21 apríl 2026
/
Úrskurður nr. 190/2026
Hinn 21. apríl 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 190/2026
í stjórnsýslumálum nr. KNU25110098 og KNU25110099
Kærur [...]og [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 21. nóvember 2025 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir A), og [...], fd. [...] (hér eftir B), ríkisborgarar Víetnam, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 7. nóvember 2025, um að synja umsóknum þeirra um dvalarleyfi vegna hjúskapar og dvalarleyfi fyrir barn á grundvelli 70. og 71. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sbr. 2. mgr. 52. gr. laganna.
Kærendur krefjast þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 70. og 71. gr. laga um útlendinga. Til vara krefjast kærendur þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka mál þeirra til meðferðar á ný.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærendur hafa ekki haft dvalarleyfi eða annan dvalarrétt á Íslandi. Hinn 13. janúar 2025 lögðu kærendur fram umsóknir um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar og dvalarleyfi fyrir barn. Með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 7. nóvember 2025, var umsóknunum synjað. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kom fram að fylgigögn með umsóknum væru ófullnægjandi en í máli A hafi skort sakavottorð, framfærslugögn, staðfestingu á sambandi með myndum, samskiptasögu, greinargerð um samband, flugmiða maka til heimaríkis A, skattframtal og bankagögn maka. Þá hafi í máli B skort vottorð um hjúskaparstöðu. Var umsóknunum því synjað með vísan til 2. mgr. 52. gr. laga um útlendinga. Ákvarðanirnar voru birtar kærendum 7. nóvember 2025 og kærðar til kærunefndar 21. nóvember 2025. Kærendur lögðu ekki fram greinargerðir hjá kærunefnd.
III. Málsástæður og rök kærenda
Kærendur lögðu ekki fram greinargerðir hjá kærunefnd. Verður því úrskurðað í málinu á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 52. gr. laga um útlendinga tekur Útlendingastofnun ákvörðun um veitingu dvalarleyfis en Vinnumálastofnun um veitingu atvinnuleyfis. Þá skulu fylgja öll þau gögn og vottorð sem Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun gera kröfu um til staðfestingar að umsækjandi uppfylli skilyrði sem lög, reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli kveða á um, sbr. 1. málsl. 2. mgr. 52. gr. laganna. Samkvæmt 3. mgr. ákvæðisins setur ráðherra reglugerð um nánari framkvæmd ákvæðisins, m.a. hvaða gögn og vottorð umsækjandi skuli leggja fram, hvaða kröfur skuli gerðar til framlagðra gagna, hver skuli leggja mat á gildi skjala og um undanþágu frá kröfu um gögn.
Í 10. gr. reglugerðar um útlendinga, hefur ráðherra útfært nánar reglur um fylgigögn með umsókn um dvalarleyfi. Í 1. mgr. 10. gr. segir að Útlendingastofnun geti krafist þeirra gagna sem nauðsynleg eru við vinnslu umsóknar, m.a. fæðingarvottorðs, hjúskaparstöðuvottorðs, forsjár- eða umgengnisgagna, heilbrigðisvottorðs, dánarvottorðs, og staðfestingu á dvalarstað hér landi. Þá geti stofnunin krafist ljósmynda, greinargerða, gagna um framfærslu og sakavottorðs í þeim tilvikum sem stofnunin meti það nauðsynlegt. Í 3. mgr. 10. gr. segir m.a. að umsækjandi afli sjálfur nauðsynlegra fylgigagna með dvalarleyfisumsókn. Þá skuli fylgigögn vera á því formi sem stofnunin geri kröfu um og staðfest með þeim hætti sem stofnunin telji nauðsynlegan. Í 5. mgr. 10. gr. er m.a. kveðið á um að Útlendingastofnun geti veitt undanþágu frá framlagningu gagna þegar lög krefjist ekki framlagningar og málefnalegar ástæður mæli með því, t.d. ef umsækjanda er ómögulegt að afla þeirra, svo sem vegna stríðsástands í heimaríki.
Af 2. mgr. 52. gr. laga um útlendinga og 10. gr. reglugerðar um útlendinga leiðir að Útlendingastofnun hefur jafnan nokkuð víðtækt svigrúm til þess að óska eftir framlagningu gagna við meðferð umsókna um dvalarleyfi. Gagnabeiðnir Útlendingastofnunar þurfi þó að byggjast á málefnalegum grunni og taka mið af lagaskilyrðum fyrir útgáfu dvalarleyfis. Með því móti er stofnuninni unnt að taka afstöðu til þess hvort lögbundin skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfa séu uppfyllt. Eins og fram kemur í málsatvikalýsingu synjaði Útlendingastofnun umsóknum kærenda um dvalarleyfi á þeim grundvelli að umsóknir þeirra hafi skort fullnægjandi fylgigögn.
Samkvæmt gögnum málsins er ljóst að með bréfum Útlendingastofnunar, dags. 7. júlí 2025, óskaði stofnunin m.a. eftir sakavottorði frá búseturíki, sjúkrakostnaðartryggingu, forsjárgögnum/skilnaðargögnum til staðfestingar á formlegri forsjá barns, hjúskaparstöðuvottorði, gögnum um framfærslu, staðfestingu á sambandi, s.s. myndir, greinargerð um samband, flugmiða maka A til staðfestingar á ferðalögum til heimaríkis, samskiptasögu A og maka, skattframtali og bankagögnum maka A. Við ákvörðun Útlendingastofnunar í málum kærenda hafi stofnuninni einungis borist sjúkratrygging í máli A en í máli B hafi sakavottorð, sjúkratrygging og forsjárgögn borist en vottorð um hjúskaparstöðu B ekki verið lagt fram. Með hliðsjón af umsóknum kærenda um dvalarleyfi er ljóst að krafa Útlendingastofnunar um framangreind gögn hafi verið málefnaleg og í samræmi við lög. Ekki er tilefni til að gera athugasemdir við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun, enda var kærendum gefnar skýrar leiðbeiningar um hvaða fylgigögn skorti. Að framangreindu virtu eru ákvarðanir Útlendingastofnunar staðfestar.
Kærendum er leiðbeint um að þeir geti sótt um dvalarleyfi að nýju á sama eða öðrum grundvelli telji þeir sig uppfylla skilyrði fyrir útgáfu dvalarleyfis. Með þessum leiðbeiningum hefur þó ekki verið tekin afstaða til þess hvort kærendur uppfylli önnur skilyrði laga um útlendinga til útgáfu dvalarleyfa.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir