17 maí 2026

/

Mál nr. 8/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 16. apríl 2026
í máli nr. 8/2026:
Alefli ehf.
gegn
Félagsbústöðum

Lykilorð
Kröfu um stöðvun samningsgerðar hafnað.

Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála hafnaði kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar þar sem skilyrði 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup voru ekki talin uppfyllt.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 10. mars 2026 kærði Alefli ehf. (hér eftir „kærandi“) ákvörðun Félagsbústaða (hér eftir „varnaraðili“) um að hafna öllum tilboðum í alútboði auðkenndu „Stekkjarbakki – íbúðakjarni.“

Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila um að hafna öllum tilboðum í hinu kærða alútboði verði felld úr gildi, sbr. 1. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Kærandi krefst þess jafnframt að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda, sbr. 2. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Kærandi krefst einnig málskostnaðar, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016. Að auki krefst kærandi þess að samningsgerð varnaraðila verði stöðvuð um stundarsakir þar til leyst hefur verið endanlega úr kæru, sbr. 110. gr. laga nr. 120/2016. Loks krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála kalli eftir öllum gögnum varnaraðila um fyrirhugaða samningsgerð, sbr. 4. mgr. 108. gr. laga nr. 1202016.

Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 12. mars 2026 að kærunni verði vísað frá kærunefnd útboðsmála en til vara að öllum kröfum kæranda verði hafnað, auk þess sem varnaraðili krefst þess að kæranda verði gert til að greiða varnaraðila málskostnað samkvæmt 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.

Í þessum hluta málsins verður tekin afstaða til þeirrar kröfu kæranda að hið kærða innkaupaferli verði stöðvað um stundarsakir en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

I

Varnaraðili auglýsti forval vegna hins kærða útboðs í byrjun árs 2025 og voru fimm fyrirtæki valin til þess að taka þátt í lokuðu alútboði þann 27. febrúar 2025. Alútboðsgögn voru send til þeirra fimm bjóðenda sem höfðu verið valdir. Í grein 0.1.2 í alútboðsgögnum kom fram að í útboðinu væri leitað tilboða í hönnun og framkvæmd nýs íbúðakjarna að Stekkjarbakka 5. Þá kom fram í grein 0.1.4 að alverktaki skyldi byggja og fullgera húsnæðið ásamt lóð og bílastæðum og skila því fullbúnu til notkunar, að undanskildum innréttingum og heimilistækjum.

Fimm tilboð bárust í hinu kærða alútboði og hinn 25. júní 2025 tilkynnti varnaraðili að ákveðið hefði verið að velja tilboð Mannverks ehf. Kærandi kærði þá ákvörðun varnaraðila til kærunefndar útboðsmála, og með úrskurði nefndarinnar 20. febrúar 2026 í máli nr. 29/2025 var ákvörðun varnaraðila um val tilboðs felld úr gildi sökum þess að tilboðið uppfyllti ekki lágmarkskröfur útboðsgagna um nafnleynd. Þá vísaði kærunefnd útboðsmála frá kröfu kæranda um að veita álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila þar sem útboðið væri enn í gangi og kynni varnaraðili því að taka ákvörðun um val á tilboði annars bjóðanda í framhaldinu.

Hinn 6. mars 2025 tilkynnti varnaraðili bjóðendum að ákveðið hefði verið að hafna öllum tilboðum í hinu kærða alútboði með vísan til heimildar í grein 0.1.3 í alútboðsgögnum þar sem gild tilboð væru yfir kostnaðaráætlun.

II

Kærandi byggir á því að hann hafi verið með hagstæðasta tilboðið í útboðinu og varnaraðila hafi því borið að taka tilboði félagsins. Telji kærandi að sú ákvörðun varnaraðila, að hafna öllum tilboðum, feli í sér þá afstöðu varnaraðila að hann vilji ekki semja við kæranda þar sem hann hafi áður kært útboðið og komið í veg fyrir að varnaraðili semdi við Mannverk ehf. Kærandi bendir á að varnaraðili beri því fyrst við núna að tilboð kæranda hafi verið yfir kostnaðaráætlun og því hafi verið heimilt að hafna því. Tilboð hafi verið opnuð 12. maí 2025 og ef varnaraðili hafi talið tilboð kæranda hafa verið yfir kostnaðaráætlun þá hafi honum þá þegar borið að hafna því samkvæmt 85. gr. laga nr. 120/2016. Það hafi varnaraðili ekki gert og hann hafi ekki heldur borið því við á síðari stigum. Þá hafi ekki verið skýrt í áskilnaði alútboðsgagna, um að heimilt væri að hafna öllum tilboðum yfir kostnaðaráætlun, hvort miða ætti við reiknaða tilboðsfjárhæð eða upphaflegt verðtilboð. Allan vafa um efni útboðsskilmála verði að skýra bjóðanda í hag. Þá hafi aðeins verið um heimild í útboðsgögnum að ræða en ekki skyldu til að hafna öllum tilboðum yfir kostnaðaráætlun.

Varnaraðili bendir á að samkvæmt 2. mgr. 83. gr. laga nr. 120/2016 sé heimilt að hafna öllum tilboðum standi málefnalegar ástæður til þess eða almennar forsendur útboðs brostið. Í alútboðsgögnum hafi að auki verið áskilinn réttur til að hafna tilboðum sem færu fram úr kostnaðaráætlun varnaraðila og hafi bjóðendur mátt vera meðvitaðir um þennan áskilnað. Eftir að úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli nr. 29/2025 lá fyrir hafi tvö gild tilboð staðið eftir, þar á meðal tilboð kæranda. Bæði tilboðin hafi verið yfir kostnaðaráætlun varnaraðila og skiptir þá engu þótt tilboð kæranda hafi verið tekið til mats samkvæmt valforsendum hins kærða útboðs. Þá verði að miða við upphaflega tilboðsfjárhæð kæranda við mat á því hvort tilboð hans hafi verið yfir kostnaðaráætlun, enda væri það sú fjárhæð sem hefði orðið að samningsfjárhæð ef tilboði kæranda hefði verið tekið. Reiknuð tilboðsfjárhæð, sem kærandi vilji miða við í þessu sambandi, sé einungis samanburðarstærð sem taki tillit til einkunnar matsnefndar og byggi þannig að hluta á huglægu mati. Hún hafi hins vegar engin áhrif á þá fjárhæð sem varnaraðili greiði samkvæmt samningi. Þá vísar varnaraðili til þess að þar sem öllum tilboðum hafi verið hafnað þá standi hvorki til að gera samning né halda áfram innkaupaferli á grundvelli hins kærða útboðs.

III

Samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup er kærunefnd útboðsmála, að kröfu kæranda, heimilt að stöðva innkaupaferli eða samningsgerð um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, enda hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.

Í máli þessu liggur fyrir að varnaraðili hefur hafnað öllum tilboðum og stendur því ekki til að gera samning á grundvelli hins kærða alútboðs. Af því leiðir að hvorki er til staðar innkaupaferli né er fyrirhuguð samningsgerð sem geta verið andlag kröfu um stöðvun. Kröfu kæranda þess efnis er því hafnað.

Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar aðilar hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.

Ákvörðunarorð

Hafnað er kröfu kæranda, Aleflis ehf., um að samningsgerð verði stöðvuð um stundarsakir vegna útboðs varnaraðila, Félagsbústaða, auðkennt „Stekkjarbakki – íbúðakjarni.“


Reykjavík, 16. apríl 2026


Reimar Pétursson

Kristín Haraldsdóttir

Auður Finnbogadóttir