21 nóvember 2025

/

1318/2025. Úrskurður frá 21. nóvember 2025

Hinn 21. nóvember 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1318/2025 í máli ÚNU 25100020.
 

Kæra, málsatvik og málsmeðferð

Með erindi, dags. 22. október 2025, kærði […], fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu, ákvörð­un Þingeyjarsveitar að synja beiðni hennar, dags. 29. september 2025, um aðgang að öllum upplýsingum sem sneru að uppsögn sveitarstjóra sveitarfélagsins. Beiðni hennar var synjað með erindi, dags. 14. októ­ber 2025, með vísan til 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.
 
Kæran var kynnt Þingeyjarsveit með erindi, dags. 23. október 2025, og sveitarfélaginu gefinn kost­ur á að koma á fram­færi umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að Þingeyjarsveit afhenti úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kær­an varðar.
 
Umsögn Þingeyjarsveitar barst úrskurðarnefndinni 5. nóvember 2025. Í umsögn­inni kemur fram að ákvörðun um uppsögn sveitarstjóra hafi verið tekin á lokuðum fundi sveitarstjórnar. Sveitar­fél­ag­ið vísaði til 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, þar sem fram kemur að réttur almennings til aðgangs að upplýsingum nái ekki til gagna um málefni starfsmanna eða starfssambandið að öðru leyti. Þá kom fram í umsögninni að gögn­in væru ekki þess eðlis að 3. mgr. 7. gr. upplýs­inga­laga ætti við en þar er fjallað um rétt al­menn­ings til aðgangs að upplýsingum um viðurlög sem æðstu stjórnendur hafa sætt í starfi.
 
Umsögn Þingeyjarsveitar var kynnt kæranda með erindi, dags. 6. nóvember, og honum gefinn kost­ur á að koma á fram­færi frekari at­huga­semd­um. Kærandi upplýsti nefndina daginn eftir að ekki væru gerðar frekari athugasemdir.
 

Niðurstaða

Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að gögnum sem snúa að uppsögn sveitarstjóra Þingeyjarsveitar. Ákvörðun sveitar­félags­ins er byggð á því að gögnin falli undir 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og verði ekki afhent. Ákvæðið hljóðar svo:
 

Réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna sem starfa hjá aðilum sem lög þessi taka til skv. 2. gr. tekur ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti.

 
Í athugasemdum við 7. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur fram að með gögnum í málum sem varða starfssambandið sé átt við gögn í mál­um þar sem teknar eru ákvarðanir um réttindi og skyldur starfsmanna, til dæmis mál þar starfs­maður hefur þurft að sæta frá­drætti frá launum, ákvarðanir stjórnenda um sveigjanlegan vinnutíma og um auka­störf, og enn frem­ur mál er lúta að aðfinnslum og áminningu eða eftir atvikum starfs­lokum.
 
Þá telur sveitarfélagið enn fremur að gögnin séu ekki þess eðlis að 3. mgr. 7. gr. upplýsingalaga eigi við um þau. Í 3. mgr. er mælt fyrir um að heimilt sé að veita upplýsingar um viðurlög í starfi sem æðstu stjórnendur hafa sætt, þar á meðal vegna áminninga og brottvísana, enda séu ekki liðin meira en fjögur ár frá þeirri ákvörðun sem um ræðir. Í athugasemdum með frumvarpinu sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, segir að ekki þyki rétt að undanskilja alfarið aðgang almenn­ings að slíkum upplýsingum, enda hvíli á stjórnendum opinberra stofnana ríkari skyldur en almennt gild­ir um aðra starfsmenn slíkra stofnana. Vega þurfi og meta í hverju tilfelli hvort vegi þyngra hags­munir almennings af vitneskju um slík viðurlög eða hagsmunir viðkomandi starfs­manna af því að trúnaður ríki um slíkt.
 
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir gögnin sem Þingeyjarsveit afmarkaði beiðni kæranda við. Þau eru annars vegar bókun af fundi sveitarstjórnar, dags. 25. september 2025, þar sem ákvörðun um upp­sögn var tekin, og hins vegar ráðningarsamningur Þingeyjarsveitar og sveitarstjórans sem gerð­ur var árið 2023.
 
Ljóst er að gögn í málum einstakra starfsmanna sem varða upp­sögn úr starfi teljast varða starfssam­bandið í skilningi 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. upp­lýs­inga­laga. Nefndin telur að bókun af fundi sveit­ar­stjórnar þar sem ákvörðun var tekin um uppsögn sveitarstjóra Þingeyjarsveitar sé gagn í slíku máli og að þannig hafi verið heimilt að takmarka aðgang kæranda að því. Sveitarstjóri í sveitar­fél­agi telst til æðstu stjórnenda í skilningi 3. mgr. 7. gr. upplýsingalaga. Hins vegar telur úrskurðarnefnd­in að framangreint gagn hafi ekki að geyma upplýsingar af því tagi sem 3. mgr. tekur til.
 
Að því er varðar ráðningar­samning Þingeyjarsveitar og sveitarstjórans telur nefndin að hann teljist einnig gagn í máli sem varðar starfssambandið í skilningi framangreinds ákvæðis, sbr. til hliðsjónar úrskurð nefndarinnar nr. 1311/2025. Úrskurðarnefndin bendir á að kæranda er unnt að biðja Þing­eyjar­sveit sérstaklega um upplýsingar sem getið er um í 2., 4. og 5. tölul. 2. mgr. 7. gr. upplýs­inga­laga. Að öllu framangreindu virtu verður ákvörðun Þingeyjarsveitar staðfest.
 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Þingeyjarsveitar, dags. 14. október 2025, um að synja beiðni kæranda, […], fréttamanni hjá Ríkisútvarpinu, um aðgang að gögnum um uppsögn sveitarstjóra, er staðfest.
 
 
 
 
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir