27 maí 2026
/
Mál nr. 140/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 140/2026
Miðvikudaginn 27. maí 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 22. febrúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. febrúar 2026, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á bið.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 1. janúar 2026. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 4. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til þess að hann ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 25. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 19. mars 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. mars 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi áður leitað aðstoðar vegna tveggja brota sem hafi leitt til frestunar. Kærandi hafi útskýrt ástæðurnar og gefið yfirvöldum allar upplýsingar. Ef seinni viðurlögin leiði til frestunar, jafnvel þótt hann hafi gefið nýjar upplýsingar þurfi hann að bíða í þrjá mánuði í viðbót án peninga. Kærandi hafi ekki fengið rafrænu skjölin sem honum hafi verið sent þar sem hann sé ekki með aðgang að internetinu eða tæki til að lesa þau. Þetta séu önnur mistök af hans hálfu. Kærandi hafi aðeins fengið upplýsingar um tengiliði í gegnum vefsíðuna. Farsímanúmer kæranda hafi verið gefið upp en enginn hafi hringt. Kærandi eigi engan pening fyrir mat eða leigu, hvað þá fyrir internetinu. Kærandi óski eftir að mál hans verði endurskoðað.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta frá desember 2023 til júlí 2024. Upphaf málsins megi rekja til ákvarðana Vinnumálastofnunar frá 24. júlí 2024 og 3. september 2024. Með ákvörðunum Vinnumálastofnunar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og síðar á grundvelli 1. mgr. 59. gr sömu laga. Bótaréttur kæranda hafi með framangreindum ákvörðunum verið felldur niður í tvo mánuði og svo þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.
Kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 1. janúar 2026. Kærandi hafi ekki áunnið sér inn nýtt bótatímabil, sbr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur að nýju. Með erindi, dags. 4. febrúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með vísan til ótekinna viðurlaga yrðu bætur til hans hins vegar ekki greiddar fyrr en að þremur mánuðum liðnum.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eins og rakið hafi verið hér að framan hafi kæranda þann 24. júlí 2024 verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hafi ekki mætt á boðaðan fund sem hafi verið haldinn af hálfu Vinnumálastofnunar. Þá hafi kæranda þann 3. september 2024 verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga þar sem hann hafi látið hjá líða að tilkynna um tilfallandi vinnu samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Kærufrestur vegna þeirra ákvarðana sé nú liðinn, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála.
Eftir standi þá ákvörðun Vinnumálastofnunar um að kærandi skuli sæta eftirstöðvum viðurlaga sinna þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 1. janúar 2026.
Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé meðal annars kveðið á um að sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 57.-59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Ákvörðun um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi því leitt til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga hans samkvæmt 1. mgr. 61. gr. þar sem hann hafi ekki unnið sér inn rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 29. gr. laganna. Heildarviðurlagatími kæranda hafi því verið fimm mánuðir.
Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um hvernig ítrekuð viðurlög samkvæmt lögunum falli niður eða frestist. Ekki sé fyrir hendi heimild til að fella niður ítrekuð viðurlög í þeim tilvikum sem hinn tryggði starfi á viðurlagatíma líkt og eigi við um fyrstu viðurlög innan kerfisins.
Þegar komi að ítrekuðum brotum sé í [5.] mgr. 61. gr. kveðið á um að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Samkvæmt því ákvæði þurfi atvinnuleitandi að starfa í a.m.k. 24 mánuði frá því að hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur til að ávinna sér inn nýtt tímabil.
Eins og áður segi hafi kærandi ekki unnið sér inn rétt til nýs bótatímabils, enda hafi ekki liðið 24 mánuðir frá því að kærandi hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur og þegar hann hafi sótt um að nýju hjá stofnuninni. Því sé ljóst að skilyrði þess að viðurlagatími verði felldur niður sé ekki uppfyllt í máli þessu.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og að eftirstöðvar biðtíma hans skuli halda áfram að líða frá þeim tíma sem hann hafi sótt aftur um greiðslu atvinnuleysistrygginga.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið.
Með ákvörðunum Vinnumálastofnunar frá 24. júlí 2024 og 3. september 2024 var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo og þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Kærandi sótti á ný um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. janúar 2026. Umsókn kæranda var samþykkt 4. febrúar 2026 en tekið var fram að bætur yrðu ekki greiddar fyrr en ótekinn biðtími frá fyrri umsókn væri liðinn.
Í 5. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standi yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sæki að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.
Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hans barst Vinnumálastofnun þann 1. janúar 2026, starfað í a.m.k. 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga samkvæmt ákvörðunum Vinnumálastofnunar, dags. 24. júlí og 3. september 2024, áfram að líða þegar hann skráði sig atvinnulausa að nýju 1. janúar 2026.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. febrúar 2026, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 4. febrúar 2026, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til A, á bið, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir