23 júní 2026

/

1370/2026. Úrskurður frá 23. júní 2026

Hinn 23. júní 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1370/2026 í máli ÚNU 25120012.
 

Kæra og málsatvik

Með erindi, dags. 12. desember 2025, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsinga­mál synjun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. (hér eftir einnig Herjólfur) á beiðni hans um að­gang að gögnum.
 
Á stjórnarfundi Herjólfs, sem fram fór 4. nóvember 2025, kynnti fjármálastjóri félagsins drög að fjár­hagsáætlun félagsins fyrir árið 2026. Með bréfi til Herjólfs 18. sama mánaðar óskaði kærandi eftir aðgangi að umræddu skjali. Herjólfur mun hafa synjað beiðninni á þeim grundvelli að um vinnu­skjal væri að ræða.
 
Í kæru kemur meðal annars fram að kærandi óski þess að Herjólfur verði með úrskurði gert skylt að afhenda umbeðið skjal.
 

Málsmeðferð

Kæran var kynnt Herjólfi 29. desember 2025 og félaginu veittur kostur á að koma á fram­færi umsögn um hana og frekari rökstuðningi fyrir ákvörðuninni. Jafnframt var þess óskað að Herjólfur léti úrskurðarnefnd um upp­lýs­inga­mál í té afrit af þeim gögnum sem kæran lyti að. Umsögn Herjólfs barst úrskurðarnefndinni 8. janúar 2026 og meðfylgjandi henni var það skjal sem félagið taldi að kæran lyti að.
 
Í umsögn Herjólfs kemur fram að umbeðið skjal sé excel-skjal sem hafi að geyma áætlun um tekjur og útgjöld á tilteknu tímabili. Um sé að ræða vinnugagn sem sé undanþegið upplýsingarétti almenn­ings samkvæmt 5. tölul. 6. gr. og 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Þá er í umsögn Herjólfs vitnað til svars félagsins til kæranda en þar mun meðal annars hafa komið fram að umbeð­ið skjal væri frá félaginu sjálfu og hefði ekki verið afhent út fyrir félagið.
 
Umsögn Herjólfs var kynnt kæranda með bréfi 19. janúar 2026 og honum veittur kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum sem og hann gerði með bréfi 27. sama mánaðar.
 
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál óskaði eftir því 24. apríl 2026 að Herjólfur afhenti nefndinni afrit af synjun Herjólfs á beiðni kæranda. Í svari Herjólfs daginn eftir kom fram að afrit af bréfinu fyndist ekki og því væri það ekki til. Úrskurðarnefndin bað kæranda um afrit af gagninu 27. apríl 2026 en hann varð ekki við því.
 
Með erindi 11. maí 2026 til Herjólfs óskaði nefndin eftir upplýsingum hvort fjárhagsáætlunin, sem deilt væri um aðgang að, hefði verið nýtt til undirbúnings að ákvörðun Vestmannaeyjabæjar um að samþykkja fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2027–2029. 
 
Herjólfur svaraði degi síðar og tók meðal annars fram að lykiltölur úr fjárhagsáætluninni væru sendar til Vestmannaeyjabæjar sem væri eigandi félagsins. Fjárhagsáætlunin væri eingöngu vinnu­gagn sem væri notað til að taka ákvarðanir sem tengdust rekstrinum. Skjalið væri undirbún­ings­gagn frá félaginu sjálfu og væri ekki afhent út fyrir það nema helstu lykiltölur til Vestmanna­eyja­bæjar.
 
Með erindi 1. júní 2026 óskaði úrskurðarnefnd um upplýsingamál eftir nánari skýringum á því hvaða upplýs­ingar úr fjárhagsáætlun Herjólfs hefðu verið afhentar Vestmannaeyjabæ og hugsan­leg­um gögn­um sem tengdust þeirri upplýsingagjöf. Herjólfur svaraði 15. sama mánað­ar og áfram­sendi nefndinni tölvupóst Herjólfs til Vestmannaeyjabæjar frá 24. október 2025.
 
Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins með vísan til 31. gr. stjórnsýslu­laga, nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við meðferð þess.
 

Niðurstaða

1.

Í máli þessu er deilt um synjun Herjólfs á beiðni kæranda um aðgang að drögum að fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2026 sem var kynnt á stjórnarfundi þess 4. nóvember 2025. 
 
Afrit af synjun Herjólfs á beiðni kær­anda liggur ekki fyrir í málinu. Úrskurðarnefndin telur þó að af fyrirliggjandi gögnum verði nægjanlega ráðið að Herjólfur hafi synjað beiðni kæranda á þeim grundvelli að umbeðið skjal væri vinnugagn. Að þessu gættu og að virtum öðrum fyrirliggjandi gögnum verður að leggja til grundvallar að málið sé nægjan­lega upplýst til þess að nefndin geti tekið efnislega afstöðu til réttar kæranda til aðgangs að umbeðnu skjali. 
 
Samkvæmt 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga geta vinnugögn verið undanþegin upplýsingarétti. Hug­tak­ið vinnu­gagn er skilgreint í 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga en samkvæmt málsgreininni eru vinnu­gögn þau gögn sem stjórnvöld eða aðrir aðilar samkvæmt I. kafla laganna hafa ritað eða út­búið til eigin nota við undir­búning ákvörð­unar eða annarra lykta máls. Þá segir að gögn teljist ekki lengur til vinnugagna hafi þau verið afhent öðrum, nema þau hafi einvörðungu verið afhent eftirlitsaðila á grundvelli lagaskyldu. Með vísan til þess að 8. gr. upp­lýsingalaga er takmörkun á upplýsingarétti samkvæmt meginreglu 5. gr. laganna ber að mati nefndarinnar að túlka ákvæðið þröngt.
 

2.

Herjólfur hefur afhent úrskurðarnefndinni afrit af umbeðnu skjali og hefur nefndin ekki ástæðu til að draga í efa að skjalið sé það sama og var til kynningar á fyrrnefndum stjórnarfundi félagsins. Í skjalinu er meðal annars að finna sundurliðað yfirlit yfir áætlaðar tekjur og útgjöld félagsins vegna reksturs þess á árunum 2026–2028. Þá ber efni skjalsins með sér að um drög sé að ræða en í því er meðal annars að finna vangaveltur og spurningar í tengslum við forsendur fjárhagsáætlunarinnar. Herjólfur hefur borið því við í málinu að umbeðið skjal sé frá félaginu sjálfu og sé nýtt til að taka ákvarð­anir tengdar rekstri þess. Jafnframt að skjalið hafi ekki verið afhent öðrum að því undan­skildu að helstu lykiltölur hafi verið afhentar Vestmannaeyjabæ. Úrskurðarnefndin hefur ekki for­send­ur til þess að rengja þessar upplýsingar.
 
Svo sem greinir í málsmeðferðarkafla þessa úrskurðar sendi Herjólfur tölvupóst til Vestmanna­eyja­bæjar 24. október 2025 og veitti þar tilteknar upplýsingar úr fjárhagsáætluninni, eins og hún virð­ist hafa legið fyrir á þeim tíma. Í tölvupóstinum var greint frá helstu tekju- og gjaldaliðum fjár­hags­áætlunarinnar og tiltekið að upplýsingarnar væru veittar með þeim fyrirvara að stjórn Herjólfs væri ekki búin að funda um fjárhagsáætlunina og því gæti hún tekið breytingum fyrir seinni umræðu.
 
Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál þykir mega leggja til grundvallar, eins og atvikum er hér háttað, að afhending Herjólfs á framangreindum upplýsingum feli ekki í sér að umbeðið skjal hafi verið afhent öðrum í skilningi 1. mgr. 8. gr. upplýsingalaga. Í þessu samhengi skiptir máli að skjalið sjálft var ekki afhent Vestmannaeyjabæ með fyrrgreindum tölvupósti heldur ein­ung­is afmarkaðar upplýsingar. Þá er þess einnig að gæta að af samanburði af þeim upplýsingum sem voru veittar með tölvupóstinum og þeim upplýsingum sem koma fram í umbeðnu skjali má ráða að ýmsar upplýsingar, þá einkum varðandi tekjuliði áætlunarinnar, hafi tekið breytingum frá dag­setningu tölvupóstsins og þar til áætlunin var tekin fyrir og kynnt á fyrrgreindum stjórnarfundi Herjólfs 4. nóvember 2025.
 
Að framangreindu gættu og að teknu tilliti til efnis umbeðins skjals að öðru leyti er að mati úr­skurð­arnefndar um upplýsingamál um vinnugagn að ræða í skiln­ingi 8. gr. upplýsingalaga.
 
Þrátt fyrir að komist hafi verið að þeirri niðurstöðu að skjalið teljist til vinnugagns í skilningi upplýs­inga­laga getur engu að síður komið til afhendingar skjalsins ef ákvæði 3. mgr. 8. gr. upp­lýs­ingalaga á við um það. Í ákvæðinu er mælt fyrir um að þrátt fyrir 5. tölul. 6. gr. beri að afhenda vinnu­gögn ef:
 

  1. þar kemur fram endanleg ákvörðun um afgreiðslu máls,
  2. þar koma fram upplýsingar sem er skylt að skrá skv. 1. mgr. 27. gr.,
  3. þar koma fram upplýsingar um atvik máls sem ekki koma annars staðar fram,
  4. þar kemur fram lýsing á vinureglum eða stjórnsýsluframkvæmd á viðkomandi sviði.

 
Að mati úrskurðarnefndar um upplýsingamál verður að telja að umbeðið skjal hafi ekki að geyma endan­lega ákvörðun um afgreiðslu máls. Þá er hvorki í skjalinu að finna upplýsingar sem skylt er að skrá samkvæmt 1. mgr. 27. gr. upplýsingalaga né lýsingu á vinnureglum eða stjórnsýslufram­kvæmd á viðkomandi sviði. Verður því að telja að Herjólfi sé ekki skylt að afhenda umbeðið skjal á grundvelli 1., 2. eða 4. tölul. 3. mgr. 8. gr. upplýsingalaga.
 
Við mat á því hvort í skjalinu komi fram upplýsingar um atvik máls sem ekki koma annars stað­ar fram er rétt að líta til athugasemda við 3. mgr. 8. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að upplýsingalögum en þar segir:
 

Með þessu orðalagi er einkum vísað til upplýsinga um mikilvægar staðreyndir máls sem af ein­hverjum ástæðum er ekki að finna annars staðar en kunna að hafa haft áhrif á ákvörð­unar­töku. Rökin að baki þessari reglu eru einkum þau að slíkar upplýsingar geti verið ómissandi til skýringar á ákvörðun og af þeim orsökum sé ekki rétt að undanþiggja þær aðgangi almenn­ings enda þótt þær sé aðeins að finna í vinnuskjölum.

 
Eftir yfirferð á umbeðnu skjali er það mat nefndarinnar að þar komi ekki fram upplýsingar sem teljist til mikilvægra staðreynda máls eða séu ómissandi til skýringar á ákvörðun. Í þessu samhengi lítur nefndin meðal annars til þess að í fjárhagsáætlunum Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2026 og árin 2027–2029, sem samþykktar voru á fundi bæjarstjórnar 25. nóvember 2025,  koma fram upp­lýsingar um áætlaðar tekjur og áætlun um helstu kostnaðarliði Herjólfs á umræddum árum.
 
Samkvæmt öllu framangreindu verður að leggja til grundvallar að Herjólfi sé heimilt að undan­þiggja umbeðið skjal upplýsingarétti á grundvelli 5. tölul. 6. gr. upplýsingalaga. Verður afgreiðsla Herjólfs á beiðni kæranda því staðfest.
 

Úrskurðarorð

Staðfest er ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. um afgreiðslu á beiðni kæranda, […], dags. 18. nóvember 2025, um aðgang að drögum að fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið 2026 sem fjármálastjóri félagsins kynnti á stjórnarfundi félagsins 4. nóvember 2025.
 
 
 
 
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir