29 maí 2026
/
Mál nr. 48/2026 Úrskurður 29. maí 2026
Mál nr. 48/2026 Eiginnafn: Freyjó
Hinn 29. maí 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 48/2026 en erindið barst nefndinni 20. maí 2026.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Freyjó tekur íslenska eignarfallsendingu, Freyjós, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Freyjó er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá yfir kynhlutlaus nöfn.