06 ágúst 2026
/
Úrskurður í máli nr. IRN26030072
Hinn 19. maí 2026 er í innviðaráðuneytinu kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli nr. IRN26030072:
Kæra, kröfur og kæruheimild
Með stjórnsýslukæru móttekinni af innviðaráðuneytinu (hér eftir ráðuneytið) 18. mars 2026 kærði A, (hér eftir kærandi), eigandi félagsins B ehf., kt. […], en félagið er eigandi og útgerðaraðili skipsins C (skipnr. […]), ákvörðun Fiskistofu um að hafna umsókn félagsins um byggðakvóta fyrir fiskiskipið C (skipnr. […]), dags. 17. mars 2026.
Af kæru verður ráðið að þess sé krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að lagt verði fyrir Fiskistofu að úthluta fiskiskipinu byggðakvóta sem úthlutað var til byggðarlagsins D í upphafi yfirstandandi fiskveiðiárs.
Kæruheimild er í 3. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026, sbr. reglugerð nr. 89/2026, um breytingu á reglugerð nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026.
Málsatvik og málsmeðferð
Samkvæmt gögnum málsins auglýsti Fiskistofa eftir umsóknum um byggðakvóta til fiskiskipa fyrir byggðarlagið D, fiskveiðiárið 2025/2026 skv. 5. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026, á vefsíðu Fiskistofu hinn 24. febrúar 2026. Kærandi sótti um byggðakvóta fyrir skipið C (skipnr. […]) hinn 10. mars 2026.
Samkvæmt gögnum málsins var fiskiskipið C skráð á D skv. skipaskrá Samgöngustofu og var skráð þar hinn 23. júní 2025. Heimili B ehf. er skráð […] á E og var það skráð á sama heimilisfangi hinn 1. júlí 2025 samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.
Um úthlutun byggðakvóta á D fer eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, reglugerð nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 sbr. reglugerð nr. 89/2026, um breytingu á reglugerð nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 og auglýsingu nr. 174/2026, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026. Með auglýsingunni voru sérreglur fyrir [sveitarfélagið F, hér eftir F] staðfestar skv. 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026. Sérreglurnar fela ekki í sér frávik frá skilyrðum 1. gr. reglugerðarinnar og gilda skilyrðin því um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á D.
Með ákvörðun dags. 17. mars 2026 hafnaði Fiskistofa umsókn kæranda um byggðakvóta fyrir fiskiskipið C (skipnr. […]), þar sem skipið uppfyllti ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 enda var skipið ekki í eigu eða leigu lögaðila með lögheimili á D.
Ákvörðun Fiskistofu var kærð til ráðuneytisins með tölvupósti kæranda sem móttekinn var af ráðuneytinu 18. mars 2026.
Ráðuneytið óskaði eftir upplýsingum frá Fiskistofu vegna málsins með tölvupósti 30. mars 2026 og var sú beiðni ítrekuð með tölvupóstum 5. og 11. maí 2026. Kærandi sendi ráðuneytinu tölvupóst 11. maí 2026 til þess að athuga með afgreiðslu á kærunni. Ráðuneytið tilkynnti kæranda með tölvupósti 11. maí 2026 að málið væri í vinnslu og beðið væri eftir upplýsingum frá Fiskistofu vegna málsins. Gögn bárust ráðuneytinu frá Fiskistofu 12. maí 2026.
Eftir að gögn bárust frá Fiskistofu sendi ráðuneytið kæranda tölvupóst dags. 12. maí 2026 og óskaði eftir afstöðu kæranda til þess hvort hann teldi að B ehf. hefði hinn 1. júlí 2025 stundað útgerð með öðru fiskiskipi sem skráð var í því byggðarlagi þar sem félagið hafði heimilisfang samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Ef svo væri, var óskað eftir gögnum því til stuðnings. Kærandi svaraði ráðuneytinu með tölvupósti dags. 13. maí 2026.
Sjónarmið kæranda
Kærandi byggir á því að D sé í sveitarfélaginu F og að hann hafi staðið í þeirri trú að nægilegt væri að skipið væri skráð þar og að ekki hafi þurft að flytja heimili B ehf. á D. Hann telur að leiðbeiningar Fiskistofu hafi verið ófullnægjandi þar sem ekki hafi verið leiðbeint um að einnig þyrfti að færa heimilisfang félagsins. Þá bendir hann á að engin löndunarhöfn sé á D og að hann hafi landað afla sínum á E. Bátar sem gera út frá D landa afla sínum einnig á E. Kærandi kveður synjunina hafa veruleg fjárhagsleg áhrif á rekstur félagsins og krefst þess að ákvörðun Fiskistofu verði felld úr gildi.
Gögn frá Fiskistofu
Fiskistofa sendi ráðuneytinu gögn með tölvupósti 12. maí 2026. Gögnin innihéldu samskipti við kæranda þar sem hann tilkynnti um kæru dags. 18. mars 2026, ákvörðun Fiskistofu um úthlutun byggðakvóta á D dags. 17. mars 2026, auglýsingu um umsóknir um byggðakvóta fyrir D dags. 24. febrúar 2026, gögn frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra um heimili 1. júlí 2025, umsókn fiskiskipsins C (skipnr. […]) og umsögn Fiskistofu dags. 12. maí 2026.
Í umsögn Fiskistofu kemur fram að kærandi hafi sótt um byggðakvóta fyrir fiskiskipið C (skipnr. […]) innan auglýsts umsóknarfrests. Fiskistofa hafi hafnað umsókn kæranda dags. 17. mars 2026 þar sem skipið uppfyllti ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026, þar sem skipið var ekki í eigu eða leigu lögaðila með heimilisfang á D.
Í 1. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 kemur fram að skilyrði til úthlutunar byggðakvóta til fiskiskips sé að fiskiskip skuli vera í eigu lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2025 og miðað sé við heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattsstjóra. Kærandi uppfyllir ekki það skilyrði þar sem B ehf. hafi verið með heimili á […] á E hinn 1. júlí 2025 og Fiskistofa hafi hafnað umsókninni af þeirri ástæðu.
Þá kemur fram að ekkert annað skip sé skráð í eigu eða leigu sama lögaðila samkvæmt gögnum Fiskistofu þannig að undanþága 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar eigi ekki við um aðstæður kæranda.
Í umsögn Fiskistofu kemur fram að reglur um byggðakvóta taki breytingum á hverju fiskveiðiári og að almennar leiðbeiningar um úthlutun byggðakvóta séu aðgengilegar á sérstakri vefsíðu Fiskistofu, þar sem einnig sé að finna leiðbeiningar og gátlista. Fiskistofa telur að ekki hafi verið tilefni til að veita frekari almennar leiðbeiningar um áhrif breytinga á heimahöfn skips eða heimilisfang félagsins, enda ráðist úthlutun af gildandi reglugerð og sérreglum hvers byggðarlags.
Niðurstaða
Til úrlausnar er kærð ákvörðun Fiskistofu dags. 17. mars 2026 um höfnun á umsókn kæranda vegna byggðakvóta fyrir byggðarlagið D á fiskveiðiárinu 2025/2026.
Um úthlutun byggðakvóta fer eftir 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og reglugerð nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 sem sett hefur verið á grundvelli 5. mgr. 10. gr. laganna. Auk þess hefur F sett sérreglur um úthlutun aflamarks fyrir byggðarlögin E, G og D sbr. 2. og 3. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026. Sérreglurnar voru staðfestar af ráðherra og birtar með auglýsingu nr. 174/2026, um staðfestingu reglna sveitarfélaga um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 hinn 23. febrúar 2026. Sérreglur F fela ekki í sér breytingar á skilyrðum 1. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 í sérreglum fyrir F og skilyrði 1. gr. reglugerðarinnar eiga því við um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á D.
Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026 skal úthluta aflamarki til þeirra fiskiskipa sem uppfylla eftirfarandi skilyrði; a. hafi leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, við lok umsóknarfrests, b. eru skráð í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2025, og c. eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í viðkomandi byggðarlagi 1. júlí 2025. Miðað skal við lögheimili einstaklinga samkvæmt þjóðskrá og heimilisfang lögaðila samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra. Á grundvelli fyrirliggjandi skráningarupplýsinga telur ráðuneytið málið nægjanlega upplýst að þessu leyti.
Fiskiskipið C hafði leyfi til veiða í atvinnuskyni við lok umsóknarfrests og skipið var skráð á D 1. júlí 2025. Kærandi uppfyllti því bæði skilyrði a- og b- lið 1. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 1334/2025, um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu 2025/2026. Hins vegar liggur fyrir að B ehf. var skráð með heimili á […] á E hinn 1. júlí 2025 samkvæmt skráningu í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra og uppfyllir því ekki skilyrði c-liðar 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar.
Þótt kærandi hafi vísað til skorts á leiðbeiningum Fiskistofu breytir það ekki því að skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta voru ekki uppfyllt. Sú málsástæða getur því ekki haggað hinni kærðu ákvörðun. Skortur á leiðbeiningum getur því ekki haft áhrif á lagaskilyrðið sjálft, enda miðar reglugerðin ótvírætt við heimilisfang lögaðila 1. júlí 2025 og skráningu samkvæmt fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.
Í 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar kemur fram að heimilt sé að úthluta aflamarki byggðarlaga til fiskiskipa, sem uppfylla skilyrði a- og b-liðar og eru í eigu eða leigu einstaklinga eða lögaðila með heimilisfang í öðru byggðarlagi en umsókn um byggðakvóta beinist að, ef þeir stunda einnig útgerð með skip sem skráð eru í því byggðarlagi sem þeir hafa heimilisfang í. Undanþágan samkvæmt 2. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar á því ekki við um aðstæður kæranda.
Samkvæmt þessu er því óhjákvæmilegt að staðfesta niðurstöðu Fiskistofu um að lagaskilyrði skorti til úthlutunar á byggðakvóta á D til fiskiskipsins C (skipnr. […]). Verður hin kærða ákvörðun Fiskistofu því staðfest svo sem nánar greinir í úrskurðarorði.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Fiskistofu frá 17. mars 2026, um að hafna úthlutun byggðakvóta til fiskiskipsins C (skipnr. […]) fyrir byggðarlagið D, er staðfest.