06 júlí 2026
/
Mál nr. 17/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 29. apríl 2026
í máli nr. 17/2026:
Öryggismiðstöð Íslands hf.
gegn
Landspítala og
Icepharma hf.
Lykilorð
Sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt.
Útdráttur
Fallist var á kröfu L um að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 7. apríl 2026 kærði Öryggismiðstöð Íslands hf. (hér eftir „kærandi“) útboð Landspítalans (hér eftir „varnaraðili“) nr. 35049 auðkennt „ICU Beds for Landspitali Hospital“.
Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila frá 27. mars 2026 um að velja tilboð Icepharma hf. til samningsgerðar í hinu kærða útboði, og leggi fyrir varnaraðila að bjóða út að nýju hin kærðu innkaup. Kærandi gerir jafnframt kröfu um að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila og að varnaraðila verði gert að greiða kæranda hæfilegan málskostnað. Kærandi óskar þess jafnframt að kæra málsins verði sameinuð máli kærunefndar útboðsmála nr. 49/2025 og málið verði rekið í einu lagi.
Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 21. apríl 2026 að öllum kröfum kæranda verði hafnað.
Icepharma hf. sendi kærunefnd útboðsmála tölvupóst 21. apríl 2026 og benti á að kærandi hafi ranglega haldið fram í kæru sinni að félagið hefði boðið fram sömu gerð rúma og í fyrra útboði.
Í þessum hluta málsins verður tekin afstaða til krafna varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.
I
Í ágúst 2025 felldi kærunefnd útboðsmála, að kröfu kæranda í máli þessu, úr gildi samskonar útboð varnaraðila nr. 35017, þar sem skorta þótti fullnægjandi gögn og rökstuðning fyrir því að málefnaleg sjónarmið byggju að baki þeirri kröfu í útboðinu að örugg hleðsluþyngd gjörgæslurúma (SWL) skyldi vera 265 kg og þyngdarmörk rúmanna miðuðust við að þau gætu tekið við sjúklingum sem væru að lágmarki 200 kg. Lá þá fyrir að fáum mánuðum áður hafði varnaraðili auglýst útboð á meðal annars gjörgæslurúmum þar sem krafa var um að örugg hleðsluþyngd skyldi vera 250 kg að lágmarki og að þau gætu tekið við sjúklingum sem væru 185 kg að lágmarki.
Þann 23. september 2025 auglýsti varnaraðili útboð á Evrópska efnahagssvæðinu nr. 35049, auðkennt „ICU Beds for Landspitali Hospital“. Lýtur útboðið að gerð rammasamnings við einn bjóðanda um afhendingu á hágæða gjörgæslurúmum samkvæmt pöntunum til nota á gjörgæslum Landspítala og Sjúkrahússins á Akureyri. Í útboðsskilmálum kemur fram að Landspítalinn hafi yfir að ráða bæði hefðbundnum gjörgæslurúmum og hágæða gjörgæslurúmum og tímabært sé að fjölga þeim síðarnefndu. Hágæða gjörgæslurúm sem notuð séu í dag séu af gerðinni Progressa frá Baxter (Hillrom). Áætluð kaup séu sex til sjö rúm fyrsta árið en ekki liggi fyrir hversu mörg rúm verði keypt eftir það.
Í grein 1.1.1 í útboðslýsingu hins nýja útboðs er rakið að um sé að ræða nýtt innkaupaferli fyrir gjörgæslurúm, þar sem kærunefnd útboðsmála hafi fellt fyrra útboð úr gildi en megin kröfur til boðinna gjörgæslurúma væru þó að mestu óbreyttar. Segir þar að í úrskurði nefndarinnar hafi komið fram að kaupandi gæti ekki breytt kröfum, á grundvelli breyttra aðstæðna, nema tilgreindar væru hlutlægar og málefnalegar ástæður fyrir slíkum breytingum. Í því sambandi hafi komið fram að tilfelli sjúklinga í yfirþyngd væru svo fá að varnaraðili gæti nýtt bariatric gjörgæslurúm. Slík rúm séu aftur á móti ekki og hafa aldrei verið til á Landspítalanum. Þannig séu nú engin gjörgæslurúm fyrir hendi sem henti sjúklingum yfir 200 kg, þrátt fyrir að kaupandi telji brýna þörf fyrir slík rúm. Útboðið sé því nauðsynlegt til að mæta raunverulegri og aðkallandi þörf varnaraðila, sem bein áhrif hafi á öryggi sjúklinga og meðferð. Kröfur um gjörgæslurúm sem geti borið sjúklinga yfir 200 kg byggist á óyggjandi læknisfræðilegum og rekstrarlegum sjónarmiðum. Þau sjónarmið séu í samræmi við markmið laga um opinber innkaup og tryggi almannahagsmuni og veitingu nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu. Með útboðinu sé brugðist við ófullnægjandi aðstæðum sem uppi séu vegna rangra forsendna í úrskurði kærunefndar útboðsmála og þannig tryggt að innkaupin séu í samræmi við raunverulegar þarfir og lagakröfur.
Tilboð voru opnuð þann 16. janúar 2026 og bárust þrjú tilboð. Tilboð Icepharma hf. nam 29.473.468 krónum en félagið bauð rúm af gerðinni Progressa Pro 585 frá framleiðandanum Hill-Rom. Tilboð kæranda nam 32.849.380 krónum en kærandi bauð rúm af gerðinni Eleganza 5 + Opticare frá framleiðandanum Linet. Eitt annað tilboð barst og var það lægst af þeim þremur tilboðum sem bárust. Varnaraðili tilkynnti 27. mars 2026 að ákveðið hefði verið að velja tilboð Icepharma hf., sem hefði verið metið hagstæðast fyrir varnaraðila samkvæmt valforsendum útboðslýsingar. Hefði tilboðið fengið alls 47 stig af 50 mögulegum fyrir verð og 44 stig af 50 fyrir gæði.
Tekið skal fram að kærandi hefur áður lagt fram kæru vegna sama útboðs. Hún barst kærunefnd útboðsmála 13. október 2025 og fékk málsnúmerið 49/2025 í málaskrá nefndarinnar. Með ákvörðun í því máli 28. nóvember 2025 hafnaði kærunefnd útboðsmála kröfu kæranda um að hið kærða innkaupaferli yrði stöðvað um stundarsakir, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
II
Kærandi vísar til þess að varnaraðili hafi hinn 27. mars 2026 tilkynnt um val á tilboði Icepharma hf. í hinu kærða útboði, enda hefði það tilboð verið metið hagstæðast fyrir kaupanda samkvæmt valforsendum útboðslýsingar. Engar frekari upplýsingar hafi komið fram í tilkynningunni um á hvaða grundvelli tilboði kæranda hafi verið hafnað, hvort það hafi verið metið gilt og hvort, og þá með hvaða hætti, það hafi verið metið til stiga við yfirferð tilboða. Það telji kærandi vera annmarka á ákvörðun varnaraðila.
Kærandi heldur því fram að kæran sé komin fram innan biðtíma samkvæmt 1. mgr. 86. gr. laga nr. 120/2016. Biðtími hafi endað á lögboðnum frídegi, 6. apríl 2026, og í slíkum tilfellum endi biðtími við lok síðustu klukkustundar næsta virka dags, sbr. úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 45/2021.
Þá bendir kærandi á að í upphaflegri kæru vegna sama útboðs, sbr. mál hjá kærunefnd útboðsmála nr. 49/2025, hafi hann ekki haft uppi kröfu um að kærunefnd útboðsmála veitti álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila, enda hafi ekki verið tímabært fyrir kæranda að hafa uppi slíka kröfu á því stigi málsins. Nú liggi fyrir að kærandi hafi sannanlega tekið þátt í hinu kærða útboði og tilboði hans hafi verið hafnað. Hafi því tjón hans raungerst, sbr. 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016, sbr. til hliðsjónar úrskurð kærunefndar útboðsmála nr. 22/2023.
Kærandi byggir á því að varnaraðili hafi brotið gegn lögum nr. 120/2016 í hinu kærða útboði og vísar í þeim efnum til upphaflegrar kæru vegna útboðsins og öðrum athugasemdum sem hann hafi lagt fram í því máli. Kærandi telji að krafa útboðsgagna um hámarksþyngd notenda rúmanna sé að lágmarki 200 kg hafi ekki verið rökstudd af hálfu varnaraðila. Röksemdir varnaraðila hafi verið reistar á því að nauðsyn þess að kaupa rúm sem geti borið sjúklinga yfir 200 kg samrýmist ekki þeim kröfum sem útboðsskilmálar geri. Að mati kæranda sé ljóst að ef kaupandi hefði haldið sig við upphaflegar þyngdarkröfur gjörgæslurúma sem settar hafi verið fram í útboði nr. 35001, í stað þess að hækka þyngdarkröfur með ólögmætum hætti í síðari útboðum, hefði kærandi átt raunhæfa möguleika á að verða valinn af kaupanda, enda hafi kærandi verið með næstlægsta tilboð gjörgæslurúma í því útboði. Varnaraðili hafi hafnað öllum tilboðum í því útboði vegna þess að enginn bjóðandi hafi uppfyllt kröfur um hliðargrindur, en kærandi hafi hins vegar uppfyllt allar aðrar kröfur þess útboðs og hefði þar af leiðandi átt raunhæfa möguleika á að verða valinn í endurteknu útboði hefðu þyngdarkröfur ekki verið hertar.
Kærandi telji ljóst að hið kærða útboð hafi farið fram við mjög sérstakar aðstæður og hafi kærandi þurft að gæta réttar síns með tilheyrandi kostnaði í fyrrnefndum útboðum. Við mat á skaðabótaskyldu varnaraðila telji kærandi því að líta beri heildstætt á allt málið og þær kringumstæður sem hafi skapast allt frá fyrsta innkaupaferli kaupanda nr. 35001. Þá bendir kærandi á að í upphaflegu innkaupaferli hafi tilboð verið opnuð og opnunarskýrsla gerð opinber. Icepharma hf. hafi lækkaði tilboð sitt um rúmar 14 milljónir króna fyrir sömu gerð af rúmum, og telji kærandi að þessi mikla verðlækkun kalli á nánar skýringar. Það undirstriki jafnframt þörfina á að varnaraðili byggi síðari útboð sín á skýrum, málefnalegum og lögmætum skilmálum, enda geti endurtekin útboð við slíkar aðstæður raskað jafnræði bjóðenda. Telji kærandi þetta styðja þá niðurstöðu að varnaraðili hafi staðið að hinu kærða útboði, líkt og útboði nr. 35017, með ólögmætum hætti enda hafi jafnræði bjóðenda verið raskað með ómálefnalegum hætti.
Að öllu virtu telji kærandi að hann hafi átt raunhæfa möguleika á að verða fyrir valinu ef kaupandi hefði staðið að þeim útboðum sem hér um ræði, þ.e. hinu kærða útboði nr. 35049 og útboði nr. 35017, með lögmætum hætti og að möguleikar kæranda hafi skerst við brot kaupanda. Ef kaupandi hefði boðið innkaup gjörgæslurúma út að nýju án þess að hækka þyngdarkröfur með ólögmætum hætti, þá hefði kærandi átt raunhæfa möguleika á að verða valinn, enda hafi hann boðið hágæða gjörgæslurúm sem uppfylli að öðru leyti allar kröfur hins upphaflega útboðs á samkeppnishæfu verði.
III
Varnaraðili byggir á því að tilboði kæranda hafi réttilega verið hafnað þar sem það hafi ekki uppfyllt óundanþæga kröfu í útboðsskilmálum, sbr. lið ac í grein 4.2 í úboðslýsingu þar sem fram kemur að burðarþol rúmanna skuli vera 200 kg að lágmarki. Kærandi hafi boðið rúm þar sem hámarksburðarþol miðaðist við 185 kg sjúklinga, og skiptir þá ekki máli þótt kærandi hafi tekið fram að uppbygging rúmanna geti, við tilteknar aðstæður, borið sjúklinga sem séu 200 kg. Þessi sjónarmið kæranda séu skilyrt og geti því ekki talist uppfylla lágmarkskröfur útboðsgagna að þessu leyti.
Þá byggir varnaraðili á því að kröfur um þyngdargetu rúmanna hafi verið málefnalegar og rökstuddar. Í þessum efnum vísar varnaraðili til ákvörðunar kærunefndar útboðsmála í máli nr. 49/2025, þar sem ekki hafi verið fallist á kröfu kæranda um að stöðva innkaupaferlið, en kærandi hefði borið fyrir sig að þessar kröfur útboðslýsingar væru ólögmætar. Kærunefndin hafi samþykkt að varnaraðili hafi fært fram málefnalegan rökstuðning fyrir þessari kröfu útboðsgagna og leyft varnaraðila að halda innkaupaferlinu áfram. Þessi þyngdarkrafa útboðslýsingar sé byggð á raunverulegum klínískum þörfum varnaraðila, öryggisstöðlum og rekstrarþörfum. Þá bendir varnaraðili á að þótt fyrri úrskurðir kærunefndar útboðsmála geti haft áhrif á framtíðarútboð þá sé hvert útboð sjálfstætt ferli, og hafi varnaraðili rétt til þess að móta skilmála, svo framarlega sem þeir séu málefnalegir og rökstuddir, sbr. úrskurð kærunefndar útboðsmála í máli nr. 5/2010. Varnaraðili sé því ekki bundinn af forsendum fyrri útboða þegar hann auglýsi ný útboð, og það eigi einnig við um kostnaðaráætlanir og aðra skilmála. Þótt annar bjóðandi hafi lækkað verð sín milli útboða þá sé það ekki á ábyrgð varnaraðila.
Icepharma hf. tekur fram að kærandi hafi ranglega haldið fram að félagið hafi boðið sömu gerð rúma og áður. Hið rétta sé að Icepharma hf. bauð fram aðra gerð af rúmum en áður og það sjáist þegar útboðsgögn séu borin saman.
IV
Kæra málsins hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016. Í 1. mgr. 107. gr. laganna kemur fram að ef ákvörðun um val tilboðs er kærð innan lögboðins biðtíma samkvæmt 86. gr. laganna sé gerð samnings óheimil þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar getur kærunefnd, hvort heldur að kröfu varnaraðila eða að eigin frumkvæði, ákveðið að aflétta banni við samningsgerð, en við slíka ákvörðun gilda ákvæði 110. gr. laganna eftir því sem við á. Í því felst að einungis á að viðhalda stöðvun hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögum um opinber innkaup eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.
Svo sem að framan greinir hefur varnaraðili áður boðið út sams konar innkaup. Í útboðsferli nr. 35001 voru m.a. gerðar kröfur um að burðarþol gjörgæslurúmanna væri 185 kg en í því innkaupaferli bárust engin gild tilboð. Varnaraðili efndi til nýs innkaupaferlis nr. 35017 og þá var umrædd krafa að rúmin gætu tekið við sjúklingum sem væru yfir 200 kg. Kærandi í þessu máli kærði útboðsskilmála þessa til kærunefndar útboðsmála og með úrskurðum 21. ágúst 2025 í málum nr. 5/2025 og 6/2025 ógilti kærunefndin útboðsferli varnaraðila þar sem talið var að varnaraðili hefði ekki fært fullnægjandi skýringar á kröfu um aukna burðargetu rúmanna frá fyrra útboði.
Varnaraðili efndi aftur til nýs innkaupaferlis, sem hér er til umfjöllunar. Í hinu kærða innkaupaferli eru gerðar sömu kröfur til burðarþols gjörgæslurúmanna og gerðar voru í innkaupaferli nr. 35017, sbr. lið ac í grein 4.2 í útboðslýsingu. Kærandi kærði umþrættan útboðsskilmála til kærunefndar útboðsmála á útboðstíma, sbr. mál nefndarinnar nr. 49/2025. Með ákvörðun 28. nóvember 2025 hafnaði kærunefnd útboðsmála kröfu kæranda þess efnis að innkaupaferli varnaraðila yrði stöðvað um stundarsakir og vísaði m.a. til þess að varnaraðili virtist hafa rökstutt nauðsyn innkaupanna á fleiri sérhæfðum gjörgæslurúmum sem gætu borið sjúklinga að lágmarki 200 kg eða meira. Virtust því málefnaleg sjónarmið búa að baki kröfu varnaraðila í lið ac í grein 4.2 í útboðslýsingu hins kærða útboðs.
Kröfur kæranda í máli þessu eru í öllum meginatriðum reistar á sömu sjónarmiðum og kröfur hans í máli nr. 49/2025 en ekki var fallist á stöðvunarkröfu kæranda í því máli. Þeim til viðbótar teflir kærandi einnig fram sjónarmiðum þess efnis að Icepharma hf. hafi lækkað tilboð sitt umtalsvert og rekur kærandi það til þess að opnunarskýrsla fyrri innkaupaferla hafi verið gerð opinber og bjóðendur hafi þannig öðlast betri yfirsýn yfir verðlag á þessum markaði. Af þessu tilefni tekur kærunefnd útboðsmála fram að þegar útboð eru ógild samkvæmt úrskurði nefndarinnar þá liggur í hlutarins eðli að bjóðendur kunna þá að hafa fengið upplýsingar um tilboðsgjafa og tilboðsfjárhæðir í því tilboði. Slíkt getur ekki talist óeðlilegt svo fremi sem útboðsskilmálar séu málefnalegir.Að mati kærunefndar útboðsmála verður fleira að koma til svo að ákvarðanir í síðari útboðum séu ógildar á þessum grundvelli. Loks er þess að geta að við mat þess hvort framboðin rúm kæranda hafi mætt útboðsskilmálum verður að meta burð þeirra eftir þeirri notkun sem rúmin eru ætluð til, þ.e. á gjörgæsludeild. Burður í öðrum aðstæðum, svo sem við langlegu, getur þannig ekki ráðið niðurstöðu um hvort rúmin mæti kröfum í útboðinu.
Með vísan til þessa hefur á þessu stigi ekkert komið fram af hálfu kæranda um að ekki hafi verið málefnalega staðið að hinu kærða útboði eða að útboðsskilmáli sá, sem hér um ræðir, brjóti gegn meginreglum laga nr. 120/2016. Verður því ekki séð, eins og mál þetta liggur fyrir nú, að verulegar líkur hafi verið leiddar að broti gegn lögum nr. 120/2016 eða reglum settum samkvæmt þeim við innkaupin, sem leitt geti til ógildingar ákvörðun eða annarra athafna varnaraðila, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016. Verður því fallist á kröfu varnaraðila um að aflétta þeirri sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar sem komst á með kæru málsins.
Úr öðrum kröfum aðila verður leyst þegar aðilar hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.
Ákvörðunarorð
Aflétt er sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar vegna útboðs varnaraðila, Landspítala, nr. 35049 auðkennt „ICU Beds for Landspitali Hospital“.
Reykjavík, 29. apríl 2026
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir