27 maí 2026
/
Mál nr. 121/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 121/2026
Miðvikudaginn 27. maí 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 16. febrúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. febrúar 2026, um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. desember 2025 og var umsóknin samþykkt 14. janúar 2026. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar á grundvelli c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann væri ekki með skráð lögheimili á Íslandi. Þá kom fram að greiðslur atvinnuleysisbóta á tímabilinu 24. til 31. janúar 2026, samtals 85.073 kr., skyldu endurgreiddar að viðbættu 15% álagi í samræmi við 2. mgr. 39. gr. laganna. Í kjölfarið lagði kærandi fram ný gögn og var mál hans því tekið fyrir að nýju. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. mars 2026, var fyrri ákvörðun stofnunarinnar staðfest með vísan til þess að hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn. Þó með þeirri breytingu að leiðrétt skráning á lögheimili kæranda hjá Þjóðskrá Íslands á B væri frá og með 29. janúar 2026 í stað 24. janúar 2026.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 16. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 19. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 19. mars 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. mars 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi verið búsettur og staddur á Íslandi til og með 29. janúar 2026. Á því tímabili hafi kærandi dvalið í íbúð á vegum C og hafi haft regluleg dagleg útgjöld á Íslandi sem staðfest sé með kortafærslum. Kærandi hafi átt flugmiða frá Íslandi þann 29. janúar 2026 sem sýni að brottför hans hafi ekki átt sér stað fyrr en þann dag. Kærandi hafi tilkynnt með fyrirvara um fyrirhugaða brottför hans þann 29. janúar 2026. Að sögn kæranda hafi breyting á lögheimili hans verið skráð of snemma, eða þann 24. janúar 2026 vegna stjórnsýslulegra mistaka, þrátt fyrir að hann hafi enn verið búsettur og staddur á Íslandi á þeim tíma. Kærandi telji af þeim sökum að tímabil ofgreiðslu hafi verið ranglega ákvarðað. Kærandi fari því fram á að ákvörðun verði endurskoðuð og að endurkrafa verði leiðrétt í samræmi við raunverulegan brottfarardag hans þann 29. janúar 2026.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 1. desember 2025. Með bréfi, dags. 14. janúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 4. febrúar 2026 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem kæranda hafi verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans skyldu stöðvaðar. Ástæðan fyrir greiðslustöðvuninni hafi verið sú að samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands hafi kærandi ekki verið með skráð lögheimili á Íslandi en hann hafi tilkynnt um flutning á lögheimili sínu til B frá og með 24. janúar 2026. Kæranda hafi verið bent á að það væri skilyrði fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur á Íslandi. Í erindi hafi kæranda verið bent á að skila gögnum til Vinnumálastofnunar ef hann teldi fyrirliggjandi upplýsingar rangar eða að bæta úr ágöllum sem kynnu að vera á skráningu á lögheimili hans hjá Þjóðskrá Íslands.
Engin frekari gögn eða upplýsingar hafi borist frá kæranda og honum hafi verið tilkynnt með bréfi Vinnumálastofnunar þann 13. febrúar 2026 að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar þar sem hann væri með skráð lögheimili á B. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi jafnframt verið greint frá því að hann hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 24. til 31. janúar 2026, samtals að fjárhæð 85.073 kr., sem yrði innheimt á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar með 15% álagi. Heildarskuld kæranda að meðtöldu álagi væri því 97.834 kr.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 16. febrúar 2026. Í kæru hafi kærandi greint frá því að Þjóðskrá Íslands hafi við skráningu á lögheimili hans í janúar 2026 gert mistök. Fyrir mistök hafi breyting á lögheimili hans verið færð til B frá Íslandi þann 24. janúar 2026 en hafi réttilega átt að vera frá og með 29. janúar 2026. Við vinnslu greinargerðar í máli þessu hafi Vinnumálastofnun kannað hvort breyting hafi verið gerð á dagsetningu á breytingu á lögheimili kæranda. Þjóðskrá Íslands hafi sannarlega ranglega fært lögheimili kæranda til B frá 24. janúar í stað 29. janúar 2026. Hin kærða ákvörðun, dags. 13. febrúar 2026, hafi því verið leiðrétt til samræmis við fyrirliggjandi gögn. Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 11. mars 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að fyrri ákvörðun, dags. 13. febrúar 2026, væri staðfest en þó með þeirri breytingu að skráning á bótalausu tímabili hafi færst í samræmi við leiðrétta skráningu á lögheimili kæranda hjá Þjóðskrá Íslands á B, þ.e. frá og með 29. janúar 2026 í stað 24. janúar 2026. Kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 29. janúar 2026 til 31. janúar 2026, samtals að fjárhæð 32.750 kr., sem yrði innheimt á grundvelli 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar með 15% álagi. Heildarskuld kæranda að meðtöldu álagi væri því 37.663 kr.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Í 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um almenn skilyrði þess að launamaður teljist tryggður samkvæmt lögunum. Þá sé í 1. mgr. 18. gr. að finna hin almennu skilyrði þess að sjálfstætt starfandi einstaklingur teljist tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum sé að vera búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. og c. lið 1. mgr. 18. gr.
Með lögum nr. 94/2020 um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 hafi verið gerð breyting á ákvæðum c. liðar 1. mgr. 13. gr. og c. liðar 1. mgr. 18. gr. Áður hafi í lögum um atvinnuleysistryggingar aðeins verið kveðið á um skilyrði um að vera búsettur og staddur á Íslandi til að eiga rétt til atvinnuleysistrygginga. Með umræddum breytingarlögum hafi skilyrði c. liðar 1. mgr. 13. gr. og c. liðar 1. mgr. 18. gr. laga um atvinnuleysistrygginga verið breytt með þeim hætti að nú sé jafnframt gert að skilyrði að aðili sé með skráð lögheimili á Íslandi.
Í athugasemdum með 2. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 94/2020 um breytingu á lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar segi að með þessari breytingu sé verið að bregðast við úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 173/2017 þar sem úrskurðarnefndin hafi fellt úr gildi ákvörðun Vinnumálastofnunar um synjun á greiðslum atvinnuleysisbóta til einstaklings sem hafi verið með skráð lögheimili í erlendu ríki. Að mati úrskurðarnefndarinnar hafi Vinnumálastofnun borið að meta búsetu umsækjanda óháð opinberri skráningu á lögheimili hans, enda hefði stofnunin ekki heimildir til annars samkvæmt gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar.
Í athugasemdum með 2. gr. segi jafnframt að skráning lögheimilis samkvæmt lögum nr. 80/2018 um lögheimili og aðsetur feli í sér tiltekna tilhögun opinberrar skráningar á búsetu sem geti veitt einstaklingi ýmis réttindi. Sá sem sé með skráð lögheimili í erlendu ríki kunni að eiga rétt til atvinnuleysistrygginga í því landi þar sem lögheimili sé skráð eða annars konar greiðslna vegna atvinnumissis í gegnum önnur tryggingakerfi þar í landi. Heimildir Vinnumálastofnunar til að afla upplýsinga um stöðu eða tekjur atvinnuleitanda nái aftur á móti ekki til tryggingakerfa eða skattyfirvalda í erlendum ríkjum. Með því að gera það að almennu skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga að umsækjandi sé með skráð lögheimili á Íslandi sé þannig meðal annars komið í veg fyrir að atvinnuleitandi fái samtímis greiddar atvinnuleysisbætur úr tveimur mismunandi og ósamrýmanlegum tryggingakerfum í fleiri en einu ríki.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki verið með skráð lögheimili á Íslandi frá 29. janúar 2026. Kærandi uppfylli því ekki almenn skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga frá þeim tíma, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Hann eigi því ekki rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga frá þeirri dagsetningu.
Með vísan til c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé því ljóst að kærandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 29. til 31. janúar 2026. Í 39. gr. laganna sé fjallað um endurgreiðslu á ofgreiddum atvinnuleysisbótum. Í 2. mgr. 39. gr. segi orðrétt:
„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“
Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistrygginga sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kæranda beri að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hann hafi fengið greiddar fyrir tímabilið 29. til 31. janúar 2026, samtals að fjárhæð 32.750 kr., auk 15% álags, enda liggi fyrir að hann hafi ekki uppfyllt skilyrði laganna á umræddu tímabili, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Heildarskuld kæranda að meðtöldu álagi nemi að fjárhæð 37.663 kr.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Kæranda beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur sem hann hafi fengið greiddar á tímabilinu 29. til 31. janúar 2026 að viðbættu 15% álagi, samtals að fjárhæð 37.663 kr., sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á grundvelli c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Eitt af þeim skilyrðum er að vera búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr.
Samkvæmt gögnum málsins var lögheimili kæranda flutt frá Íslandi til B 24. janúar 2026 sem síðar var leiðrétt og breytt hjá Þjóðskrá Íslands í 29. janúar 2026.
Ljóst er að kærandi var ekki tryggður samkvæmt lögum nr. 54/2006 frá þeim tíma, enda ekki með skráð lögheimili hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. laganna en það er fortakslaust skilyrði til að eiga rétt á atvinnuleysisbótum. Vinnumálastofnun var því rétt að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda.
Með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar voru einnig innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna tímabilsins 24. til 31. janúar 2026. Í kjölfar leiðréttingar Þjóðskrá Íslands var tímabilinu breytt í 29. til 31. janúar 2026. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Líkt og að framan greinir uppfyllti kærandi ekki skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögum nr. 54/2006 frá 29. janúar 2026 þegar lögheimili hans var flutt til B. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Í ljósi atvika málsins og fyrirliggjandi gagna er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og að innheimta ofgreiddar bætur, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til A, og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur með 15% álagi, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir