Úrskurður nr. 280/2026
Hinn 20. ágúst 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 280/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU25120063
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. desember 2025 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari Taílands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. desember 2025, um að synja umsókn hennar um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið, sbr. 78. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Með ákvörðuninni var kæranda jafnframt ákvörðuð brottvísun og tveggja ára endurkomubann, sbr. 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á umsókn hennar um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið. Þá krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa kæranda á brott frá Íslandi verði felld úr gildi og að kæranda verði heimiluð dvöl á Íslandi. Loks krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar um tveggja ára endurkomubann verði felld úr gildi.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Hinn 15. ágúst 2018 fékk kærandi fyrst útgefið dvalarleyfi hér á landi og hefur frá þeim tíma endurnýjað dvalarleyfi sitt fjórum sinnum, það síðasta með gildistíma til 9. maí 2023. Hinn 18. janúar 2024 sótti kærandi um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið. Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 1. júlí 2024, óskaði stofnunin eftir frekari gögnum vegna málsins. Hinn 7. október 2024 var ákvörðun tekin um að umsókn kæranda yrði tekin til meðferðar sem endurnýjun dvalarleyfis en ekki fyrsta leyfi vegna ríkra sanngirnisástæðna. Kærandi lagði fram frekari gögn 10. október 2024. Með tölvubréfi Útlendingastofnunar til kæranda, dags. 11. október 2024, var kærandi upplýst um að framlögð gögn hafi ekki sýnt fram á að hún uppfylli lágmarksframfærsluviðmið fyrir útgáfu tímabundinna dvalarleyfa. Með tölvubréfi kæranda til Útlendingastofnunar, dags. 7. nóvember 2024, kemur fram að dóttir kæranda sé búsett hjá henni og að hún aðstoði kæranda við að framfleyta sér. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. desember 2025. Í ákvörðuninni kemur fram að kærandi hafi lagt fram gögn sem sýni fram á að tekjur hennar hafi numið um 190.000 krónum yfir þriggja mánaða tímabil. Kærandi hafi ekki sýnt fram á að hún hafi atvinnu, eigi bankainnistæðu eða önnur gögn sem sýnt gætu fram á að hún sé fær um að framfleyta sér á meðan dvöl hennar standi. Kærandi var því ekki talin uppfylla skilyrði dvalarleyfis samkvæmt a-lið 1. mgr. 55. gr. laga um útlendinga og umsókn hennar um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla, sbr. 78. gr. laga um útlendinga, því synjað. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda samdægurs.
Hinn 12. desember 2025 lagði kærandi fram stjórnsýslukæru. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 15. desember 2025, var kæranda veittur frestur til að leggja fram greinargerð. Greinargerð kæranda barst kærunefnd ásamt fylgigögnum 9. janúar 2026. Frekari gögn bárust kærunefnd 2. júlí 2026. Kærunefnd óskaði 7. ágúst 2026 eftir frekari gögnum um framfærslu kæranda og var veittur frestur til 11. ágúst til framlagningar þeirra gagna. Engin frekari gögn bárust frá kæranda.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að Útlendingastofnun hafi haldið því fram að kærandi hafi þegið félagslega fjárhagsaðstoð í mörg ár samkvæmt gögnum málsins. Kærandi telji framangreint ekki vera á rökum reist en hún hafi aldrei þegið félagslega fjárhagsaðstoð. Dóttir kæranda hafi hjálpað henni með framfærslu en þær búi saman. Kærandi óski eftir því að kærunefnd hlutist til um að kalla eftir gögnum frá Útlendingastofnun sem sanni framangreint. Kærandi telji að misskilningur hafi átt sér stað eftir fráfall maka hennar en þá hafi hún talið sig vera án atvinnuréttinda hér á landi. Þegar kærandi hafi fengið dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið hafi ákvæði laga um útlendinga verið á þann veg að sækja hafi þurft sérstaklega um atvinnuleyfi. Kærandi hafi starfað hjá sama vinnuveitanda frá árinu 2019 og aldrei þurft að hugsa um neitt atvinnuleyfi. Kærandi hafi dvalið hér á landi á grundvelli makaleyfis frá árinu 2018 og eiginmaður hennar séð um endurnýjanir fram að andláti hans. Kærandi hafi því ekki skilið hvers vegna hún hafi fengið endurnýjun dvalarleyfis með athugasemd um að atvinnuþátttaka væri ekki heimil. Maki kæranda hafi fallið frá 21. mars 2022 en endurnýja hafi þurft dvalarleyfið í síðasta lagi í byrjun maí 2022. Kærandi hafi fengið dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið með gildistíma til 9. maí 2023. Með lögum nr. 14/2023 hafi verið gerðar breytingar á lögum atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002 og ekki lengur gerð krafa um að útlendingur í dvöl á grundvelli sérstakra tengsla við landið þyrfti að óska eftir atvinnuleyfi. Kærandi hafi aldrei verið upplýst um það og hafi ekki vitað af því. Kærandi hafi talið að hún væri ekki með atvinnuleyfi þar sem það var tekið fram á dvalarleyfiskorti hennar. Synjun umsóknar kæranda um endurnýjun dvalarleyfis hafi byggst á því að hún hafi ekki sannað næga framfærslu en hafi kærandi fengið atvinnu þegar vinnsla kæru hennar hefjist beri að hrinda ákvörðun Útlendingastofnunar í málinu og samþykkja umsókn hennar um endurnýjun dvalarleyfis. Kærandi vísar þá til þess að dóttir hennar hafi góðar tekjur og geti auðveldlega framfleytt móður sinni. Kærandi fái lífeyrissjóðsgreiðslur auk þess sem dóttir hennar hjálpi henni við framfærslu og því séu samanlagðar tekjur þeirra beggja meira en þreföld næg framfærsla einstaklings vegna dvalarleyfis og meira en tvöföld næg framfærsla hjóna. Kærandi vísar til 3. mgr. 102. gr., b-liðar 9. mgr. 70. gr., 1. mgr. 57.gr. og a-liðar 2. mgr. 58. gr. laga um útlendinga í þessu samhengi.
Kærandi telji að fara beri með mál hennar eins og framfærsla hafi ekki verið trygg um skamma hríð og veita megi dvalarleyfið þrátt fyrir það. Misskilningur hafi ollið því að kærandi hafi ekki mátt vinna en það hafi komið fram á dvalarleyfiskorti hennar. Skýringar á málinu hafi komið frá Útlendingastofnun 7. janúar 2026 og kærandi hafi því ekki getað farið fyrr í það að verða sér út um atvinnu og sýna fram á eigin framfærslu.
Kærandi telji brottvísun og endurkomubann vera bersýnilega ósanngjarna ráðstöfun í máli hennar. Kærandi hafi búið hér á landi í átta ár og hafi sterk tengsl við landið. Staða máls kæranda sé komin til vegna málefnalegs misskilnings um atvinnubann. Kærandi hafi fest djúpar rætur hér á landi og eigi dóttur sem geti ábyrgst trygga framfærslu hennar á meðan hún leiti sér að atvinnu. Kærandi telji að brottvísun hennar án þess að gefa henni kost á að koma máli sínu í rétt horf væri augljóslega ósanngjörn ráðstöfun gagnvart henni sem og gagnvart dóttur hennar.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 78. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi á grundvelli þess að hann teljist hafa sérstök tengsl við landið, að fullnægðum skilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. laganna, sé hann eldri en 18 ára og falli ekki undir ákvæði um önnur dvalarleyfi samkvæmt lögum þessum eða fullnægi ekki skilyrðum þeirra. Í 2. mgr. 78. gr. sömu laga kemur fram að til sérstakra tengsla geti m.a. talist tengsl sem útlendingur hefur stofnað til meðan á dvöl hans hér á landi hefur staðið samkvæmt útgefnu dvalarleyfi sem verður ekki endurnýjað eða hefur verið afturkallað vegna breyttra aðstæðna eða annarra atvika. Í 3. mgr. 78. gr. laganna er kveðið á um að heildstætt mat skuli fara fram á tengslum umsækjanda við landið. Við það mat skuli að jafnaði horft til lengdar lögmætrar dvalar. Jafnframt sé heimilt að líta til fjölskyldutengsla, þ.e. fjölskyldusamsetningar umsækjanda með tilliti til umönnunarsjónarmiða, sbr. a-lið 3. mgr. 78. gr. laga um útlendinga, og félagslegra og menningarlegra tengsla við landið á grundvelli atvinnuþátttöku eða annarra sambærilegra tengsla, sbr. b-lið 3. mgr. 78. gr. laganna. Þá má jafnframt ráða af 2. málsl. 5. mgr. 78. gr. laga um útlendinga að um fjölskyldutengsl fari samkvæmt VIII. kafla laga um útlendinga.
Í 55. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um grunnskilyrði dvalarleyfis. Samkvæmt 1. mgr. 55. gr. er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi í samræmi við ákvæði VI.-IX. kafla samkvæmt umsókn uppfylli hann skilyrði stafliða a-d ákvæðisins, en í a-lið kemur fram að framfærsla útlendings skv. 56. gr. og sjúkratrygging þurfi að vera örugg. Samkvæmt 1. mgr. 56. gr. laga um útlendinga þarf útlendingur sem er eldri en 18 ára og sækir um dvalarleyfi að sýna fram á að framfærsla hans sé trygg þann tíma sem hann sækir um að fá að dveljast hér á landi. Þá segir í 4. mgr. 56. gr. að ráðherra sé heimilt, í samráði við ráðherra sem fer með félagsmál, að setja í reglugerð nánari ákvæði um kröfu um trygga framfærslu, þ.m.t. um hvað teljist trygg framfærsla, hvernig framfærslu skuli háttað og í hvaða tilvikum heimilt sé að víkja frá þeim kröfum. Ráðherra hefur ekki útfært nánar í reglugerð hvað telst trygg framfærsla. Í úrskurðarframkvæmd kærunefndar, sbr. einkum úrskurði nr. 229/2018, dags. 12. júlí 2018, og nr. 122/2021, dags. 17. mars 2021, hefur nefndin lagt áherslu á að framfærsla einstaklings sé sjálfstæð eða frá einstaklingi sem beri lögbundna framfærsluskyldu gagnvart honum. Í framkvæmd hefur verið byggt á tekjum sem viðkomandi aflar af atvinnu eða fé sem hann fer með sannanleg yfirráð yfir, t.d. innstæðu á bankareikningi sem skráður er á nafn viðkomandi eða ef innstæða á reikningi á öðru nafni er tryggð viðkomandi með öruggum hætti.
Líkt og að framan greinir hefur ráðherra heimild til að setja í reglugerð nánari ákvæði um kröfu um trygga framfærslu, en hefur ekki nýtt þá heimild. Samkvæmt ákvæði 4. mgr. 56. gr. laga um útlendinga og skýringum við ákvæðið í frumvarpi til laganna er þar einkum átt við upphæðir og aðra hlutlæga mælikvarða við mat á tryggri framfærslu. Ákvæði laga um útlendinga sem fjalla um trygga og örugga framfærslu eru matskennd en í því felst að löggjafinn hefur eftirlátið stjórnvöldum sem annast framkvæmd laganna, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga, að leggja mat á aðstæður sem byggist á málefnalegum sjónarmiðum.
Krafa um trygga og örugga framfærslu er eitt grunnskilyrða dvalarleyfis samkvæmt lögum um útlendinga. Þeir hagsmunir sem búa að baki því skilyrði snúa bæði að einstaklingnum sjálfum og íslensku samfélagi. Er því ætlað að tryggja að útlendingur fái raunhæft tækifæri til að dvelja hér á landi til samræmis við skilyrði og tilgang dvalarleyfis, geti séð fyrir sér án þess að lenda í fjárhagsvandræðum, s.s. varðandi húsnæði og daglegar þarfir, sem og til að koma í veg fyrir að viðkomandi verði útsettur fyrir misneytingu vegna bágrar fjárhagsstöðu. Er þá horft til þess að dvalarleyfishafar búa að jafnaði við skertara öryggisnet en í heimaríki, s.s. varðandi aðstoð fjölskyldu, vina og aðgangs að félagslegu kerfi. Jafnframt er spornað við því að útlendingar sækist í ólögmæta atvinnu sem gæti gert þá útsetta fyrir mansali, kynbundnu ofbeldi og annarri nauðung.
Við mat á því hvort framfærsla teljist örugg og trygg skal leggja heildstætt mat á aðstæður útlendings hverju sinni. Við það mat þarf m.a. að skoða hvort fjárhæð framfærslu sé næg og hvort trúverðugt sé að sú framfærsla sem byggt er á verði aðgengileg kæranda á gildistíma þess dvalarleyfis sem sótt er um.
Hinn 15. ágúst 2018 fékk kærandi fyrst útgefið dvalarleyfi hér á landi og hefur frá þeim tíma endurnýjað dvalarleyfi sitt fjórum sinnum, það síðasta með gildistíma til 9. maí 2023. Hinn 18. janúar 2024 sótti kærandi um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið. Þegar metið er hvort umsækjendur um tímabundið dvalarleyfi hér á landi geti framfleytt sér á gildistíma dvalarleyfis hefur verið stuðst við framfærsluviðmið sveitarfélaga sem nemur 239.895 krónum á mánuði. Kærandi lagði fram gögn sem sýna fram á mánaðarlegar lífeyrisgreiðslur að upphæð 190.000 krónum yfir þriggja mánaða tímabil. Samkvæmt hinni kærðu ákvörðun lagði Útlendingastofnun til grundvallar að kærandi hefði ekki sýnt fram á að hún hefði atvinnu, ætti bankainnistæðu eða önnur gögn sem sýnt gætu fram á að hún væri fær um að framfleyta sér á meðan dvöl hennar stæði. Kærandi hafi verið á framfærslu sveitarfélaga um nokkurra ára skeið og því hafi framfærsla hennar ekki verið ótrygg um skamman tíma, sbr. 21. gr. reglugerðar um útlendinga.
Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 8. júní 2025, var kæranda veittur frestur til að leggja fram afrit af ráðningarsamningi til staðfestingar á atvinnu og reglulegum tekjum. Í svari kæranda, dags. 11. júní 2026, kom fram að kærandi væri ekki með atvinnu en erfitt hafi verið að fá starf um þessar mundir og atvinnuleysi hafi aukist, sérstaklega fyrir hana þar sem hún hafi ekki verið með atvinnu um nokkurt skeið. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 7. ágúst 2026, var kæranda veittur frestur til að leggja fram yfirlit yfir bankainnistæður, skráningu þess húsnæðis sem hún dveldi í auk upplýsinga um hver stæði undir rekstri húsnæðisins í því skyni að kanna hvort hún uppfyllti skilyrði um framfærslu. Engin frekari gögn bárust kærunefnd. Framlögð yfirlit yfir lífeyrisgreiðslur uppfylla ekki skilyrði um framfærsluviðmið og þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn, s.s. yfirlit yfir bankainnistæður, sem benda til þess að hún hafi yfir að ráða öðrum fjármunum til framfærslu eða að aðrar aðstæður kæranda s.s. vegna reksturs húsnæðis leiði til þess að framangreindar greiðslur verði taldar duga til framfærslu hennar. Kærandi hefur því ekki sýnt fram á að hún muni hafa aðgang að tryggri og öruggri framfærslu, samkvæmt lögum um útlendinga, á því tímabili sem dvalarleyfisumsóknin tekur til. Þá benda framlögð gögn ekki til þess að undanþáguákvæði 21. gr. reglugerðar um útlendinga eigi við í máli kæranda.
Í greinargerð vísar kærandi til þess að dóttir hennar hafi góðar tekjur og geti auðveldlega framfleytt henni. Kærandi fái lífeyrissjóðsgreiðslur auk þess sem dóttir hennar hjálpi henni við framfærslu og því séu samanlagðar tekjur þeirra beggja meira en þreföld næg framfærsla einstaklings vegna dvalarleyfis og meira en tvöföld næg framfærsla hjóna. Kærandi vísar til 3. mgr. 102. gr., b-liðar 9. mgr. 70. gr., 1. mgr. 57. gr. og a-liðar 2. mgr. 58. gr. laga um útlendinga í þessu samhengi.
Líkt og að framan er rakið þarf útlendingur að sýna fram á að hann geti framfleytt sér hér á landi með eigin framfærslu eða frá einstaklingi sem beri framfærsluskyldu gagnvart umsækjanda, svo sem tekjum sem viðkomandi aflar sjálfur eða fé sem hann fer með sannanleg yfirráð yfir, t.d. innstæðu á bankareikningi sem skráður er á nafn viðkomandi eða ef innstæða á reikningi á öðru nafni er tryggð viðkomandi með öruggum hætti. Samkvæmt framansögðu verður ekki litið svo á að tekjur dóttur kæranda geti talist trygg framfærsla kæranda enda ber hún ekki framfærsluskyldu gagnvart kæranda. Að öðru leyti liggja ekki fyrir gögn sem sýna fram á með fullnægjandi hætti að framfærsla hennar sé trygg fyrir þann tíma sem hún hyggst dvelja hérlendis. Er skilyrðum 55. og 56. gr. því ekki fullnægt og verður umsókn hennar um dvalarleyfi synjað af þeirri ástæðu. Að öllu framangreindu virtu verður staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um dvalarleyfi vegna sérstakra tengsla við landið, sbr. 1. mgr. 78. gr. laga um útlendinga.
V. Brottvísun og endurkomubann
Í 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, eins og ákvæðinu var breytt með lögum nr. 136/2022, segir að svo framarlega sem 102. gr. eigi ekki við skuli vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu. Líkt og þegar hefur verið rakið hefur synjun Útlendingastofnunar á umsókn kæranda um dvalarleyfi verið staðfest og hefur kærandi ekki heimild til dvalar hér á landi. Í hinni kærðu ákvörðun var kæranda brottvísað og gert að sæta tveggja ára endurkomubanni. Var skilyrðum 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga fullnægt þegar hin kærða ákvörðun var tekin og birt kæranda. Kæra frestaði framkvæmd ákvörðunar í samræmi við 1. mgr. 103. gr. laga um útlendinga.
Í 102. gr. laga um útlendinga er kveðið á um vernd gegn frávísun og brottvísun og takmarkanir á ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. skal brottvísun ekki ákveða ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 1. júlí 2024, var kæranda bent á framangreinda heimild til brottvísunar, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, og veittur frestur til að skila inn andmælum. Kærandi lagði ekki fram andmæli til Útlendingastofnunar. Samkvæmt gögnum málsins er dóttir kæranda búsett hér á landi. Kærandi er ekki með slík tengsl við Ísland, með vísan til framangreindrar umfjöllunar, að brottvísun hennar verði talin ósanngjörn ráðstöfun í skilningi ákvæðisins. Ákvörðun um brottvísun og endurkomubann kæranda er í samræmi við lög og er tilgangur hennar að framfylgja lögmætum markmiðum laga um útlendinga.
Með kæru til kærunefndar var réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar frestað, sbr. 1. mgr. 103. gr. laga um útlendinga. Kæranda var veittur sjö daga frestur frá birtingu ákvörðunar til þess að yfirgefa landið sjálfviljug, en innan þess tímafrests yrði endurkomubann hennar fellt niður, sbr. 1. málsl. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Kærandi nýtur því sjö daga frests til sjálfviljugrar heimfarar frá móttöku úrskurðar kærunefndar en innan þess frests verður endurkomubann hennar fellt niður. Yfirgefi kærandi ekki landið innan framangreinds frests mun endurkomubann að óbreyttu hefjast þann dag sem hún er færð úr landi, sbr. 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Að teknu tilliti til úrskurðarframkvæmdar kærunefndar í sambærilegum málum telur kærunefnd hæfilegt að endurkomubann verði til tveggja ára. Því er ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann kæranda staðfest.
VI. Samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á umsókn kæranda um dvalarleyfi er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Jóna Aðalheiður Pálmadóttir