11. mar. 2019Skipulagsmál, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ráðherra heimsótti Mannvirkjastofnun
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, heimsótti Mannvirkjastofnun síðastliðinn föstudag, en stofnunin var flutt frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu yfir til félagsmálaráðuneytisins um áramót. Starfsmenn hennar og stjórnendur tóku vel á móti ráðherra og kynntu honum starfsemi og meginhlutverk stofnunarinnar.