06 júlí 2026

/

Mál nr. 15/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 29. apríl 2026
í máli nr. 15/2026:
Modulbyggingar ehf.
gegn
Landsvirkjun og
Stólpum Gámum ehf.

Lykilorð
Reglugerð nr. 340/2017. Ákvörðun um val tilboðs afturkölluð. Lögvarðir hagsmunir. Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.

Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála aflétti sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 6. apríl 2026 kærði Modulbyggingar ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Landsvirkjunar (hér eftir „varnaraðili“) nr. 2025-20 auðkennt „Stækkun Sigöldustöðvar – SIG02 Vinnubúðir.“

Kærandi krefst þess aðallega að felld verði úr gildi ákvörðun varnaraðila frá 27. mars 2026 um að velja tilboð Stólpa Gáma ehf. í hinu kærða útboði. Til vara krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda. Þess er að auki krafist að kærunefnd útboðsmála stöðvi innkaupaferlið og samningsgerð um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kærunni. Kærandi krefst enn fremur málskostnaðar úr hendi varnaraðila að mati kærunefndarinnar.

Varnaraðili sendi kærunefnd útboðsmála tölvupóst 16. apríl 2026 og upplýsti að eftir ítarlegri yfirferð tilboða hafi komið í ljós að engin gild tilboð hefðu borist í hinu kærða útboði. Hefði varnaraðili því hafnað öllum tilboðum og ákveðið að afturkalla ákvörðun um val á tilboði.

Stólpi Gámar ehf. lögðu fram athugasemdir vegna kærunnar 20. apríl 2026 og krefst þess að öllum kröfum kæranda verði vísað frá, en til vara að kröfum kæranda verði hafnað og að banni við samningsgerð verði aflétt. Í báðum tilvikum krefst Stólpi Gámar ehf. þess að kæranda verði gert að greiða þeim málskostnað.

Kærunefnd útboðsmála óskaði eftir frekari upplýsingum frá varnaraðila með tölvupósti 21. apríl 2026 og svaraði varnaraðili erindi nefndarinnar þann sama dag.

I

Varnaraðili auglýsti hið kærða útboð í október 2025. Í grein 1.1.1 kom fram að óskað væri eftir tilboðum í uppbyggingu vinnubúða með gistirými fyrir allt að 56 starfsmenn, skrifstofurými og heilsurækt vegna stækkunar Sigöldustöðvar í Rangárþingi Ytra. Um væri að ræða almennt útboð samkvæmt 49. gr. reglugerðar nr. 340/2017 um aðila sem annist vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Þá kom fram að varnaraðili hygðist velja fjárhagslega hagkvæmasta tilboðið á grundvelli besta hlutfalls milli verðs og gæða þeirrar vöru sem varnaraðili óskaði eftir.

Valforsendur komu fram í grein 1.10.5. Þar var tekið fram að það tilboð sem hefur flest samanlögð stig fyrir tilboðsverð annars vegar og gæði vinnubúða hins vegar væri hagstæðasta tilboðið. Lægsta tilboðið fengi 80 stig fyrir verð og þá yrðu gefin mest 20 stig fyrir gæði vinnubúðaeininga, sbr. valforsendur í grein 1.10.5.1. Stig bjóðenda yrðu svo reiknuð út eftir formúlu sem kom fram í grein 1.10.5, þannig að samanlögð stig fyrir verð og gæði vinnubúða yrðu heildarstig bjóðenda.

Tilboð voru opnuð 13. febrúar 2026 og bárust alls fjögur tilboð. Stólpi Gámar ehf. fengu 85 stig samkvæmt valforsendum útboðsgagna, en kærandi fékk 83 stig. Þá fékk Sjammi ehf. 80 stig.

Með tilkynningu sem send var bjóðendum 27. mars 2026, upplýsti varnaraðili um að ákveðið hefði verið að velja tilboð Stólpa Gáma ehf. Bjóðendum var leiðbeint um biðtíma samningsgerðar og tekið fram að varnaraðili hygðist gera samning við Stólpa Gáma ehf. 8. apríl 2026.

Kærandi byggir á því að tilboð Stólpa Gáma ehf. hafi ekki uppfyllt lágmarkskröfur útboðsgagna, m.a. grein 1.2 þar sem kveðið sé á um færanlegar vinnubúðaeiningar. Þá hafi kærandi ástæðu til að ætla að tilboð Stólpa Gáma ehf. uppfylli ekki kröfur útboðsgagna um að starfskjör skuli vera í samræmi við gildandi kjarasamninga, auk þess sem kærandi byggir á því að varnaraðila hafi borið skylda til að rannsaka hvort tilboð Stólpa Gáma ehf. teljist óeðlilega lágt.

Sem áður segir sendi varnaraðili tölvupóst til kærunefndar útboðsmála 16. apríl 2026 og upplýsti að eftir ítarlegri yfirferð tilboða hafi komið í ljós að engin gild tilboð hafi borist í hinu kærða útboði. Hefði varnaraðili því ákveðið að afturkalla ákvörðun sína um val á tilboði Stólpa Gáma ehf. og hafna öllum tilboðum í hinu kærða útboði.

Stólpi Gámar ehf. telja að vísa beri kæru kæranda frá kærunefnd útboðsmála vegna þess að varnaraðili hefur afturkallað ákvörðun sína um að velja tilboð félagsins, sbr. 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016. Ekki séu lengur lögvarðir hagsmunir af því að fá afstöðu nefndarinnar til kæruefnisins, sbr. til hliðsjónar úrskurð kærunefndarinnar í máli nr. 37/2025. Verði málinu ekki vísað frá nefndinni bendir Stólpi Gámar ehf. á að vinnubúðirnar eða gámaeiningarnar, sem félagið hafi boðið í hinu kærða útboði, séu færanlegar og hafi verið notaðar víða, m.a. af varnaraðila. Einingarnar séu smíðaðar erlendis og fluttar hingað til lands og á undirstöðu á verkstað, og á verkstað sé gert ráð fyrir ýmis konar frágangi, svo sem tengingu við vatn, fráveitu og rafmagn. Slíkur frágangur hafi engin áhrif á færanleika vinnubúðanna. Þá andmælir Stólpi Gámar ehf. sjónarmiðum kæranda þess efnis að tilboð félagsins sé óeðlilega lágt og bendir á að kærandi hafi ekki fært neinar efnislegar röksemdir fyrir þessum sjónarmiðum sínum.

Niðurstaða

Kæra málsins hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016. Í 1. mgr. 107. gr. laganna kemur fram að ef ákvörðun um val tilboðs er kærð innan lögboðins biðtíma samkvæmt 86. gr. laganna sé gerð samnings óheimil þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar getur kærunefnd, hvort heldur að kröfu varnaraðila eða að eigin frumkvæði, ákveðið að aflétta banni við samningsgerð, en við slíka ákvörðun gilda ákvæði 110. gr. laganna eftir því sem við á. Í því felst að einungis á að viðhalda stöðvun hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögum um opinber innkaup eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.

Eins og að framan greinir hefur varnaraðili fallið frá ákvörðun sinni um að velja tilboð Stólpa Gáma ehf. í hinu kærða útboði, sbr. tilkynningu þess efnis 16. apríl 2026 sem send var bjóðendum í innkaupaferlinu. Verður því að telja að kærandi hafi ekki lengur lögvarða hagsmuni samkvæmt 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup af því að leyst verði úr kröfu hans um að ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð Stólpa Gáma ehf. verði felld úr gildi. Þá liggur fyrir að engin samningsgerð er fyrirhuguð á grundvelli hins kærða útboðs sem getur verið andlag stöðvunar í skilningi 95. gr. reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Með vísan til þessa eru skilyrði áframhaldandi stöðvunar ekki fyrir hendi og verður því aflétt sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar vegna hins kærða útboðs, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.

Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar aðilar hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.

Ákvörðunarorð

Aflétt er sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar vegna útboðs varnaraðila, Landsvirkjunar, nr. 2025-20 auðkennt „Stækkun Sigöldustöðvar – SIG02 Vinnubúðir.“


Reykjavík, 29. apríl 2026


Reimar Pétursson

Kristín Haraldsdóttir

Auður Finnbogadóttir