25 september 2025
/
1300/2025. Úrskurður frá 25. september 2025
Hinn 25. september 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1300/2025 í máli ÚNU 25060015.
Kæra, málsatvik og málsmeðferð
Hinn 23. júní 2025 barst úrskurðarnefnd um upplýsingamál kæra frá Vinnuverndarnámskeiðum ehf. þess efnis að Vinnueftirlitið hefði ekki afgreitt beiðni kæranda um aðgang að gögnum innan 30 virkra daga, sbr. 3. mgr. 17. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.
Með erindi, dags. 9. maí 2025, óskaði kærandi eftir upplýsingum um tölfræði fyrir vinnuslys í málm- og járniðnaði árin 2015 til 2024.
Kæran var kynnt Vinnueftirlitinu með erindi, dags. 24. júní 2025. Hinn 11. júlí 2025 gerði Vinnueftirlitið úrskurðarnefndinni viðvart um að beiðni kæranda hefði verið afgreidd sama dag. Með þeirri afgreiðslu hefði beiðni kæranda verið hafnað þar sem gagn með umbeðnum upplýsingum lægi ekki fyrir hjá stofnunni og það kallaði á umfangsmikla úrvinnslu að verða við beiðninni, sem stofnuninni væri óskylt að ráðast í.
Kærandi tjáði úrskurðarnefndinni með erindi, dags. 21. júlí 2025, að hann óskaði þess að nefndin úrskurðaði í málinu.
Niðurstaða
Mál þetta varðar beiðni um aðgang að gögnum í fórum Vinnueftirlitsins um fjölda slysa í málm- og járniðnaði frá 2015 til 2024. Vinnueftirlitið kveður að ekki liggi fyrir gagn með þeim upplýsingum sem beiðnin varðar og það myndi útheimta umfangsmikla vinnu að útbúa gagnið.
Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, er mælt fyrir um að upplýsingaréttur almennings nái til fyrirliggjandi gagna sem varða tiltekið mál og tiltekinna fyrirliggjandi gagna. Samkvæmt 3. málsl. 1. mgr. er ekki skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr. 5. gr. laganna þar sem mælt er fyrir um að ef ákvæði 6.–10. gr. laganna eigi aðeins við um hluta gagns skuli veita aðgang að öðrum hlutum þess. Í athugasemdum við 5. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, segir að skilyrði þess að gagn sé undirorpið upplýsingarétti sé að það liggi fyrir hjá þeim sem fær beiðni um aðgang til afgreiðslu. Þá segir enn fremur að réttur til aðgangs að gögnum nái þannig aðeins til þeirra gagna sem til eru og fyrir liggja á þeim tímapunkti þegar beiðni um aðgang er sett fram og í þeirri mynd sem þau eru á þeim tíma.
Úrskurðarnefndin hefur ekki forsendur til að draga í efa fullyrðingu Vinnueftirlitsins um að gagn með þeim upplýsingum sem kærandi óskaði eftir liggi ekki fyrir í vörslu stofnunarinnar. Úrskurðarnefndin leggur þann skilning í upplýsingar frá Vinnueftirlitinu að ekki sé hægt að kalla fram yfirlit yfir umbeðnar upplýsingar með einföldum hætti. Að framangreindu virtu og með vísan til 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga telur úrskurðarnefndin að Vinnueftirlitinu sé ekki skylt að verða við beiðni kæranda.
Samkvæmt framangreindu verður lagt til grundvallar að umbeðin gögn séu ekki fyrirliggjandi hjá Vinnueftirlitinu í skilningi upplýsingalaga. Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga er heimilt að bera synjun beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt lögunum undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Hið sama gildir um synjun beiðni um að afhenda gögn á því formi sem óskað er. Því liggur ekki fyrir synjun beiðni um afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga og verður því staðfest afgreiðsla Vinnueftirlitsins á beiðni kæranda.
Úrskurðarorð
Staðfest er afgreiðsla Vinnueftirlitsins, dags. 11. júlí 2025, á beiðni kæranda, Vinnuverndarnámskeiða ehf, dags. 9. maí 2025, um aðgang að upplýsingum um fjölda slysa í málm- og járniðnaði frá 2015 til 2024.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir