09 apríl 2025

/

1266/2025. Úrskurður frá 9. apríl 2025

Hinn 9. apríl 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1266/2025 í máli ÚNU 25030003.
 

Kæra, málsatvik og málsmeðferð

Með erindi, dags. 4. mars 2025, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsingamál ákvörð­un Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. að synja beiðni hans, dags. 6. febrúar 2025, um að­gang að ráðningarsamningi við framkvæmdastjóra félagsins. Beiðni hans var synjað með erindi, dags. 24. febrúar 2025, með vísan til þess að félaginu væri óskylt að afhenda samninginn.
 
Í kæru til úrskurðarnefndarinnar segir að framkvæmdastjóri félagsins sé æðsti stjórnandi þess. Laun hans séu opinbert gagn. Ráðningarsamningar bæjarstjóra og forstöðumanna stofnana Vest­manna­eyjabæjar hafi fúslega verið afhentir. Hið sama hljóti að eiga við í þessu tilviki.
 
Kæran var kynnt Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi með erindi, dags. 6. mars 2025, og félaginu gef­inn kostur á að koma á fram­færi umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að félagið afhenti úr­skurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál þau gögn sem kær­an varðar.
 
Umsögn Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs barst úrskurðarnefndinni 17. mars 2025. Afrit af gagn­inu sem deilt er um aðgang að barst nefndinni 24. mars 2025. Í umsögn­inni er vísað til eldri úr­skurða úrskurðarnefndarinnar þar sem deilt hafi verið um aðgang að sambæri­legum gögnum og í þessu máli og nefndin talið heimilt að takmarka aðgang að þeim.
 
Umsögn Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs var kynnt kæranda með erindi, dags. 18. mars 2025, og honum gefinn kostur á að koma á fram­færi frekari at­huga­semd­um. Þær bárust 28. mars 2025.
 

Niðurstaða

1.

Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningi framkvæmdastjóra Vest­manna­eyjaferjunnar Herjólfs ohf. Ákvörðun félagsins er byggð á því að gögnin falli undir 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og verði ekki afhent. Ákvæðið hljóð­ar svo:
 

Réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna sem starfa hjá aðilum sem lög þessi taka til skv. 2. gr. tekur ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti.

 
Í athugasemdum við 7. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, kemur fram að með gögnum í málum sem varða starfssambandið sé átt við gögn í málum þar sem teknar eru ákvarðanir um réttindi og skyldur starfsmanna, t.d. mál þar starfsmaður hefur þurft að sæta frá­drætti frá launum, ákvarðanir stjórnenda um sveigjanlegan vinnutíma og um auka­störf, og enn frem­ur mál er lúta að aðfinnslum og áminningu eða eftir atvikum starfslokum.
 
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál telur að gögn í málum einstakra starfsmanna sem varða ráðn­ingu þeirra í starf teljist einnig varða starfssambandið í skilningi 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. upp­lýs­inga­laga. Ráðningarsamningur viðkomandi starfsmanns er gagn í slíku máli og verður því að telja að aðila sem heyrir undir gildissvið upplýsingalaga sé almennt heimilt að takmarka aðgang að slík­um samn­ingi.
 

2.

Samkvæmt 2. tölul. 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga ber lögaðila sem fellur undir gildissvið lag­anna að veita almenningi upplýsingar um launakjör æðstu stjórnenda og menntun þeirra. Vest­manna­eyja­ferjan Herjólfur fellur undir gildissvið upplýsingalaga, sbr. 2. mgr. 2. gr. laganna. Þá hefur úr­skurðarnefndin áður komist að þeirri niðurstöðu að framkvæmdastjóri félagsins teljist til æðstu stjórn­enda þess, sbr. úrskurði nr. 1217/2024 og 860/2019. Samkvæmt því er ljóst að almenningur á rétt til aðgangs að upplýs­ing­um um launakjör framkvæmdastjóra Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs.
 
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir gagnið sem kæran lýtur að og telur að Vestmannaeyjaferjunni Herj­ólfi hafi verið heimilt að hafna beiðni kæranda um aðgang að ráðningarsamningnum sem ósk­að var eftir. Í 7.–9. gr. ráðningarsamnings framkvæmda­stjóra Vestmannaeyjaferjunnar Herj­ólfs, sem gerður var í janúar 2025, eru hins vegar ákvæði um laun, önnur kjör og fríðindi. Með vísan til þess að framkvæmdastjórinn telst til æðstu stjórnenda fél­ags­ins verður að telja að kærandi eigi rétt til aðgangs að þessum upplýsingum. Þótt úrskurð­ar­nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að aðil­um sem heyra undir gildissvið upplýsingalaga sé almennt heimilt að takmarka aðgang að ráðn­ing­ar­samningum þarf að horfa til þess að ef ákvæði 6.–10. gr. upplýsingalaga um takmarkanir á upp­lýs­inga­rétti eiga aðeins við um hluta gagns skal veita aðgang að öðrum hlutum þess, sbr. 3. mgr. 5. gr. laganna. Verður því að ætla að ef ráðningar­samn­ingur inniheldur þær upplýsingar sem getið er um í 2. tölul. 4. mgr. 7. gr. upplýsingalaga sé lögaðila skylt að afhenda þann hluta ráðn­ing­arsamningsins sem hefur að geyma upp­lýs­ingarnar. Því telur úrskurðarnefndin að Vest­manna­eyjaferjunni Herjólfi sé skylt að afhenda kæranda þann hluta ráðningarsamningsins sem hefur að geyma upplýsingar um launakjör framkvæmda­stjóra félagsins. Að öðru leyti verður ákvörð­un félagsins að hafna beiðni kæranda staðfest.
 

Úrskurðarorð

Vestmannaeyjaferjan Herjólfur ohf. skal veita kæranda, […], aðgang að upplýsingum um launakjör framkvæmdastjóra félagsins sem finna má í 7.–9. gr. ráðningarsamnings hans, dags. 1. janúar 2025. Að öðru leyti er ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf., dags. 24. febrúar 2025, staðfest.
 
 
 
 
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir