03 júlí 2026

/

1372/2026. Úrskurður frá 3. júlí 2026

Hinn 3. júlí 2026 kvað úr­skurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál upp svohljóðandi úr­skurð nr. 1372/2026 í máli ÚNU 25100006.

Kæra og málsatvik

Með erindi, dags. 7. október 2025, kærði […] þá ákvörðun […] að synja beiðni hennar um aðgang að gögnum.

Þann […] 2019 gerðu kærandi og […] með sér samning um starfs­lok kæranda. Í samningnum kom meðal annars fram að báðir aðilar lýstu því yfir að þeir myndu ekki eiga frum­kvæði að umræðu um samninginn eða að­drag­anda starfs­loka starfsmanns hjá vinnu­veit­anda, hvorki opinberlega né annars staðar og að hvorugur aðili samningsins ætti kröfur á hinn tengdar vinnu­sam­bandinu umfram það sem í samningnum greindi.

Með erindi til […], dags. […] 2024, óskaði kærandi eftir aðgangi að fund­ar­gerðum og öðrum gögnum sveit­ar­stjórnar, fræðslu­nefndar, kennara- og starfs­manna­funda á tímabilinu […] til […] þar sem fjallað væri um kæranda, sem gætu varpað ljósi á tildrög starfs­loka kæranda eða önnur atriði sem lögð hefðu verið til grundvallar þeirri ákvörðun.

Með erindi til kæranda, dags. […] 2024, synjaði […] beiðni kæranda með vísan til þess að í samningi milli kærða og kæranda, sem gerður var um starfs­lok kæranda, hefði komið fram að hvorugur aðili samningsins ætti kröfu á hinn auk þess sem hvorugur aðili myndi eiga frum­kvæði að umræðu um samninginn eða að­drag­anda starfs­loka.

Kærandi ítrekaði beiðni sína um gögnin með erindi, dags. 8. september 2025. […] brást við erindinu þann 11. september 2025 og ítrekaði fyrra svar sitt frá […] 2024 um að ekki væri unnt að verða við beiðninni með vísan til þess sem fram kæmi í starfs­loka­samningi.

Málsmeðferð

Kæran var kynnt […] með erindi, dags. 8. október 2025, og sveit­ar­félaginu gefinn kostur á að koma á fram­færi umsögn um hana. Þá var þess óskað að […] afhenti úr­skurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kæran varðar.

Umsögn […] barst úr­skurð­ar­nefndinni 12. nóvember 2025. Í umsögninni benti sveit­ar­félagið á að samið hefði verið við kæranda um að risi ágrein­ingur um efni og túlkun starfs­loka­samnings frá […] skyldi reka slík mál fyrir Hér­aðs­dómi […]. Yrði sveit­ar­félaginu gert að afhenda úr­skurð­ar­nefndinni gögnin væri skráning upp­lýs­inga í trún­aðar­bók þess í uppnámi. Það væri und­an­tekn­ing að mál væru bókuð í trún­aðar­bók. Niðurstaða sveit­ar­félagsins væri að ekki væri unnt að verða við tilmælum úr­skurð­ar­nefndarinnar um að afhenda gögn sem málið varðaði.

Í umsögninni kom einnig fram að málið tengdist starfs­loka­samningi milli kæranda og sveit­ar­félagsins. Málið hefði verið til umfjöllunar á fundi sveit­ar­stjórnar þann […] 2019. Vegna fundarins væri til ítarleg bókun sem færð hefði verið í trún­aðar­mála­bók. Þá væri augljóst að þótt almennt gilti að aðilar ættu rétt til aðgangs að upp­lýs­ingum um sjálfa sig þá háttaði öðruvísi til í þessu máli þar sem aðilar hefðu gert með sér samning meðal annars um að hvorugur ætti kröfu á hinn.

Umsögn […] var kynnt kæranda með erindi, dags. 13. nóvember 2025, og honum gefinn kostur á að koma á fram­færi frekari at­huga­semdum. Í at­huga­semdum kæranda, dags. 27. nóvember 2025, kemur meðal annars fram að stjórn­völd geti ekki takmarkað upp­lýs­inga­rétt með ákvæðum í starfs­loka­samningi og að í 14. gr. upp­lýs­ingalaga sé skýrlega kveðið á um upp­lýs­inga­rétt aðila að gögnum ef þau hafa að geyma upp­lýs­ingar um aðila sjálfan.

At­huga­semdir kæranda voru kynntar […] með erindi, dags. 27. nóvember 2025, og sveit­ar­félaginu gefinn kostur á að koma á fram­færi at­huga­semdum. At­huga­semdir sveit­ar­félagsins bárust úr­skurð­ar­nefndinni 2. desember 2025. Í at­huga­semdunum ítrekaði […] það sem fram hafði komið í umsögn sveit­ar­félagsins um að ágrein­ingur um starfs­loka­samning kæranda og sveit­ar­félagsins skyldi borinn undir Hér­aðs­dóm […].

Með erindi, dags. 29. desember 2025, ítrekaði úr­skurð­ar­nefndin ósk um að afhent yrðu þau gögn sem kæran lyti að. Svar […] barst 27. janúar 2026. Í svarinu er áréttað að ágrein­ingur um efni og túlkun sam­komu­lags sveit­ar­félagsins og kæranda um starfs­lok skuli reka fyrir Hér­aðs­dómi […]. Almennt sé til að mynda heimilt að semja um gerð­ar­dómsmeðferð ágrein­ingsmála tengdum samningi, sbr. lög um samn­ings­bundna gerðardóma. Samn­ings­frelsi gildi í landinu og ekki hafi verið að­stöðu­munur milli kæranda og sveit­ar­félagsins við gerð samningsins. Sveit­ar­félagið skilji kröfur kæranda þannig að hann telji sam­komu­lagið ekki í gildi. Ágrein­ingur í þessu máli sé ágrein­ingur um efni og túlkun sam­komu­lagsins, sem skuli reka fyrir dómi. Ítrekuð séu sjónarmið um vernd­ar­hags­muni sveit­ar­félagsins og skóla­sam­félagsins, sem og sjónarmið um að efni málsins hafi verið fært í trún­aðar­bækur sveit­ar­félagsins. Afmörkun kæru­efnisins snúi að sam­komu­laginu, að­drag­anda þess og gögnum sem því tengist. Ákvæði samningsins sé skýrt og gefi ekki svigrúm til túlkunar um lögsögu hér­aðs­dóms. […] væri af þessum sökum ekki fært að afhenda úr­skurð­ar­nefndinni frekari upp­lýs­ingar eða gögn.

Hinn 16. júní 2026 afhenti […] úr­skurð­ar­nefndinni tvö gögn í trúnaði: samning sveit­ar­félagsins við kæranda ásamt viðauka, dags. […] 2019, og bókun í trún­aðar­bók af fundi sveit­ar­stjórnar […] 2019.

Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Úr­skurð­ar­nefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.

Niðurstaða

1.

Mál þetta varðar ákvörðun […] um að hafna beiðni kæranda um aðgang að gögnum sem tengjast starfs­lokum hans hjá sveit­ar­félaginu og að­drag­anda þeirra. Ákvörðun […] var byggð á því að samningur, sem gerður var um starfs­lokin, innihéldi ákvæði sem kæmu í veg fyrir að unnt væri að veita aðgang að gögnunum. Í umsögn til úr­skurð­ar­nefndarinnar hefur sveit­ar­félagið enn fremur vísað til þess að samkvæmt ákvæði í samningnum skuli ágrein­ingur um efni og túlkun samningsins borinn undir hér­aðs­dóm; kærandi sé bundinn af því ákvæði og því sé hér­aðs­dómur réttur staður fyrir úrlausn þessa ágrein­ings frekar en úr­skurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál. Sveit­ar­félagið varð af þessum sökum ekki við beiðni úr­skurð­ar­nefndarinnar um afrit af hinum umbeðnu gögnum, sbr. 2. mgr. 22. gr. upp­lýs­ingalaga, nr. 140/2012, fyrr en rúmlega átta mánuðum eftir að fyrst var óskað eftir þeim. Gagnið sem sveit­ar­félagið hefur afmarkað beiðni kæranda við er bókun í svonefnda trún­aðar­mála­bók af fundi sveit­ar­stjórnar […] 2019.

Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. upp­lýs­ingalaga taka lögin til allrar starfsemi stjórnvalda. Ljóst er samkvæmt því að […] heyrir undir gild­is­svið upp­lýs­ingalaga. Óumdeilt er að gagnið sem beiðni kæranda var afmörkuð við er í vörslu sveit­ar­félagsins. Gagnið fellur samkvæmt efni sínu innan gild­is­sviðs upp­lýs­ingalaga. Samkvæmt fyrri málslið 1. mgr. 20. gr. upp­lýs­ingalaga er heimilt að bera synjun beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt lögunum undir úr­skurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál, sem úr­skurðar um ágrein­inginn. Í máli þessu liggur fyrir synjun beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt upp­lýs­inga­lögum. Úr­skurð­ar­nefndin er því að lögum bær til að úr­skurða um hvort ákvörðun […] að synja beiðni kæranda hafi verið í samræmi við upp­lýs­inga­lög. Sveit­ar­félaginu var enn fremur skylt að afhenda nefndinni afrit af gögnum málsins svo það teldist nægjanlega upplýst.

2.

Við mat á því á hvaða laga­grund­velli réttur kæranda til aðgangs að gagninu sé byggður er til þess að líta að bókun í trún­aðar­mála­bók af fundi sveit­ar­stjórnar […] 2019 fjallar að lang­stærstum hluta um mál kæranda. Samkvæmt 1. mgr. 14. gr. upp­lýs­ingalaga er skylt, sé þess óskað, að veita aðila sjálfum aðgang að fyrir­liggj­andi gögnum ef þau hafa að geyma upp­lýs­ingar um hann sjálfan, nema takmarkanir samkvæmt upp­lýs­inga­lögum eigi við. Fyrir­liggj­andi samningur sveit­ar­félagsins við kæranda víkur þeirri laga­skyldu ekki til hliðar í þessu máli.

Réttur samkvæmt ákvæðinu er ríkari en réttur almennings til aðgangs að gögnum samkvæmt 5. gr. laganna. Samkvæmt 3. mgr. 14. gr. er heimilt að takmarka aðgang aðila að gögnum ef þau hafa jafnframt að geyma upp­lýs­ingar um einka­mál­efni annarra, enda vegi þeir hags­munir sem mæla með því að upp­lýs­ingunum sé haldið leyndum þyngra en hags­munir þess sem fer fram á aðgang að gögnum. Ljóst er að bókunin hefur að geyma upp­lýs­ingar um kæranda sjálfan í skilningi 1. mgr. 14. gr. laganna og verður því leyst úr málinu á þeim grundvelli.

Í at­huga­semdum við 14. gr. með frumvarpinu, sem varð að upp­lýs­inga­lögum, nr. 140/2012, segir um 3. mgr. að algengt sé að gögn sem hafi að geyma upp­lýs­ingar um aðila sjálfan hafi að geyma upp­lýs­ingar um einka-, fjár­hags- eða við­skipta­mál­efni annarra. Þegar fram komi beiðni um aðgang að slíkum gögnum sé þannig líklegt að það reyni á andstæða hags­muni, annars vegar þess sem upp­lýs­inga óskar og hins vegar annarra þeirra sem hlut eiga að máli og kunna að eiga réttmæta hags­muni af því að tilteknum atriðum er þá varða sé haldið leyndum. Kjarni reglunnar í 3. mgr. felist í því að vega skuli og meta þessa gagnstæðu hags­muni. Aðgangur að gögnum verði því aðeins takmarkaður ef talin sé hætta á að einka­hags­munir skaðist verði aðila veittur aðgangur að upp­lýs­ingunum. Leggja þurfi mat á aðstæður í hverju máli fyrir sig.

Fyrir liggur að sveit­ar­félagið taldi fyrir­liggj­andi samning við kæranda leiða til þess að upp­lýs­inga­lög giltu ekki um rétt hennar til aðgangs að umbeðnum gögnum. Sú afstaða var ekki í samræmi við lög. Í því felst að sveit­ar­félagið hefur ekki afgreitt beiðni kæranda á réttum laga­grund­velli, og telur úr­skurð­ar­nefndin því rétt að vísa málinu til nýrrar meðferðar sveit­ar­félagsins á grundvelli upp­lýs­ingalaga.

Úr­skurð­ar­orð

Beiðni kæranda, […], dags. 8. september 2025, til […] um aðgang að gögnum er vísað til […] til nýrrar meðferðar og af­greiðslu.

Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir