14 apríl 2026

/

Úrskurður um ákvörðun Fiskistofu um álagningu sérstaks gjalds vegna umframveiði á strandveiðum

Stjórnsýslukæra

Með bréfi, dags. 25. júní 2024, bar A fram kæru f.h. B, vegna ákvörðunar Fiskistofu frá 24. ágúst 2023 um álagningu sérstaks gjalds vegna umframveiði á strandveiðum í júlí 2023 á fiskiskipinu C.

Stjórnsýslukæran er byggð á 8. gr. laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla. Kæran barst að liðnum 2 vikna kærufresti, en verður samt sem áður tekin til efnislegrar umfjöllunar, með hliðsjón af 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og meginreglum stjórnsýsluréttar, þar sem telja má að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar.

 

Kröfur

Af kæru má ráða að kærandi geri þá kröfu að hin kærða ákvörðun um álagningu gjalds verði felld úr gildi.

 

Málsatvik og ágreiningsefni málsins

Þann 10. ágúst 2023 tilkynnti Fiskistofa B, eiganda og útgerðaraðila fiskiskipsins C um umframafla við strandveiðar í júlí 2023.

Í tilkynningunni kom m.a. fram að þann 10. júlí 2023 hafði verið landað 706 kg, í þorskígildum talið (þíg.kg), þar sem umframafli væri 56 þíg.kg, þann 11. júlí 2023 hafi verið landað 670 þíg.kg þar sem umframafli hafi verið 20 þíg.kg og aftur þann 11. júlí 2023 hafi verið landað 1.497 þíg.kg þar sem umframafli væri 847 þíg.kg. Engar athugasemdir bárust frá kæranda.

Þann 24. ágúst 2023 tók Fiskistofa ákvörðun um álagningu gjalds fyrir framangreindan umframafla C á strandveiðum í júlí 2023, og þann 4. september 2023 fékk kærandi greiðsluseðil vegna álagningarinnar sem birtist í vefbanka. Reiknuð álagning yrði alls kr. 429.576.

Þann 21. september 2023 framsendi matvælaráðuneytið Fiskistofu erindi frá kæranda vegna álagningarinnar. Kærandi efaðist um réttmæti álagningar vegna umframafla á strandveiðum í júlí 2023 og tilgreindi að mögulega væri einhver róður tvítalinn.

Erindið virðist ekki hafa fengið skoðun hjá Fiskistofu fyrr en í mars 2024. Við skoðun Fiskistofu kom m.a. í ljós að um var að ræða afla í veiðiferð sem var farin þann 12. júlí 2023, degi eftir að strandveiðar voru stöðvaðar. Fiskiskipið landaði þá 1.492 kg af slægðum þorski og 8 kg af slægðum ufsa í umræddri veiðiferð. Fiskistofa hafði fyrir mistök talið að um strandveiðiafla væri að ræða og breytti löndunardagsetningunni og skráði löndunina þann 11. júlí 2023, og var fiskiskipið þá með tvær strandveiðilandanir þann dag. Þar af leiðandi taldist afli síðari löndunarinnar, að 650 þíg.kg frádregnum, vera 847 þíg.kg umframafli á strandveiðum og sætti heildarumframafli álagningu gjalds skv. lögum nr. 37/1992 um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla, sbr. 7. mgr. 6. gr. a laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða.

Þann 8. mars 2024 óskuðu starfsmenn Tálknafjarðarhafnar, að beiðni kæranda, eftir að þessi löndunardagsetning fiskiskipsins yrði leiðrétt og skráð 12. júlí 2023, þar sem ekki væri um strandveiðiafla að ræða. Fiskistofa leiðrétti löndun fiskiskipsins 11. mars 2024 og telur löndun á 1.492 þíg.kg af slægðum þorski og 8 kg af slægðum ufsa ekki lengur til umframafla fiskiskipsins við strandveiðar í júlí 2023.

Umframafli fiskiskipsins í þorski á strandveiðum í júlí 2023 var áfram skráður 56. þíg.kg fyrir löndun 10. júlí 2023 og 20 þíg.kg fyrir löndun 11. júlí 2023. Umframafli fiskiskipsins á strandveiðum í júlí 2023 nam því samtals 76 þíg.kg og gerði kærandi ekki athugasemdir við framangreindar landanir.

Í erindi Fiskistofu til kæranda, dags. 29. apríl 2024, var kæranda bent á að það væri útgerðinni í hag að greiða upphaflega reikninginn sem gerði ráð fyrir að aflinn frá 12. júlí 2023 væri skráður sem strandveiðiafli, en yrði reikningurinn felldur niður mætti B þess í stað eiga von á reikningi vegna ólögmæts sjávarafla vegna aflans frá 12. júlí, við lok fiskveiðiársins 2022/2023.

Um atvik máls vísast að öðru leyti til þess sem segir í hinni kærðu ákvörðun.

 

Málsmeðferð ráðuneytisins

Stjórnsýslukæra barst ráðuneytinu með bréfi, dags. 25. júní 2024. Frekari athugasemdir bárust þann 14. ágúst 2024. Þann 27. júní 2024 óskaði ráðuneytið eftir umsögn Fiskistofu ásamt gögnum málsins. Var sú ósk ítrekuð þann 2. september 2024. Þann 18. september 2024 barst umsögn Fiskistofu ásamt gögnum. Sökum mikilla anna í ráðuneytinu urðu tafir á afgreiðslu málsins. Hefði málsaðila átt að vera tilkynnt um tafirnar. Er málið tekið til úrskurðar í mars 2026.

 

Sjónarmið aðila

Í kæru kemur fram að kærandi segist hafa treyst gögnum Fiskistofu varðandi kvótastöðu sína í júlí 2023. Kærandi segist ekki hafa haft hugmynd um „þetta klúður“ fyrr en krafan um sektargreiðslu hafi borist honum seinni hluta september mánaðar 2023. Kærandi segir einnig að þann 31. [ágúst] 2023 hafi verið næg þorskígildi á fiskiskipinu fyrir þessari veiði þó svo að þau væru ekki í þorski og einnig hafi verið ónýtt vilyrði um byggðakvóta til staðar. Kærandi tekur einnig fram að sér hafi ofboðið þau vinnubrögð að fyrirtæki sitt B hafi verið sektað fyrir mistök opinberrar stofnunar, Fiskistofu.

Kærandi segir að í enda september 2023 hafi honum borist krafa í heimabanka, kr. 429.576, frá Fjársýslu ríkisins sem hann kannaðist ekki við. Eftir eftirgrennslan og samtöl við Fjársýsluna og fleiri endaði málið hjá Fiskistofu og í ljós hafi komið að sektin væri vegna umframafla á strandveiðum þann 11. júlí 2023.

Kærandi segir að Fiskistofa hafi fært löndun fiskiskipsins frá 12. júlí 2023, þegar strandveiðar höfðu verið stöðvaðar, á 11. júlí 2023, sem varð þá strandveiðiafli. Hvers vegna það hafi verið gert veit hann ekki en telur einfaldlega um mannleg mistök að ræða hjá Fiskistofu.

Þá segir kærandi að kvótastaða fiskiskipsins C hafi í lok fiskveiðiárs verið 3508 þíg.kg af ufsa sem brunnu inni um kvóta áramótin. Það hafi því verið nægur þorskkvóti á bátnum þann 12. júlí 2023. Einnig hafi verið vilyrði um byggðakvóta til staðar sem innihélt þorsk og fleira.

Segir kærandi að hann hafi greitt sektina, til að eiga möguleika á strandveiðileyfi, með fyrirvara um álit ráðherra og umboðsmanns Alþingis.

Um málsmeðferð og sjónarmið aðila vísast að öðru leyti til þess sem segir í hinni kærðu ákvörðun.

 

Sjónarmið Fiskistofu

Umsögn Fiskistofu ásamt gögnum barst þann 18. september 2024. Í umsögninni eru málsatvik rakin sbr. kafla um málsatvik hér að ofan.

Svo segir í umsögn Fiskistofu: „Í kjölfar leiðréttingar á löndunardagsetningunni hefði Fiskistofa getað endurupptekið hina kærðu ákvörðun. Það hefði leitt til þess að löndun skipsins 12.7.2023 teldi til krókaaflamarks skipsins. Þar sem ekkert krókaaflamark var á skipinu í lok fiskveiðiárs 2022/2023 gæti komið til skoðunar hvort leggja bæri á sérstakt gjald á aflann sem skipið landaði, dags. 12.7.2023, skv. a. lið 1. mgr. 1. gr. laga nr. 37/1992. Ef til slíkrar álagningar kæmi væri fyrirséð að gjaldið yrði töluvert hærra en álagning gjalds fyrir umframafla á strandveiðum. Kærandi var upplýstur um framangreint með tölvupósti, dags. 29. apríl 2024, með það í huga að gefa kæranda kost á að meta stöðuna. Við nánari skoðun málsins og í ljósi afstöðu kæranda er ljóst að betur hefði farið á því að endurupptaka ákvörðun Fiskistofu, dags. 24.8.2023, um álagningu gjalds vegna umframafla fiskiskipsins C á strandveiðum í júlí 2023, skv. 1. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Málið er í kærumeðferð og því er forræði málsins hjá ráðuneytinu. Fiskistofa telur að til álita geti komið að ráðuneytið felli úr gildi hina kærðu ákvörðun, dags. 24.8.2023, og leggi fyrir Fiskistofu að taka málið til meðferðar á ný.“

Ennfremur kemur fram í umsögninni að ný meðferð Fiskistofu á mögulegri álagningu gjalds vegna umframafla við strandveiðar skipsins C, í júlí 2023, myndi taka til landana frá 10. júlí 2023 og 11. júlí 2023, samtals 76 þíg.kg.

Um sjónarmið Fiskistofu vísast að öðru leyti til þess sem segir í umsögn stofnunarinnar frá 18. september 2024.

 

Forsendur og niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Fiskistofu, dags. 24. ágúst 2023, um álagningu sérstaks gjalds fyrir umframafla fiskiskipsins C á strandveiðum í júlí 2023 á grundvelli laga nr. 37/1992, um sérstakt gjald vegna ólögmæts sjávarafla.

Reglugerð um strandveiðar nr. 401/2023 var birt í Stjórnartíðindum B þann 26. apríl 2023. Þann 3. júlí 2023 var sótt um strandveiðileyfi fyrir fiskiskipið C. Þann 8. júlí 2023 fékk fiskiskipið leyfi til strandveiða fiskveiðiárið 2022/2023. Strandveiðar voru stöðvaðar með auglýsingu sem birtist í Stjórnartíðindum B nr. 741/2023 þann 11. júlí 2023. Þann 12. júlí 2023 féllu öll strandveiðileyfi niður, sbr. ákvæði reglugerðar nr. 401/2023.

Ljóst er af gögnum málsins að sá reikningur sem kæranda var sendur um álagningu sérstaks gjalds vegna umframafla við strandveiðar í júlí 2023, og hann greiddi með fyrirvara, byggir á að umframafli fiskiskipsins hafi verið töluvert meiri en efni stóðu til, eftir að afli sem landað var þann 12. júlí 2023 var réttilega skráður á þann dag en ekki sem síðari löndun þann 11. júlí 2023. Eftir stendur samt sem áður umframafli frá 10. júlí og 11. júlí 2023. Þá verður stofnunin að gera ráð fyrir að afli fiskiskipsins frá 12. júlí 2023 eigi að reiknast til krókaaflamarks fiskiskipsins eins og það var á þeim degi.

Ákvörðun Fiskistofu, dags. 24. ágúst 2023, er því haldin annmörkum og verður ekki hjá því komist að fella hana úr gildi og vísa málinu aftur til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.

Beðist er velvirðingar á því hversu lengi málið hefur verið til vinnslu en það helgast einkum af miklum önnum í ráðuneytinu.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Fiskistofu, dags. 24. ágúst 2023, um álagningu sérstaks gjalds vegna umframveiði á strandveiðum í júlí 2023 á fiskiskipinu C er hér með felld úr gildi og málinu vísað aftur til nýrrar meðferðar stofnunarinnar.