26. nóv. 2019Dómsmálaráðuneytið, Almannaöryggi
Alþjóðleg ráðstefna um kynferðisbrot gegn börnum á netinu
Alþjóðleg ráðstefna um kynferðisbrot gegn börnum á netinu fer fram í Háskólanum í Reykjavík, V101, 5. og 6. desember næstkomandi. Fyrirlesarar hafa allir sérþekkingu á málaflokknum innan lögreglunnar, ákæruvaldsins og í fræðasamfélaginu.