25 júní 2026
/
Mál nr. 56/2025. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 27. apríl 2026
í máli nr. 56/2025:
Fagtækni ehf.
gegn
Nýjum Landspítala ohf.,
Rafmiðlun ehf.,
Rafholt ehf. og
Þelamörk ehf.
Lykilorð
Málskostnaður.
Útdráttur
Kærandi, F, krafðist þess meðal annars að felldar yrði úr gildi tilteknar ákvarðanir varnaraðila, L, í tengslum við hið kærða forval. Eftir móttöku kærunnar ákvað L að afturkalla ákvörðun sína um val á þátttakendum og í framhaldinu ákvað L að fella niður forvalið. Stóð þá eftir í málinu ágreiningur aðila um málskostnaðarkröfu F. Í úrskurði kærunefndar útboðsmála var fallist á kröfu F um að L yrði gert að greiða honum málskostnað.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 28. nóvember 2025 kærði Fagtækni ehf. (hér eftir „kærandi“) forval Nýja Landspítalans ohf. (hér eftir „varnaraðili“) nr. I4079 auðkennt „Rafkerfi fyrir kjallara K2 til 4. hæðar meðferðarkjarna“.
Kærandi krefst þess aðallega að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila 11. nóvember 2025 um að hafna þátttökutilkynningu hans í hinu kærða forvali. Til vara krefst kærandi þess að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila 17. nóvember 2025 um val á þátttakendum í forvalinu og að lagt verði fyrir varnaraðila að meta þátttökutilkynningar að nýju. Þá krefst kærandi þess að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað.
Kæran var kynnt varnaraðila, Rafmiðlun ehf., Rafholti ehf. og Þelamörk ehf. Rafholt ehf. sendi póst til nefndarinnar 11. desember 2025 og upplýsti að félagið gerði ekki athugasemdir við kæruna. Sama dag upplýsti Rafmiðlun ehf. símleiðis að félagið ætlaði ekki að láta málið til sín taka. Athugasemdir varnaraðila bárust nefndinni 12. desember 2025.
Varnaraðili krefst þess að varakröfu kæranda verði vísað frá kærunefnd útboðsmála en í öllu falli verði þeirri kröfu hafnað. Loks krefst varnaraðili þess að öðrum kröfum kæranda verði hafnað.
Kærunefnd útboðsmála sendi erindi til varnaraðila 18. desember 2025. Þar var rakið að í athugasemdum varnaraðila væri að finna skýringar á ástæðum þess misræmis sem hefði verið milli tilgreiningu þátttakenda annars vegar í opnunarskýrslu og hins vegar í tilkynningu varnaraðila 17. nóvember 2025. Af hálfu nefndarinnar var óskað eftir að varnaraðili legði fram nánari gögn til stuðnings þessum skýringum. Varnaraðili svaraði erindinu 22. sama mánaðar og lagði fram frekari gögn.
Með erindi 22. desember 2025 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir að varnaraðili legði fram tiltekið skjal. Varnaraðili svaraði erindinu degi síðar og lagði fram umbeðið skjal.
Með ákvörðun 9. janúar 2026 féllst kærunefnd útboðsmála á kröfu kæranda um að innkaupaferli varnaraðila yrði stöðvað um stundarsakir.
Þelamörk ehf. lagði fram athugasemdir í málinu 20. janúar 2026.
Með tölvupósti 6. febrúar 2026 upplýsti varnaraðili nefndina að hann hefði afturkallað ákvörðun sína um val á þátttakendum í forvalinu og afhenti nefndinni afrit af tilkynningu til þátttakenda um afturköllunina.
Með tölvupósti 10. febrúar 2026 upplýsti kærandi nefndina að varnaraðili hefði tekið nýja ákvörðun um val á þátttakendum í forvalinu og afhenti nefndinni afrit af tilkynningu til þátttakenda um valið.
Kærandi lagði fram lokaathugasemdir sínar í málinu 16. febrúar 2026.
Varnaraðili upplýsti nefndina 24. febrúar 2026 að hann hefði sent út leiðrétta tilkynningu um val þátttakenda í forvalinu og afhenti nefndinni afrit af leiðréttri tilkynningu.
Með kæru 24. febrúar 2026 kærði kærandi ákvörðun varnaraðila um val á þátttakendum í forvalinu til kærunefndar útboðsmála og er það mál rekið undir málsnúmerinu 6/2026 hjá nefndinni.
Með tölvupósti 11. mars 2026 upplýsti varnaraðili nefndina að hann hefði tekið ákvörðun um að fella niður forvalið og afhenti nefndinni afrit af ákvörðun sinni til þátttakenda. Jafnframt upplýsti varnaraðili að hann hygðist bjóða innkaupin út á nýjan leik í almennu útboði.
Kærunefnd útboðsmála gaf kæranda færi á að leggja fram lokaathugasemdir í þessu máli og máli nr. 6/2026 í ljósi ákvörðunar varnaraðila sem og kærandi gerði 16. mars 2026.
Með erindi 17. mars 2026 til kæranda óskaði kærunefnd útboðsmála eftir upplýsingum hvort henni væri rétt að líta svo á að kærandi félli frá stöðvunarkröfu sinni í máli nr. 6/2026 í ljósi ákvörðunar varnaraðila um að fella niður útboðið. Kærandi svaraði erindinu samdægurs og staðfesti þann skilning. Þá tók kærandi fram að eins og athugasemdir hans gæfu til kynna teldi hann að með ákvörðun varnaraðila um niðurfellingu hefði kærandi náð fram ítrustu kröfum sínum. Því liti kærandi svo á að eftir stæðu kröfur hans um að varnaraðila yrði gert að greiða honum málskostnað í málinu og máli nr. 6/2026.
Kærunefnd útboðsmála gaf varnaraðila kost á að tjá sig um lokaathugasemdir kæranda og lagði varnaraðili fram frekari athugasemdir 23. mars 2026.
I
Með forvalsgögnum, dagsettum 2. september 2025, óskaði varnaraðili eftir umsóknum um þátttökurétt í lokuðu útboði á rafkerfum í kjallara K2 til 4. hæðar meðferðarkjarna sem yrði hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Í grein 1.1 í gögnunum kom fram að forvalið væri opið öllum hæfum umsækjendum og væri auglýst á Íslandi og Evrópska efnahagssvæðinu. Að loknu forvali myndi þeir þátttakendur sem uppfylltu lágmarkskröfur um hæfi samkvæmt hæfiskröfum vera gefinn kostur á að taka þátt í lokuðu útboði.
Umsóknir í forvalinu voru opnaðar 7. október 2025. Í opnunarskýrslu kom fram að umsóknir hefðu borist frá sex fyrirtækjum, þar með talið kæranda og hagsmunaaðilum. Varnaraðili hafnaði umsókn kæranda með bréfi 11. nóvember 2025. Með tilkynningu 17. nóvember 2025 var tilkynnt um val á þátttakendum í forvalinu. Kom þar fram að Rafholt ehf., „Rafmiðlun hf. / Efla hf.“ og „Þelamörk ehf. / Raflausnir ehf.“ hefðu verið valin til þátttöku.
Varnaraðili afturkallaði fyrrgreint val á þátttakendum með tilkynningu til þátttakenda 6. febrúar 2026. Í tilkynningunni kom fram að ákvörðunin væri afturkölluð í ljósi ákvörðunar kærunefndar útboðsmála 9. janúar 2026. Veigarmikil rök stæðu til þess að afturkalla ákvörðunina þar sem hún væri talin ógildanleg, sbr. til hliðsjónar meginreglu 2. tölul. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og úrskurði kærunefndar útboðsmála í málum nr. 4/2022, 33/2022 og 28/2024. Tilkynnt yrði um nýja ákvörðun um val á þátttakendum í forvali í samræmi við lög nr. 120/2016 um opinber innkaup að lokinni yfirferð varnaraðila á framkomnum umsóknum.
Varnaraðili tók nýja ákvörðun um val á þátttakendum og tilkynnti þeim um ákvörðunina 9. febrúar 2026. Í tilkynningu kom meðal annars fram að Rafholt ehf. og Rafmiðlun hf./Efla hf. hefðu verið valin til þátttöku. Varnaraðili leiðrétti tilkynninguna sama dag en í leiðréttri tilkynningu kom fram að Rafholt ehf. og Rafmiðlun ehf. hefðu verið valin til þátttöku.
Kærandi kærði framangreinda ákvörðun með kæru sem barst kærunefnd útboðsmála 24. febrúar 2026, sbr. mál nr. 6/2026. Varnaraðili ákvað að fella niður hið kærða forval með ákvörðun sem var tilkynnt þátttakendum 10. mars 2026.
II
Í lokaathugasemdum sínum 16. mars 2026 tekur kærandi meðal annars fram að hann gangi út frá því, í ljósi ákvarðana varnaraðila, að kæru í máli nr. 56/2025 verði vísað frá nefndinni þar sem kærandi hafi ekki lengur lögvarða hagsmuni af úrlausn krafna sinna. Kærandi líti svo á að óumdeilt sé að varnaraðili hafi brotið gegn honum með ákvörðun sinni 17. nóvember 2025. Varnaraðili hafi sjálfur gefið til kynna að afturköllun ákvörðunarinnar hafi átt sér stað vegna kærumáls kæranda og felur afturköllunin, auk niðurfellingar útboðsins, í sér að kærandi nær fram ítrustu kröfum sínum. Það veki því furðu að varnaraðili byggi á því að hafna skuli kröfu um málskostnað.
Kærandi hafi í tvígang neyðst til að kæra ákvarðanir varnaraðila til kærunefndar útboðsmála. Í báðum tilfellum hafi varnaraðili afturkallað ákvarðanir sínar og talið vera kominn fram rökstuðning eða málefnalegar ástæður fyrir afturköllun. Rökstuðningurinn og málefnalegu ástæðurnar hafi komið frá kæranda og eftir atvikum nefndinni. Óumdeilanlega hafi kærandi því haft ríka ástæðu til að kæra ákvarðanir varnaraðila til kærunefndar útboðsmála og hafi í raun unnið málin tvö í öllum verulegum atriðum.
Kærandi rekur fyrirmæli 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 og lögskýringargögn sem hann telur varpa ljósi á skýringu ákvæðisins og tiltekur að lögskýringargögn beri með sér að við ákvörðun málskostnað eigi að beita sambærilegum mælikvörðum og eigi við um ákvörðun málskostnaðar í hefðbundnum einkamálum. Vísar kærandi meðal annars til þess að samkvæmt 2. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, sé gert ráð fyrir að stefnandi skuli greiða stefna málskostnað ef málið sé vísað frá dómi eða fellt niður „af annarri ástæðu en þeirri að stefni efni þá skyldu sem hann er krafinn um í máli“. Málinu verði að öllum líkindum vísað frá nefndinni vegna þess að varnaraðili hafi í raun efnt þá skyldu sem hann hafi verið krafinn um í málinu. Við þær aðstæður sé afar óeðlilegt og í raun óforsvaranlegt að láta kæranda sitja uppi með þann kostnað sem hann hafi borið af því að kæra ákvarðanir varnaraðila til kærunefndar útboðsmála. Krafa kæranda um málskostnað finni sér skýra stoð í úrskurðarframkvæmd nefndarinnar, sbr. m.a. úrskurði í málum nr. 26/2018, 12/2021, 4/2022 og 7/2025. Þá rökstyður kærandi að skýr tengsl séu á milli kærumála hans og þeirra viðbragða varnaraðila að afturkalla ákvarðanir sínar en í slíkum tilvikum hafi verið fallist á málskostnaðarkröfur, sbr. m.a. úrskurði nefndarinnar í málum nr. 54/2020, 17/2021 og 18/2021.
Í athugasemdum sínum 23. mars 2026 rekur varnaraðili að hann telji ekki sé unnt að líta svo á að hann hafi tapað málinu í öllum verulegum atriðum en slíkt sé skilyrði þess að nefndin geti ákveðið að varnaraðili skuli greiða kæranda málskostnað, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 og lögskýringargögn að baki ákvæðinu. Megi hér nefna að í málinu krefjist kærandi þess meðal annars að ógilt verði ákvörðun varnaraðila um að hafna þátttökutilkynningu kæranda en í ákvörðun nefndarinnar hafi nefndin vísað til þess að varnaraðila hafi verið skylt að hafna umsókn kæranda með þeim breytingum sem kærandi hafði gert á henni, sbr. c. lið 1. mgr. og 5. mgr. 66. gr. og 82. gr. laganna.
Með umræddri ákvörðun hafi verið fallist á stöðvunarkröfu kæranda á þeim grundvelli að ákvörðun varnaraðila, dags. 17. nóvember 2025, um val á þátttakendum í forvali hafi verið haldin annmarka að því varðaði mat á umsókn Þelamerkur ehf. Í kjölfar þessa hafi varnaraðili ákveðið að afturkalla umrædda ákvörðun, sbr. tilkynningu dags. 6. febrúar 2026. Þann 9. sama mánaðar hafi varnaraðili tekið nýja ákvörðun um val á þátttakendum í forvali með hliðsjón af forsendum nefndarinnar sem leitt höfðu til stöðvunar. Hin nýja ákvörðun, sem hafi verið leiðrétt með tilkynningu varnaraðila sama dag og hún var tekin, hafi endanlega kveðið á um val á tveimur þátttakendum í forvali. Kærandi hafi ekki verið þar á meðal þar sem fram hafi komið í ákvörðun nefndarinnar að skylt hafi verið að hafna umsókn kæranda.
III
Með tilkynningu til þátttakenda 6. febrúar 2026 afturkallaði varnaraðili ákvörðun sína 17. nóvember 2025 um val á þátttakendum í hinu kærða forvali. Þá ákvað varnaraðili að fella niður hið kærða forval og tilkynnti þátttakendum um þá ákvörðun 10. mars 2026. Í ljósi málatilbúnaðar kæranda og samskipta hans við nefndina verður lagt til grundvallar að eina krafan sem kærandi hefur uppi í kjölfar framangreindra ákvarðana sé krafa um málskostnað úr hendi varnaraðila. Kærandi hefur lögvarða hagsmuni af úrlausn kröfunnar, sbr. 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Í 1. málsl. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016 segir að nefndin geti ákveðið að varnaraðili greiði kæranda kostnað við að hafa kæruna uppi. Umrætt ákvæði á rætur sínar að rekja til 3. mgr. 81. gr. eldri laga um opinber innkaup nr. 94/2001. Í lögskýringargögnum með því ákvæði kom fram að ákvörðun um málskostnað ætti að jafnaði aðeins að koma til greina ef varnaraðili tapaði máli fyrir nefndinni í öllum verulegum atriðum.
Í ljósi ákvörðunar varnaraðila um að afturkalla ákvörðun sína 17. nóvember 2025 verður lagt til grundvallar að varnaraðili hafi tekið til greina veigamikinn þátt í kröfugerð kæranda og að varnaraðili hafi tapað málinu í öllum verulegum atriðum. Samkvæmt þessu verður varnaraðila gert að greiða kæranda málskostnað í samræmi við það sem nánar greinir í úrskurðarorði og er þar tekið tillit til virðisaukaskatts.
Úrskurðarorð:
Varnaraðili, Nýr Landspítali ohf., greiði kæranda, Fagtækni ehf., 1.000.000 krónur í málskostnað.
Reykjavík, 27. apríl 2026.
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir