17 maí 2026
/
Mál nr. 5/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 10. apríl 2026
í máli nr. 5/2026:
Exton ehf.
gegn
Sveitarfélaginu Hornafirði
Lykilorð
Stöðvunarkröfu hafnað. Bindandi samningur.
Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála hafnaði stöðvunarkröfu kæranda þar sem kominn var á bindandi samningur milli varnaraðila og A, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 23. febrúar 2026 kærði Exton ehf. (hér eftir „kærandi“) örútboð Sveitarfélagsins Hornafjarðar (hér eftir „varnaraðili“) auðkennt „Hljóð- og myndkerfi ásamt uppsetningu – Sindrabær“.
Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila um að viðhafa örútboð á grundvelli rammasamnings RK 11.11 vegna hinna kærðu innkaupa verði felld úr gildi. Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda og að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað. Loks krefst kærandi þess að innkaupaferli varnaraðila verði stöðvað um stundarsakir.
Kæran var kynnt varnaraðila og honum gefinn kostur á að tjá sig sem og hann gerði með athugasemdum 2. mars 2026. Varnaraðili krefst þess að öllum kröfum kæranda verði vísað frá kærunefnd útboðsmála eða hafnað. Þá krefst varnaraðili þess að stöðvunarkröfu kæranda verði hafnað.
Varnaraðili sendi póst til nefndarinnar 11. mars 2026 og upplýsti að tilboð hefðu verið opnuð í örútboðinu á þeim degi. Eitt tilboð hefði borist og í fljótu bragði liti út fyrir að það væri gilt. Eftir staðfestingu á því hygðist varnaraðili gera samning eftir helgina þar sem ekki hefði borist ákvörðun um stöðvun.
Kærandi sendi póst til nefndarinnar sama dag og upplýsti einnig að tilboð hefðu verið opnuð í örútboðinu. Óskaði kærandi eftir að kærunefnd útboðsmála tæki ákvörðun í málinu við allra fyrsta tækifæri svo komist yrði hjá að varnaraðili tilkynnti ákvörðun um samþykki tilboðs sem útilokaði möguleika kæranda til að keppast um þessi innkaup.
Kærunefnd útboðsmála sendi póst til varnaraðila 24. mars 2026, vitnaði til fyrrgreinds pósts frá varnaraðila 11. sama mánaðar og óskaði eftir upplýsingum hvort bindandi samningur hefði komist á í kjölfar örútboðsins og, ef svo væri, að varnaraðili afhenti afriti af samningnum eða tilkynningu um töku tilboðs. Varnaraðili svaraði erindinu sama dag og afhenti nefndinni afrit af samningi varnaraðila og Atendi ehf., undirrituðum 17. mars 2026.
Niðurstaða
Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup kemur fram að eftir að bindandi samningur samkvæmt lögunum hefur komist á verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt.
Í örútboðsgögnum kom fram að enginn biðtími yrði áður en tilboði yrði tekið og var um það vísað til heimildar í 3. tölulið 2. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016. Sama dag og tilboð í útboðinu voru opnuð eða 11. mars 2026 upplýsti varnaraðili nefndina með tölvupósti að hann hygðist ganga til samninga á grundvelli örútboðsins „eftir helgina“ þar sem ekki hefði borist ákvörðun um stöðvun. Til samræmis við þetta undirrituðu varnaraðili og Atendi ehf. samning á grundvelli örútboðsins 17. sama mánaðar. Hefur þannig komist á bindandi samningur samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 og er því óhjákvæmilegt að hafna kröfu kæranda um að innkaupaferlið verði stöðvað um stundarsakir samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.
Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar þeir hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.
Ákvörðunarorð:
Hafnað er kröfu kæranda, Exton ehf., um stöðvun á innkaupaferli varnaraðila, Sveitarfélagsins Hornafjarðar, auðkennt „Hljóð- og myndkerfi ásamt uppsetningu – Sindrabær“.
Reykjavík, 10. apríl 2026.
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir