08 júlí 2026
/
Mál nr. 21/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 11. maí 2026
í máli nr. 21/2026:
Securitas ehf.
gegn
Faxaflóahöfnum sf. og
Ofar ehf.
Lykilorð
Krafa um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar. Stöðvunarkröfu hafnað.
Útdráttur
Í ákvörðun kærunefndar útboðsmála var lagt til grundvallar, eins og málið lá fyrir nefndinni, að verðmæti hinna umdeildu innkaupa hefði ekki náð viðmiðunarfjárhæðum reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Kæruefni málsins félli því fyrir utan valdsvið nefndarinnar samkvæmt lögum nr. 120/2016 um opinber innkaup. Niðurstaða nefndarinnar var því að vísa frá kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt og hafna stöðvunarkröfu kæranda.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 22. apríl 2026 kærði Securitas ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Faxaflóahafna sf. (hér eftir „varnaraðili“) auðkennt „Farþegamiðstöð Skarfabakka - Afspilunarkerfi og upplýsingarskjáir“.
Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvarðanir varnaraðila 13. apríl 2026 um að hafna tilboði kæranda og um að ganga að tilboði Ofar ehf. Þá krefst kærandi þess að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað. Loks krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála stöðvi samningsgerð varnaraðila við Ofar ehf. þar til endanlega hefur verið skorið úr kæruefni.
Með erindi 27. apríl 2026 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir að kærandi legði fram útboðsgögn hins kærða útboðs. Kærandi svaraði erindinu sama dag og afhenti umbeðin gögn.
Varnaraðila og Ofar ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Varnaraðili lagði fram athugasemdir 8. maí 2026.
Varnaraðili krefst þess að kærunefnd útboðsmála aflétti sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar að því gefnu að nefndin telji yfirleitt að kæran hafi stöðvað samningsgerð. Þá krefst varnaraðili þess að kröfu um stöðvun samningsgerðar verði vísað frá kærunefnd útboðsmála. Loks krefst varnaraðili þess að kærunni verði vísað frá kærunefnd útboðsmála eða öllum kröfum kæranda hafnað.
Með útboðsgögnum, dagsettum í febrúar 2026, óskaði varnaraðila eftir tilboðum í hinu kærða útboði. Í grein 0.1.2 kom fram að um væri að ræða opið útboð samkvæmt 49. gr. reglugerðar nr. 340/2017 og að útboðið væri auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Þá kom fram í grein 0.6.3 að tilboð skyldu innihalda allan kostnað og gjöld sem hlytust af framkvæmd verkefnisins, hverju nafni sem þau nefndust. Jafnframt að tilboð skyldu miðast við föst einingarverð eða heildarverð og engar verðbætur yrðu greiddar á samningstímanum.
Tilboð voru opnuð 18. mars 2026 og bárust tilboð frá fimm bjóðendum. Fjárhæð tilboðanna var 21.880.519 krónur (Snjallveggir ehf.), 25.329.816 krónur (kærandi), 26.603.763 krónur (Atendi ehf.), 35.235.584 krónur (Ofar ehf.) og 46.225.673 krónur (Luxor tækjaleiga ehf.). Þá nam kostnaðaráætlun varnaraðila 44.630.181 krónum. Allar framangreindar fjárhæðir voru að meðtöldum virðisaukaskatti.
Varnaraðili tilkynnti bjóðendum 13. apríl 2026 um ákvörðun sína að velja tilboð Ofar ehf. í útboðinu. Í tilkynningunni var meðal annars vísað til ákvæða reglugerðar nr. 340/2017 um biðtíma samningsgerðar og að heimilt væri að ganga til samninga við Ofar ehf. frá og með 24. apríl 2026. Sama dag tilkynnti varnaraðili kæranda að tilboð hans hefði verið metið ógilt og hafnað þar sem það uppfyllti ekki tiltekin skilyrði í útboðs- og tæknilýsingu.
Varnaraðili byggir í meginatriðum á að um sé að ræða útboð á vörukaupum undir viðmiðunarfjárhæðum reglugerðar nr. 340/2017 og ágreiningur málsins falli því fyrir utan valdsviðs kærunefndar útboðsmála.
Niðurstaða
Á þessu stigi málsins verður að leggja til grundvallar að varnaraðili hafi með hinu kærða útboði stefnt að gerð vörusamnings í skilningi 3. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Jafnframt að innkaupin varði starfsemi sem falli undir 12. gr. reglugerðarinnar.
Eitt af skilyrðum þess að innkaup falli undir gildissvið reglugerðar nr. 340/2017 er að áætlað verðmæti þeirra nái þeim viðmiðunarfjárhæðum sem eru tilgreindar í 15. gr. Viðmiðunarfjárhæð reglugerðarinnar er nú 64.640.000 krónur án virðisaukaskatts þegar um er að ræða vörusamninga og þjónustusamninga, sbr. a. lið 1. mgr. 15. gr. reglugerðarinnar. Samkvæmt fundargerð opnunarfundar voru öll framkomin tilboð auk kostnaðaráætlunar varnaraðila töluvert undir þeirri fjárhæð.
Vald kærunefndar útboðsmála, að því er varðar opinberar aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu, takmarkast við þau mál sem falla undir reglugerð nr. 340/2017, sbr. 9. gr. og 2. mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Samkvæmt framangreindu verður á þessu stigi málsins að miða við að hið kærða útboð falli utan nefndrar reglugerðar og kæruefni málsins þar af leiðandi fyrir utan valdsvið kærunefndar útboðsmála. Telja verður að í því samhengi skipti ekki máli þótt ætlun varnaraðila virðist hafa staðið til þess að reglugerðin skyldi gilda um útboðið, sbr. t.d. úrskurð nefndarinnar nr. 19/2022. Þegar af þessari ástæðu verður að leggja til grundvallar að kæra málsins hafi ekki geta haft í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar eftir 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 og að ekki séu fyrir hendi skilyrði til að fallast á stöðvunarkröfu kæranda eftir 1. mgr. 110. gr. sömu laga. Verður því að vísa frá kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt og hafna stöðvunarkröfu kæranda.
Ákvörðunarorð:
Vísað er frá kröfu varnaraðila, Faxaflóahafna sf., um afléttingu sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar í útboði auðkennt „Farþegamiðstöð Skarfabakka – Afspilunarkerfi og upplýsingaskjáir“.
Stöðvunarkröfu kæranda, Securitas ehf., er hafnað.
Reykjavík, 11. maí 2026.
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir