28 ágúst 2026
/
Mál nr. 37/2026. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 9. júlí 2026
í máli nr. 37/2026:
Heilsuvernd Hjúkrunarheimili ehf.
gegn
Fjársýslu ríkisins,
Sjúkratryggingum Íslands og
Vigdísarholti ehf.
Lykilorð
Stöðvunarkröfu hafnað.
Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála hafnaði kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar þar sem skilyrði 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup voru ekki talin uppfyllt.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 16. júní 2026 kærði Heilsuvernd Hjúkrunarheimili ehf. (hér eftir „kærandi“) útboð Fjársýslu ríkisins fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands (hér eftir „varnaraðilar“) nr. 23313 „Rekstraraðili nýs hjúkrunarheimilis að Þursaholti á Akureyri“.
Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila um að taka tilboð hans ekki til efnislegs mats og leggi fyrir varnaraðila að taka tilboðið til meðferðar og leggja á það efnislegt mat auk þess að varnaraðilum verði gert að greiða honum málskostnað. Loks krefst kærandi þess að samningsgerð verði stöðvuð þar til endanlega hefur verið leyst úr kæru.
Varnaraðilum og Vigdísarholti ehf. var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Varnaraðili Fjársýsla ríkisins lagði fram greinargerð 2. júlí 2026 og krafðist þess að öllum kröfum kæranda yrði hafnað með endanlegum úrskurði. Varnaraðili Sjúkratryggingar Íslands sendi tölvupóst til nefndarinnar sama dag og tók fram að ekki yrði lögð fram sérstök greinargerð. Tekið væri undir kröfugerð og málsástæður varnaraðila Fjársýslu ríkisins. Engar athugasemdir bárust frá Vigdísarholti ehf.
Með erindi 6. júlí 2026 óskaði kærunefnd útboðsmála eftir að varnaraðilar afhentu nefndinni gögn/upplýsingar sem sýndu viðmótið sem hefði birst bjóðendum í rafræna útboðskerfinu í tengslum við lið 2.3.8 í útboðslýsingu. Varnaraðilar svöruðu erindinu sama dag og afhentu nefndinni skjáskot úr útboðskerfinu.
Tilboð í útboðinu voru opnuð 4. júní 2026 og kom fram í opnunarskýrslu að tilboð hefði borist frá Vigdísarholti ehf.
Efnislegur ágreiningur þessa máls lýtur að því hvort varnaraðilum hafi borið að líta svo á að tilboð hafi einnig borist frá kæranda í hinu kærða útboði. Í greinargerð varnaraðila Fjársýslu ríkisins er rakið að eina tilboðinu sem hafi borist í útboðinu hafi verið hafnað á grundvelli 82. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup og standi því ekki til að gera samning á grundvelli útboðsins.
Niðurstaða
Samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup er kærunefnd útboðsmála, að kröfu kæranda, heimilt að stöðva innkaupaferli eða samningsgerð um stundarsakir þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, enda hafi verulegar líkur verið leiddar að broti gegn lögunum eða reglum settum samkvæmt þeim við tiltekin innkaup sem leitt getur til ógildingar ákvörðunar eða annarra athafna varnaraðila.
Í grein 1.2.1, sem var að finna í 1. kafla útboðsskilmála, kom fram að bjóðandi fengi sendan staðfestingarpóst þegar hann hefði skilað tilboði. Þá var tekið fram að bjóðandi bæri ábyrgð á að tilboð bærust innan tilboðsfrests. Sérstök hvatning var auk þess í skilmálunum til bjóðenda að hefja tímanlega vinnu við að skila inn tilboðum. Ekki yrði tekið við tilboðum sem bærust eftir tilgreindan opnunarfrest.
Kærandi hefur ekki dregið lögmæti þessara útboðsskilmála í efa innan frests samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laga nr. 120/2016. Reyndar er 1. kafla útboðsskilmála ekki getið í kæru og var þessi kafli útboðsskilmála ekki meðal kærugagna.
Að vissu marki má fallast á með kæranda að viðmótið sem stuðst var við í lið 2.3.8, í samhengi við þær upplýsingar sem þar var óskað eftir, hafi verið óskýrt. Á hinn bóginn fékk kærandi ekki staðfestingarpóst um skil tilboðsins innan tilboðsfrests. Þá virðist hann ekki hafa beint fyrirspurn til varnaraðila vegna viðmótsins fyrr en að loknum þeim fresti. Á þessu stigi máls má því miða við að kærandi sjálfur beri ábyrgð á að tilboði hans var ekki skilað innan tilsetts frests. Önnur niðurstaða væri til þess fallin að raska jafnræði á meðal bjóðenda og því andstæð 15. gr. laga nr. 120/2016. Hlutskipti bjóðenda var enda jafnt að því leyti að allir þurftu að mæta kröfum viðmótsins og tryggja sér staðfestingarpóst um skil tilboðs eins og útboðsgögn miðuðu við. Stöðvunarkröfu kæranda er því hafnað.
Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar aðilar hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.
Ákvörðunarorð:
Hafnað er kröfu kæranda, Heilsuvernd Hjúkrunarheimili ehf., um að samningsgerð verði stöðvuð um stundarsakir vegna útboðs varnaraðila, Fjársýslu ríkisins fyrir hönd Sjúkratrygginga Íslands, nr. 23313 „Rekstraraðili nýs hjúkrunarheimilis að Þursaholti á Akureyri“.
Reykjavík, 9. júlí 2026.
Reimar Pétursson
Kristín Haraldsdóttir
Auður Finnbogadóttir