30 júlí 2026
/
Mál nr. 56/2026 Úrskurður 30. júlí 2026
Mál nr. 56/2026 Eiginnafn: Jean (kk.)
Hinn 30. júlí 2026 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 56/2026 en erindið barst nefndinni 2. júlí 2026.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Jean (kk.) er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem samstafan ea kemur ekki fyrir í ósamsettum orðum í íslensku. Fyrri umsóknum um nafnið hefur verið hafnað sbr. úrskurð mannanafnanefndar í máli nr. 58/2010 sem kveðinn var upp 13. júlí 2010 og máli nr. 38/2012 sem kveðinn var upp 21. júní 2012. Aðeins er því unnt að samþykkja nafnið að hefð sé fyrir þessum rithætti þess.
Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin endurnýjaði síðast á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:
- Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.
- Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
- Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
- Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.
Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera þrettán einstaklingar, sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra, nafnið Jean. Sá elsti er fæddur árið 1961. Þá kemur nafnið fyrir í fimm manntölum frá 1703–1920. Telst því hefð fyrir rithætti nafnsins á grundvelli 1. gr. vinnulagsreglna og það samþykkt.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Jean (kk.) er samþykkt og skal það fært á mannanafnaskrá.