09. júl. 2026Atvinnuvegaráðuneytið, Covid-19, Framkvæmd búvörusamninga, Landbúnaður, Atvinnuvegir
Aðgerðaáætlun til eflingar íslensks landbúnaðar kynnt
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í morgun tímasetta aðgerðaáætlun í 12 liðum til eflingar íslensks landbúnaðar. Aðgerðunum er ætlað að styrkja stoðir íslensks landbúnaðar í ljósi þeirra beinu og óbeinu áhrifa sem COVID-19 hefur haft á greinina. Tilgangur aðgerðanna er að skapa öfluga viðspyrnu fyrir íslenskan landbúnað og auðvelda honum að nýta tækifæri framtíðarinnar.