21 ágúst 2025

/

1295/2025. Úrskurður frá 21. ágúst 2025

Hinn 21. ágúst 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1295/2025 í máli ÚNU 25080001.
 

Kæra og málsatvik

Með erindi, dags. 1. ágúst 2025, barst úrskurðarnefnd um upplýsingamál kæra frá […]. Kær­unni fylgdi erindi frá kæranda til Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf., dags. 3. júlí 2025. Í erind­inu spurði kærandi hvort samskipti Vestmannaeyjahafnar og Herjólfs ohf. væru hnökralaus og með eðlilegum hætti. Félagið svaraði kæranda með erindi, dags. 8. júlí 2025. Í erindinu kom fram að Vestmannaeyjabær væri eigandi félagsins. Samskiptin fælust helst í því að framkvæmda­stjóri félagsins sækti reglulega bæjarráðsfundi svo ráðið væri upplýst um allt það helsta sem sneri að rekstri og flutningum Herjólfs. Öll þau samskipti væru með miklum ágætum, snurðulaus og eðli­leg.
 
Í kæru til úrskurðarnefndarinnar kemur fram að kærandi sé ekki viss um að samkomulag Vest­manna­eyjabæjar og Herjólfs ohf. séu upp á það besta. Kæran sé sú að Herjólfur ohf. verði úrskurð­að til að taka afstöðu til þess sem spurt var um og svara samkvæmt því.
 

Niðurstaða

Upplýsingaréttur almennings tekur samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, til að­gangs að fyrir­liggj­andi gögnum sem varða tiltekið mál og aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögn­um. Þegar aðili sem heyrir undir gildis­svið laganna tekur á móti erindi sem ber með sér að vera beiðni um aðgang að gögn­um á hann að athuga hvort fyrir liggi annaðhvort þau gögn sem bein­línis er óskað eftir eða gögn sem innihalda þær upplýsingar sem tilgreindar eru í beiðninni og taka ákvörðun um hvort aðgangur að gögn­un­um á grundvelli upplýsingalaga verði veittur.
 
Af upplýsingalögum verður ekki leidd sambærileg skylda til að svara erindum sem bera ekki með sér að vera beiðnir um að­gang að gögnum. Ekki er útilokað að skylt kunni að vera að bregðast við slík­um erind­um, sbr. 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og óskráða leið­beiningar­reglu þess efnis að stjórn­völd­um sé skylt að veita þeim sem til þeirra leita nauð­synlega aðstoð og leið­bein­ing­ar varðandi þau mál sem snerta starfssvið þeirra. Hins vegar er það ekki hlutverk úrskurðar­nefnd­ar um upp­lýs­inga­mál að skera úr um rétt beiðanda til að fá svar við slíku erindi eða ágrein­ing um það hvort erindinu hafi verið svarað með full­nægjandi hætti, enda byggja kæruheimildir til nefnd­arinnar í upplýsingalögum á því að beðið hafi verið um aðgang að gögnum, sbr. 3. mgr. 17. gr. og 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga. Þá þarf og að liggja fyrir beiðni um aðgang að gögnum sam­kvæmt upplýsingalögum til að kæru, vegna óhóflegs dráttar á afgreiðslu máls samkvæmt 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, teljist réttilega beint til úrskurðarnefndarinnar.
 
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir erindi kæranda til Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. og telur erind­ið ekki bera með sér að vera beiðni um gögn í skilningi upplýsingalaga heldur almenn fyrir­spurn til félagsins. Af þeim sökum verður kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.
 

Úrskurðarorð

Kæru […], dags. 1. ágúst 2025, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
 
 
 
 
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir