25 júní 2026
/
Mál nr. 61/2025. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála, aðgangur að gögnum.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 20. apríl 2026
í máli nr. 61/2025:
HealthCo ehf.
gegn
Landspítala og
Icepharma hf.
Lykilorð
Aðgangur að gögnum.
Útdráttur
H krafðist aðgangs að matblöðum faghóps L vegna þess tækis sem H hafði boðið í hinu kærða útboði auk gagna eða upplýsinga um hvenær I hefði skilað tilteknum gögnum. Í niðurstöðu kærunefndar útboðsmála var tekið fram L krefðist trúnaðar yfir rökstuðningi faghóps vegna tækis kæranda. Kærunefndin taldi að ekki yrði séð hvernig beiðni kæranda gæti varðað viðskiptaleyndarmál annarra bjóðenda, enda krefðist H aðeins aðgangs að matsblöðum vegna eigin tækis. Þá var tekið fram að hagsmunir L af því að koma í veg fyrir innsýn H á matsferlið vægu minna en hagsmunir H af því að fá aðgang að umræddum upplýsingum eins og hér stæði sérstaklega á. Var því fallist á að H fengi aðgang að matsblaði faghóps að því er varðar hans eigið tæki. Þá var fallist á afhendingu tölvupóstsamskipta milli H og I um gagnaskil, en ekki hafði verið krafist trúnaðar yfir þeim.
m.a. tekið fram að þátttakendur í opinberum innkaupum hafi hagsmuni af því að rétt sé staðið að framkvæmd þeirra. Þá þurfi bjóðendur að geta sannreynt að hagstæðasta tilboði hafi verið tekið. Upplýsingar í matsblöðum faghóps L hafi haft afar mikið vægi við val tilboða og höfðu ekki að geyma lýsingu viðkvæmra viðskiptaleyndarmála bjóðenda. Var því fallist á að H fengi aðgang að matsblöðum faghóps L að því er varðar tæki H. Þá féllst kærunefnd útboðsmála á að H fengi aðgang að tölvupóstsamskiptum milli L og I, en ekki hafði verið krafist trúnaðar yfir þeim.
Með kæru móttekinni hjá kærunefndar útboðsmála 8. desember 2025 kærði HealthCo ehf. (hér eftir „kærandi“) þá ákvörðun Landspítalans (hér eftir „varnaraðili“) um að velja tilboð Icepharma hf. í útboði nr. 35010 auðkenndu „CT scanners for Landspítali University Hospital“.
Kæran hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, en kærunefnd útboðsmála aflétti þeirri sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar með ákvörðun sinni 20. febrúar 2026.
Varnaraðili og Icepharma hf. upplýstu kærunefnd útboðsmála að þau teldu ekki þörf á að leggja fram frekari athugasemdir í málinu. Kærandi sendi kærunefnd útboðsmála erindi 26. febrúar 2026 og krafðist þess að fá aðgang að öllum gögnum málsins sem varnaraðili og Icepharma hf. hafa lagt fram í málinu, nánar tiltekið matsblaði faghóps vegna tækja kæranda og gögnum eða upplýsingum sem sýndu hvenær Icepharma hf. hafi skilað myndum til varnaraðila.
Kærunefnd útboðsmála gaf varnaraðila og Icepharma hf. færi á að tjá sig um kröfu kæranda um aðgang að umræddum gögnum. Í greinargerð varnaraðila 6. mars 2026 vegna kröfunnar er lagst gegn því að kærandi fái aðgang að matsblöðum faghópsins. Varnaraðili leggur jafnframt fram tölvupóstsamskipti um það hvenær Icepharma hf. hafi skilað nýjum myndum. Í greinargerð Icepharma hf. 11. mars 2026 er því andmælt að kærandi fái aðgang að matsblöðum faghóps að því er varðar tilboð Icepharma hf. auk þess sem því er mótmælt að kæranda verði afhent tilboð Icepharma hf. ásamt öllum fylgiskjölum.
I
Með greinargerð varnaraðila 18. desember 2025 vegna kæru málsins fylgdu tvö fylgiskjöl:
1. Viðbótarrökstuðningur varnaraðila til kæranda, dags. 8. desember 2025.
2. Matsblöð faghóps (merkt trúnaðarmál).
Þá óskaði kærunefnd útboðsmála eftir því við varnaraðila 18. desember 2025 að lögð yrðu fram öll gögn sem vörðuðu útboðið, þ. á m. útboðsgögn og tilboð kæranda og Icepharma hf. Varnaraðili svaraði erindi kærunefndarinnar degi síðar og veitti kærunefndinni aðgang að hlekk þar sem hægt væri að nálgast gögnin. Jafnframt var tekið fram að svokallaðar CT-myndir sem bjóðendur hefðu skilað inn á sérstökum USB lyklum fylgdu ekki með vegna stærðar og sérstaks sniðs. Önnur gögn eru eftirfarandi:
3. Fyrirspurnir og svör
4. Tilboð HealthCo – GE
5. Tilboð Icepharma – Siemens
6. Útboðslýsing og fylgiskjöl.
Þá lagði varnaraðili fram afrit af tölvupóstsamskiptum milli sín og Icepharma hf. með greinargerð sinni 6. mars 2026. Annars vegar tölvupóstsamskipti frá 22. ágúst 2025 og hins vegar frá 16. september 2025.
II
Krafa kæranda um aðgang að umræddum gögnum málsins er reist á 15. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Að því er varðar matsblöð faghóps varnaraðila þá tekur kærandi fram að hann óski aðeins eftir aðgangi að matsblaði faghópsins að því er varðar sitt eigið tilboð. Ekki verði séð að undantekningar í 16. eða 17. gr. stjórnsýslulaga geti átt við gagnvart kæranda, enda sé aðeins um að ræða gögn sem varði hans eigin tæki og því standi almanna- eða einkahagsmuni ekki í vegi fyrir afhendingu. Þessi gögn séu grundvöllur 50% af heildarmati á tækjum kæranda og skipti verulegu máli við mat á heildartilboði, þau ráði í reynd úrslitum. Kærandi verði að fá aðgang að þeim til þess að geta lagt mat á efnislegar forsendur úrlausnar matsaðila, þ.m.t. hvort hún byggi á réttum upplýsingum og forsendum. Sjónarmið varnaraðila, um að aðgangur að þessum upplýsingum myndi veita kæranda óeðlilega mikla innsýn í matsaðferðarfræði varnaraðila og þau viðmið sem lögð hafi verið til grundvallar mati á tilboðum, gangi þvert gegn markmiðum reglna um gagnsæi og jafnræði. Þá verði ekki séð með hvaða hætti samkeppnisstöðu væri raskað eða viðskiptaleyndarmál verði opinberuð með því að veita kæranda aðgang að upplýsingum um mat á eigin tækjum. Kærandi kveður sig einnig hafa upplýsingar um að Icepharma hf. hafi ekki skilað nýjum myndum 17. september 2025, svo sem varnaraðili hafi haldið fram. Varnaraðili hafi upplýst að félaginu hafi verið heimilað að skila inn nýjum gögnum í gegnum hlekk, og því ætti að vera til skjalfest gögn um hvenær gagnasendingin hafi átt sér stað. Mikilvægt sé að upplýst verði um það, en verði varnaraðili ekki við slíkri kröfu megi meta tómlæti hans honum í óhag við úrlausn málsins, sbr. 4. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016.
Varnaraðili bendir á að matsblöð faghópsins varði ekki aðeins mat á tækjum kæranda, heldur einnig mat á tækjum samkeppnisaðila hans. Þessi gögn innihaldi því viðkvæmar upplýsingar sem falla undir þá tegund hagsmuna sem 17. gr. stjórnsýslulaga taki til. Varnaraðili telji að afhending matsblaðanna sem um ræði myndi veita kæranda óeðlilega mikla innsýn í matsaðferðarfræði varnaraðila og þau viðmið sem lögð hafi verið til grundvallar mati á tilboðum, bæði hans og samkeppnisaðila hans. Slík innsýn geti skaðað samkeppnisstöðu annarra bjóðenda og raskað jafnræði í framtíðar útboðsferlum. Þar með yrði gengið gegn ríkari einkahagsmunum samkeppnisaðila af því að tryggja trúnað í útboðsferlum. Sé því heimilt að takmarka aðgang kæranda að matsblöðum faghóps á grundvelli 17. gr. stjórnsýslulaga. Þá byggir varnaraðili á því að ákvörðun um að kalla eftir tölvuskrám frá Icepharma hf. í stað skráa sem ekki hafi reynst unnt að opna, eigi sér stoð í 5. mgr. 66. gr. laga nr. 120/2016. Vísar varnaraðili á bug fullyrðingu kæranda þess efnis að þeim gögnum hafi ekki verið skilað 17. september 2025. Gögnunum hafi verið skilað 16. september 2025 og leggur varnaraðili fram tölvupóstsamskipti milli sín og Icepharma hf. sem skjalfesti hvenær óskað hafi verið eftir gögnunum og hvenær gagnasendingin hafi átt sér stað í gegnum þann hlekk sem Icepharma hf. hafi verið heimilt að nota.
Icepharma hf. bendir á að kærandi hafi óskað eftir að fá aðgang að öllum gögnum málsins, óháð því hvort þau hafi verið lögð fram nú þegar. Félagið andmælir því sérstaklega að kærandi fái aðgang að matsblaði faghóps varnaraðila og jafnframt að kærandi fái aðgang að tilboðsgögnum Icepharma hf. ásamt öllum fylgiskjölum. Icepharma hf. bendir á að upplýsingar sem veittar hafi verið í tilboðsgögnum og fylgigögnum félagsins varði, utan verðtilboðs, fyrst og fremst tæknilega eiginleika og gæði boðins tæknibúnaðar, enda hafi kröfur í útboðsgögnum lotið að því að umfangsmiklum og nákvæmum upplýsingum um sértæka hönnun og virkni hins boðna búnaðar. Kærandi hafi þegar fengið upplýsingar um verðtilboð Icepharma hf., og eftir standi þeir hlutar tilboðsins sem feli í sér nákvæmar lýsingar á hinum boðna búnaði, þ.e. tæknilegum eiginleikum hans, nákvæmri hönnun, upplýsingar um tiltekna virkni og gæði. Þessar upplýsingar séu viðskiptaleyndarmál sem Icepharma hf. og framleiðandi tækjanna hafi ríka hagsmuni að fari leynt. Framleiðendur slíkra tækja, sem um ræði, séu afar fáir og því mikilvægt að trúnaður ríki um eiginleika hins boðna tækjabúnaðar. Þá andmælir Icepharma hf. að kærandi fái aðgang að matsblaði faghóps varnaraðila, en í þeim séu viðkvæmar upplýsingar sem tengjast nákvæmum forsendum matsins og tæknilegum lausnum. Í matsblöðunum komi fram ítarleg greining faghópsins á styrkleikum og veikleikum tiltekinna tæknilausna og útfærslum tilboða, sem Icepharma hf. telji að séu viðkvæm viðskiptaleyndarmál sem falli undir trúnaðarskyldu samkvæmt 17. gr. laga nr. 120/2016. Kærandi hafi þegar fengið nákvæmar upplýsingar um sundurliðun á klíníska matinu og niðurbrot á einkunn, en hann hafi ekki sýnt fram á að hann þurfi nánari upplýsingar. Séu hagsmunir Icepharma hf. og framleiðanda hinna boðinna tækja, um að tilboð félagsins og matsblöð faghópsins fari leynt, ríkari en hagsmunir kæranda af því að fá slík gögn afhent. Loks bendir Icepharma hf. á að málatilbúnaður kæranda í kæru málsins sé fyrst og fremst byggður á því að annmarki hafi verið á rökstuðningi fyrir vali tilboða, og lúti þannig ekki sérstaklega að tilboði Icepharma hf. Ennfremur ítrekar Icepharma hf. að öllum umbeðnum myndum hafi verið skilað með tilboði félagsins innan tilboðsfrests í því formi sem óskað hafi verið eftir.
III
Umbeðin gögn teljast til málsgagna í því stjórnsýslumáli sem rekið er fyrir kærunefnd útboðsmála á milli málsaðila, en um meðferð kærumála fyrir nefndinni gilda stjórnsýslulög nr. 37/1993, sbr. 7. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Samkvæmt 15. gr. stjórnsýslulaga á aðili máls rétt á aðgangi að skjölum og öðrum gögnum er mál varða. Hefur óheftur aðgangur að gögnum máls verið talinn nauðsynlegur til að tryggja að réttur aðila til að koma að skýringum og leiðrétta fyrirliggjandi gögn nýtist að fullu. Gerðar eru undantekningar frá þessari grunnreglu í 16. og 17. gr. laganna, en að mati nefndarinnar er ljóst að einungis 17. gr. laganna getur komið til álita um þau gögn sem kærandi krefst aðgangs að. Samkvæmt þeirri grein er stjórnvaldi heimilt að takmarka aðgang aðila að gögnum ef hagsmunir hans af því að notfæra sér vitneskju úr þeim þykja eiga að víkja fyrir mun ríkari almanna- eða einkahagsmunum. Við mat á þessum skilyrðum ákvæðisins verður meðal annars að horfa til þess að ákvæði 17. gr. laganna er undantekning frá þeirri meginreglu að málsaðili eigi rétt á því að kynna sér málsgögn auk þess sem líta ber til þeirra hagsmuna sem reglum um opinber innkaup er ætlað að þjóna, þ. á m. hvort afhending upplýsinga getur raskað jafnræði fyrirtækja við opinber innkaup.
Kærandi krefst þess að honum verði afhent matsblöð faghóps varnaraðila að því er varðar það tæki sem kærandi bauð í hinu kærða útboði, sbr. fylgiskjal 2 með greinargerð varnaraðila. Fyrir liggur að kærandi hefur þegar fengið afhenta sundurliðun einkunna sinna fyrir klínísku prófanirnar, en varnaraðili krefst trúnaðar um rökstuðning faghópsins hvað varðar tæki kæranda. Kærandi gerir ekki kröfu um að fá aðgang að rökstuðningi faghópsins hvað varðar tæki Icepharma hf. Með hliðsjón af þessari takmörkun á beiðni kæranda verður ekki séð hvernig beiðnin getur varðað viðskiptaleyndarmál annarra bjóðenda. Þá fæst heldur ekki séð hvernig hagsmunir varnaraðila geta staðið í vegi afhendingu hennar, enda vega hagsmunir varnaraðila af því að koma í veg fyrir innsýn kæranda á matsferlið minna en hagsmunir kæranda af aðganginum eins og hér stendur á.
Kærandi krefst að öðru leyti aðgangs að gögnum um tímasetningu sendingar gagna frá Icepharma hf. til varnaraðila. Varnaraðili hefur afhent nefndinni umrædd gögn án kröfu um trúnað. Af þeim sökum stendur ekkert því í vegi að þau skjöl verði afhent kæranda. Kröfur kæranda eru teknar til greina til samræmis við þetta líkt og í ákvörðunarorði greinir.
Ákvörðunarorð
Kæranda, HealthCo ehf., er veittur aðgangur að fylgiskjali 2, matsblað faghóps, en þó þannig að afmáðar eru upplýsingar um rökstuðning vegna tilboðs Icepharma hf.
Kæranda er veittur aðgangur að eftirtöldum fylgigögnum með greinargerð varnaraðila frá 6. mars 2026: „Tölvupóstsamskipti milli varnaraðila og Icepharma hf., dags. 22. ágúst 2025“ og „Tölvupóstsamskipti milli varnaraðila og Icepharma hf./Siemens, dags. 16. september 2025.“
Reykjavík, 20. apríl 2026
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir