24 október 2025

/

1308/2025. Úrskurður frá 24. október 2025

Hinn 24. október 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1308/2025 í máli ÚNU 25100017.
 

Beiðni um endurupptöku

Með erindi, dags. 22. október 2025, fór […] fram á að úrskurðarnefnd um upp­lýs­inga­mál tæki upp að nýju mál ÚNU 25030010 sem lauk með úrskurði nefndarinnar nr. 1292/2025, dags. 21. ágúst 2025.
 
Með umræddum úrskurði staðfesti úrskurðarnefndin ákvörðun Sveitarfélagsins Ölfuss, dags. 29. ja­núar 2025, um synjun að hluta á afhendingu skýrslu um aðstæður í bekk dóttur kæranda. Um var að ræða skýrslu kennsluráðgjafa um aðstæður nemenda og kennara í […] bekk í grunnskóla í sveit­arfélaginu, sem unnin var í október 2024.
 
Í endurupptökubeiðni kæranda kemur fram að foreldrum reynist ekki mögulegt að uppfylla skyld­ur sínar samkvæmt 3. gr. grunnskólalaga, nr. 91/2008, um að gæta hagsmuna barna sinna. Rétt­indi foreldra og barna hafi verið skert vegna vinnubragða grunnskólans og sveitar­félags­ins við gerð skýrsl­unnar. Engin ástæða sé að hindra aðgang að skýrslunni þar sem engin nöfn komi fram í henni.
 
Í beiðninni kemur einnig fram að úrskurðarnefndin hafi með úrskurði sínum sent þau skilaboð að hægt sé að „trompa laga­leg réttindi foreldra með því að skapa lagalegar réttinda flækjur á skólatíma og komast þar með hjá mikilvægu samstarfi og aðhaldi í foreldra samstarfi þegar eftir því er kallað. Þarft [sé] að tryggja að ekki sé mögulegt að sniðganga foreldra frá upplýsingum eða samstarfi við skóla umhverfið með slík­um hætti.“
 

Niðurstaða

Eins og fram er komið kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp úrskurð nr. 1292/2025, dags. 21. ágúst 2025, í máli ÚNU 25030010. Úrskurðurinn var kveðinn upp í tilefni af kæru […], sem nú hefur óskað endurupptöku úrskurðarins. Með umræddum úrskurði staðfesti úrskurðarnefndin ákvörðun Sveitarfélagsins Ölfuss, dags. 29. ja­núar 2025, um synjun að hluta á afhendingu skýrslu um aðstæður í bekk dóttur kæranda.
 
Í 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, er mælt fyrir um endurupptöku stjórnsýslumáls:
 

Eftir að stjórnvald hefur tekið ákvörðun og hún verið tilkynnt á aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef:
 

  1. ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða
  2. íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

 
Eftir að þrír mánuðir eru liðnir frá því að aðila var tilkynnt um ákvörðun skv. 1. tölul. 1. mgr., eða aðila var eða mátti vera kunnugt um breytingu á atvikum þeim sem ákvörð­un skv. 2. tölul. 1. mgr. var byggð á, verður beiðni um endurupptöku máls þó ekki tekin til greina, nema að fengnu samþykki frá öðrum aðilum málsins. Mál verður þó ekki tekið upp að nýju ef ár er liðið frá fyrrgreindum tímamörkum nema veigamiklar ástæður mæli með því.

 
Ekkert bendir til að úrskurður nefndarinnar hafi byggst á röngum upplýsingum um málsatvik eða að atvik hafi breyst frá því að ákvörðun var tekin. Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál eru skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga fyrir endurupptöku máls því ekki uppfyllt.
 
Þegar 24. gr. stjórnsýslulaga sleppir kann úrskurðarnefnd um upplýsingamál eftir atvikum að vera rétt og heimilt að endurupptaka mál á ólögfestum grundvelli. Að mati nefndarinnar veltur skylda til slíkrar endurupptöku, í því tilviki sem hér um ræðir, á því að rökstuddar vísbendingar séu um að á úrskurði hennar séu verulegir annmarkar að lögum. Úrskurðarnefndin telur röksemdir kær­anda ekki leiða í ljós slíkar vísbendingar.
 
Með vísan til framangreinds er hafnað beiðni um endurupptöku úrskurðar úrskurðarnefndar um upp­lýsingamál nr. 1292/2025 frá 21. ágúst 2025.
 

Úrskurðarorð

Beiðni […], dags. 22. október 2025, um endurupptöku máls ÚNU 25030010 sem lauk með úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál nr. 1292/2025 frá 21. ágúst 2025, er hafnað.
 
 
 
 
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir