20 maí 2026
/
1359/2026. Úrskurður frá 20. maí 2026
Hinn 20. maí 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1359/2026 í máli ÚNU 26030013.
Kæra, málsatvik og málsmeðferð
Með erindi, dags. 18. mars 2026, kærði […] til úrskurðarnefndar um upplýsingamál ákvörðun Seðlabanka Íslands að synja beiðni hans um aðgang að gögnum.
Með erindi, dags. 9. ágúst 2024, tilkynnti fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands kæranda um að það væri frummat fjármálaeftirlitsins að kærandi […]. Með uppfærðu frummati fjármálaeftirlitsins, dags. 3. desember 2025, voru tvö fylgiskjöl þar sem tilgreindar upplýsingar höfðu verið afmáðar. Kærandi óskaði eftir aðgangi að þeim upplýsingum í erindi, dags. 30. janúar 2026. Beiðninni var hafnað með ákvörðun, dags. 19. febrúar 2026. Í ákvörðuninni kom fram að takmörkun á aðgangi að upplýsingunum væri byggð á 17. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
Kæra til úrskurðarnefndarinnar var kynnt Seðlabanka Íslands með erindi, dags. 27. mars 2026, og bankanum gefinn kostur á að koma á framfæri umsögn um kæruna. Þá var þess óskað að Seðlabanki Íslands afhenti úrskurðarnefnd um upplýsingamál þau gögn sem kæran varðar.
Umsögn Seðlabanka Íslands barst úrskurðarnefndinni 24. apríl 2026. Í umsögninni kom fram að farið væri fram á að kærunni yrði vísað frá nefndinni á þeim grundvelli að upplýsingarnar sem kærandi óskaði eftir féllu utan gildissviðs upplýsingalaga, nr. 140/2012, samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laganna.
Umsögn Seðlabanka Íslands var kynnt kæranda með erindi, dags. 27. apríl 2026, og honum gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum. Þær bárust 14. maí 2026. Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.
Niðurstaða
Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, gilda lögin ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum, nr. 37/1993. Stjórnsýslulög gilda þegar teknar eru ákvarðanir um rétt eða skyldu manna, sbr. 2. mgr. 1. gr. laganna. Um rétt til aðgangs að gögnum í slíkum málum fer samkvæmt ákvæðum 15.–19. gr. stjórnsýslulaga, en í 1. mgr. 15. gr. kemur fram að aðili máls eigi rétt á aðgangi að skjölum og öðrum gögnum er mál varða. Aðgangur að gögnum um aðila sjálfan getur því byggst hvort sem er á upplýsingalögum eða stjórnsýslulögum. Það hvor lögin eigi við ræðst af því hvort gögnin tilheyri stjórnsýslumáli þar sem tekin er ákvörðun um rétt eða skyldu.
Samkvæmt gögnum þessa máls hafði fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands til meðferðar mál sem varðaði […]. Brot gegn ákvæðinu geta varðað stjórnvaldssektum samkvæmt ákvörðun fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á grundvelli laga […]. Þar sem ákvörðun um að leggja á stjórnvaldssekt telst vera stjórnvaldsákvörðun er ljóst að framangreint mál telst vera stjórnsýslumál sem til greina kemur að ljúka með ákvörðun um rétt eða skyldu, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga.
Þær upplýsingar sem deilt er um aðgang að í málinu tilheyra fylgiskjölum með uppfærðu frummati fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands í máli […]. Ljóst er að gögnin tilheyra framangreindu stjórnsýslumáli, sem kærandi átti aðild að.
Af 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga leiðir að ákvarðanir um aðgang aðila máls að gögnum málsins verða ekki bornar undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Samkvæmt framangreindu falla gögn sem kæra í málinu varðar utan gildissviðs upplýsingalaga. Verður kærunni því vísað frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð
Kæru […], dags. 18. mars 2026, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir