05 maí 2026

/

Úrskurður nr. 223/2026


Hinn 5. maí 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 223/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26030069

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 24. mars 2026 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Pakistan (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 12. mars 2026, um að afturkalla vegabréfsáritun hans til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 30. janúar 2026, og um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir um frávísun og afturköllun á vegabréfsáritun verði felldar úr gildi.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 15. janúar 2026, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir fjögurra daga dvöl frá 2. til 5. mars 2026 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 30. janúar 2026, og heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 2. mars til 15. apríl 2026. Kærandi kom til Íslands 12. mars 2026, með flugi frá Manchester, Bretlandi. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. sama dag, var vegabréfsáritun kæranda afturkölluð og kæranda vísað frá landinu.

Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er merkt við reit um afturköllun vegabréfsáritunar (e. revoked). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að áritunin var afturkölluð. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2 og 10 þess efnis að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar og upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar. Í athugasemdum við ákvörðun um afturköllun áritunarinnar kemur fram að tilgangur ferðar og ferðaáætlun hafi ekki samrýmst upplýsingum sem gefnar hafi verið upp við umsókn um vegabréfsáritun og grunur sé um að vegabréfsáritun hafi verið fengin á fölskum forsendum.

Samhliða framangreindri ákvörðun um afturköllun vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að ferðaáætlun kæranda þegar hann kom til landsins hafi ekki verið í samræmi við framlögð gögn.

Samkvæmt samantekt lögreglu, dags. 13. mars 2026, hafi lögregla verið kölluð til vegna komu kæranda til landsins en hann hafi greint frá því að ætla að dvelja hér á landi í sex klukkustundir. Af þeim sökum hafi kæranda verið boðið til frekari viðræðna í aðstöðu lögreglu. Kæranda hafi verið afhent upplýsingablað þar sem honum hafi verið kynntur réttur sinn til að hafa samband við lögfræðing á eigin kostnað, fulltrúa heimaríkis og viðurkennd mannréttindasamtök. Kærandi hafi afþakkað túlk þar sem hann talaði og skildi ensku vel en hann sé búsettur í Bretlandi. Kærandi kvaðst vera kominn til Íslands sem ferðamaður en hafi ætlað að vera hér á landi í sex klukkustundir og fara svo aftur til Manchester í Bretlandi. Kærandi kvaðst ætla að skoða sig um, sjá hluti og fá sér að borða. Kærandi hafi ekki verið viss um hvaða staði hann hafi ætlað að heimsækja. Kærandi myndi hugsanlega taka leigubíl í bæinn. Aðspurður um hvaða bæ kvaðst kærandi ekki vera viss en taldi sig vera í Reykjavík. Kærandi kvaðst vinna sem vaktstjóri á veitingastað í Bretlandi en hann hafi útskrifast úr háskóla þar í landi fyrir rúmu ári síðan. Kærandi leigi húsnæði með fimm vinum sínum, þ. á m. vinum sínum tveimur sem hann ferðaðist með hingað til lands. Kærandi greindi frá því að hafa viljað fá íslenska Schengen-áritun því Ísland væri spennandi nafn á landi. Kærandi hafi ekki getað nefnt ákveðinn stað á Íslandi sem hann hefði áhuga á að skoða en fyrir honum væri spennandi að heimsækja land með köldu loftslagi. Kærandi kvað vin sinn hafa sótt um vegabréfsáritunina fyrir hann, fyllt út gögn, bókað gistingu og flug. Aðspurður hvers vegna upphafleg ferðaáætlun hafi tekið breytingum kvaðst kærandi hafa frestað ferðinni þar sem það hafi verið kalt á Íslandi á þeim tíma sem ferðin hafi átt að fara fram upphaflega. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafi kærandi afbókað gistingu á farfuglaheimili 2. febrúar 2026 eða þremur dögum eftir að hann fékk vegabréfsáritun útgefna. Kærandi greindi frá því að ætla að ferðast til Spánar daginn eftir þar sem hann hafi ætlað að dvelja til 15. mars 2026. Kærandi hafi ekki getað sýnt fram á gistingu eða flugmiða til Spánar en kvað vin sinn vera með þær upplýsingar. Ákveðið hafi verið að frávísa kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga og afturkalla vegabréfsáritun hans þar sem ferðaáætlun samkvæmt umsókn um vegabréfsáritun hafi ekki verið í samræmi við núverandi ferðaáætlun og kærandi hafi haft áform um að nýta áritun sína til að ferðast til annarra Schengen-ríkja. Kærandi hafi farið með flugi til Bretlands 12. mars 2026.

Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 24. mars 2026. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 26. mars 2026. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 1. apríl 2026.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til tölvubréfs hans til kærunefndar, dags. 24. mars 2026, hvað málsatvik varða. Í tölvubréfi kæranda kemur m.a. fram að kærandi hafi þurft að stytta ferð sína vegna atvinnu sinnar. Kærandi hafi verið búinn að bóka flug sem hafi ekki verið hægt að fá endurgreitt en hann hafi ekki ætlað sér að brjóta neinar reglur. Þá vísar kærandi til þess að misskilningur hafi verið um ferð hans til Spánar hjá lögreglunni. Aðaláfangastaður kæranda hafi alltaf verði Ísland og hann hafi ekki verið búinn að bóka ferð til Spánar. Kærandi búi og starfi í Bretlandi og hafi því fulla ástæðu til að snúa þangað aftur.

Kærandi gerir athugasemd við hinar kærðu ákvarðanir hvað rökstuðning varðar og telur ekki ljóst að hvaða leyti ferðaáætlun hans hafi ekki samræmst umsókn hans um vegabréfsáritun, hvers vegna grunur hafi vaknað um misnotkun, hvaða skýringar kærandi veitti lögreglu eða hvers vegna þær hafi verið metnar ótrúverðugar. Kærandi vísar til 10. gr. og 22. gr. stjórnsýslulaga en hann telji að rökstuðningur lögreglu hafi verið ófullnægjandi. Þá gerir kærandi athugasemd við að honum hafi ekki verið leiðbeint um heimild hans til að fá slíkan rökstuðning í samræmi við 21. gr. stjórnsýslulaga.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvörðun um afturköllun vegabréfsáritunar

Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar 30. janúar 2026. Áritunin heimilaði kæranda dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 2. mars til 15. apríl 2026. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 12. mars 2026, var vegabréfsáritun kæranda afturkölluð. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðun í máli kæranda er líkt og áður segir merkt í reit um afturköllun og til skýringar merkt í reiti 2 og 10 þess efnis að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar og upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar. Í athugasemdum við ákvörðun um afturköllun áritunarinnar kemur fram að tilgangur ferðar og ferðaáætlun hafi ekki samrýmst upplýsingum sem gefnar hafi verið upp við umsókn um vegabréfsáritun og grunur sé um að vegabréfsáritun hafi verið fengin á fölskum forsendum.

Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir.

Ákvörðun lögreglu um afturköllun vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 2. mgr. ákvæðisins skal afturkalla vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar séu ekki lengur uppfyllt. Vegabréfsáritun skal að jafnaði afturkölluð af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að afturkalla vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um slíka afturköllun. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að tilgangur dvalar kæranda hér á landi væri óljós og ljóst þótti að hann hefði lagt fram gögn í umsókn um áritun sem væru ekki lengur gild. Í umsókn um vegabréfsáritun hafi komið fram að kærandi vildi koma til Íslands sem ferðamaður.

Játa verður handhöfum vegabréfsáritunar ákveðið svigrúm til að breyta ferðaáformum sínum þegar svo ber undir, innan gildissviðs og marka útgefinna áritana, að því gefnu að breytingarnar eigi sér eðlilegar skýringar. Svigrúm til slíkra breytinga er þó ekki án takmarkana enda miðast útgáfa áritana við tilteknar forsendur sem verða að standast í meginatriðum. Í því samhengi skal t.a.m. litið til verulegra breytinga á fyrirhuguðum dvalartíma, tilvika þar sem útgáfuríki áritunar er ekki aðaláfangastaður, og tilvika þar sem fylgigögn eru þannig úr garði gerð að upphaflegri umsókn yrði hafnað með vísan til gagnanna. Meðal fylgigagna málsins er umsókn kæranda um vegabréfsáritun, dags. 15. janúar 2026, þar sem fram kemur að kærandi hafi ætlað að dvelja á Íslandi í fjóra daga á tímabilinu 2. til 5. mars 2026. Í fylgibréfi með umsókn um áritun kemur fram að kærandi hyggist koma hingað til lands sem ferðamaður. Framangreindu til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn á borð við flugbókanir frá Bretlandi til Íslands 2. mars 2026 og frá Íslandi til Bretlands 5. mars 2026 og bókun á gistiheimili í Reykjavík fyrir framangreindar dagsetningar. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hann fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til Keflavíkur, 12. mars 2026, höfðu þær forsendur þó breyst en kærandi hafi við komu til landsins greint frá því að ætla að dvelja á Íslandi í sex klukkustundir og fara svo aftur til Bretlands síðar sama dag. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærandi átt bókað flug 12. mars 2026 til Manchester í Bretlandi. Í samantekt lögreglu kemur fram að kærandi hafi greint frá því að ætla til Spánar frá Bretlandi morguninn eftir en í tölvubréfi kæranda kemur fram að um sé að ræða misskilning. Kærandi hafi hvorki gert bókanir né áætlanir um slíka ferð og Ísland verið eini áfangastaður ferðarinnar.

Samkvæmt framangreindu hafði ferð kæranda, sem hann byggði umsókn um vegabréfsáritun á, tekið verulegum breytingum og hafi kærandi einungis ætlað að dvelja hér á landi í sex klukkustundir. Kærandi hafi ekki getað fært fram skýringar á breyttum ferðaáformum sínum. Af gögnum málsins er ljóst að tilgangur kæranda með komu hans hingað til lands hafi verið að komast inn á Schengen-svæðið og að Ísland hafi ekki verið áfangastaður fyrir ferðamennsku líkt og umsókn kæranda um vegabréfsáritun byggði á. Samkvæmt framangreindu hafi upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda ekki verið áreiðanlegar auk þess sem rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Af framangreindu leiðir að skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritunar til handa kæranda hafi ekki lengur verið uppfyllt. Var lögreglu því heimilt að afturkalla vegabréfsáritun kæranda 12. mars 2026 og er sú ákvörðun staðfest.

Ákvörðun um frávísun

Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Pakistan og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 30. janúar 2026.

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 12. mars 2026, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að afturkalla vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið staðfest af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri. Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.

Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 um för yfir landamæri er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.

Með vísan til framangreindra röksemda fyrir afturköllun vegabréfsáritunar kæranda voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í málatilbúnaði kæranda er byggt á því að ákvarðanir lögreglu hafi ekki verið nægjanlega rökstuddar, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga og brjóti í bága við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Þá hafi kæranda ekki verið leiðbeint að fá eftirfarandi rökstuðning í samræmi við 21. gr. stjórnsýslulaga.

Í ákvörðun lögreglu um frávísun, dags. 12. mars 2026, kemur fram að kærandi eigi rétt á eftirfarandi rökstuðningi, sbr. 1. mgr. 21. gr. stjórnsýslulaga. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærandi ekki óskað eftir eftirfarandi rökstuðningi. Ákvörðun lögreglunnar um ógildingu vegabréfsáritunar fylgdu þær viðbótarathugasemdir að ferð kæranda til landsins hafi ekki verið í samræmi við þær upplýsingar sem hann hafi veitt við umsókn um vegabréfsáritun og að grunur væri um að áritunar hafi verið aflað á fölskum forsendum. Verður því ekki fallist á að rökstuðningur hafi ekki verið í samræmi við 22. gr. stjórnsýslulaga. Með vísan til framangreindrar niðurstöðu í máli kæranda verður ekki fallist á að brotið hafi verið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga. Með vísan til framangreinds er ekki tilefni til að gera athugasemdir við ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu eru ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að afturkalla vegabréfsáritun kæranda á grundvelli 2., sbr. 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, sbr. 8. mgr. 20. gr. og 2., sbr. 4. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, og frávísa honum á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, staðfestar.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru staðfestar.

The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are affirmed.

Þorsteinn Gunnarsson

Vera Dögg Guðmundsdóttir