13. ágúst 2026 /

Mál nr. 335/2026-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 335/2026

Fimmtudaginn 13. ágúst 2026

A gegn Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 10. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings frá 17. febrúar 2026 vegna umsóknar hennar um liðveislu.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um 20 tíma á mánuði í liðveislu frá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings 29. janúar 2026. Þann 3. febrúar 2026 var samþykkt að veita kæranda 10 tíma í liðveislu á mánuði. Sú ákvörðun var staðfest á fundi velferðarþjónustu Árnesþings þann 17. febrúar 2026.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 10. maí 2026. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. maí 2026, var óskað eftir greinargerð Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings ásamt gögnum málsins. Greinargerð barst úrskurðarnefndinni 3. júní 2026 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. júní 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi sé X ára gömul kona með greiningar um kvíðaröskun, einhverfu og flogaveiki. Hún sé nýflutt frá foreldrum sínum í sérstakt búsetuúrræði á B. Flutningur feli í sér verulega breytingu á stuðningsumhverfi kæranda og kalli á aukinn og markvissan stuðning til að tryggja farsæla aðlögun, félagslega virkni og viðhald lífsgæða.

Kærandi hafi áhuga á xæfingum á Selfossi sem gegni mikilvægu hlutverki í líkamlegri og andlegri heilsu hennar, auk þess að efla félagslega þátttöku og félagsfærni. Vegna kvíðaröskunar og flogaveiki treysti kærandi sér ekki til að fara ein í slíkar ferðir og þarfnist fylgdar og stuðnings til að tryggja öryggi og virkni utan heimilis.

Fjarlægð frá búsetuúrræði á B að Selfossi sé um 30 kílómetrar og krefjist þátttaka í xæfingum því skipulagningar, ferðatíma og fylgdar. Án slíks stuðnings sé hætta á félagslegri einangrun og skertri þátttöku í þeirri virkni sem hafi jákvæð áhrif á líðan, heilsu og félagslega færni. Liðveisla teljist því nauðsynleg viðbót við þá þjónustu sem veitt sé í búsetuúrræði.

Þá hafi Ísland fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem hafi leiðbeinandi gildi við framkvæmd þjónustu við fatlað fólk. Samkvæmt 19. gr. samningsins eigi fatlaðir einstaklingar rétt á að lifa sjálfstæðu lífi og taka fullan þátt í samfélaginu með þeim stuðningi sem nauðsynlegur sé til að koma í veg fyrir félagslega einangrun. Einnig kveði 30. gr. samningsins á um rétt fatlaðs fólks til þátttöku í tómstunda-, íþrótta- og menningarlífi til jafns við aðra.

Áætlað sé að kærandi taki þátt í xæfingum á Selfossi að jafnaði tvisvar í viku. Hver ferð feli oftast í sér ferð til og frá Selfossi, um 60 kílómetra samtals, ásamt undirbúningi og stuðningi við ferðalag. Fylgd og stuðningi á xæfingum ásamt stuðningi við aðlögun að félagslegu umhverfi og öryggi vegna heilsufars. Áætlaður tími fyrir hverja ferð sé um 2.5 klukkustundir. Tvisvar í viku jafngildi það um fimm klukkustundum á viku. Á mánuði jafngildi það um 20 klukkustundum.

Með hliðsjón af framangreindu sé metið að 20 tímar á mánuði séu nauðsynlegir til að tryggja reglulega þátttöku í xæfingum og annarri félagslegri virkni, stuðla að stöðugleika í líðan, efla sjálfstæði og tryggja virka samfélagsþátttöku í samræmi við markmið gildandi laga og alþjóðlegra skuldbindinga Íslands.

Þjónusta í sértæku búsetuúrræði samkvæmt lögum nr. 38/23018 beinist fyrst og fremst að daglegu lífi, umönnun og stuðningi innan heimilis. Liðveisla sé hins vegar sértæk þjónusta sem miði að þátttöku í samfélagi, tómstundum, félagslífi og sjálfstæði utan heimilis.

Því sé um tvær ólíkar þjónustur með mismunandi markmið að ræða. Þá telji kærandi að búsetuúrræði komi ekki í stað liðveislu. Heilsufarslegar forsendur kalli á fylgd eins og fram komi en kærandi sé með kvíðaröskun, einhverfu og flogaveiki. Þessar greiningar hafi áhrif á getu til að ferðast ein og hæfni til að takast á við ófyrirsjáanlegar aðstæður. Án fylgdar megi því gera ráð fyrir auknum kvíða, minni þátttöku og aukinni hættu vegna flogaveiki.

Liðveisla sé því ekki valkvæð þjónusta heldur forsenda fyrir öruggri þátttöku utan heimilis. Það sé mat kæranda að félagsleg einangrun sé raunveruleg áhætta fái hún ekki þann stuðning sem hún þarfnist. Það dragi úr þátttöku í skipulögðu starfi, minnki félagsleg tengsl og auki þannig hættu á einangrun. Þetta sé sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að hún sé nýflutt að heiman og hafi misst fyrra stuðningsnet og sé á sama tíma í viðkvæmu aðlögunarferli. Liðveisla sé því lykilþáttur í að fyrirbyggja félagslega einangrun.

Flutningur frá foreldraheimili í búsetuúrræði sé ein stærsta breyting sem einstaklingur með slíkar áskoranir gangi í gegnum. Kærandi þarfnist því aukins stöðugleika, fyrirsjáanleika og markviss stuðnings utan heimilis. Að veita ekki nægan stuðning á þessu stigi geti haft langtíma neikvæð áhrif á sjálfstæði og lífsgæði.

xæfingar hjá kæranda séu hluti af meðferð og félagslegri þátttöku sem styðji líkamlega heilsu, dragi úr kvíða, efli félagsfærni og skapi reglu og ramma. Án aukinna tíma í liðveislu geti hún ekki nýtt sér þessa virkni.

III.  Sjónarmið Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

Í greinargerð Skóla- og Velferðarþjónustu Árnesþings kemur fram að umsókn um félagslega liðveislu fyrir kæranda hafi borist þann 29. janúar 2026. Umsóknin hafi verið tekin fyrir á afgreiðslu- og meðferðarfundi Árnesþings þann 3. febrúar 2026 og hafi eftirfarandi verið bókað:

„Samþykkt að veita A liðveislu samkvæmt reglum velferðarþjónustu Árnesþings um stuðningsþjónustu. Samþykkt nær til 10 tíma á mánuði.“

Í kjölfarið hafi kæranda verið sent svarbréf, dags. 4. febrúar 2026.

Við afgreiðslu umsóknarinnar hafi verið horft til viðmiðunarreglna Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings vegna einstaklingsstuðnings (félagsleg liðveisla og persónulegur ráðgjafi). Í 2. gr. þeirra reglna segi svo:

„Veittar eru að hámarki 10 klukkustundir í einstaklingsstuðning á mánuði. Heimilt er að víkja frá þeim viðmiðum ef sérstök rök liggja fyrir. Við sérstakar aðstæður er heimilt að veita einstaklingsstuðning í allt að 20 klukkustundir á mánuði. Tímafjöldi einstaklingsstuðnings er ákvarðaður út frá faglegu mati skóla- og velferðarþjónustu og stöðu umsækjanda hverju sinni.“

Þann 11. febrúar 2026 hafi ráðgjafarþroskaþjálfa borist í tölvupósti rökstuðningur fyrir 16 til 20 tímum á mánuði í liðveislu, undirritaður af C og D. Erindið hafi verið tekið fyrir á afgreiðslu- og meðferðarfundi velferðarþjónustu þann 17. febrúar 2026, þar sem eftirfarandi hafi verið bókað:

„Á afgreiðslu- og meðferðarfundi þann 3. febrúar 2026 var samþykkt að veita umsækjanda 10 klst. á mánuði í einstaklingsstuðning (liðveislu) skv. Viðmiðunarreglum Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings vegna einstaklingsstuðnings.

Aðstandendur umsækjanda sendu í framhaldi erindi þar sem óskað er eftir aukningu í 16-20 klst. á mánuði. Vísað er til aðlögunar umsækjanda að búsetu að B, félagslegrar virkni og lífsgæða. Kynnt var bréf frá starfsmanni B og móður umsækjanda þar sem fram kemur mat um þörf fyrir 20 klst. á mánuði.

Við meðferð málsins var lagt mat á stuðningsþörf umsækjanda og fyrirliggjandi þjónustu. Umsækjandi býr í sértæku búsetuúrræð á B sem veitir þjónustu við fatlað fólk á grundvelli þjónustusamnings við Bergrisa bs. Samkvæmt 2. og 5. gr. samningsins hafa B skuldbundið sig til að veita íbúum nauðsynlegan stuðning og félagslega þjónustu í samræmi við lög nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Metið er að stuðningsþörf umsækjanda sé mætt með þjónustu búsetuúrræðisins og samþykktum 10 klst. á mánuði í einstaklingsstuðningi frá sveitarfélaginu. Beiðni um aukningu einstaklingsstuðnings (liðveislu) í 16-20 klst. á mánuði er synjað. Mánaðarlegur tímafjöldi einstaklingsstuðnings (liðveislu) er því áfram 10 klst. á mánuði, sbr. samþykkt afgreiðslu- og meðferðarfundar 3. febrúar 2026.“

Í kjölfarið hafi kæranda verið sent svarbréf, dags. 18. febrúar 2026.

Við afgreiðslu umsóknarinnar hafi það verið mat sveitarfélagsins að 10 klukkustundir á mánuði væru hæfilegir í félagslega liðveislu fyrir kæranda. Sá tímafjöldi væri í samræmi við viðmiðunarreglur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings og með samþykkt á þeim tímafjölda væri einnig verið að gæta jafnræðis þar sem aðrir þjónustunotendur með þjónustusamning við B séu einnig að fá 10 klst. á mánuði í einstaklingsstuðning.

Þá hafi verið horft til þess að kærandi sé með þjónustusamning við B. B starfi eftir samningi við Bergrisa bs. en samkvæmt þeim samningi geri B þjónustusamning við þjónustunotanda um þjónustu samkvæmt lögum 38/2018 um eftirtalda þjónustu: Stoðþjónustu, sbr. 8. gr. laganna, búsetuþjónustu, sbr. 9. gr. laganna og verndaða vinnu, hæfingu og dagþjónustu, sbr. 24. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er afgreiðsla Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings á umsókn kæranda um liðveislu. Kærandi fékk samþykkta 10 tíma á mánuði en hafði óskað eftir 20 tímum.

Í VII. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga er fjallað um stuðningsþjónustu. Markmið stuðningsþjónustu er að aðstoða og hæfa notendur sem þurfa aðstæðna sinna vegna á stuðningi að halda við athafnir daglegs lífs og/eða til þess að rjúfa félagslega einangrun. Stuðningsþjónusta skal stefna að því að efla viðkomandi til sjálfsbjargar og gera honum kleift að búa sem lengst í heimahúsi, sbr. 25. gr. laganna. Samkvæmt 1. mgr. 26. gr. laganna er sveitarfélagi skylt að sjá um stuðningsþjónustu til handa þeim sem búa á eigin heimilum og þurfa aðstoð vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, álags, veikinda eða fötlunar. Stuðningsþjónustu skal veita svæðisbundið með þeim hætti sem best hentar á hverjum stað. Aðstoð skal veitt fjölskyldum barna sem metin eru í þörf fyrir stuðning. Aðstoð skal veitt innan og utan heimilis samkvæmt reglum sem sveitarfélagið setur.

Samkvæmt 2. mgr. 26. gr. laganna er sveitarfélagi ekki skylt að veita stuðningsþjónustu á stofnunum, svo sem á sjúkrahúsi og öldrunarstofnun. Samvinna skuli þó alltaf höfð við viðkomandi stofnun, sbr. 62. gr. laganna. Í athugasemdum við 26. gr. í frumvarpi til laga nr. 37/2018 um breytingu á lögum nr. 40/1991 kemur fram að ekki sé skylt að veita þjónustu á öðrum stofnunum en sveitarfélagi sé þó alltaf heimilt að gera slíkt, til dæmis að veita stuðningsþjónustu fyrir einstakling sem vistast á slíkri stofnun til að rjúfa félagslega einangrun og fara úr slíkri stofnun og sinna tómstundum. Slíkt yrði þó alltaf að gera í samvinnu við þjónustuveitanda þar sem viðkomandi býr eða vistast.

Í 3. mgr. 26. gr. laganna kemur fram að ráðherra skuli gefa út leiðbeiningar um framkvæmd stuðningsþjónustu, tímafjölda og mat á þörf fyrir þjónustu í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga. Þá segir að sveitarstjórn skuli setja nánari reglur um stuðningsþjónustu á grundvelli leiðbeininga ráðherra. Lög um félagsþjónustu sveitarfélaga veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til að meta sjálf, miðað við aðstæður á hverjum stað, hvers konar þjónustu þau vilja veita. Í samræmi við þetta og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur viðkomandi sveitarstjórnar. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti. Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings hefur útfært nánar framkvæmd stuðningsþjónustu með viðmiðunarreglum um einstaklingsstuðning (félagsleg liðveisla og persónulegur ráðgjafi) sem samþykktar voru í fagnefnd Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings 13. janúar 2026.

Í 1. gr. framangreindra reglna er kveðið á um markmið einstaklingsstuðnings. Þar segir í 1. mgr. að markmið einstaklingsstuðnings sé að rjúfa félagslega einangrun, efla samfélagsþátttöku og efla einstakling til aukinnar sjálfshjálpar. Í einhverjum tilvikum geti markmið einstaklingsstuðning verið að viðhalda færni eða einungis gera notenda kleift að njóta menningar- og félagslífs.

Í 2. gr. reglnanna er kveðið á um tímafjölda. Þar segir í 1. mgr. ákvæðisins að veittar séu að hámarki 10 klukkustundir í einstaklingsstuðning á mánuði. Heimilt sé að víkja frá þeim viðmiðum ef sérstök rök liggi fyrir. Við sérstakar aðstæður sé heimilt að veita einstaklingsstuðning í allt að 20 klukkustundir á mánuði. Í 2. mgr. 2. gr. segir að tímafjöldi einstaklingsstuðnings sé ákvarðaður út frá faglegu mati skóla- og velferðarþjónustu og stöðu umsækjanda hverju sinni.

Umsókn kæranda um 20 tíma á mánuði í liðveislu var synjað á þeirri forsendu að hún byggi í sértæku búsetuúrræði á B sem veiti þjónustu við fatlað fólk á grundvelli þjónustusamnings við Bergrisa bs. Samkvæmt 2. og 5. gr. samningsins hafi B skuldbundið sig til að veita íbúum nauðsynlegan stuðning og félagslega þjónustu í samræmi við lög nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Það væri metið sem svo að stuðningsþörf kæranda væri mætt með þjónustu búsetuúrræðisins og samþykktum 10 klukkustundum á mánuði í einstaklingsstuðningi frá sveitarfélaginu.

Fyrir úrskurðarnefndinni hefur Skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings vísað til þess að sá tími sé í samræmi við viðmiðunarreglur og með samþykkt á þeim tímafjölda væri einnig verið að gæta jafnræðis þar sem aðrir þjónustunotendur með þjónustusamning við B væru að fá 10 klukkustundir á mánuði í einstaklingsstuðning. Af hálfu kæranda hefur komið fram að kærandi sé nýflutt að heiman og að xæfingar séu hluti af meðferð og félagslegri þátttöku. Til að geta stundað xæfingar, sem séu tvisvar í viku, þurfi kærandi liðveislu í 20 klukkustundir á mánuði.

Með vísan til framangreindrar meginreglu 2. mgr. 26. gr. laga nr. 40/1991 um að sveitarfélögum sé ekki skylt að veita stuðningsþjónustu á stofnunum og þess að kærandi fékk samþykktar 10 klukkustundir í stuðningsþjónustu telur úrskurðarnefndin ekki ástæðu til að gera athugasemd við framangreint mat Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings. Ekki verður annað ráðið en að sveitarfélagið hafi lagt fullnægjandi mat á aðstæður kæranda og er niðurstaða þess mats í samræmi við reglur sveitarfélagsins. Að því virtu er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Afgreiðsla Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings frá 17. febrúar 2026 vegna umsóknar A, um liðveislu er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir