09 júlí 2026
/
Mál nr. 29/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 9. júní 2026
í máli nr. 29/2026:
Norconsult Ísland ehf.
gegn
Betri samgöngum ohf. og
VSÓ ráðgjöf ehf.
Lykilorð
Aflétting sjálfkrafa stöðvunar samningsgerðar.
Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála féllst á kröfu um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar yrði aflétt, sbr. 2. mgr. 107. gr. og 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 18. maí 2026 kærði Norconsult Ísland ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Betri samgangna ohf. (hér eftir „varnaraðili“) nr. BSRG-2026-10 auðkennt „Borgarlínan. Hönnun – BL180 Kársnes“.
Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að velja tilboð VSÓ ráðgjöf ehf. í hinu kærða útboði. Verði ekki fallist á þá kröfu krefst kærandi þess að útboðið verði í heild sinni metið ógilt og það auglýst á nýjan leik. Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti í té álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum og að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað. Loks krefst kærandi þess að samningsgerð verði stöðvuð þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru.
Varnaraðila og VSÓ ráðgjöf ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Athugasemdir bárust frá varnaraðila 28. maí 2026.
Varnaraðili krefst þess að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt og að öllum kröfum kæranda verði vísað frá eða hafnað.
Samkvæmt útboðslýsingu laut hið kærða útboð að hönnun á tilteknum vegkafla í 1. lotu Borgarlínu. Í grein 1.3.4 komu fram kröfur til fag- og tækniþekkingu starfsmanna bjóðanda en bjóðendur áttu að bjóða fram starfsfólk í tiltekin hlutverk. Á meðal þeirra hlutverka var hönnunarstjóri en slíkur aðili átti að lágmarki að vera með B.Sc. gráðu í verk- eða tæknifræði og með að lágmarki 5 ára reynslu sem hönnunarstjóri eða verkefnastjóri í samgöngutengdum verkefnum á hönnunarstigi. Til sönnunar á reynslunni áttu bjóðendur að veita upplýsingar um reynslu viðkomandi starfsmanns í tilboðsbók og leggja fram ferilskrá hans til staðfestingar á upplýsingum um hæfi.
Varnaraðili valdi tilboð VSÓ ráðgjöf ehf. í útboðinu og tilkynnti bjóðendum um þá ákvörðun 8. maí 2026. Í tilkynningunni kom fram að kærandi hefði ekki fullnægt kröfum um fag- og tækniþekkingu starfsmanna samkvæmt grein 1.3.4 í útboðsgögnum. Á sama degi sendi varnaraðili kæranda rökstuðning fyrir ákvörðuninni og kom þar meðal annars fram að framboðinn hönnunarstjóri kæranda hefði ekki fimm ára reynslu samkvæmt framlagðri ferilskrá.
Kærandi byggir í meginatriðum á að framboðinn hönnunarstjóri uppfylli kröfur greinar 1.3.4 og að ákvörðun varnaraðila hafi því verið ólögmæt.
Varnaraðili byggir í meginatriðum á að tilboð kæranda hafi verið ógilt þar sem boðinn starfsmaður í hlutverk hönnunarstjóra hafi samkvæmt framlögðum gögnum með tilboði ekki 5 ára reynslu sem hönnunarstjóri eða verkefnastjóri í samgöngutengdum verkefnum á hönnunarstigi. Varnaraðila hafi hvorki verið skylt né hafi verið tilefni til þess að kalla eftir frekari skýringum frá kæranda samkvæmt 4. mgr. 77. gr. reglugerðar nr. 340/2017.
Í ákvörðun þessari verður tekin afstaða til kröfu varnaraðila um að sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt en málið bíður að öðru leyti efnislegrar úrlausnar.
Niðurstaða
Á þessu stigi málsins verður lagt til grundvallar að hin kærðu innkaup falli undir gildissvið reglugerðar nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Kæra málsins barst innan lögboðins biðtíma samkvæmt 1. mgr. 95. gr. veitureglugerðarinnar og hafði því í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt 1. mgr. 107. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, sbr. 9. gr. laganna.
Í 1. mgr. 107. gr. laganna kemur fram að ef ákvörðun um val tilboðs er kærð innan lögboðins biðtíma sé gerð samnings óheimil þar til kærunefnd útboðsmála hefur endanlega leyst úr kærunni. Samkvæmt 2. mgr. getur kærunefnd, hvort heldur að kröfu varnaraðila eða að eigin frumkvæði, ákveðið að aflétta banni við samningsgerð, en við slíka ákvörðun gilda ákvæði 110. gr. eftir því sem við á. Í því felst að einungis á að viðhalda stöðvun hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögum um opinber innkaup eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.
Það er meginregla útboðsréttar að bjóðendur bera ábyrgð á tilboðum sínum og að þeim sé skilað í samræmi við kröfur útboðsgagna, eftir atvikum eins og þeim hefur verið breytt eða þau nánar skýrð við meðferð útboðsins, sbr. t.d. úrskurð kærunefndar útboðsmála 20. september 2022 í máli nr. 15/2022.
Svo sem greinir hér að framan var gerð sú lágmarkskrafa í útboðinu að framboðinn hönnunarstjóri hefði að lágmarki fimm ára reynslu sem verkefnastjóri eða hönnunarstjóri í samgöngutengdum verkefnum á hönnunarstigi. Til staðfestingar á þessari kröfu áttu bjóðendur meðal annars að leggja fram ferilskrá framboðins hönnunarstjóra. Kærunefnd útboðsmála hefur kynnt sér ferilskrá framboðins hönnunarstjóra kæranda og verður á þessu stigi málsins að fallast á með varnaraðila að ferilskráin hafi ekki verið fullnægjandi til að staðfesta að umræddur starfsmaður hefði áskilda reynslu. Þá verður að telja að varnaraðila hafi ekki verið rétt að óska eftir frekari upplýsingum þessu tengdu eftir 4. mgr. 77. gr. reglugerðar nr. 340/2017 við meðferð útboðsins, en ekkert í tilboðsgögnum kæranda gaf til kynna að þau innihéldu villu eða væru ófullkomin úr hendi bjóðanda. Loks verður að telja að upplýsingar í uppfærðri ferilskrá umrædds aðila, sem kærandi lagði fram við meðferð þessa máls, geti ekki haggað gildi ákvörðunar varnaraðila.
Samkvæmt framangreindu og að virtum fyrirliggjandi gögnum og málatilbúnaði aðila að öðru leyti þykir mega miða við, eins og málið liggur fyrir nú, að ekki hafi verið leiddar verulegar líkur að broti gegn lögum um opinber innkaup nr. 120/2016 eða reglum settum samkvæmt þeim sem geti leitt til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila í hinu kærða útboði. Samkvæmt þessu verður að fallast á kröfu varnaraðila um að aflétta stöðvun samningsgerðar í útboðinu, sbr. 2. mgr. 107. gr., sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.
Ákvörðunarorð:
Aflétt er stöðvun samningsgerðar í útboði varnaraðila, Betri samgagna ohf., nr. BSRG-2026-10 auðkennt „Borgarlínan. Hönnun – BL180 Kársnes“.
Reykjavík, 9. júní 2026.
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir