06 maí 2026
/
Mál nr. 172/2025 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 22. apríl 2026
í máli nr. 172/2025
A
gegn
B og C
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A. Umboðsmaður sóknaraðila er D.
Varnaraðilar: B og C
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðilum beri að greiða leigu vegna tímabilsins 1. júní til 7. júlí 2025 að fjárhæð 457.713 kr. ásamt dráttarvöxtum frá gjalddaga.
Eftirtalin gögn, ásamt fylgiskjölum, voru lögð fyrir kærunefnd:
Kæra sóknaraðila, dags. 29. desember 2025.
Greinargerð barst ekki frá varnaraðilum þrátt fyrir ítrekaða beiðni kærunefndar þar um.
I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni
Aðilar gerðu ótímabundinn leigusamning frá 1. júlí 2024 um leigu varnaraðila á íbúð sóknaraðila að E í F. Málið snýst um kröfu sóknaraðila um leigu vegna tímabilsins 1. júní til 7. júlí 2025.
II. Sjónarmið sóknaraðila
Sóknaraðili kveður samkomulag hafa verið um að varnaraðilar rýmdu íbúðina eigi síðar en 30. júní 2025. Þau hafi þó ekki skilað íbúðinni og hún verið opin þegar sóknaraðili hafi farið í hana 7. júlí 2025 í viðurvist lögreglu. Íbúðin hafi verið stórskemmd, óíbúðarhæf, full af húsgögnum og sorpi sem og óþrifin. Engar greiðslur hafi borist frá varnaraðilum.
III. Niðurstaða
Varnaraðilar hafa ekki látið málið til sín taka fyrir kærunefnd og verður því við úrlausn málsins byggt á þeim gögnum og sjónarmiðum sem sóknaraðili hefur lagt fyrir nefndina.
Aðilar gerðu ótímabundinn leigusamning en samkomulag mun hafa verið gert um að leigutíma ætti að ljúka 30. júní 2025. Íbúðinni var þó ekki skilað á umsömdum degi og að endingu fór umboðsmaður sóknaraðila í íbúðina 7. júlí þess árs. Kom þá í ljós að íbúðin hafði ekki verið tæmd en þessu til staðfestingu liggur fyrir lögregluskýrsla. Eining liggja fyrir samskipti aðila þar sem sóknaraðili ítrekaði beiðni um leigugreiðslu vegna júnímánaðar. Að framangreindu virtu ber að fallast á kröfu sóknaraðila um að varnaraðilum beri að greiða leigu vegna tímabilsins 1. júní til þess dags er sóknaraðili var komin með umráð íbúðarinnar 7. júlí 2025, samtals að fjárhæð 457.713 kr. Í 4. mgr. 33. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994 er kveðið á um að hafi leigjandi eigi gert skil á leigunni innan sjö sólarhringa frá gjalddaga og sé þá leigusala rétt að krefjast hæstu lögleyfðu dráttarvaxta af henni til greiðsludags. Á grundvelli þessa ákvæðis ber jafnframt að fallast á dráttarvaxtakröfu sóknaraðila eins og í úrskurðarorði greinir.
Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.
ÚRSKURÐARORÐ:
Varnaraðilum ber að greiða sóknaraðila leigu að fjárhæð 457.713 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 371.080 kr. frá 1. júní 2025 til 1. júlí 2025 og af 457.713 kr. frá þeim degi til greiðsludags.
Reykjavík, 22. apríl 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Þorvaldur Hauksson Eyþór Rafn Þórhallsson