09 júlí 2026
/
Mál nr. 65/2025. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 4. júní 2026
í máli nr. 65/2025:
UHA Umhverfisþjónusta ehf.
gegn
Fjarðabyggð og
Kubbi ehf.
Lykilorð
Bindandi samningur. Krafa um óvirkni samnings. Áliti á skaðabótaskyldu hafnað. Málskostnaður í ríkisjóð.
Útdráttur
U kærði útboð um sorphirðu í sveitarfélaginu F. Í niðurstöðu kærunefndar var fjallað um kröfur U sem voru sagðar óskýrar og sundurlausar. Kröfu U um óvirkni var hafnað en samningsgerð milli F og K fór fram eftir að kærunefnd útboðsmála aflétti stöðvun samningsgerðar. Bindandi samningur hafði þegar verið gerður um þau innkaup sem kærð voru. Kröfu U um að tilboð K yrði metið ógilt var því hafnað. Kæra í málinu laut að tilteknum öðrum samningi án þess þó að kröfur væru gerðar hvað hann varðaði. U kærði jafnframt ákvörðun kærunefndar um afléttingu sjálfvirkrar stöðvunar samningsgerðar vegna sama útboðs, án þess þó að vikið væri að efnisatriðum sem gætu réttlætt slíkt. Tekið var fram að það leiddi af eðli máls að ákvarðanir kærunefndar útboðsmála yrðu ekki kærðar til hennar sjálfrar. Kröfu U um þetta var því hafnað. Krafa U um álit á skaðabótaskyldu var höfð uppi vegna ætlaðs brots á 107. gr. laga nr. 120/2016. Þar sem ekkert slíkt brot hafði átt sér stað var þeirri kröfu hafnað. U var úrskurðaður til greiðslu málskostnaðar sem rynni í ríkissjóð þar sem kæra í málinu var talin bersýnilega tilefnislaus og tilgangur hennar óskiljanlegur, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 22. desember 2025 kærði UHA Umhverfisþjónusta ehf. (hér eftir „kærandi“) ákvörðun Fjarðabyggðar (hér eftir „varnaraðili“) um að velja tilboð Kubbs ehf. í útboði auðkenndu „Úrgangsþjónusta í Fjarðabyggð 2025-2029“.
Kröfugerð og annar málatilbúnaður kæranda er óskýr og sundurlaus. Í kærunni gerir kærandi meðal annars kröfu um að samningagerð verði stöðvuð en til vara að „samningagerð“ verði lýst óvirk. Þá krefst hann þess að tilboð Kubbs ehf. verði „metið ógilt.“ Þá er útboðið sagt kært vegna „samnings sem er í gildi vegna hluta útboðsins sem boðinn var út árið 2020 þar sem UHA Umhverfisþjónusta ehf. áður GH Lausnir fengu eitt af verkefnum þess útboðs sem var framlengt til ársins 2028 með viðauka sem var innan þess samnings.“ Auk þess er kærð ákvörðun kærunefndar útboðsmála frá 17. desember síðastliðnum um að fallast ekki á kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar. Loks er þess krafist að kærunefndin „fjalli sérstaklega og endurskoði fyrri ákvörðun sína um að Fjarðabyggð sé heimilt að semja við Kubb.“ Þá segir í kafla undir fyrirsögninni „Kröfur“ að þess sé krafist „aðallega“ að samningur milli kaupanda og Kubbs ehf. verði úrskurðaður óvirkur sé hann kominn á en ella sé gerð krafa um stöðvun samningsgerðar. Þá sé þess krafist „í öðru lagi“ að kærunefndin láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu vegna brota á 107. gr. laganna um bann við samningsgerð. Því til viðbótar sé „í þriðja, fjórða og fimmta, sjötta og sjöunda lagi“ þess krafist að kröfur í fyrri umfjöllun sem lýst sé að framan í kærunni verði teknar til úrskurðar. Loks sé gerð krafa um greiðslu kostnaðar við að hafa uppi kæruna.
Kærandi lagði fram frekari athugasemdir til kærunefndar útboðsmála 30. desember 2025. Kærunefnd útboðsmála sendi þær til varnaraðila og Kubbs ehf. 6. janúar 2026 og veitti aðilum frest til þess að tjá sig um þær, teldu þeir þörf á.
Varnaraðila og Kubbi ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir. Í greinargerð varnaraðila 8. janúar 2026 er þess krafist að öllum kröfum kæranda verði vísað frá kærunefnd útboðsmála eða til vara að kröfunum verði hafnað.
Kubbur ehf. krefst þess í greinargerð sinni 8. janúar 2026 að kröfum kæranda verði hafnað og að kæranda verði gert að greiða málskostnað í ríkissjóð.
Með ákvörðun 28. janúar 2026 hafnaði kærunefnd útboðsmála kröfu kæranda um að samningsgerð yrði stöðvuð um stundarsakir þar sem kominn væri á bindandi samningur milli varnaraðila og Kubbs ehf.
Kubbur ehf. upplýsti kærunefnd útboðsmála 30. janúar 2026 að félagið hygðist ekki leggja fram frekari athugasemdir í málinu. Hið sama gerði varnaraðili 12. febrúar 2026.
Kærandi lagði fram lokaathugasemdir sínar í málinu 10. mars 2026.
Þess skal getið að kærandi hefur lagt fram tvær aðrar kærur vegna sama útboðs. Hinn 30. september 2025 lagði kærandi fram kæru, sbr. mál nr. 46/2025, og krafðist þess að varnaraðila yrði gert að leiðrétta opnunarskýrslu hins kærða útboðs og að kærunefndin kvæði á um að kæranda væri heimilt að leiðrétta innsend gögn með tilboði hans. Hinn 9. október 2025 lagði kærandi fram kæru, sbr. mál nr. 48/2025, og krafðist þess að ákvörðun varnaraðila um val á tilboði yrði ógilt. Úrskurðir í þessum málum eru kveðnir upp á sama tíma og úrskurður í máli þessu.
I
Hið kærða útboð var auglýst í ágúst 2025, en í grein 0.1.4 í útboðslýsingu kom fram að verkið fælist í söfnun úrgangs úr sorp- og endurvinnsluílátum við heimili, stofnanir og fyrirtæki í Fjarðabyggð, og við stofnanir í eigu sveitarfélagsins, bæði í þéttbýli og í dreifbýli, auk rekstri móttöku- og söfnunarstöðva sveitarfélagsins. Þá var tekið fram að verkið væri boðið út í tveimur verkhlutum. Í verkhluta 1 fælist söfnun og afsetning á blönduðum úrgangi, plasti, pappír og pappa, og matarleifum frá heimilum og stofnunum í eigu Fjarðabyggðar. Verkhlutinn næði einnig til söfnunar og afsetningar á blönduðum úrgangi og matarleifum frá öðrum stofnunum og fyrirtækjum í Fjarðabyggð sem væru með ílát frá sveitarfélaginu. Í verkhluta 2 fælist rekstur á söfnunar-, móttöku- og grenndarstöðvum sveitarfélagsins og flutningi og afsetningu þess úrgangs sem tekið væri við á stöðvum. Samkvæmt grein 0.1 var heimilt að bjóða í einn eða báða verkhluta, og væri tilboðsskrá stillt upp þannig að hægt væri að gera tilboð í verkhluta óháð öðrum en jafnframt væri hægt að gera tilboð í báða verkhluta háð því að báðir verkhlutar fengjust.
Síðasti dagur til að leggja fram tilboð var 19. september 2025, sbr. grein 0.4.5, og voru tilboð opnuð þann sama dag. Tilboð bárust frá fimm bjóðendum, þar á meðal frá kæranda. Samkvæmt tilkynningu um opnun tilboða nam tilboð kæranda í verkhluta 1 alls 542.712.677 krónum og í verkhluta 2 nam tilboð kæranda 902.598.320 krónum, en bæði tilboðin voru óháð því að tilboði yrði tekið í annan verkhlutann. Tilboð kæranda í heildarverkið, þ.e. háð því að tilboði félagsins í báða verkhluta yrði tekið, nam alls 1.258.861.717 krónum. Þá barst tilboð frá Umhverfisþjónustu Austurlands ehf., sem var hið sama að fjárhæð í báða verkhluta og í heildarverk og tilboð kæranda. Þá barst tilboð frá Kubbi ehf. sem nam alls 1.197.677.757 krónum samanlagt í heildarverkið. Bjóðendum var tilkynnt um fram komin tilboð og fjárhæð þeirra í verkhlutana með tölvupósti frá umsjónaraðila hins kærða útboðs með tölvupósti 19. september 2025.
Þann sama dag sendi kærandi umsjónarmanni hins kærða útboðs tölvupóst og benti á að tilboð hans væri rangt skráð í opnunarskýrslu útboðsins og væri ekki í samræmi við tilboðsblað, sem hefði fylgt með tilboði kæranda. Var þess óskað að tilboðsskrá kæranda yrði leiðrétt og raunveruleg tilboðsverð hans yrðu færð í tilboðsskrá.
Þann 30. september 2025 lagði kærandi fram kæru til kærunefndar útboðsmála, sbr. mál nr. 46/2025, og krafðist þess m.a. að lagt yrði fyrir varnaraðila að leiðrétta opnunarskýrsluna. Þann sama dag var bjóðendum tilkynnt um þá ákvörðun varnaraðila að tilboð Kubbs ehf. hefði verið valið í hinu kærða útboði. Kærunefnd útboðsmála hafnaði kröfu kæranda um stöðvun innkaupaferlis með ákvörðun 17. desember 2025. Kærandi lagði fram aðra kæru í málinu til kærunefndar útboðsmála 9. október 2025, vegna ákvörðunar varnaraðila að velja tilboð Kubbs ehf., sbr. mál nr. 48/2025. Með ákvörðun nefndarinnar 17. desember 2025 var aflétt sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sem hefði komist á með kæru málsins.
Hinn 30. desember 2026 var undirritaður bindandi samningur milli varnaraðila og Kubbs ehf.
II
Í kæru þessa máls byggir kærandi á því að ákvörðun um að velja tilboð Kubbs ehf. sé ólögmæt þar sem hún hafi verið tekin áður en frestur til þess hafi verið liðinn. Þá hafi ákvörðunin verið byggð á ólögmætri opnun tilboða þar sem tilboð kæranda hafi verið lægst. Að auki hafi ekki farið fram nýtt stöðumat á hæfni Kubbs ehf. eftir að húsleit hafi verið gerð hjá félaginu og forsvarsmenn þess handteknir. Kærandi bendir einnig á að fyrrum starfsmaður varnaraðila sé nú yfirmaður hjá Kubbi ehf. og sá hafi nýtt sér upplýsingar sem hann hafi aflað sér í starfi sínu hjá varnaraðila, m.a. til að koma í veg fyrir samkeppni. Hann hafi m.a. tekið ófrjálsri hendi hugmynd og þróun hugbúnaðar sem hann hafi fengið styrk til að nota í sveitarfélaginu og hafi í aðdraganda útboðsins unnið með ólögmætum hætti með varnaraðila. Enn fremur byggir kærandi á því að í gildi sé samningur vegna hluta þess útboðs sem hafi farið fram árið 2020, en það verkefni hafi verið framlengt til ársins 2028. Óski kærandi þess að kærunefnd útboðsmála úrskurði um beiðni kæranda til stöðvunar samningsgerðar með vísan til þessa og hvort varnaraðila hafi verið heimilt að halda áfram með hið kærða útboð sökum þessa. Kærandi kveður jafnframt að kæran sé lögð fram innan kærufrests, en nýr kærufrestur hafi hafist 19. desember 2025 þegar kærandi hafi fengið upplýsingar um að kærunefnd útboðsmála hafi ekki fallist á kröfu um stöðvun innkaupaferlis í fyrra máli. Loks krefst kærandi óvirkni samnings, hafi hann verið gerður, með vísan til 111. og 115. gr., sbr. b. lið 2. mgr. 115. gr., laga nr. 120/2016.
Í lokaathugasemdum sínum kveður kærandi að það veki athygli að Kubbur ehf. hafi aðeins lagt fram skannaðan verksamning, dagsettan 30. desember 2025, með greinargerð sinni. Óskar kærandi þess að frumrit samningsins verði lagt fram auk allra fylgiskjala með samningnum. Þá ítrekar kærandi að Kubbur ehf. sé til rannsóknar vegna samkeppnislagabrota og óskar eftir því að kærunefnd útboðsmála kalli eftir upplýsingum um hvort leitað hafi verið svara frá rannsóknaraðilum í hverju rannsóknin felist og hvort það geti haft áhrif á hvort gera eigi samning við viðkomandi aðila eða gera fyrirvara í samningagerð. Kærandi ítrekar jafnframt að þegar tilboð voru birt þá hafi aðaltilboð kæranda ekki verið rétt lesið upp eða birt, og varnaraðili hafi ekki fallist á að leiðrétta það.
III
Varnaraðili kveður að kæra málsins sé mjög óskýr en kröfurnar virðist að nokkru leyti vera röksemdir við sömu kröfuþætti og þegar séu til umfjöllunar vegna annarrar kæru kæranda fyrir kærunefnd útboðsmála, eða endurtekningar á sömu kröfugerð. Engin ný atvik hafi komið fram í málinu frá því að kærur kæranda hafi verið lagðar fram, nema að undirritaður hafi verið samningur. Aðrar kröfur eða málsástæður kæranda snerti ekki ákvarðanir sem teknar hafi verið á grundvelli laga nr. 120/2016 og varða að auki atriði þar sem kærufrestur sé liðinn. Þá varða sumar kröfur eða málsástæður atriði sem kærunefnd útboðsmála hafi þegar tekið ákvörðun um eða hafi til umfjöllunar í öðrum málum. Varnaraðili andmælir því að fyrrum starfsmanni sveitarfélagsins hafi verið afhent nokkur gögn vegna hugbúnaðarverkefnis, og jafnvel þótt svo hefði verið þá yrði ekki séð hvernig ójafnræði hafi skapast vegna útboðs í málaflokknum. Sjónarmið kæranda um kærufrest standist enga skoðun, enda verði ákvarðanir kærunefndar útboðsmála um að aflétta stöðvun samningsgerðar ekki skoðaðar sem ný atvik sem heimili aðra kæru um stöðvun samningsgerðar. Að auki geti upplýsingar um atvik, sem ekki tengist útboðsferlinu, leitt til nýs kærufrests.
Kubbur ehf. vísar til þess að kominn sé á bindandi samningur milli félagsins og varnaraðila, sem undirritaður hafi verið 30. desember 2025, sem ekki verði felldur úr gildi, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016. Því beri að hafna kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar og hafna öðrum kröfum kæranda með endanlegum úrskurði. Þá vísar Kubbur ehf. til þess að skilyrði óvirkni samnings samkvæmt 115. gr. laga nr. 120/2016 séu ekki uppfyllt, enda hafi verið búið að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar þegar gengið hafi verið til samninga. Kubbur ehf. andmælir málatilbúnaði kæranda, sem sé rangur og órökstuddur. Engu hafi verið slegið föstu um meint samkeppnislagabrot og rannsókn sé enn í gangi. Engin heimild sé fyrir því að útiloka félagið frá þátttöku í innkaupaferli á grundvelli yfirstandandi rannsóknar.
IV
Með ákvörðun í máli þessu 28. janúar 2026 hafnaði kærunefnd útboðsmála kröfu kæranda um að stöðva hið kærða innkaupaferli á grundvelli þess að kominn sé á bindandi samningur milli varnaraðila og Kubbs ehf. í kjölfar innkaupaferlisins.
Líkt og áður greinir eru kröfur kæranda og annar málatilbúnaður óskýr og sundurlaus. Af honum má þó ráða að kærandi krefst þess aðallega að samningur milli varnaraðila og Kubbs ehf., sem komst á í kjölfar hins kærða innkaupaferlis, verði lýstur óvirkur, sbr. 115. gr. laga nr. 120/2016 sé hann kominn á en ella verði samningsgerð stöðvuð. Í 1. mgr. 115. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að kærunefnd útboðsmála getur lýst samning óvirkan sem er yfir viðmiðunarfjárhæðum vegna útboðsskyldu á Evrópska efnahagssvæðinu samkvæmt 4. mgr. 23. gr. Samkvæmt b. lið 2. mgr. 115. gr. getur komið til álita að lýsa yfir óvirkni samnings hafi samningur verið gerður á biðtíma samningsgerðar skv. 86. gr. eða meðan á stöðvun samningsgerðar skv. 107. gr. stendur að öðrum nánar tilteknum skilyrðum fullnægðum. Skilja verður málatilbúnað kæranda svo að hann byggi á því að samningur varnaraðila og Kubbs ehf. hafi verið gerður á meðan stöðvun samningsgerðar stóð á grundvelli kæru hans í máli nr. 48/2025. Þess er þó að gæta að ákvörðun um val tilboðs felur ekki í sér gerð samnings. Fyrir liggur að samningsgerð átti sér ekki stað fyrr en við undirritun verksamnings 30. desember síðastliðinn en á þeim tíma var ekki í gildi stöðvun samningsgerðar. Henni var aflétt 17. desember með ákvörðun kærunefndarinnar og var varnaraðila frjálst að gera samning í kjölfar þess. Engar forsendur eru því fyrir yfirlýsingu um óvirkni þess samnings. Um kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar hefur þegar verið fjallað og henni hafnað með ákvörðun frá 28. janúar síðast liðnum.
Samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 verður bindandi samningur samkvæmt lögum þessum ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Þegar af þeirri ástæðu er hafnað kröfu kæranda um að tilboð Kubbs ehf. „verði metið ógilt.“
Hvað varðar málatilbúnað kæranda vegna samnings sem kærandi segir „í gildi vegna hluta útboðsins sem boðinn var út árið 2020“ er þess að gæta að engar sérstakar kröfur eru gerðar vegna hans. Eru því engar forsendur fyrir umfjöllun kærunefndar um þennan þátt máls, sbr. 2. mgr. 103. gr. laga nr. 120/2016. Þá leiðir af eðli máls að ákvarðanir kærunefndar verða ekki kærðar til hennar sjálfrar.
Krafa kæranda um álit á skaðabótaskyldu er höfð uppi „vegna brota á 107. gr.“ laga nr. 120/2016. Líkt og að framan greinir fór samningsgerð varnaraðila við Kubb ehf. fram eftir að stöðvun samningsgerðar var aflétt. Af þeim sökum var um ekkert brot á 107. gr. að ræða. Kröfu kæranda um álit á skaðabótaskyldu er hafnað þegar af þessari ástæðu.
Kæra í máli þessu er bersýnilega tilefnislaus og tilgangur hennar er óskiljanlegur. Kærandi hefur áður beint tveimur kærum til kærunefndar útboðsmála vegna sama útboðs og hefur kröfum hans í þeim báðum verið hafnað. Með vísan til þessa er óhjákvæmilegt að úrskurða kæranda til að greiða málskostnað í ríkissjóð, sbr. 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016, líkt og nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurðarorð
Öllum kröfum kæranda, UHA Umhverfisþjónustu ehf., í máli þessu er hafnað.
Kærandi, UHA Umhverfisþjónusta ehf., greiði 150.000 krónur í málskostnað sem rennur í ríkissjóð.
Reykjavík, 4. júní 2026
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir