25 september 2025
/
1298/2025. Úrskurður frá 25. september 2025
Hinn 25. september 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1298/2025 í máli ÚNU 24050029.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 22. maí 2024, kærði […] lögmaður, f.h A, B og C til úrskurðarnefndar um upplýsingamál þá ákvörðun fagráðs eineltismála í grunn- og framhaldsskólum að synja beiðni um aðgang að gögnum í máli sem til meðferðar hefði verið hjá fagráðinu.
Í kæru til nefndarinnar er rakið að C sé í varanlegu fóstri hjá A og B. Kæran varði gögn í máli sem fagráðið hafi tekið til skoðunar í kjölfar erindis þeirra vegna eineltis sem C hafi orðið fyrir í grunnskólanum […].
Með erindi til Menntamálastofnunar (nú Miðstöð menntunar og skólaþjónustu), dags. 22. febrúar 2024, óskaði lögmaður kærenda eftir öllum gögnum sem til væru hjá Menntamálastofnun og fagráði eineltismála í grunn- og framhaldsskólum og vörðuðu skólagöngu C eða aðra þjónustu við hann á vegum […]. Beiðnin var afgreidd 13. mars 2024 og gögn afhent.
Með erindi, dags. 18. mars 2024, var upplýst fyrir hönd kærenda að ekki hefðu öll gögn verið afhent. Í afhentum gögnum væri ekki að finna erindi A og B til fagráðsins, gögn sem kynnu að hafa fylgt því erindi, erindi frá foreldrum barna í skólanum, og gögn þar sem skráð væri hvað hefði farið fram á fundum, dags. 6. og 9. febrúar 2023, og vísað væri til í áliti fagráðsins frá 9. mars 2023. Óskað væri eftir þeim gögnum ásamt öðrum gögnum sem heyrðu undir beiðnina en hefðu ekki verið afhent. Með erindi fagráðsins, dags. 19. mars 2024, var upplýst að ekki hefðu verið teknar fundargerðir af fundum, dags. 6. og 9. febrúar 2023, heldur aðeins vinnupunktar þeirra sem unnu málið. Þeim hefði verið eytt strax að lokinni vinnslu málsins. Frekari gögn voru afhent kærendum með erindi, dags. 12. apríl 2024.
Í erindi fagráðsins, dags. 16. maí 2024, var vísað til þess að um aðgang að gögnum fagráðs eineltismála færi samkvæmt 4. mgr. 30. gr. a laga um grunnskóla, nr. 91/2008, og 4. mgr. 33. gr. c laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008:
Um aðgang að gögnum hjá fagráði eineltismála fer eftir ákvæðum stjórnsýslulaga og upplýsingalaga. Fagráðið getur þó með rökstuddri ákvörðun takmarkað aðgang aðila að tilteknum gögnum ef það telur þau geta skaðað hagsmuni barns eða samband þess við aðra. Fagráðið getur einnig ákveðið að aðilar og lögmenn þeirra geti kynnt sér skjöl og önnur gögn án þess að þau eða ljósrit af þeim séu afhent.
Fagráði hefðu borist óumbeðin erindi frá foreldrum barna hinn 30. janúar 2023 á meðan á vinnslu máls kærenda stóð. Ákveðið hefði verið að nýta ekki erindin við vinnslu málsins og því hefðu þeir sem unnu að málinu ekki lesið þau. Fagráðið teldi að það væri engu þeirra barna sem um ræddi fyrir bestu að gögnin yrðu afhent.
Í kæru til úrskurðarnefndarinnar kemur fram að óskað sé eftir því að nefndin endurskoði bæði ákvörðun fagráðsins að synja beiðni kærenda og þá málsmeðferð sem fagráðið viðhafði við afgreiðslu beiðninnar.
Varðandi hina kærðu ákvörðun gera kærendur athugasemd við að fagráð eineltismála hafi ekki rökstutt hvernig ákvæði laga um grunnskóla og laga um framhaldsskóla eigi við um afgreiðslu beiðni kærenda. Fagráðið hafi tekið á móti þeim gögnum sem synjað var um aðgang að og vistað þau í málaskrá. Samkvæmt upplýsingalögum sé ekki heimilt að synja aðila um aðgang að gögnum vegna þess að þau hafi ekki skipt máli við vinnslu málsins.
C og fósturforeldrar hans hafi verulega hagsmuni af því að fá umrædd gögn afhent, meðal annars til að geta lagt sjálfstætt mat á það hvort tiltekin gögn máls hafi skipt máli við afgreiðslu stjórnvalds á tilteknu erindi frá aðilum. Umrædd gögn geti einnig verið mikilvæg til að leggja heildstætt mat á framgöngu þess stjórnvalds sem kvartað var undan í upphaflegu erindi fósturforeldra C til fagráðsins og jafnvel varpað ljósi á hugsanlegt brot á trúnaði skólastjórnenda gagnvart C og fósturforeldrum hans. Tilteknir einstaklingar virðist hafa haft vitneskju um erindi fósturforeldranna til fagráðsins og talið mikilvægt að skila þangað inn upplýsingum um C eða fósturforeldra hans. Mikilvægt sé fyrir þau að fá upplýsingar um hvaða einstaklingar hafi sent fagráðinu erindi og hvað komi fram í erindunum.
Í kæru eru gerðar athugasemdir við málsmeðferð fagráðsins við afgreiðslu beiðninnar. Margoft hafi þurft að biðja um gögnin þrátt fyrir að upphafleg beiðni væri skýr. Þá hafi um þrír mánuðir liðið frá beiðninni þar til hin kærða ákvörðun var tekin. Umfang gagnanna sé ekki verulegt og því sé ekki að sjá neinar málefnalegar ástæður fyrir því hve langan tíma það tók að afhenda gögnin. Þá sé rökstuðningur í hinni kærðu ákvörðun ófullnægjandi þar sem ekki sé tilgreint hvers vegna fagráðið hafi talið að ákvæði laga um grunnskóla og laga um framhaldsskóla ættu við.
Málsmeðferð
Kæran var kynnt fagráði eineltismála í grunn- og framhaldsskólum með erindi, dags. 24. maí 2024, og fagráðinu gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að fagráðið afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar.
Umsögn fagráðsins barst úrskurðarnefndinni 6. júní 2024. Í umsögninni er vísað til 6. gr. verklagsreglna um starfsemi fagráðs eineltismála í grunn- og framhaldsskólum, nr. 30/2019, þar sem segir að við meðferð og öflun persónuupplýsinga skuli fagráðið gæta þess að þær séu unnar með sanngjörnum, málefnalegum og lögmætum hætti og að meðferð þeirra sé í samræmi við vandaða vinnsluhætti persónuupplýsinga samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018. Þá komi fram að gæta skuli þess að upplýsingar sem aflað er séu viðeigandi og ekki umfram það sem nauðsynlegt sé miðað við tilgang þeirra. Umrædd gögn hafi borist fagráði óumbeðin og hafi verið umfram upplýsingaöflun ráðsins. Gögnin hafi ekki verið nýtt við vinnslu fagráðs í máli kærenda.
Öll gögn málsins hafi þegar verið send kærendum. Í þeim gögnum sem synjað var um aðgang að komi fram persónugreinanlegar upplýsingar um börn og aðra aðila sem enga aðkomu höfðu að máli kærenda hjá fagráðinu. Þá komi í þeim fram viðkvæmar persónuupplýsingar um líðan og velferð barna. Fagráðið telji að það sé engu af þeim börnum sem um ræðir fyrir bestu að gögnin séu afhent.
Hluti umsagnar fagráðsins var afhentur úrskurðarnefndinni í trúnaði. Þar kemur fram að fagráð eineltismála vinni sem stuðningsaðili við skólasamfélagið þegar kemur að eineltismálum sem erfitt reynist að leysa. Ráðgefandi álit séu gefin út varðandi hvað hefði mögulega verið hægt að gera betur í von um að eineltismál verði meðhöndluð betur í framhaldinu. Fagráðið úrskurði ekki um hvort um einelti sé að ræða eða ekki.
Umsögn fagráðsins var kynnt kærendum með erindi, dags. 7. júní 2024, og þeim gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Í athugasemdum kærenda, dags. 11. júní 2024, kemur fram að svo virðist sem fagráðið átti sig ekki á því að þegar gagn er sent til stjórnvalds vegna máls sem þar er til meðferðar og stjórnvaldið tekur við gögnunum og vistar á málið, þá teljist gagnið til málsgagna og falli þar með undir gögn sem aðili máls eigi rétt á að fá aðgang að.
Rökstuðningur fagráðsins sé rýr. Af umsögninni megi ráða að verið sé að vernda hagsmuni þeirra einstaklinga sem sendu inn erindin sem fagráðið neiti að afhenda. Kærendur gruni að stjórnendur grunnskólans […] hafi veitt starfsmönnum skólans og foreldrum annarra barna upplýsingar varðandi C og fjölskylduna og þannig brotið trúnað gagnvart fjölskyldunni. Það að einhverjir hafi haft vitneskju um vinnslu málsins hjá fagráðinu séu vísbending um að grunur um trúnaðarbrot eigi við rök að styðjast. Ótækt sé að kærendur fái ekki tækifæri til að leggja sjálfir mat á hvort tiltekið gagn hafi haft áhrif á niðurstöðu málsins. Þá sé hvergi í upplýsingalögum heimild til að synja um aðgang að gögnum um aðila sjálfan vegna þess að stjórnvald hafi ekki nýtt gagnið við vinnslu máls.
Niðurstaða
1.
Í máli þessu er deilt um rétt kærenda til aðgangs að gögnum í vörslu fagráðs eineltismála í grunn- og framhaldsskólum í tengslum við mál sem fagráðið hafði til meðferðar. Samkvæmt upplýsingum frá kærendum var málið tekið til skoðunar í kjölfar erindis kærenda til fagráðsins vegna eineltis sem einn kærenda, C, hefði orðið fyrir í grunnskólanum […]. Málinu hafi lokið með ráðgefandi áliti fagráðsins. Þar sem ekki kom til greina að fagráðið tæki stjórnvaldsákvörðun í því máli lítur úrskurðarnefndin svo á að gagnabeiðni kærenda heyri undir upplýsingalög, nr. 140/2012, en ekki stjórnsýslulög, nr. 37/1993, og afgreiðsla fagráðsins á beiðninni því réttilega kærð til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Ákvörðun fagráðsins að afhenda kærendum ekki gögnin er byggð á ákvæði sem bæði er í lögum um grunnskóla og lögum um framhaldsskóla og veitir fagráðinu heimild að takmarka aðgang að gögnum vegna hagsmuna barns. Í umsögn fagráðsins til úrskurðarnefndarinnar kemur fram að það hafi ekki stuðst við þau gögn sem kærendur óska eftir við meðferð málsins. Kærendur telja að það eigi ekki að leiða til takmörkunar á aðgangi þeirra að gögnunum. Þeim sé þörf á að fá gögnin afhent til að leggja sjálfstætt mat á hvort þau hafi haft þýðingu við úrlausn málsins og gera þeim kleift að staðreyna hvort trúnaðarbrestur hafi orðið af hálfu grunnskólans.
2.
Í III. kafla upplýsingalaga, nr. 140/2012, er mælt fyrir um aðgang aðila að upplýsingum um hann sjálfan. Samkvæmt 1. mgr. 14. gr. laganna er stjórnvöldum skylt, sé þess óskað, að veita aðila sjálfum aðgang að fyrirliggjandi gögnum ef þau hafa að geyma upplýsingar um hann sjálfan. Í 3. mgr. sömu lagagreinar kemur fram að heimilt sé að takmarka aðgang aðila að gögnum ef þau hafa jafnframt að geyma upplýsingar um einkamálefni annarra, enda vegi þeir hagsmunir sem mæla með því að upplýsingunum sé haldið leyndum þyngra en hagsmunir þess sem fer fram á aðgang að gögnunum.
Í athugasemdum við 14. gr. sem fylgdu frumvarpinu sem varð að upplýsingalögum, nr. 140/2012, segir um 1. mgr. að með orðalaginu að gagn skuli geyma „upplýsingar um hann sjálfan“ sé vísað til þess að upplýsingar þurfi að varða viðkomandi aðila sérstaklega og verulega umfram aðra. Um
3. mgr. segir að algengt sé að gögn sem hafi að geyma upplýsingar um aðila sjálfan hafi að geyma upplýsingar um einka-, fjárhags- eða viðskiptamálefni annarra. Þegar fram komi beiðni um aðgang að slíkum gögnum sé þannig líklegt að það reyni á andstæða hagsmuni, annars vegar þess sem upplýsinga óskar og hins vegar annarra þeirra sem hlut eiga að máli og kunna að eiga réttmæta hagsmuni af því að tilteknum atriðum er þá varða sé haldið leyndum. Kjarni reglunnar í 3. mgr. felist í því að vega skuli og meta þessa gagnstæðu hagsmuni. Aðgangur að gögnum verði því aðeins takmarkaður ef talin sé hætta á að einkahagsmunir skaðist verði aðila veittur aðgangur að upplýsingunum. Leggja þurfi mat á aðstæður í hverju máli fyrir sig.
Mælt er fyrir um fagráð eineltismála í grunn- og framhaldsskólum í 30. gr. a laga um grunnskóla, nr. 91/2008, og 33. gr. c laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008. Til fagráðsins er hægt að vísa eineltismálum ef ekki tekst að finna á þeim fullnægjandi lausn innan skóla eða sveitarfélags. Í þeim tilvikum gefur fagráðið út ráðgefandi álit um málið. Samkvæmt 4. mgr. 30. gr. a laga um grunnskóla og 4. mgr. 33. gr. c laga um framhaldsskóla fer um aðgang að gögnum hjá fagráði eineltismála eftir ákvæðum stjórnsýslulaga og upplýsingalaga. Fagráðið getur þó með rökstuddri ákvörðun takmarkað aðgang aðila að tilteknum gögnum ef það telur þau geta skaðað hagsmuni barns eða samband þess við aðra. Fagráðið getur einnig ákveðið að aðilar og lögmenn þeirra geti kynnt sér skjöl og önnur gögn án þess að þau eða ljósrit af þeim séu afhent. Fyrirmynd þessa ákvæðis er fengin úr barnaverndarlögum.
Þegar beiðni berst fagráði eineltismála frá aðila sem byggir rétt til aðgangs að gögnum á 14. gr. upplýsingalaga skal beiðnin afgreidd á þeim lagagrundvelli. Í því felst að afmarka beiðnina við fyrirliggjandi gögn og leggja mat á hvort og þá hvað standi í vegi fyrir afhendingu gagnanna. Telji fagráðið að til greina komi að takmarka aðgang að gögnum sem skaðað gætu einkahagsmuni þriðja aðila yrðu þau afhent, sbr. 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga, eða hagsmuni barns eða samband þess við aðra, sbr. 4. mgr. 30. gr. a laga um grunnskóla eða 4. mgr. 33. gr. c laga um framhaldsskóla, er ljóst að framkvæma þarf mat á hagsmunum þess sem óskar aðgangs að gögnunum andspænis þeim hagsmunum sem fagráðið telur að gætu skaðast ef gögnin yrðu afhent. Að því loknu skal ákveðið hvort og þá hvernig unnt sé að veita aðgang að gögnunum.
3.
Úrskurðarnefndin telur að um rétt kærenda til aðgangs að gögnum sem aðgangur þeirra var takmarkaður að fari samkvæmt 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Nefndin telur að upplýsingarnar varði kærendur sérstaklega og verulega umfram aðra, enda varða þær að miklu leyti C og bárust fagráðinu í tilefni af erindi kærenda til fagráðsins vegna eineltis sem hann hefði orðið fyrir. Nefndin mun því leysa úr rétti kærenda til aðgangs að gögnunum á grundvelli 14. gr. upplýsingalaga með þeim takmörkunum sem við eiga.
Fagráð eineltismála leggur á það áherslu bæði í hinni kærðu ákvörðun og í umsögn til nefndarinnar að ekki hafi verið stuðst við gögnin sem kæran lýtur að við úrlausn málsins hjá fagráðinu. Samkvæmt 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga nær réttur samkvæmt lagagreininni til fyrirliggjandi gagna í vörslu þess sem beiðni beinist að. Óháð því hvort stuðst hafi verið við gögnin telur nefndin að réttur samkvæmt 14. gr. laganna nái til gagnanna, enda er ljóst að þau liggja fyrir í vörslu fagráðs eineltismála.
Úrskurðarnefndin hefur kynnt sér þau gögn sem fagráðið ákvað að ekki yrðu afhent kærendum. Gögnin eru erindi frá foreldrum barna í grunnskólanum […]. Ljóst er að þau voru send fagráði eineltismála meðan mál kærenda var þar til meðferðar. Í erindunum er að finna frásagnir og lýsingar á persónulegum upplifunum og tilfinningum barna og foreldra þeirra sem tengjast samskiptum á vettvangi grunnskólans og varða jafnt önnur börn sem C. Nefndin telur að enginn vafi leiki á um að upplýsingarnar séu af viðkvæmu tagi, einkum þær sem varða þau börn sem í hlut eiga, og teljist til kjarnatilvika um upplýsingar sem varða einkamálefni einstaklinga sem sanngjarnt og eðlilegt þykir að fari leynt, sbr. 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga, sbr. og 1. málsl. 9. gr. sömu laga.
Nefndin fellst á að kærendur hafi hagsmuni af því að fá aðgang að gögnunum meðal annars með vísan til þeirra ástæðna sem nefndar eru í kæru til nefndarinnar. Hins vegar verður að telja að hagsmunir þeirra barna og foreldra sem gögnin fjalla um af því að upplýsingar um þau fari leynt vegi þyngra á metunum við mat á hvort rétt hafi verið að takmarka rétt kærenda til aðgangs að gögnunum, sbr. 3. mgr. 14. gr. upplýsingalaga. Þá telur nefndin að ef kærendur fengju aðgang að gögnunum væri það til þess fallið að skaða hagsmuni þeirra barna sem tilgreind eru í gögnunum og eftir atvikum sambönd þeirra við aðra í skilningi 4. mgr. 30. gr. a laga um grunnskóla. Jafnvel þótt afmáð væru nöfn barna, nöfn foreldra þeirra og eftir atvikum önnur augljós auðkenni telur nefndin, m.a. með hliðsjón af smæð grunnskólasamfélagsins […], að kærendur myndu geta borið kennsl á hverjir ættu í hlut og að viðkomandi væru þannig persónugreinanlegir. Þannig verður ekki séð að hægt sé að veita aðgang að gögnunum að hluta. Það hvort gögnin hafi komið til skoðunar við meðferð málsins hjá fagráði eineltismála hefur ekki áhrif á þessa niðurstöðu. Ákvörðun fagráðs eineltismála í grunn- og framhaldsskólum verður því staðfest.
4.
Í rökstuðningi fagráðs eineltismála í hinni kærðu ákvörðun og umsögn fagráðsins til úrskurðarnefndarinnar var vísað til þess að það væri engu af þeim börnum sem um ræddi fyrir bestu að gögnin yrðu afhent, sbr. 4. mgr. 30. gr. a laga um grunnskóla og 4. mgr. 33. gr. c laga um framhaldsskóla. Úrskurðarnefndin telur að í rökstuðningnum hefði verið rétt að greina frá mati á hagsmunum kærenda af að fá aðgang að gögnunum andspænis hagsmunum annarra af að upplýsingar um þá færu leynt. Í samræmi við 3. mgr. 5. gr. upplýsingalaga hefði líka verið rétt að greina frá hvort fagráðið teldi fært að veita aðgang að gögnunum að hluta.
Að lokum nefnir úrskurðarnefndin að samkvæmt 1. mgr. 17. gr. upplýsingalaga skal ákveða hvort orðið verður við beiðni um aðgang að gögnum svo fljótt sem verða má. Hafi beiðni ekki verið afgreidd innan sjö daga frá móttöku hennar skuli skýra aðila frá ástæðum tafanna og hvenær ákvörðunar sé að vænta. Ekki verður séð að fagráð eineltismála hafi skýrt kærendum frá ástæðum tafa á afgreiðslu beiðni og hvenær ákvörðunar væri að vænta.
Úrskurðarorð
Staðfest er ákvörðun fagráðs eineltismála í grunn- og framhaldsskólum, dags. 16. maí 2024, að synja beiðni kærenda, A, B og C, um aðgang að gögnum.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir