7. september 2026 /

Úrskurður nr. 389/2026

Hinn 7. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 389/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU26070123

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 29. júlí 2026 barst kærunefnd útlendingamála kæra á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn stúlku sem kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Palestínu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og brottvísa henni frá landinu. Var kæranda gert að yfirgefa landið innan 15 daga ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kæranda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun og endurkomubanni séu uppfyllt. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.

Kærandi gerir kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hennar verði tekin til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga. Til vara er gerð sú krafa að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að máli hennar verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi hvað varði brottvísun og endurkomubann.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 5. mars 2026. Samkvæmt framburði kæranda á móttökumiðstöð á Egilsgötu hafi hún yfirgefið heimaríki fyrir stríðið á Gaza og farið ásamt móður sinni og systkinum til Ísrael og þaðan til Tyrklands þar sem þau hafi dvalið saman um tíma. Þá hafi faðir hennar og tveir bræður komið nokkrum mánuðum síðar til Tyrklands. Kærandi greindi frá því að fjölskylda hennar sé búsett í Tyrklandi sem stendur.

Kærandi kom ein hingað til lands en hefur verið í umsjá ættingja sinna hér á landi og hefur barnaverndarþjónustu Suðurnesjabæjar farið með umsjá hennar. Kærandi kom til viðtals hjá Barnahúsi 15. apríl 2026, ásamt löglærðum talsmanni sínum og fulltrúa barnaverndarþjónustu Suðurnesjabæjar. Kærandi greindi frá því að hafa yfirgefið heimaríki, farið til Egyptalands og þaðan til Tyrklands þar sem fjárhagsstaða fjölskyldunnar hafi ekki verið góð. Kærandi kvaðst hafa búið við erfiðar aðstæður í Tyrklandi. Kærandi kvað foreldra sína ekki hafa verið með atvinnu í Tyrklandi og að mikið sé um fordóma þar í landi. Fjölskyldan hafi búið hjá frænku hennar sem hafi séð þeim fyrir mat. Kærandi kvað föður sinn ekki vera við góða heilsu en hann hafi slasast á fæti og eigi erfitt með gang. Kærandi hafi gengið í skóla í Tyrklandi en upplifað stríðni og verið niðurlægð, m.a. vegna þjóðernis hennar. Kærandi hefur síðar dregið framburð sinn til baka og kvaðst ekki hafa gengið í skóla. Eftir dvölina í Tyrklandi hafi kærandi ásamt fjölskyldu sinni farið til Grikklands. Kærandi hafi orðið viðskila við fjölskyldu sína við komuna til Grikklands og fjölskylda hennar verið send aftur til Tyrklands við landamærin. Kærandi hafi dvalið í flóttamannabúðum með vinkonu móður sinnar. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærandi farið frá Tyrklandi til Grikklands 8. júní 2024, lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd þar í landi 11. júní 2024 og verið veitt réttarstaða flóttamanns 19. júlí 2024 auk dvalarleyfis með gildistíma til 18. júlí 2027. Kærandi hafi þaðan farið aftur til Egyptalands með vinum móður sinnar 13. janúar 2025, þar sem hún hafi ekki getað verið ein í Grikklandi og dvalið þar í landi í eitt ár að eigin sögn. Samkvæmt stimplum í vegabréfi kæranda er auk framangreinds að finna útstimpil frá Belgíu 20. febrúar 2025 en í gögnum frá grískum útlendingayfirvöldum sem eru meðal gagna málsins kemur fram að belgísk útlendingayfirvöld hafi óskað eftir upplýsingum um vinkonu móður kæranda sem hafi fylgt kæranda til Grikklands. Kærandi hafi í Egyptalandi dvalið hjá fjarskyldum ættingjum og vinum ættingja. Þaðan hafi kærandi farið til Íslands þar sem hún eigi marga ættingja hér á landi. Móðursystir kæranda hafi greitt fyrir hana flugmiða frá Egyptalandi hingað til lands með millilendingu í Róm og hún hafi ferðast ein hingað til lands 21. febrúar 2026. Kærandi kvaðst vera í daglegum samskiptum við foreldra sína og vonast til að sameinast þeim. Kærandi sé búsett hjá frændfólki sínu hér á landi og líði vel. Kærandi kvaðst vera við góða heilsu en samkvæmt gögnum málsins er kærandi bæði ólæs og óskrifandi.

Útlendingastofnun ákvað 22. júlí 2026 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að henni skyldi brottvísað frá landinu. Útlendingastofnun taldi að kærandi hefði slík tengsl við Tyrkland að eðlilegt og sanngjarnt væri að hún dveldi þar, ferðaðist eða yrði flutt þangað, sbr. d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að 42. gr. laga um útlendinga kæmi ekki í veg fyrir að kærandi yrði send til Tyrklands.

Ákvörðunin var birt fyrir kæranda sama dag og var kærð til kærunefndar 29. júlí 2026. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 29. júlí 2026 ásamt fylgigögnum. Frekari gögn bárust 18. og 19. ágúst 2026. Með kæru lagði kærandi fram beiðni um frestun réttaráhrifa hinnar kærðu ákvörðunar á meðan málið væri til meðferðar hjá kærunefnd, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga.

3 Greinargerð til kærunefndar

Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð kæranda eru málsatvik reifuð í samræmi við framangreinda umfjöllun. Kærandi hafi verið í ólögmætri dvöl þau tvö ár sem hún hafi dvalið í Tyrklandi. Kærandi hafi ekki getað gengið í skóla eða sótt sér heilbrigðisþjónustu og hvorki upplifað öryggi né frið. Þá dvelji fjölskylda hennar í Tyrklandi án dvalarheimildar í ótryggu húsnæði. Þau treysti á ölmusu ókunnugra fyrir mat, m.a. þar sem faðir kæranda geti ekki aflað tekna vegna áverka á fæti sem hann hafi hlotið.

Kærandi gerir athugasemd við samantekt Útlendingastofnunar á viðtali sem tekið hafi verið við hana í Barnahúsi. Kærandi hafi aldrei gengið í skóla í Tyrklandi þau tæpu tvö ár sem hún hafi dvalið þar í landi og ekki haft aðgang að heilbrigðiskerfinu. Kærandi kunni hvorki að lesa né skrifa. Kærandi hafi aðeins greint frá því að hún hafi gengið í skóla í Tyrklandi þar sem hún hafi talið það vera svarið sem Útlendingastofnun hafi viljað heyra. Þá telur kærandi að hún hafi sannað auðkenni sitt með framlagningu frumrits grísks ferðaskilríkis og afriti af palestínsku vegabréfi sínu. Kærandi gerir athugasemd við að engin greining á andlegri líðan, þroska eða stöðu m.t.t. skorts á menntun, hafi farið fram en hún hafi verið á vergangi frá árinu 2024. Kærandi vísar til 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga í þessu samhengi. Kærandi vísar til þess að nauðsynlegt hafi verið fyrir Útlendingastofnun að gæta að frumkvæðisskyldu sinni sem og rannsóknarskyldu í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Stofnuninni hafi borið að tryggja að öll nauðsynleg gögn og vottorð hafi legið fyrir svo meta mætti stöðu hennar og hagsmuni. Þrátt fyrir að kærandi hafi verið metin í sérstaklega viðkvæmri stöðu leysi það ekki Útlendingastofnun undan þeirri skyldu að upplýsa mál hennar til fulls. Kærandi telji að ekki sé hægt að fullyrða án frekari rannsóknar að það sé henni fyrir bestu að sameinast fjölskyldu sinni og því séu annmarkar á málsmeðferð Útlendingastofnunar hvað varði viðkvæma stöðu hennar. Þá vísar kærandi til meginreglunnar um að það sem barni sé fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang, sbr. m.a. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þá vísar kærandi til þess að ávallt skuli framkvæma sérstakt hagsmunamat þegar mál varði barn en slíkt mat hafi ekki farið fram hjá Útlendingastofnun. Þá vísar kærandi til þess að eining fjölskyldunnar geti aldrei gengið framar hagsmununum barnsins. Ekkert eiginlegt mat hafi farið fram á stöðu kæranda hér á landi eða persónulegri stöðu hennar. Þá sé hægt að tryggja einingu fjölskyldunnar hér á landi. Mikilvægt sé að kærandi búi við aðstæður sem geri henni kleift að fá umönnun og öryggi sem hún þarfnist og eigi rétt á. Kærandi hafi um langa hríð verið á flótta og hafi lýst yfir ótta við að snúa aftur til Tyrklands sem og einlægum vilja til að dvelja hér á landi. Brýnt sé fyrir andlega og líkamlega heilsu hennar að alast upp í umhverfi sem geti uppfyllt þarfir hennar, öryggi, velferð og félagslegan þroska. Kærandi vísar til þess að ekki hafi verið haft samband við barnavernd í Tyrklandi eða lagaleg staða fjölskyldu kæranda rannsökuð þar í landi. Þá gagnrýnir kærandi að umsögn Barna- og fjölskyldustofu liggi ekki fyrir í máli hennar og Útlendingastofnun hafi borið að ítreka beiðni um umsögn en ekki draga hana til baka.

Kærandi krefst þess aðallega að umsókn hennar um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar á grundvelli 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji að Tyrkland geti ekki talist hennar griðland en hún hafi ekki slík tengsl þar í landi að eðlilegt og sanngjarnt sé að senda hana þangað þrátt fyrir að fjölskylda hennar sé búsett þar í landi. Kærandi hafi ekki upplifað sig örugga í Tyrklandi og þroska hennar og velferð væri stefnt í hættu með endursendingu þangað. Fjölskylda kæranda hafi látið það átölulaust að hún dvelji árum saman í óöryggi ein á flakki um mismunandi ríki án forsjáraðila sinna. Þó að kærandi hafi greint frá því að sakna foreldra sinna, geti tengsl hennar við Tyrkland ekki uppfyllt skilyrði d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji að hún geti ekki ferðast án lögformlegra hindrana til endursendingarríkis og slíkur flutningur geti ekki talist sanngjarn og eðlilegur í ljósi persónulegrar stöðu hennar og hagsmuna. Líklegt sé að tyrknesk stjórnvöld veiti kæranda ekki vegabréfsáritun í þeim tilgangi að leggja fram alþjóðlega vernd. Kærandi sé ekki með dvalarleyfi í Tyrklandi og verið í ólögmætri dvöl í landinu. Kærandi hafi ekki getað gengið í skóla eða verið með aðgang að heilbrigðisþjónustu. Þá hafi kærandi upplifað fordóma og aðkast þar í landi. Kærandi vísar til þess að mikið álag sé á flóttamannakerfinu í Tyrklandi og hætta sé á að hún fái ekki þá þjónustu sem hún eigi rétt á. Kærandi vísar til alþjóðlegrar skýrslu um aðgang ríkisborgara Palestínu að flóttamannakerfinu í Tyrklandi en erfitt geti reynst að sækja um alþjóðlega vernd þar í landi og verða sér úti um grunnþjónustu. Þá vísar kærandi til grundvallarreglunnar um bann við endursendingu (non-refoulement), sbr. 3. mgr. 36. gr. og 42. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji að endursending til Tyrklands feli í sér hættu á að hún verði fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994.

Til vara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hennar til meðferðar að nýju. Kærandi telji að annmarkar séu á rannsókn á stöðu og högum hennar hér á landi og í Tyrklandi. Kærandi sé fylgdarlaus stúlka og ekki liggi fyrir hvernig hún eigi að komast til Tyrklands. Nauðsynlegt sé að tryggja kæranda vandaða málsmeðferð á tveimur stjórnsýslustigum en kærandi telji að ekki verði bætt úr framangreindum annmörkum á kærustigi.

Til þrautavara krefst kærandi þess að henni verði ekki gert að sæta brottvísun og endurkomubanni. Kærandi telji það ganga gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og réttmætisreglu íslensks stjórnsýsluréttar. Með hliðsjón af því að kærandi sé fylgdarlaust barn, hafi ekki ráðið ferðalagi sínu til Íslands, hafi dvalarleyfi í Grikklandi og eigi fjölmarga ættingja á Íslandi sé ósanngjarnt að ákveða henni brottvísun og endurkomubann. Endurkomubann gæti haft áhrif á möguleika hennar til að ferðast til Grikklands.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra gagna og upplýsinga. Þá mælir 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga fyrir um að Útlendingastofnun skuli afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga við meðferð mála. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Kröfur til rannsóknar í hverju máli ráðast af lagagrundvelli málsins og einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda, þ.m.t. þeim málsástæðum sem hann ber fyrir sig.

Í málatilbúnaði kæranda kemur fram að hún geti ekki ferðast án lögformlegra hindrana til endursendingarríkis og slíkur flutningur geti ekki talist sanngjarn og eðlilegur í ljósi persónulegrar stöðu hennar og hagsmuna. Líklegt sé að tyrknesk stjórnvöld veiti kæranda ekki vegabréfsáritun í þeim tilgangi að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd. Kærandi sé ekki með dvalarleyfi í Tyrklandi og hafi verið í ólögmætri dvöl í landinu.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að foreldrar kæranda séu búsett í Tyrklandi ásamt systkinum hennar. Með því að fara til Tyrklands eigi kærandi kost á því að sameinast nánustu fjölskyldu sinni og alast upp í umsjá foreldra sinna og í samvistum við systkini sín. Almennt verði að telja að það samræmist bestu hagsmunum barns að alast upp hjá foreldrum sínum, enda séu engar upplýsingar fyrir hendi sem gefi tilefni til annarrar niðurstöðu. Jafnframt liggi fyrir að kærandi hafi í Tyrklandi átt kost á skólagöngu og menntun. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að Útlendingastofnun hafi skoðað frekar stöðu kæranda og fjölskyldu hennar í Tyrklandi og á hvaða grundvelli þau dveljist þar í landi. Aðeins er lagt til grundvallar að fjölskyldan sé búsett þar og virðist það eingöngu byggt á frásögn kæranda og upplýsingum úr samtölum fulltrúa barnaverndar við fjölskyldu hennar í tveimur símtölum. Þrátt fyrir að fallast megi á það með Útlendingastofnun að best væri fyrir kæranda að sameinast fjölskyldu sinni og að fræðilega sé ekkert sem standi því í vegi að kærandi geti óskað eftir alþjóðlegri vernd þar í landi og fengið þar málsmeðferð á umsókn sinni sem sé í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar liggur þó ekkert fyrir í gögnum málsins hvort kærandi hafi möguleika á að fá inngöngu inn í landið. Ljóst er af heimildum um Tyrkland að landið taki strangt á ólöglegum innflytjendum og hafi síðust ár hert reglur um aðgang að landinu sem og reglur um það hvar heimilt er að leggja inn umsóknir um alþjóðlega vernd í landinu. Kærandi er ekki með vegabréf sitt undir höndum og liggur því ekkert fyrir um það hvort hún hafi gilda áritun eða heimild til inngöngu inn í Tyrkland.

Gera verður ríkari kröfur til rannsóknar stjórnvalda þegar um er að ræða fylgdarlaus börn og er þá ekki nóg að leggja til grundvallar að fjölskylda þeirra sé staðsett í ákveðnu landi heldur verður að skoða möguleika barns á sameiningu við fjölskyldu sem og fýsileika þess, þ.e. hvort það þjóni bestu hagsmunum barnsins í raun að sameinast fjölskyldu sinni þar sem hún er staðsett. Felst það m.a. í því að rannsaka vel stöðu fjölskyldunnar og möguleika barnsins á fjölskyldusameiningu. Er það mat kærunefndar að rannsókn Útlendingastofnunar hvað þetta varðar hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga eða 10. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi með réttarstöðu flóttamanns í Grikklandi og dvalarleyfi þar í landi með gildistíma til 18. júlí 2027. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er eingöngu byggt á d-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga en ekki metið hvort að hagsmunum kæranda kunni að vera betur borgið að fara til Grikklands þar sem hún hefur sem handhafi alþjóðlegrar verndar möguleika á fjölskyldusameiningu. Hefði verið fullt tilefni til þess af hálfu stofnunarinnar að rannsaka og taka afstöðu til þess hvort að a-liður 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ætti við í máli kæranda.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Eins og að framan greinir voru annmarkar á rannsókn Útlendingastofnunar í máli kæranda. Ekki er unnt að bæta úr þeim annmörkum á kærustigi og því rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að fella beri hina kærðu ákvörðun úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til nýrrar meðferðar. Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er að mati kærunefndar ekki tilefni til umfjöllunar um aðrar málsástæður kæranda.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.

Jóna Aðalheiður Pálmadóttir

Vera Dögg Guðmundsdóttir