08 júlí 2026
/
Mál nr. 27/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 28. maí 2026
í máli nr. 27/2026:
Norconsult Ísland ehf.
gegn
Betri samgöngum ohf.,
Veitum ohf.,
Eflu hf.
VSÓ ráðgjöf ehf.
Verkís hf. og
Hnit verkfræðistofu hf.
Lykilorð
Aflétting sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar.
Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála féllst á kröfu um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 11. maí 2026 kærði Norconsult Ísland ehf. (hér eftir „kærandi“) rammasamningsútboð Betri Samgangna ohf. og Veitna ohf. (hér eftir „varnaraðilar“) nr. BSRS-2026-12 auðkennt „Borgarlínan. Rammasamningur um eftirlit með verkframkvæmdum“.
Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila að veita honum ekki stig fyrir matsþátt 1.4.2 og felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um val bjóðenda í hinu kærða útboði. Verði ekki fallist á þessar kröfur krefst kærandi þess að útboðið verði í heild sinni metið ógilt og það auglýst á nýjan leik. Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti í té álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum og að varnaraðilum verði gert að greiða honum málskostnað. Loks krefst kærandi þess að samningsgerð verði stöðvuð þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru.
Varnar- og hagsmunaaðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Athugasemdir bárust frá varnaraðilum 27. maí 2026.
Varnaraðilar krefjast þess að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt og öllum kröfum kæranda hafnað.
Samkvæmt útboðslýsingu laut hið kærða útboð að gerð rammasamnings um eftirlit með verkframkvæmdum tengdum Borgarlínu og var gert ráð fyrir að samið yrði við fjóra bjóðendur í útboðinu. Þá kom fram í útboðslýsingu að áætlað heildarumfang rammasamningsins á mögulegum samningstíma væri allt að 3.200 m.kr. án virðisaukaskatts.
Í grein 1.4 í útboðslýsingu var fjallað um valforsendur útboðsins. Þar kom fram að valforsendurnar væru verð (80 stig), vottað umhverfisstjórnunarkerfi (10 stig) og vottað stjórnunarkerfi um heilbrigðis og öryggi á vinnustað (10 stig). Í greininni kom fram að til að fá stig fyrir matskröfurnar þyrftu bjóðendur að fylla út viðeigandi eyðublað í tilboðsbók og láta fullnægjandi gögn fylgja tilboði. Ekki yrði kallað eftir frekari gögnum til skýringar á valforsendum eftir opnun tilboða og ef fullnægjandi gögn yrðu ekki lögð fram fengi bjóðandi ekki stig fyrir viðkomandi matsþátt.
Í grein 1.4.2 var nánar mælt fyrir um fyrirkomulagið við stigagjöf fyrir umhverfisstjórnunarkerfið, sem átti að vera ISO 140001 eða sambærilegt, og stjórnunarkerfið um heilbrigðis og öryggi á vinnustað, sem átti að vera ISO 45001 eða sambærilegt. Í báðum tilvikum gátu bjóðendur fengið 10 stig ef þeir störfuðu samkvæmt alþjóðlega vottuðu kerfi, 5 stig ef sýnt væri fram á að vottunarferli væri hafið og því væri lokið innan tiltekins tíma og 0 stig ef bjóðandi starfaði ekki samkvæmt alþjóðlega vottuðu kerfi.
Tilboð voru opnuð 31. mars 2026 og bárust tilboð frá tíu bjóðendum, þar með talið kæranda og hagsmunaaðilum. Með bréfi 30. apríl 2026 tilkynntu varnaraðilar bjóðendum um val tilboðs og kom þar fram að tilboð hagsmunaaðila hefðu verið valin í útboðinu. Í tilkynningunni var nánar fjallað um stigagjöf bjóðenda og kom þar meðal annars fram að stigagjöf kæranda hefði verið 74.5 stig og hann hefði hlotið 0 stig fyrir framangreind kerfi. Sama dag sendu varnaraðilar nánari rökstuðning fyrir stigagjöfinni til kæranda.
Í rökstuðningi varnaraðila kom meðal annars fram að kærandi hefði lagt fram vottorð sem staðfestu að Norconsult Norge AS og ýmis útibú þess félags í Noregi störfuðu samkvæmt umhverfisstjórnunarkerfi og stjórnunarkerfi um heilbrigði og öryggi á vinnustað auk þess sem sams konar vottorð hefðu verið lögð fram vegna verkfræðistofu Bjarna Viðarssonar ehf. Af þessum vottorðum yrði ekki ráðið að kærandi starfaði samkvæmt þessum kerfum, m.a. þar sem vottun Norconsult Norge AS næði ekki til starfsstöðva kæranda samkvæmt efni vottorðanna. Því hefði ekki verið unnt að gefa bjóðanda stig vegna þessa. Þá kom fram að ekki hefði verið fullnægt skilyrðum til að byggja á getu annarra ef það hefði verið ætlun kæranda og að varnaraðilum hefði ekki verið heimilt að kalla eftir frekari gögnum eða skýringum frá kæranda tengdum þessum atriðum.
Kærandi mótmælti ákvörðun varnaraðila með tölvupósti 1. maí 2026 og áttu aðilar í kjölfarið í frekari samskiptum.
Kærandi byggir í meginatriðum á að stigagjöf varnaraðila fyrir tilboð hans hafi verið röng og hann hafi átt að fá fullt hús stiga fyrir vottanir stjórnunarkerfa. Kærandi hafi lagt fram vottorð frá móðurfélagi og samstarfsaðila. Þessi vottorð feli í sér staðfestingu um að kærandi starfi samkvæmt þessum kerfum auk þess sem fram hafi komið í tilboðsbók kæranda að byggt væri á getu undirverktaka og samstarfsaðila. Varnaraðilum hafi verið heimilt að óska eftir frekari upplýsingum og gögnum þessu tengdu.
Varnaraðilar byggja í meginatriðum á að ekki hafi verið unnt að gefa kæranda stig fyrir að starfa eftir alþjóðlega vottuðum stjórnunarkerfum samkvæmt ákvæðum útboðsgagna. Framlögð vottorð sýni ekki fram á að kærandi starfi samkvæmt slíkum kerfum. Þá hafi ekki verið uppfyllt skilyrði til að byggja á getu annarra skv. 87. gr. reglugerðar nr. 340/2017 og grein 1.5.2 og 1.3 í útboðsgögnum. Með tilboðsgögnum kæranda hafi hvorki fylgt skrifleg skuldbinding frá öðrum aðilum né gögn sem staðfestu að þeir uppfylltu tilteknum hæfiskröfum útboðsgagna.
Í ákvörðun þessari verður tekin afstaða til kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt en málið bíður að öðru leyti efnislegrar úrlausnar.
Niðurstaða
Á þessu stigi málsins verður lagt til grundvallar að hin kærðu innkaup falli undir gildissvið reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Kæra málsins barst innan lögboðins biðtíma samkvæmt 1. mgr. 95. gr. reglugerðarinnar og hafði því í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, sbr. 9. gr. laganna.
Í 1. mgr. 107. gr. laganna kemur fram að ef ákvörðun um val tilboðs er kærð innan lögboðins biðtíma sé gerð samnings óheimil þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni. Samkvæmt 2. mgr. getur kærunefnd, hvort heldur að kröfu varnaraðila eða að eigin frumkvæði, ákveðið að aflétta banni við samningsgerð, en við slíka ákvörðun gilda ákvæði 110. gr. eftir því sem við á. Í því felst að einungis á að viðhalda stöðvun hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögum um opinber innkaup eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.
Það er meginregla útboðsréttar að bjóðendur bera ábyrgð á tilboðum sínum og að þeim sé skilað í samræmi við kröfur útboðsgagna, eftir atvikum eins og þeim hefur verið breytt eða þau nánar skýrð við meðferð útboðsins, sbr. t.d. úrskurð kærunefndar útboðsmála 20. september 2022 í máli nr. 15/2022.
Svo sem er rakið hér að framan gátu bjóðendur fengið samtals 20 stig samkvæmt grein 1.4.2 í útboðslýsingu ef þeir störfuðu samkvæmt umhverfisstjórnunarkerfi og stjórnunarkerfi um heilbrigði og öryggi á vinnustað. Þá gátu bjóðendur fengið samtals 10 stig ef vottunarferli vegna slíkra kerfa var hafið, sbr. nánari fyrirmæli greinarinnar. Við ákvörðun um val tilboða gáfu varnaraðilar kæranda engin stig vegna framangreindra kerfa og lýtur kæruefni málsins að þeirri ákvörðun.
Kærandi lagði fram vottorð við meðferð útboðsins sem staðfestu að Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar ehf. og Norconsult Norge AS starfræktu kerfi af framangreindu tagi. Fyrrnefnda félagið var tilgreint sem undirverktaki kæranda í tilboðsgögnum hans og hið síðara mun vera móðurfélag hans.
Ekki er fallist á með kæranda að umrædd vottorð staðfesti að hann starfi eftir umræddum kerfum. Í þessu samhengi má benda á að í vottorðunum frá Norconsult Norge AS er staðfest að það félag starfi eftir umræddum kerfum auk tiltekinna starfsstöðva sem eru talin upp í vottorðunum. Starfsstöðvar kæranda eru ekki tilgreindar í vottorðunum. Þá taka vottorðin fyrir Verkfræðistofu Bjarna Viðarssonar ehf. einungis til starfsemi þess félags.
Samkvæmt grein 1.5.2 í útboðslýsingu var bjóðendum heimilt að byggja á tæknilegri og faglegri getu annarra, sbr. einnig 87. gr. reglugerðar nr. 340/2017. Átti bjóðandi þá að leggja fram með tilboði skuldbindingu frá þeim aðila um að hann myndi annast þann hluta verksins sem getu hans þyrfti til auk þess sem bjóðandi átti að leggja fram gögn sem staðfestu að sá aðili fullnægði viðeigandi hæfiskröfum, þar á meðal kröfum greinar 1.3.1.
Af fyrirliggjandi gögnum verður hvorki ráðið að kærandi hafi lagt fram skuldbindingu frá undirverktaka eða móðurfélagi sínu né önnur þau gögn sem var óskað eftir samkvæmt grein 1.5.2. Kærandi bar ábyrgð á að skila þessum gögnum með tilboði sínu auk þess sem telja verður að frekari gagnaframlagning þessu tengdu hefði haft bein áhrif á stigagjöf og uppröðun bjóðenda í útboðinu. Þá var sérstaklega tekið fram í útboðsgögnum að ekki yrði kallað eftir frekari gögnum til skýringar á valforsendum. Á þessu stigi málsins verður því að telja að varnaraðilum hafi hvorki verið skylt né heimilt að óska eftir þessum gögnum frá kæranda, sbr. til hliðsjónar úrskurð nefndarinnar í máli nr. 9/2022.
Samkvæmt framangreindu og að virtum fyrirliggjandi gögnum og málatilbúnaði aðila að öðru leyti þykir mega miða við, eins og málið liggur fyrir nú, að ekki hafi verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup nr. 120/2016 eða reglum settum samkvæmt þeim sem geti leitt til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila í hinu kærða útboði. Samkvæmt þessu verður að fallast á kröfu varnaraðila um að aflétta stöðvun samningsgerðar í útboðinu, sbr. 2. mgr. 107. gr., sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.
Ákvörðunarorð:
Aflétt er stöðvun samningsgerðar í rammasamningsútboði varnaraðila, Betri Samgangna ohf. og Veitna ohf., nr. BSRS-2026-12 auðkennt „Borgarlínan. Rammasamningur um eftirlit með verkframkvæmdum“.
Reykjavík, 28. maí 2026.
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir