27 maí 2026

/

Mál nr. 59/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 59/2026

Miðvikudaginn 27. maí 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 21. janúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. janúar 2026, um að greiða henni ekki atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. til 22. desember 2025 vegna ótekins orlofs hjá fyrrum vinnuveitanda.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 17. nóvember 2025. Með ákvörðun, dags. 13. janúar 2026, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að bótaréttur væri 100%. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hún fengi ekki greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. til 22. desember 2025 vegna ótekins orlofs hjá fyrrum vinnuveitanda, sbr. 4. mgr. 51. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 21. janúar 2026. Með bréfi, dags. 27. janúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 17. febrúar 2026 þar sem fram kom að stofnunin hefði þegar samþykkt beiðni kæranda um tilfærslu á orlofsdögum. Því teldi Vinnumálastofnun ekki tilefni til þess að mál kæranda yrði tekið til efnislegrar afgreiðslu hjá nefndinni. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. febrúar 2026, var óskað eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Vinnumálastofnunar. Svar barst frá kæranda 16. apríl 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. apríl 2026, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust 13. maí 2026.

II.  Niðurstaða

Kærð var ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. janúar 2026, um að greiða kæranda ekki atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 1. til 22. desember 2025 vegna ótekins orlofs hennar hjá fyrrum vinnuveitanda. Í þeirri ákvörðun var kæranda greint frá því að henni væri heimilt að óska eftir því að taka orlofsins færi fram á öðru tímabili. Orlofstökunni skyldi þó vera lokið fyrir lok orlofstímabilsins, það er 15. september 2026. Beiðni um breytingu á orlofstímabili skyldi berast stofnuninni á netfang Greiðslustofu innan sjö daga frá móttöku bréfsins.

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála kom fram að kærandi óskaði þess að færa orlof sitt til 15. ágúst 2026. Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að stofnunin hefði þegar samþykkt beiðni kæranda um tilfærslu á orlofsdögum.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kveður úrskurðarnefndin upp úrskurði um ágreiningsefni sem kunna að rísa á grundvelli laganna. Þar sem Vinnumálastofnun féllst á beiðni kæranda um tilfærslu orlofsdögum verður ekki séð að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og stofnunarinnar vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir