Mál nr. 332/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 332/2026
Fimmtudaginn 13. ágúst 2026
A gegn Garðabæ
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 8. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Garðabæjar, dags. 8. maí 2026, um að synja umsókn hans um fjárhagsaðstoð fyrir apríl 2026.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi hefur þegið fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Garðabæ samfleytt frá febrúar 2026. Með umsókn, dags. 25. apríl 2026, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð fyrir aprílmánuð 2026. Umsókn kæranda var synjað á fundi fjárhagsaðstoðar Garðabæjar 29. apríl 2026 og var sú ákvörðun staðfest á fundi velferðarráðs Garðabæjar 8. maí 2026.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. maí 2026. Með bréfi, dags. 12. maí 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Garðabæjar ásamt gögnum málsins. Greinargerð og gögn bárust frá Garðabæ 26. maí 2026 og voru kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. maí 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 29. maí 2026 og voru þær kynntar Garðabæ með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. júní 2026. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála kemur fram að kærandi hafi misst af fjórum fundum til að staðfesta viðveru þar sem hann hafi þjáðst af brjósklosi í baki og taugaverkjum, settaugabólgu, í fæti. Kærandi hafi ekki getað hreyft sig eðlilega eða mætt á tilskildum tíma vegna heilsufars. Kærandi sé flóttamaður og sé nýkominn til Íslands. Kærandi búi við mjög erfiðar fjárhagslegar og andlegar aðstæður. Kærandi hafi enga stöðuga innkomu, hafi ekki efni á að greiða leigu fyrir herbergi og þurfi stundum að sofa í bíl vinar síns þar sem kærandi hafi ekkert öruggt húsnæði. Fjárhagsstaða kæranda sé svo erfið að hann hafi stundum ekki efni á að kaupa mat eða þau lyf sem hann þurfi vegna heilsufars síns. Kærandi óski þess að ákvörðunin verði endurskoðuð og að honum verði aftur veitt fjárhagsaðstoð þar sem fjarvera hans á fundunum hafi ekki verið af vilja gerð heldur sökum heilsufars hans og þeim erfiðu aðstæðum sem hann búi við.
III. Sjónarmið Garðabæjar
Í greinargerð Garðabæjar kemur fram að kærandi hafi þegið fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Garðabæ frá því í febrúar 2026 og hafi fjárhagsaðstoðin að jafnaði verið greidd til kæranda eftir á. Í 1. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ sem hafi verið samþykktar 19. febrúar 2026 og byggi á áður samþykktum reglum, komi fram að fjárhagsaðstoð skuli að jafnaði veitt íbúum í tímabundnum erfiðleikum. Aðstoðina beri að skoða sem samvinnu Garðabæjar og þess sem aðstoðarinnar njóti þar sem hjálp til sjálfshjálpar sé leiðarljósið. Umsækjanda hafi verið tilkynnt við upphaf þjónustu hjá sveitarfélaginu að hann yrði að sinna mætingarskyldu tvisvar í viku samkvæmt 16. gr. reglna Garðabæjar um fjárhagsaðstoð á því tímabili sem hann hygðist sækja um framfærslu frá sveitarfélaginu.
Kærandi hafi sótt um fjárhagsaðstoð í fyrsta skipti í febrúar 2026 og hafi samhliða þeirri umsókn óskað eftir strætó- og sundkortum. Þann 4. mars 2026 hafi kærandi skilað læknisvottorði til sveitarfélagsins þar sem segi að hann sé óvinnufær eftirfarandi þrjá mánuði frá dagsetningu vottorðsins sökum bakvandamáls. Ráðgjafi í samræmdri móttöku flóttafólks, sem hafi hitt kæranda, hafi ekki talið hann eiga í svo miklum erfiðleikum með hreyfingu að hann gæti ekki mætt á bæjarskrifstofuna tvisvar í viku og hafi þá lagt til við kæranda að hann nýtti ferðir sínar í sundlaug Garðabæjar til þess að koma við á bæjarskrifstofunum til að staðfesta komu sína.
Kærandi hafi staðfest mætingu sína í þjónustuveri Garðabæjar í alls tíu skipti á tímabilinu 23. febrúar til 30. mars 2026. Þann 8. apríl 2026 hafi ráðgjafi kæranda sent honum bréf þar sem kynnt hafi verið breytt fyrirkomulag mætingarskyldu vegna fjárhagsaðstoðar. Umsækjandi hafi opnað og lesið það bréf í þjónustugátt sama dag samkvæmt skráningum í samskiptakerfi sveitarfélagsins.
Umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir apríl 2026 hafi borist velferðarsviði Garðabæjar 25. apríl 2026 í gegnum þjónustugátt sveitarfélagsins. Kærandi hafi aldrei sinnt mætingarskyldu á tímabilinu 1. til 26. apríl 2026 og hafi aðeins tvisvar sinnt mætingarskyldu í öllum aprílmánuði, eða dagana 27. og 30. apríl 2026. Þann 15. apríl 2026 hafi kærandi fengið sendan tölvupóst þar sem hann hafi verið áminntur fyrir skort á mætingu og honum tjáð að án úrbóta á mætingu yrði fjárhagsaðstoð skert. Kærandi hafi svarað þeim tölvupósti 28. apríl 2026 og hafi andmælt fyrirhugaðri skerðingu, sagst taka ábyrgð á því að hafa ekki mætt og að hann skyldi bæta mætingar í framtíðinni. Kærandi hafi ekki borið við í þeim pósti að heilsufar hans hafi valdið því að honum hafi verið ómögulegt að sinna mætingarskyldu á umræddu tímabili. Umsókninni hafi verið synjað á afgreiðslufundi fjárhagsaðstoðar 29. apríl 2026 þar sem kærandi hefið ekki gefið neinar haldbærar skýringar fyrir því að hafa ekki sinnt mætingarskyldu í apríl 2026. Í bókun fundarins segi:
„Aðstæður umsækjanda uppfylla skilyrði 10. og 11. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ, sbr. i. lið a. liðar 3. mgr. 6. gr. leiðbeinandi reglna Velferðarráðuneytisins fyrir sveitarfélög um móttökuþjónustu og aðstoð við félagslega þátttöku flóttafólks. Fjárhagsaðstoð þessi er endurgreidd af ríkissjóði, sbr. b. lið 2. mgr. 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991. Skerðing á kvarða vegna búsetuskilyrða, (kr. 218.416), sbr. 10. gr. Skv. 5. mgr. 16. gr. reglna Garðabæjar um fjárhagsaðstoð er heimilt að gera kröfu um að umsækjandi sanni á sér deili í eigin persónu tvisvar í viku. Sinni umsækjandi ekki fyrrgreindri mætingarskyldu er heimilt að skerða fjárhagsaðstoð hlutfallslega. Þar sem umsækjandi hefur ekki mætt í fjögur skipti sem honum bar að mæta og staðfesta sig í apríl fellur greiðsla fjárhagsaðstoðar niður. Því er synjað að veita fjárhagsaðstoð fyrir apríl.“
Kærandi hafi andmælt niðurstöðunni í tölvupósti, dags. 5. maí 2026, og vísað til bágrar fjárhagsstöðu sinnar.
Í 5. mgr. 16. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ frá 19. febrúar 2026 segi að heimilt sé að gera kröfu um að umsækjandi sanni á sér deili í eigin persónu og framvísi gildu persónuskilríki tvisvar í viku. Sé því ekki sinnt missi umsækjandi hlutfallslegan rétt til fjárhagsaðstoðar. Missi umsækjandi um fjárhagsaðstoð af fjórum staðfestingarskiptum í mánuði sé fjárhagsaðstoð skert um 100%. Markmið mætingarskyldunnar sé tvíþætt. Annars vegar sé henni ætlað að auka virkni umsækjenda og tengsla þeirra við nærumhverfi sitt og hins vegar koma í veg fyrir að umsækjendur séu erlendis í umsóknarmánuði eða sinni ef til vill störfum á hefðbundnum vinnutíma og þiggi óuppgefnar tekjur.
Kærandi hafi enn engar haldbærar skýringar gefið fyrir skorti á mætingu í apríl 2026. Í ljósi þess sé það mat starfsmanna velferðarsviðs Garðabæjar að óhjákvæmilegt hafi verið að taka ákvörðun um 100% skerðingu á fjárhagsaðstoð til kæranda fyrir aprílmánuð 2026 á grundvelli sjónarmiða um jafnræði, markmiða 5. mgr. 16. gr. reglnanna og skorts á samvinnuþýði kæranda við velferðarþjónustu Garðabæjar. Eins og áður hafi komið fram beri að skoða fjárhagsaðstoð sem samvinnu Garðabæjar og þess sem aðstoðarinnar njóti og verði sveitarfélagið að hafa tæki til þess að knýja fram það samstarf.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Garðabæjar um að synja umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð fyrir apríl 2026 á grundvelli 16. gr. reglna Garðabæjar um fjárhagsaðstoð.
Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr.
Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Sveitarfélög skuli tryggja að stuðningur við íbúa sem hafi barn á framfæri sé í samræmi við það sem sé barninu fyrir bestu. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.
Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.
Í 1. gr. reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ er kveðið á um inntak og markmið fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram í 1. mgr. að Garðabær veiti fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geti séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Samkvæmt 4. mgr. 1. gr. reglnanna ber að skoða fjárhagsaðstoð sem samvinnu Garðabæjar og þess sem aðstoðarinnar njóti, þar sem hjálp til sjálfshjálpar sé leiðarljósið. Aðstoðinni skuli beitt í eðlilegum tengslum við önnur úrræði fjölskyldusviðs, s.s. ráðgjöf og leiðbeiningar svo og í tengslum við úrræði annarra stofnana samfélagsins. Samkvæmt 1. mgr. 2. gr. reglnanna er hverjum manni skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára, sbr. 19. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Þeim sem sækja um aðstoð samkvæmt reglunum er skylt að leita sér að atvinnu og taka þeirri atvinnu sem bjóðist nema því aðeins að veikindi, örorka, hár aldur eða aðrar staðfestar ástæður hamli því.
Í 16. gr. reglnanna er fjallað um synjun/skerðingu fjárhagsaðstoðar. Í 5. mgr. segi:
„Heimilt er að gera kröfu um að umsækjandi sanni á sér deili í eigin persónu og framvísi gildu persónuskilríki tvisvar í viku. Sé því ekki sinnt missir hann hlutfallslegan rétt til fjárhagsaðstoðar. Ef ekki er mætt í eitt skipti í umsóknarmánuði er heimilt að áminna umsækjanda. Við aðra fjarvist er heimilt að skerða fjárhagsaðstoð um helming, í þriðja skipti skerðist fjárhagsaðstoð um 75% og ef ekki er mætt í fjögur skipti þann mánuð fellur greiðsla fjárhagsaðstoðar niður. Undantekning frá skerðingu er að viðkomandi sýni fram á réttmæta ástæðu, s.s. með framvísun læknisvottorðs eða sambærilegum gögnum. Sæki umsækjandi um fjárhagsaðstoð að nýju og hefur verið fjarverandi í eitthvert skipti fyrri mánuði er heimilt að skerða fjárhagsaðstoð að nýju og hefur verið fjarverandi í eitthvert skipti fyrri mánuði er heimilt að skerða fjárhagsaðstoð um helming við fyrstu fjarvist, enda hafi umsækjandi verið áminntur fyrir fjarveru sína fyrri mánuði.“
Samkvæmt bréfi velferðarsviðs Garðabæjar, dags. 8. apríl 2026, var kæranda greint frá því að honum væri skylt að mæta til sveitarfélagsins alla mánudaga og fimmtudaga með gild persónuskilríki til að sanna á sér deili. Það væri skilyrði fyrir því að fá fulla fjárhagsaðstoð. Kæranda var einnig greint frá því að heimilt væri að skerða fjárhagsaðstoð ef því væri ekki sinnt. Þá var tekið fram hvað gæti fallið undir réttlætanlegar ástæður fyrir forföllum og hvernig ætti að bera sig að ef slíkt kæmi upp. Fyrir liggur að kærandi mætti aðeins tvisvar í aprílmánuði til að sinna mætingarskyldu sinni, eða dagana 27. og 30. apríl 2026. Kærandi hafði þann 15. apríl 2026 fengið sendan tölvupóst þar sem hann var áminntur fyrir skort á mætingu og tjáð að án úrbóta yrði fjárhagsaðstoð skert.
Líkt og að framan greinir er það hlutverk sveitarfélaga að tryggja að íbúar þess geti séð fyrir sér og sínum, sbr. 1. mgr. 12. gr. laga nr. 40/1991. Nánari útfærsla á þeirri skyldu er í höndum hvers sveitarfélags, með setningu reglna þar um. Í reglum Garðabæjar um fjárhagsaðstoð kemur skýrt fram að umsækjandi um fjárhagsaðstoð skuli sanna á sér deili í eigin persónu og framvísa gildu persónuskilríki tvisvar í viku. Þá kemur skýrt fram að heimilt sé að skerða fjárhagsaðstoð ef einstaklingur sinnir ekki mætingaskyldu.
Óumdeilt er að kærandi mætti einungis tvisvar á bæjarskrifstofuna á tímabilinu 1. til 30. apríl 2026 til að sanna á sér deili en ekki tvisvar í viku eins og honum bar samkvæmt 16. gr. reglna Garðabæjar. Kærandi hefur vísað til þess að hann hafi ekki komist vegna heilsufars síns. Ekki verður séð að kærandi hafi framvísað læknisvottorði því til staðfestingar eða verið í samskiptum við félagsráðgjafa vegna sinnar stöðu. Að mati úrskurðarnefndarinnar hefur kærandi því ekki sýnt fram á réttmæta ástæðu fyrir fjarveru sinni. Að því virtu og með vísan til framangreinds er ákvörðun Garðabæjar um að synja kæranda um fjárhagsaðstoð í aprílmánuði 2026 staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Garðabæjar, dags. 8. maí 2026, um að synja A, um fjárhagsaðstoð, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir