15 maí 2026

/

Mál nr. 116/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 116/2026

Föstudaginn 15. maí 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. febrúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2025, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur til hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun á árunum 2024 og 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2025, var kæranda tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. til 30. apríl 2024 og 1. mars til 4. maí 2025 þar sem hann hefði verið með opna launagreiðendaskrá. Skuld kæranda næmi samtals 1.624.501 kr., að meðtöldu 15% álagi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 16. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 19. mars 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. mars 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 26. mars 2026 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. mars 2026. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hann sé ósammála hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar og vilji útskýra nánar þau atriði sem enn sé ágreiningur um.

Varðandi laun sem séu skráð í mars og maí 2025 og apríl og ágúst 2024 ítreki kærandi að þær greiðslur tengist vinnu sem hafi verið unnin í mánuðinum á undan. Það fyrirkomulag sé staðfest af fyrrum vinnuveitendum kæranda en launatímabilið hafi verið frá 16. til 15. hvers mánaðar hjá báðum fyrirtækjunum sem um ræði. Meðfylgjandi launaseðlar staðfesti það einnig.

Kærandi skilji ekki útreikninga Vinnumálastofnunar þar sem því sé haldið fram að hann hafi fengið greidda 1.412.609 kr. fyrir þessa mánuði en samkvæmt hans gögnum hafi hann fengið samtals 1.007.780 kr. Allar þessar fjárhæðir tengist mánuðum þar sem kærandi hafi verið skráður á bætur, fengið síðustu launagreiðslu í þeim mánuði og síðan hafið störf aftur sama mánuð eftir að hafa afskráð sig af bótum, t.d. 1.-14. ágúst 2024 og 1.-4. maí 2025.

Kærandi hafi haft samband við stéttarfélagið sitt sem hafi staðfest að mismunurinn á þessum launum stafi af því að kærandi hafi skráð sig á bætur og afskráð sig af bótum í umræddum mánuðum, sbr. meðfylgjandi bréf frá VR.

Hvað varði þá fullyrðingu að kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá vegna leigubílastarfa vilji hann benda á að hann hafi þrátt fyrir það ekki aflað neinna tekna á umræddu tímabili. Þann 21. febrúar 2025 hafi kærandi lent í slysi og bifreið hans verið á verkstæði til 15. apríl 2025. Af þeim sökum hafi kærandi ekki getað starfað sem leigubílstjóri á þessu tímabili. Gögn sem staðfesti slysið og viðgerðartímabilið hafi þegar verið lögð fram.

Kærandi hafi skilið sem svo að honum væri heimilt að hafa allt að 89.000 kr. í tekjur á mánuði samhliða atvinnuleysisbótum, sem hafi verið ástæða þess að launagreiðendaskrá hafi ekki verið lokað. Kærandi hefði lokað launagreiðendaskrá tafarlaust hefði hann vitað að það eitt að halda henni opinni án tekna gæti verið túlkað sem brot. Kærandi hafi ekki haft neinn ásetning til þess að villa um fyrir stofnuninni eða að fá bætur með ólögmætum hætti.

Kærandi hafi einnig lagt fram yfirlit yfir leigubílastörf sín til að sýna fram á að hann hafi ekki haft neinar tekjur á umræddu tímabili.

Með hliðsjón af framangreindum skýringum og þeim gögnum sem hafi verið lögð fram óski kærandi virðingarfyllst eftir því að ákvörðun, dags. 25. nóvember, verði endurskoðuð. Kærandi óski jafnframt eftir því að 15% álagið verði fellt niður og að honum verði sýndur einhver skilningur í þessu máli. Kærandi hafi verið atvinnulaus síðustu sex mánuði og standi nú frammi fyrir verulegum fjárhagsörðugleikum sem geri honum erfitt fyrir að standa undir þessari viðbótarbyrði.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 20. febrúar 2025. Með erindi, dags. 26. mars 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og bótaréttur væri 100%. Kærandi hafi verið afskráður frá og með 5. maí þar sem hann hafi hafið vinnu á nýjum vinnustað. Áður hafi kærandi þegið greiðslur frá 1. apríl 2024 til 14. ágúst 2024.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í september 2025 hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með tekjur í maí 2025, að fjárhæð 438.141 kr. frá B. Einnig hafi kærandi verið með tekjur í apríl 2024 frá C (nú D.) að fjárhæð 548.369 kr., samtals 973.970 kr. í ágúst 2024 og samtals 316.101 kr. í mars 2025. Jafnframt hafi kærandi verið með ótilkynnt reiknað endurgjald í mars 2025, samtals að fjárhæð 74.000 kr. Kærandi hafi hvorki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi vinnu né tekjur á umræddu tímabili. Með erindi, dags. 17. september 2025, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar á umræddum tekjum. Í kjölfarið hafi borist gögn frá kæranda þar sem fram hafi komið að tekjur frá B í maí 2025 hefði verið greiðsla launa vegna tímabils þegar hann hafi ekki verið að þiggja greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þær tekjur hafi því ekki komið til skerðingar. Jafnframt hafi borist gögn frá kæranda er varði tekjur sem hann hafi þegið frá C í apríl 2024, maí 2024 og mars 2025. Samkvæmt þeim gögnum hafi verið um uppgjör á áunnum réttindum að ræða sem hafi ekki skarast á við greiðslur atvinnuleysisbóta. Engin gögn hafi borist frá kæranda vegna reiknaðs endurgjalds.

Í ljósi þess að kærandi hafi verið með ótilkynnt reiknað endurgjald samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta hafi Vinnumálastofnun kannað á hvaða tímabili kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá og hvort kærandi væri enn með opna launagreiðendaskrá samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Kærandi hafi reynst hafa verið með opna launagreiðendaskrá frá 1. til 30. apríl 2024 og frá 1. mars til 4. maí 2025. Kæranda hafi verið birt ákvörðun þann 25. nóvember 2025 að vegna þessa hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, að fjárhæð [1.291.394] kr. á tímabilinu 1. janúar til 2. apríl 2025. Skuld yrði innheimt með 15% álagi og næmi samtals 1.624.501 kr.

Fyrir liggi að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur á ný þann 1. september 2025 en þeirri umsókn hafi verið synjað með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 3. október 2025, þar sem hann hefði ekki enn lokað launagreiðendaskrá sinni hjá Skattinum.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu.

Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun að hann hefði opnað launagreiðendaskrá á eigin kennitölu samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta frá 1. til 30. apríl 2024 og frá 1. mars 2025 til 4. maí 2025.

Eitt af skilyrðum þess að eiga rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi hafi stöðvað rekstur sinn, sbr. f. lið 18. gr. laganna. Í 20. og 21. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé nánar fjallað um það hvað felist í því að stöðva rekstur sinn. Þar segi m.a. að staðfesting á stöðvun reksturs feli í sér tilkynningu til launagreiðendaskrár ríkisskattstjóra um að hann hafi stöðvað rekstur og að öll starfsemi hafi verið stöðvuð. Samkvæmt framangreindu geti atvinnuleitandi sem sé með opna launagreiðendaskrá hjá Skattinum ekki átt rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga á sama tíma.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Heildarskuld kæranda hafi verið 1.624.501 kr. með álagi en standi nú í 1.443.285 kr. m.t.t. greiðslna kæranda inn á kröfuna. Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til skuldamyndunar. Þar sem kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna um störf sín og rekstur telji Vinnumálastofnun ekki tilefni til að fella niður álagið í máli kæranda.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 1. til 30. apríl 2024 og frá 1. mars til 4. maí 2025. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur með álagi, samtals 1.624.501 kr.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2025, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur til kæranda.

Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit, sbr. 14. gr. Sama skilyrði á við um sjálfstætt starfandi einstaklinga, sbr. 1. mgr. 18. gr. laganna. Í 1. mgr. 14. gr. segir að sá teljist vera í virkri atvinnuleit sem uppfylli eftirtalin skilyrði:

  1. er fær til flestra almennra starfa,
  2. hefur heilsu til að taka starfi eða taka þátt í virkum vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. þó 5. mgr.,
  3. hefur frumkvæði að starfsleit og er reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, sbr. 1. gr. laga nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, og uppfyllir skilyrði annarra laga,
  4. hefur vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara,
  5. er reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi,
  6. er reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu,
  7. á ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann telst vera í virkri atvinnuleit nema ákvæði 17. eða 22. gr. eigi við,
  8. hefur vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem standa honum til boða, og
  9. er reiðubúinn að gefa Vinnumálastofnun nauðsynlegar upplýsingar til að auka líkur hans á að fá starf við hæfi og gefa honum kost á þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum.

Eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum sjálfstætt starfandi einstaklinga er að hafa stöðvað rekstur og leggja fram staðfestingu um slíka stöðvun, sbr. f. og g. liði 1. mgr. 18. gr. laga nr. 54/2006. Í 20. gr. laganna kemur fram að sjálfstætt starfandi einstaklingur telst hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra að hann hafi stöðvað rekstur og að öll starfsemi hafi verið stöðvuð. Enn fremur telst sjálfstætt starfandi einstaklingur hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt skráningarnúmer sitt af skrá, sýnt fram á að atvinnutæki hafi verið seld eða afskráð, reksturinn framseldur öðrum eða hann hafi verið tekinn til gjaldþrotaskipta. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sjálfstætt starfandi einstaklingur leggja fram staðfestingu á því að hann hafi stöðvað rekstur og skal staðfestingin fela í sér yfirlýsingu um að öll starfsemi hafi verið stöðvuð og ástæður þess og afrit af tilkynningu til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra um að rekstur hafi verið stöðvaður, vottorð frá skattyfirvöldum um að skráningarnúmer hans hafi verið tekið af skrá eða önnur viðeigandi gögn frá opinberum aðilum er staðfesta kunna stöðvun rekstrar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með opna launagreiðendaskrá samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta frá 1. til 30. apríl 2024 og á tímabilinu 1. mars til 4. maí 2025. Kærandi uppfyllti því ekki skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögum nr. 54/2006 á því tímabili og átti því ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Það að kærandi hafi ekki aflað neinna tekna á því tímabili hefur ekki áhrif þar sem lög nr. 54/2006 eru skýr með það að óheimilt er að hafa opna launagreiðendaskrá og enga undantekningu á því skilyrði að finna í lögunum.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars svo í skýringum við ákvæðið:

„Efni ákvæðisins felur í sér möguleika á leiðréttingu á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta eftir að þær hafa verið keyrðar saman við álagningu skattyfirvalda að því er varðar það viðmiðunartímabil sem lagt er til að verði haft til hliðsjónar við útreikningana. Er því gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun hafi heimildir til að leiðrétta fjárhæð atvinnuleysisbótanna til samræmis við álagningu skattyfirvalda. Er gert ráð fyrir að leiðréttingin geti átt sér stað nokkru eftir að bæturnar hafa verið greiddar eða þegar endanleg álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Á sama hátt er jafnframt gert ráð fyrir að Vinnumálastofnun geti leiðrétt fjárhæð grunnatvinnuleysisbóta. Slíkt getur átt við þegar upplýsingar þær er liggja grunnatvinnuleysisbótum til grundvallar hafa verið rangar eða hinn tryggði ekki tilkynnt til Vinnumálastofnunar um að hann sé ekki lengur í atvinnuleit.

Þannig er gert ráð fyrir að hinn tryggði endurgreiði Atvinnuleysistryggingasjóði þær fjárhæðir sem ofgreiddar eru í þeim tilvikum er hann fékk hærri greiðslur úr sjóðnum en honum bar. Á þetta við um öll tilvik sem kunna að valda því að hinn tryggði hafi fengið ofgreitt úr Atvinnuleysistryggingasjóði.“

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki að hann væri með opna launagreiðendaskrá er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. nóvember 2025, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir