Félags- og fjölskyldumál, Dómsmálaráðuneytið, Ættleiðingar, Málefni barna
Ættleiðingar
Haraldur Jónasson / Hari
Dómsmálaráðuneytið
Ættleiðingar
Ættleiðing er leið til að tryggja barni, sem ekki á fjölskyldu sem getur annast það, möguleika á að fá að alast upp hjá fjölskyldu sem hefur aðstæður til að búa því gott atlæti í samræmi við þarfir barnsins. Ættleiðing er örlagaríkur gerningur sem skiptir sköpum í lífi einstaklinga sem í hlut eiga. Lagastaða einstaklings er ákveðin til frambúðar með fjölskylduskiptum, oft nýju heimili og uppeldisumhverfi og stundum í nýju þjóðfélagi