16. okt. 2019Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar, Úrskurðir, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Nr. 280/2019 - Úrskurður
Ofgreiddar bætur.
Staðfest ákvörðun um endurreikning og uppgjör Tryggingastofnunar ríkisins á tekjutengdum bótum ársins 2018. Ekki fallist á að Tryggingastofnun bæri einungis að líta til tekna þeirra mánaða sem kærandi fékk greiddar bætur við endurreikning og uppgjör, enda skal leggja 1/12 af áætluðum tekjum til grundvallar bótaútreikningi hvers mánaðar og bótagreiðsluár er almanaksár, sbr. 5. mgr. 16. gr. laga um almannatryggingar.