02. des. 2020Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar, Úrskurðir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
334/2020
Endurhæfingarlífeyrir. Staðfest ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja kæranda um endurhæfingarlífeyri. Úrskurðarnefndin féllst hvorki á þá málsástæðu kæranda að Tryggingastofnun hefði brotið gegn rannsóknarskyldu sinni gagnvart kæranda, né var fallist á að Tryggingastofnun hefði brotið þannig gegn leiðbeiningarskyldu sinni gagnvart kæranda að tilefni væri til þess að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.