30 júlí 2025
/
1288/2025. Úrskurður frá 30. júlí 2025
Hinn 30. júlí 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1288/2025 í máli ÚNU 25050015.
Kæra, málsatvik og málsmeðferð
Hinn 13. maí 2025 barst úrskurðarnefnd um upplýsingamál kæra frá Vinnuverndarnámskeiðum ehf. þess efnis að Vinnueftirlitið hefði ekki afgreitt beiðni kæranda um aðgang að gögnum innan 30 virkra daga, sbr. 3. mgr. 17. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012.
Með erindi, dags. 21. janúar 2025, lagði kærandi fram svohljóðandi beiðni til Vinnueftirlitsins:
Vinnuverndarnámskeið ehf. óskar eftir gögnum um fjölda tilkynntra vinnuslysa til Vinnueftirlitsins á árunum 2020 til og með 2024.
Þar sem eldri slysaskrá Vinnueftirlitsins er opin út árið 2019 og sambærilegur aðgangur hefur ekki verið veittur að nýju slysaskránni vantar Vinnuverndarnámskeið upplýsingar um slysatölfræði síðustu 5 ár. […]
Óskað er eftir að fá gögnin afhent í Excel skjali. Gögn sem óskað er eftir eru:
- Heildarfjöldi tilkynntra vinnuslysa til Vinnueftirlitsins eftir kyni 2020 til og með 2024
- Heildarfjöldi tilkynntra beinbrota til Vinnueftirlitsins eftir kyni 2020 til og með 2024
- Heildarfjöldi tilkynntra slysa þar sem fólk missti útlim, eftir kyni 2020 til og með 2024
- Heildarfjöldi tilkynntra slysa vegna falls á jafnsléttu, eftir kyni 2020 til og með 2024
- Heildarfjöldi tilkynntra slysa vegna falls úr hæð, eftir kynni 2020 til og með 2024
- Heildarfjöldi banaslysa eftir kyni 2020 til og með 2024
- Heildarfjöldi tilkynntra slysa eftir starfsgreinum og kyni 2020 til og með 2024
- Heildarfjöldi tilkynntra beinbrota eftir starfsgreinum og kyni 2020 til og með 2024
- Heildarfjöldi tilkynntra slysa eftir þjóðerni 2020 til og með 2024
- Heildarfjöldi tilkynntra beinbrota eftir þjóðerni 2020 til og með 2024
- Heildarfjöldi tilkynntra slysa við vinnuvélar eftir kyni 2020 til og með 2024
- Heildarfjöldi tilkynntra beinbrota við vinnuvélar eftir kyni 2020 til og með 2024
Kæran var kynnt Vinnueftirlitinu með erindi, dags. 22. maí 2025. Í erindinu mæltist nefndin til þess að beiðni kæranda yrði afgreidd eins fljótt og verða mætti. Hygðist stofnunin ekki afgreiða beiðnina eða ef afgreiðsla stofnunarinnar fæli í sér synjun beiðninnar færi nefndin þess á leit að nefndinni yrði send umsögn um málið ásamt afriti af þeim gögnum sem óskað hefði verið eftir.
Svar Vinnueftirlitsins barst 20. júní 2025. Í svarinu var vísað til þess að upplýsingaréttur samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga næði til þeirra gagna sem fyrir lægju þegar beiðni væri lögð fram og að ekki væri skylt að útbúa gögn í ríkari mæli en leiddi af 3. mgr. sömu lagagreinar. Þá kom fram að á grundvelli laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, skipulegði Vinnueftirlitið og héldi skrár á landsvísu þar sem fram kæmu upplýsingar um eitranir, vinnuslys og atvinnusjúkdóma sem tilkynnt væru til stofnunarinnar. Stofnunin ynni reglulega upplýsingar úr slysaskrá stofnunarinnar í því skyni að efla forvarnastarf á vinnustöðum. Stofnuninni væri hins vegar óskylt að taka saman umbeðnar upplýsingar á grundvelli upplýsingalaga, auk þess sem það myndi útheimta nokkra vinnu.
Með erindi, dags. 23. júní 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir afstöðu kæranda til þess hvort málinu skyldi haldið áfram. Samdægurs óskaði kærandi eftir því við úrskurðarnefndina að hún héldi áfram með málið, þar sem kæranda hefði ekki borist svar við beiðninni frá Vinnueftirlitinu.
Með erindi, dags. 27. júní 2025, upplýsti Vinnueftirlitið nefndina um að í ársskýrslu stofnunarinnar sem gefin hefði verið út daginn áður væri m.a. að finna upplýsingar um þróun vinnuslysa á innlendum vinnumarkaði sem unnar hefðu verið upp úr vinnuslysaskrá stofnunarinnar. Kærandi hefði verið upplýstur um það með erindi frá Vinnueftirlitinu.
Niðurstaða
Mál þetta varðar beiðni um aðgang að gagni á tilteknu formi um heildarfjölda tilkynntra vinnuslysa til Vinnueftirlitsins á árunum 2020 til 2024, þar sem upplýsingarnar eru flokkaðar á tiltekinn hátt. Kæra í málinu laut að því að Vinnueftirlitið hefði ekki afgreitt beiðni kæranda. Við meðferð málsins hjá nefndinni var beiðnin ekki afgreidd heldur umsögn skilað um málið til nefndarinnar. Kærandi fór, með vísan til umsagnar Vinnueftirlitsins, fram á að nefndin kvæði upp úrskurð um rétt hans til aðgangs að umbeðnum gögnum. Með vísan til 3. mgr. 17. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, mun nefndin úrskurða um rétt kæranda til aðgangs að þeim gögnum sem hann óskaði eftir.
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál leggur þann skilning í umsögn Vinnueftirlitsins, dags. 20. júní 2025, að ekki liggi fyrir gagn með þeim upplýsingum sem beiðnin varðar. Vinnueftirlitið telur að á grundvelli upplýsingalaga sé stofnuninni ekki skylt að taka saman þær upplýsingar sem kærandi hefur óskað eftir.
Í 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, er mælt fyrir um að upplýsingaréttur almennings nái til fyrirliggjandi gagna sem varða tiltekið mál og tiltekinna fyrirliggjandi gagna. Samkvæmt 3. málsl. 1. mgr. er ekki skylt að útbúa ný skjöl eða önnur gögn í ríkari mæli en leiðir af 3. mgr. 5. gr. laganna þar sem mælt er fyrir um að ef ákvæði 6.–10. gr. laganna eigi aðeins við um hluta gagns skuli veita aðgang að öðrum hlutum þess. Í athugasemdum við 5. gr. í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi upplýsingalögum, nr. 140/2012, segir að skilyrði þess að gagn sé undirorpið upplýsingarétti sé að það liggi fyrir hjá þeim sem fær beiðni um aðgang til afgreiðslu. Þá segir enn fremur að réttur til aðgangs að gögnum nái þannig aðeins til þeirra gagna sem til eru og fyrir liggja á þeim tímapunkti þegar beiðni um aðgang er sett fram og í þeirri mynd sem þau eru á þeim tíma.
Úrskurðarnefndin hefur ekki forsendur til að draga í efa að gagn með þeim upplýsingum sem kærandi óskaði eftir liggi ekki fyrir í vörslu stofnunarinnar. Þá telur nefndin að með hliðsjón af því hvernig beiðni kæranda var orðuð hafi hún ekki falið í sér ósk um aðgang að öllum þeim gögnum sem innihalda umbeðnar upplýsingar til að hann gæti sjálfur tekið saman yfirlit yfir þær. Úrskurðarnefndin leggur þann skilning í upplýsingar frá Vinnueftirlitinu að ekki sé hægt að kalla fram yfirlit yfir umbeðnar upplýsingar með einföldum hætti. Að þessu virtu og með vísan til 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga telur úrskurðarnefndin að Vinnueftirlitinu sé ekki skylt að verða við beiðni kæranda.
Samkvæmt framangreindu verður lagt til grundvallar að umbeðið gagn sé ekki fyrirliggjandi hjá Vinnueftirlitinu í skilningi upplýsingalaga og að stofnuninni sé óskylt að búa gagnið til samkvæmt upplýsingalögum.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Vinnueftirlitsins að synja beiðni kæranda, Vinnuverndarnámskeiða ehf., sem kemur fram í bréfi stofnunarinnar, dags. 20. júní 2025, er staðfest.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir