14 apríl 2026
/
Úrskurður nr. 1/2026 - Kæra X vegna úrskurðar yfirkjörstjórnar Y um gildi framboðslista flokksins til sveitarstjórnarkosninga í sveitarfélaginu.
Úrskurðarnefnd kosningamála
Ár 2026, 13 apríl, kom úrskurðarnefnd kosningamála saman til að úrskurða um kæru X vegna úrskurðar yfirkjörstjórnar Y um gildi framboðslista flokksins til sveitarstjórnarkosninga í sveitarfélaginu hinn 16. maí 2026 og kveðinn upp svohljóðandi
ÚRSKURÐUR
nr. 1/2026
Mál þetta úrskurða Berglind Svavarsdóttir, Anna Tryggvadóttir og Unnar Steinn Bjarndal.
I.
Með tölvupósti, dags. 11. apríl 2026, barst kæra frá B umboðsmanni X fyrir hönd X þar sem þess er krafist að framboð flokksins til sveitarstjórnarkosninga í Y hinn 16. maí 2026 verði metið gilt og yfirkjörstjórn Y beri að taka framboðið til skoðunar skv. 42. kosningalaga.
Kæruheimild er í 3. tl. 2. mgr. 22. gr. kosningalaga, nr. 112/2021, og barst kæran fyrir lok kærufrests samkvæmt 2. mgr. 46. gr. s.l.
II.
Framboðslisti X barst yfirkjörstjórn Y í tölvupósti kl. 12.23 hinn 10. apríl 2026. Með úrskurði uppkveðnum kl. 17.30 þann sama dag var það niðurstaða yfirkjörstjórnar Y að framboð kæranda væri ekki gilt þar sem það hefði borist of seint en framboðsfrestur hafi runnið út kl. 12 á hádegi þann dag. Kæranda var kynntur úrskurður yfirkjörstjórnar kl. 17.46 hinn 10. apríl 2026.
Í úrskurðinum kemur fram að samkvæmt 36. gr. kosningalaga nr. 112/2021 skuli öll framboð tilkynnt eigi síðar en klukkan 12 á hádegi 36 dögum fyrir kjördag. Af ákvæðinu sé ljóst að fresturinn er fortakslaus og ekki kveðið á um undantekningar á þeim fresti í lögunum. Af ákvæðinu leiði að ef framboðslista í sveitarstjórnarkosningum er skilað eftir hinn lögboðna frest beri að hafna honum sem of seint fram komnum.
Þá kemur fram að þegar framboðsfrestur er liðinn samkvæmt 36. gr. kosningalaga nr. 112/2021 haldi yfirkjörstjórn sveitarfélags fund þar sem farið er yfir framboðslista, sbr. 44. gr. laganna. Ef gallar eru á framboðslista skal yfirkjörstjórn veita umboðsmönnum frest, að jafnaði sólarhring, til að bæta úr tilteknum göllum framboðslista. Heimild til leiðréttingar á framboðslista eigi því aðeins við um lista sem hafi verið afhentir innan tilskilins tíma. Það að skila framboðslista of seint teljist ekki vera galli sem hægt er að leiðrétta á grundvelli þessa ákvæðis.
Með vísan til framangreinds var það mat yfirkjörstjórnar Y að tilkynning um framboðslista X uppfylli ekki skilyrði 36. gr. kosningalaga nr. 112/2021. Var við ákvörðunina horft til þess markmiðs 1. gr. laganna að styrkja lýðræðið með því að viðhalda trausti á framkvæmd kosninga.
Kæra ásamt fylgigögnum barst úrskurðarnefnd kosningamála kl. 12.28 þann 11. apríl 2026. Umsögn yfirkjörstjórnar Y vegna kæru barst úrskurðarnefnd kosningamála daginn eftir eða 12. apríl 2026.
III.
Kærandi byggir á því að öll nauðsynleg gögn hafi ótvírætt verið tilbúin kl. 12 á hádegi 10. apríl 2026, þar á meðal rafrænar undirskriftir allra ellefu frambjóðenda á framboðslistanum og rafrænar undirskriftir umboðsmanna. Þá hefðu meðmæli yfir 100 kjósenda í sveitarfélaginu þegar borist yfirkjörstjórn formlega og rafrænt í gegnum meðmælendakerfi Ísland.is. Það að fulltrúar framboðsins hafi ekki mætt á tilskildum tíma hafi einfaldlega verið vegna vankunnáttu þeirra sem söfnuðu undirskriftum rafrænt en þeir töldu ranglega að tilkynningin væri rafræn, sem hún sannarlega sé að hluta ef litið er til undirskrifta meðmælenda. Um leið og það hafi komið í ljós hafi verið haft samband við yfirkjörstjórn kl. 12.13 er hafi upplýst að tímafrestir væru liðnir. Kl. 12.22 hafi verið sendur tölvupóstur til yfirkjörstjórnar með framboðslista flokksins. Þeim tölvupósti hafi fylgt rafrænt samþykki allra ellefu frambjóðendanna sem og tilnefning og rafrænar undirritanir tveggja umboðsmanna listans. Allar undirritanir nægilegs fjölda meðmælenda höfðu þá þegar borist yfirkjörstjórn rafrænt.
Kærendur benda á að yfirkjörstjórn hafi vitað af framboðinu og hefði verið í lófa lagið að ná sambandi við flokkinn. Nokkrar mínútur til eða frá eigi ekki að skipta máli. Lýðræðislegar kosningar séu grundvallarréttur þegna í lýðræðisríki og allan vafa eigi að túlka framboðum í hag. Allir þeir rúmu tímafrestir sem framboðum eru veittir til að laga sína framboðslista eftir að framboðsfrestur er liðinn bendi ótvírætt til þess að kjósendur eigi að fá að njóta síns lýðræðislega réttar. Kjörstjórnir eigi að gera allt til að liðka fyrir framboðum til að skila inn tilskildum gögnum. Þá vísar kærandi til ákvæða 45. og 46. gr. kosningalaga.
Fullgildar ástæður hafi verið fyrir seinkun á mætingu fyrir yfirkjörstjórn, afsakanlegur misskilningur og hafi t.d. rafrænar undirskriftir meðmælenda bent til þess að kærandi hefði fullan hug á að bjóða fram í sveitarfélaginu. Kærandi hefði brugðist skjótt við þegar mistökin urðu ljós og sent inn fullnægjandi gögn til yfirkjörstjórnar, 22 mínútum eftir auglýstan tíma, en þá hafi yfirkjörstjórn verið enn að störfum á auglýstum stað. Þá verði að gæta meðalhófs við töku ákvarðana.
IV.
Í umsögn, dags. 12. apríl 2026, bendir yfirkjörstjórn á að samkvæmt 36. gr. kosningalaga nr. 112/2021 skuli öll framboð tilkynnt eigi síðar en kl. 12 á hádegi 36 dögum fyrir kjördag. Tilkynningin geti verið undirrituð með eigin hendi eða fullgildri rafrænni undirskrift. Önnur gögn eins og yfirlýsing um stuðning frá kjósendum séu eingöngu fylgigögn sem þurfi að berast með tilkynningunni sjálfri. Því sé ekki unnt að líta svo á að yfirkjörstjórn hafi móttekið með fomlegum hætti hluta framboðsgagna einungis sökum þess að tilskilinn fjöldi meðmælenda með X hafi safnast í meðmælendakerfinu. Þá sé það ekki lögbundið hlutverk yfirkjörstjórnar að ganga á eftir því að flokkar skili inn sínum framboðum innan tilskilis frests. Framboðin beri sjálf ábyrgð á að tilkynna um framboð. Lögin kveði á um fortakslausan frest til að tilkynna um framboð til sveitarstjórnarkosninga, sem yfirkjörstjórn beri að gæta að sé virtur í framkvæmd og að jafnræði sé með framboðum að því leyti.
V.
Fjallað er um framboð til sveitarstjórnarkosninga í VII. kafla kosningalaga nr. 112/2021. Í 36. gr. þeirra laga kemur fram að þegar kosningar eigi að fara fram skuli öll framboð tilkynnt eigi síðar en kl. 12 á hádegi 36 dögum fyrir kjördag. Þá kemur fram að tilkynningin geti verið undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirritun. Í 37. gr. er fjallað um tilkynningu framboðs, þ.á.m. um fjölda frambjóðenda og þær upplýsingar sem nauðsynlegt er að komi fram. Í 2. mgr. 39. gr. er fjallað um þau gögn sem fylgja skulu hverjum framboðslista en þar segir að hverjum framboðslista við sveitarstjórnarkosningar skuli fylgja yfirlýsing, upplýsingar og tilkynning skv. a-, b- og c- lið 1. mgr. og yfirlýsingu um stuðning við listann frá kjósendum í hlutaðeigandi sveitarfélagi. Samkvæmt 40. gr. getur frambjóðandi afturkallað samþykki sitt til framboðs á framboðslista stjórnmálasamtaka fram til þess að frestur til að skila framboðum rennur út.
Samkvæmt 2. mgr. 15. gr. reglugerðar um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista fyrir kosningar nr. 254/2024 skal yfirkjörstjórn sveitarfélags auglýsa tímanlega hvar og hvenær hún tekur við framboðum. Auglýsinguna skal birta á vef sveitarfélagsins og víðar telji yfirkjörstjórn ástæðu til. Fyrir liggur að yfirkjörstjórn sveitarfélagsins birti auglýsingu um skil á framboðslistum á heimasíðu sveitarfélagsins 25. mars 2026. Þá mun auglýsingin einnig hafa birst á síðum vefmiðlanna a, b og vikublaðinu c. Í nefndri auglýsingu er þess sérstaklega getið að yfirkjörstjórn taki á móti framboðslistum í fundarsal (-) föstudaginn 10. apríl 2026 frá klukkan 11 fyrir hádegi til klukkan 12 á hádegi. Þar sem kjördagur er 16 maí 2026 er ótvírætt að móttaka yfirkjörstjórnar Y á framboðslistum til sveitarstjórnarkosninga 2026 til 12 á hádegi 10. apríl 2026 var í samræmi við 36. gr. kosningalaga.
Í 18. gr. reglugerðarinnar er fjallað um tilkynningu um framboð sem skal skila til yfirkjörstjórnar sveitarfélags á þeim stað og tíma sem er auglýstur. Í ákvæðinu er fjallað um hvaða upplýsingar þurfa að fylgja tilkynningu um framboð. Þótt yfirkjörstjórn hafi haft aðgang að lista yfir meðmælendur með framboðslistanum er ekki unnt að líta svo á að slíkar upplýsingar jafngildi tilkynningu um framboð. Í máli þessu liggur því fyrir að tilkynning um framboð X barst yfirkjörstjórn Y með tölvupósti kl.12.23 föstudaginn 10. apríl 2026.
Markmið kosningalaga er að styrkja lýðræðið með öruggri framkvæmd kosninga. Til að tryggja jafnræði milli framboða er mikilvægt að reglur um tilkynningu framboðslista séu fyrirsjáanlegar og samræmdar. Í kosningalögum er með skýrum hætti mælt fyrir um í hvaða tilvikum framlengja á framboðsfrest og hvaða tækifæri skulu veitt til að leiðrétta galla á framboðslistum. Ekki er gert ráð fyrir því í lögum að unnt sé að taka til greina tilkynningu um framboð sem berst utan frests þótt framboð hafi misskilið reglur sem um tilkynninguna gilda.
Með því að tilkynning um framboð barst ekki fyrr en eftir lok framboðsfrests þá verður að telja það of seint fram komið og því ógilt.
Það er jafnframt niðurstaða úrskurðarnefndar kosningamála að könnun framboðslista skv. 42. gr. kosningalaga sé eingöngu bundin við þá framboðslista er koma fram fyrir lok framboðsfrest.
Úrskurðarorð:
Úrskurður yfirkjörstjórnar Y dags. 10. apríl 2026, um ógildi framboðslista X er staðfestur.
Reykjavík, 13. apríl 2026.
Berglind Svavarsdóttir
Anna Tryggvadóttir Unnar Steinn Bjarndal