eða lögreglu, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. laga um útlendinga. Viðkomandi skuli einnig almennt veittur frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur og skuli þá að jafnaði miða við 7 daga frest nema ákvæði a-, til f-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga eigi við. Þá falli endurkomubann úr gildi fari viðkomandi innan veitts frests. Leitast skuli við að einstaklingur nái bókaðri för sinni af landinu en til að koma í veg fyrir þær aðstæður að ríkisborgari þriðja ríkis missi mögulega af bókaðri brottför sinni, t.d. flugi, er lögreglu heimilt að taka ákvörðun um brottvísun í fjarveru hans. Skal þá tilkynna viðkomandi um hugsanlega brottvísun hans með endurkomubanni en veita honum samfara þeirri tilkynningu frest til að andmæla. Einnig skal óska eftir því að einstaklingur gefi upp heimilisfang, dvalarstað og/eða aðrar upplýsingar sem eru nauðsynlegar til að geta náð í viðkomandi eftir brottför hans af landinu og til að geta birt honum niðurstöðu þess brottvísunarmáls sem hafið er. Gæta þurfi að málsmeðferðarreglum sem um brottvísanir gilda í þessum tilvikum líkt og þegar ákvörðun um brottvísun er tekin á staðnum. Tilgangur með ákvörðun um brottvísun á landamærum er að binda enda á dvöl viðkomandi. Þó að ríkisborgari þriðja ríkis sé á leið úr landi getur hin ólögmæta dvöl og brottvísunarákvörðun haft þýðingu fyrir viðkomandi, jafnvel þótt endurkomubann taki ekki gildi gagnvart honum, enda kann hann að verða skráður í viðeigandi upplýsingakerfi eins og Schengen-upplýsingakerfið (SIS), sbr. III. kafla laga um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi, nr. 51/2021.

Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda ákveðin brottvísun og endurkomubann á grundvelli 3. mgr. 14. gr. laga um landamæri og 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 101. gr. laganna. Meðal gagna málsins er vegabréf kæranda með gildistíma til 18. júní 2028. Kærandi er ríkisborgari Bandaríkjanna og er því undanþeginn áritunarskyldu. Ber kærandi ábyrgð á lögmæti eigin dvalar innan Schengen-svæðisins. Kærandi var stimplaður inn á Schengen-svæðið á alþjóðaflugvellinum í München 15. apríl 2025 og yfirgaf svæðið 18. nóvember 2025 frá Keflavíkurflugvelli eftir afskipti lögreglu af honum. Kærandi hafði því dvalið 218 daga inn á Schengen-svæðinu eða 128 dögum lengur en honum var heimilt.

Samkvæmt ákvörðun lögreglunnar var kæranda gert að sæta tveggja ára endurkomubanni til landsins samkvæmt 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga og honum ekki veittur frestur til að yfirgefa landið, sbr. f-lið 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við 3. mgr. 14. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um landamæri kemur fram að almennt skuli veita frest til sjálfviljugrar brottfarar og skuli þá að jafnaði miða við sjö daga frest nema ákvæði a-, til f-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga eigi við. Lögreglu er heimilt að fella niður frest til sjálfviljugrar heimfarar á grundvelli f-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna ef útlendingi er vísað frá eða brott á ytri landamærum Schengen-svæðisins. Í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga er ekki fjallað sérstaklega um beitingu f-liðar 2. mgr. 104. gr. laganna. Ákvæðið er afdráttarlaust og með vísan til framangreinds verður talið að það eigi við um tilvik kæranda. Tekið skal fram að íslensk stjórnvöld eru bundin af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga og skulu gæta samræmis við ákvarðanatöku. Er einnig litið til þess að endurkomubanni er m.a. bæði ætlað að hafa almenn og sérstök varnaðaráhrif gagnvart brotum á ákvæðum laga um útlendinga.

Í 102. gr. laga um útlendinga er kveðið á um vernd gegn frávísun og brottvísun og takmarkanir á ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Í því samhengi lítur nefndin einnig til þess að í ákvæði 71. gr. stjórnarskrárinnar og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu felst ekki skilyrðislaus réttur til fjölskyldulífs, heldur er stjórnvöldum heimilt að mæla fyrir um takmarkanir á réttinum, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Üner gegn Hollandi (46410/99) frá 18. október 2006. Kærandi greindi lögreglu frá því að hafa verið í heimsókn hjá föður sínum sem sé búsettur í Noregi og hann hafi ekki þekkt reglur um lengd dvalar. Þær málsástæður sem kærandi ber fyrir sig leiða ekki til þess að 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga standi í vegi fyrir brottvísun hans. Að auki áréttast að einstök aðildarríki að Schengen-samstarfinu, t.a.m. Noregur, geta sérstaklega heimilað komu og dvöl í viðkomandi ríki þrátt fyrir endurkomubann á Schengen-svæðinu.

Að framangreindu virtu er ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um brottvísun og endurkomubann kæranda á grundvelli 3. mgr. 14. gr. laga um landamæri og 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 101. gr. laganna staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum er staðfest.

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is affirmed.

Þorsteinn Gunnarsson

Valgerður María Sigurðardóttir